Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Síða 3
DV LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
lar
33
Bati hjá Saab eftir mögru árin
Opel reisir nýja verksmiðju í Riisselsheim
- óvenjulegt að ný verksmiðja rísi á sama stað og sú gamla
Saab er nú sem óðast að rísa úr
öskustónni aftur eftir mögur ár sem
leiddu til þess að bílaframleiðslan
var seld General Motors. Batinn
hófst á síðari hluta árs 1998 og hélt
áfram næsta ár, 1999, með 11% sölu-
aukningu miðað við söluna 1998.
Alls voru seldir 118.581 Saab-bilar í
fyrra.
Mikilvægustu markaðir Saab eru
Bandaríkin, Svíþjóð og Bretland en
söluaukningin i fyrra varð i pró-
sentum mest í Bretlandi, 41%. Þá
kom Svíþjóð með 35% aukningu, en
aukningin varð „aðeins“ 29% í
Bandaríkjunum. Norðmenn keyptu
23% fleiri Saaba í fyrra en árið þar
áður.
Það sem dregur þessar fallegu
sölutölur niður eru mörg markaðs-
svæði með innan við 10% aukn-
ingu, en þó allra helst ástralski
Saab 9-3 - í heiidarsölutölum hefur hann vinninginn yfir stóra bróður, Saab 9-5.
markaðurinn þar sem salan fór nið-
ur um 11%. Það er að vísu ekkert
einsdæmi með Saab heldur á það al-
mennt við um sölu nýrra bíla í
Ástralíu. Ástæðan: 1. júlí í ár taka
gildi nýjar tollareglur í Ástralíu
sem eiga að lækka verð nýrra bíla
um 6-7% og þess vegna hafa margir
tilvonandi bílakaupendur í þeirri
heimsálfu setið á sér um bílakaup
þessa mánuðina.
-SHH
í vikunni var lagður homsteinn
að nýrri verksmiðju Opel í Rússels-
heim í Þýskalandi, miili Frankfurt
am Main og Mainz, þar sem Evr-
ópumiðstöð Opel hefur um langan
aldur verið til húsa. Margt stór-
menna var viðstatt þennan viðburð,
m.a. Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, Roland Koch forsætis-
ráðherra Hesse, Stefan Gieltowski,
borgarstjóri Rússelsheim, Robert
W. Hendry, aðaiforstjóri Adam Opel
AG, og Michael J. Wolf, verksmiðju-
stjóri Opel í Rússelsheim.
Þessi nýja verksmiðja þykir
áhugaverð í fyrsta lagi fyrir það að
óvenjulegt er að bílaframleiðendur
hafi vilja og svigrúm til að reisa
nýja og stóra verksmiðju þar sem
aðalstöðvamar voru fyrir. í annan
stað er þetta upphafið að gríðarlega
fjárfreku verki. Kostnaðaráætlun er
upp á 820 milljónir þýskra marka -
nærri 6 biiljónir íslenskra króna, en
það er stærsti einstaki þátturinn í
áætlaðri fjárfestingu i Þýskalandi
sem spáð er að verði 9 billjónir
marka - 333 biiljónir íslenskra
króna - næstu fjögur árin.
Áætlað er að nýja verksmiðjan
muni skila 270 þúsund Vectra- og
n ZusíntmtnbaU'
btríkh
■ Komponínltn-
bcrtich
f Enlwieklungs-
btrtich
Sundort
□ ftti
e
Endzusiand neues Werk Russelsheim |
Yfirlit yfir athafnasvæði Opel í Rússelsheim á bökkum Main. Rauðu húsin tákna nýbygg-
ingarnar sem eiga að vera fullgerðar árið 2005.
