Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
5
Fréttir
Norsk mor til fíre bliver
udvist fra Danmark
VOOKLAKD-FJtKQLLAKD'.I)ri iknlic v«rdp«l(. nnti l>Ut laklisk ski.il
Skuldir Borgarbyggöar:
190 þúsund krónur á íbúa
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyr-
ir árið 2000 var samþykkt á fundi bæj-
arstjórnar. Hún gerir ráð fyrir að
skatttekjur nemi 460 milljónum króna
á árinu, sem er um 7% hækkun milli
ára. Þjónustutekjur eru áætlaðar um
120 milljónir króna. Rekstrarkostnað-
ur bæjarsjóðs að frádregnum þjón-
ustutekjum nemur 414 milljónum
króna. Þar af eru 204 milljónir króna
ætlaðar til skóla- og fræðslumála, en
það er stærsti málaflokkurinn. Til
reksturs félagsþjónustu eru áætlaðar
66 milljónir lu-óna og til íþrótta-,
æskulýðs- og tómstundamála eru
áætlaðar um 40 milljónir króna. Fjár-
festingar og framkvæmdir bæjarsjóðs
eru áætlaðar um 100 miOjónir króna.
Tæplega helmingur fer til gatnagerð-
ar. Gert er ráð fyrir að verja um 25
miOjónum króna til framkvæmda og
hönnunar við grunnskólann í Borgar-
nesi. Áformað er að einsetja skólann
fyrir haustið 2001. Fjárfestingum
fylgja nýjar lántökur upp á 85 miOj-
ónir króna en afborganir eldri lána
nema um 35 miOjónum. Skuldaaukn-
ing bæjarsjóðs verður því um 50 miOj-
ónir króna. Skuldir bæjarsjóðs á íbúa
verður um 190 þús. í árslok. -DVÓ
Sólarpönnukökugerð hjá Kvenfélagi Ólafsvfkur. Á myndinni eru Jó-
hanna Scheving, Unnur Óladóttir, Margrét Jónasdóttir formaður og
Alda Vilhjálmsdóttir.
DV-mynd PSJ
Ólafsvík:
Fimmtán hund-
ruð pönnukökur
Þaö var mikið um að vera hjá
kvenfélagskonum í Ólafsvík í sl.
viku. Þá risu þær úr rekkju fyrir
aOar aldir og fóru að baka pönnu-
kökur í tUefni af því að sólin var
komin á Snoppuna. Þær fyrstu
fóru að baka kl. fjögur um morg-
uninn þar sem búið var að selja
pönnukökur sem neyta átti með
morgunkafFmu. Kvenfélagskonur,
en aOs tóku 57 konur þátt í bakstr-
inum, höfðu þann háttinn á að far-
ið var I söluherferð nokkrum dög-
um áður og farið í öll fyrirtæki í
Ólafsvík og víðar og teknar niður
pantanir. Árangurinn af því var
sá að aOs seldust um 1500 stk. Þeg-
ar búið var að baka var eftir að
skipta pönsunum i tvo flokka, þ.e.
með sykri og rjóma og síðan voru
þær allar keyrðar út tO kaupenda.
Að sögn Margrétar Jónasdóttur,
formanns Kvenfélags Ólafsvikur,
er þetta árlegur siður hjá félaginu
og góð fjáröflun fyrir félagið og
síðast en ekki síst voru þetta frá-
bærar pönnukökur. Auk Margrét-
ar í stjórn Kvenfélagsins eru þær
Guðrún Karlsdóttir ritari og Krist-
ín Vigfúsdóttir gjaldkeri. Þá er í
fyrirhugað í mars nk. að konurnar
komi saman og baki kleinur og
ekki eru þær síður vinsælar. Allur
ágóðinn fer til góðgerðar- og
menningarmála en þær kvenfé-
lagskonur hafa í gegnum tíðina
ávallt hugsað m.a. vel um Ólafs-
víkurkirkju. -PSJ
Vantrauststillaga kennara Iönskólans í Reykjavík:
Veldur mér vonbrigðum
- segir formaður stýrihóps menntamálaráöherra
Danir rétta íslending-
um hiklaust farseðla
- telja ísland ekki með Norðurlöndunum
„Þetta veldur mér vonbrigð-
um,“ sagði Jón Gauti Jónsson,
formaður stýrihóps sem mennta-
málaráðherra skipaði á sínum
tíma í kjölfar langvarandi sam-
skipta- og stjórnunarvanda í Iðn-
skólanum í Reykjavík. Eins og
DV greindi frá hefur aðalfundur
kennarafélags skólans samþykkt
vantraust á formann stýrihópsins
vegna ófullnægjandi vinnubragða
sem leitt hafl tO þess að enn hafi
engar umbætur átt sér stað. Enn
fremur samþykktu kennararnir
að halda sig til hlés frá þátttöku í
starfl umbótahópa þeirra sem
stýrihópurinn hafði sett á laggirn-
ar. Þá krefjast kennarar þess að
menntamálaráðherra, skólanefnd
og skólameistari axli ábyrgð á
þeirri alvarlegu stöðu sem upp sé
komin.
Umræddur