Omega-fólksbílum á
sameiginlegu færi-
bandi þar sem unnið
verður á þrískiptum
vöktum. Uppsetningin
byggist á reynslu Opel
frá verksmiðjunni í
Eisenach þannig að
samsetningarferlið
verði sem sveigjanleg-
ast. Um 6000 manns
verða að störfum i
verksmiðjunni í
Rússelsheim þegar allt
er komið heim og sam-
an. Framleiðslu- og
samsetningarskálarn-
ir eiga að vera komnir
undir þak í september
í haust og fyrstu bíl-
amir eiga að koma út
úr nýju verksmiðunni
þegar árið 2002, þó að
heildarverkinu verði
ekki lokið fyrr en 2005.
Gamla verksmiðjan
verður í notkun þar til
sú nýja getur að fullu
tekið við hlutverki
hennar. -SHH
Ný námskrá til B-réttinda
- æfingarsvæði vantar
Eins og sjá má er mikið pláss notað þarna undir stæöi sem aðeins eru notuð þegar eitthvað stendur til.
Út er komin í samvinnu Umferð-
arráðs, dómsmálaráðuneytis og
ökukennarafélagsins fyrsta heildar-
námskrá til B-réttinda eða hins al-
menna bílprófs á mannamáli. Út-
gáfa hennar var orðin löngu tíma-
bær enda hefur eftirlit með gæðum
í ökukennslu verið lítið. Með þess-
ari nýju námskrá, sem tekur á öllu
því eftii sem ökuneminn þarf að
læra, bæði í ökuskóla og hjá öku-
kennara, verður auðveldara að
halda uppi gæðum í kennslu. í
námskránni eru líka í fyrsta skipti
talað um áætlaðan námstíma nem-
anda í akstri og er þar miðað við
16-24 tíma þannig að meðaltal tíma
verður um 20. í henni er líka fjallað
um verklegar æfingar, bæði í
kennslu og prófi, og þá vaknar
spurningin hvar aðstaðan sé til
þeirra athafna.
Ný bílastæði við Laug-
ardalsvöll
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa verktakar unnið við að klára
að malbika bílastæði við Laugar-
dalsvöll þar sem áður voru malar-
brekkur, varla nothæfar sem slík.
Bygging stæðanna leysir að miklu
leyti þann vanda sem oft vill skap-
ast við íþróttakappleiki á þessum
stað, auk þess að vera varastæði fyr-
ir Laugardalshöll þegar stórar sýn-
ingar standa þar yfir. Þar fyrir
utan, á virkum dögum, mun þetta
mikla mannvirki standa autt að
mestu leyti. Á sama tíma á stofnun
í næsta nágrenni í mestu vandræð-
um með svæði til að æfa fyrir próf,
nefnilega Umferðarráð. Til skamms
tíma voru menn þar vel settir með
þá iðju, eða þar til gamla Þróttar-
svæðið var lagt undir nýbyggingar.
Það er aðallega meirapróf, eftir-
vagnapróf og mótorhjólapróf sem
þarf pláss fyrir verklegar æfingar
og með nýju námskránni bætast
fólksbílarnir líka við.
Á þessum nýju bílastæðum hefði
með litlum aukakostnaði mátt út-
búa svæðið á þann veg að hægt
væri að halda þessi próf þarna.
Skipulagsbreytingamar hefðu í
raun og veru orðið sáralitlar, stæð-
ið hefði þurft að vera samfellt í stað
þess að vera hólfað niður með kant-
steinum, auk þess sem gera hefði
þurft smábreytingar á flóðlýsingu.
Þar með hefðu menn getað slegið
tvær flugur í einu höggi og komið
með varanlega lausn á þessum
vanda. Erlendis er mun betur búið
að þessum þáttum og jafnvel þyggð
sérstök svæði undir próf af þessu
tagi eða notuð svæði sem einnig eru
notuð til almennrar kennslu.
-NG
Bílabúð
Rabba
pantar líka
Eigendur Chrysler/Jeep-bíla
eru síður en svo á flæðiskeri
staddir þó ekkert umboð sé á ís-
landi fyrir bíla þeirra sem stend-
ur. Um síðustu helgi sögðum við
frá fréttatilkynningu sem DV-bíl-
um hafði borist frá Bíljöfri og
Bilabúðinni H. Jónssyni um að
þau tvö fyrirtæki væru þess albú-
in að þjóna Chryslereigendum
með viðgerðir og varahluti. I kjöl-
farið hafa DV-bílar fengið tilkynn-
ingu frá Bílabúð Rabba þar sem
segir að Bílabúð Rabba hafi ann-
ast, allt frá 1969, „innflutning á
nýjum, notuðum og eftirmarkaðs-
hlutum í alla ameriska bíla, þar
með talda Chrysler. Við tökum
tvær til þrjár flugsendingar frá
New York á viku, eingöngu með
sérpöntunum. Afgreiðslufrestur á
„orginal“-hlutum er því yfirleitt
tveir til þrír dagar (eftir lager-
stöðu á austurströnd Bandaríkj-
anna) og á eftirmarkaðshlutum
getur afgreiðslufrestur orðið 24
tímar. Verð á varahlutum hjá
okkur er með því besta sem gerist
á landinu og í öllum tilfellum
samkeppnishæft.
BUabúð Rabba sérpantar líka í
evrópska og asíska bUa en þaðan
er meðalafgreiðslufrestur í kring-
um viku.
Það er mjög sennilegt að við
höfum hvað mesta reynslu af sér-
pöntunum vlðs vegar úr heimin-
um og erum llklega stærsti sér-
pöntunaraðUi landsins."
-SHH
Honda Civic 1,5 LSi,3 d. 1994,
hvítur, ek. 61 þ. 760.000
Nissan Terrano II, 5 g. 1995,
rauður, ek. 98 þ. 1.490.000
Honda Acconl coupð, VO, 2d. ‘98 3 þ. 3.540 8-
Honda Accord EX 2,0,5 g., *d.‘87 190 þ. 280 8.
HondaCMc1.5LSI.5g., 3 d. ‘98 48 b. 1.270 8.
Honda Clvlc 1,5 LSI *d. ‘88 2*8. U508-
Honda CMc AeroDeck 5d.‘88 23p. 1.680 8.
Honda Clvic LSI 5b., 5 d. '88 22 þ. 1.5708.
Honda Clvlc AeroDeck, 5 d.'08 18 p. 1.580 8.
Honda CR-V RVI, ssk., 5 d. '08 65 p. 1.850 8.
HondaClwic1.3DX.5g., 3d. '90 130p. 380 8.
i £ i S 5 d. '91 153 8. 880 8.
MNIC Carisma GDI, ssk., 5d.'88 528. 1.500 8.
MMC Lancer GLX, 5 g., 5d.’97 48 8. 1.05011.
MMC Pajero disli, ssk., 5 tí. '97 84 D- 2.4508.
MMC Lancer GL 5 0-. 4d. '93 1158. 5808.
MMC Lancer sL, 4x4, 5d. '83 888. 788 8.
MMC Spacewagon, ssk., 5d.'83 137 8. 880 8.
Suzuki Vllara VS. ssk., 5d.'86 45 8. 1.880 8.
Suzukl Vltara JLX, 5 g., 5d.'86 538. 1.250 8.
Toyoio Corolla ssk., 4d.'88 568. 850 8.
Toyota Corolla ssk,. 4 d. '82 117 8. 730 8.
Toyoia Corolla ssk., 4d. '88 6 8. 1.250 8.
Toyola Corolla GL 5 g., 4 d. '82 113 8. 670 8.
Volvo S40 ssk., 4d.'86 21 8- 1.820 8.
VW Golf Manhatlan 2,0, 5 d. '88 41 8. 1.280 8.
VijHONDA
NOTAÐIR BÍLAR
Vatnagörðum 24
Sími 520 1100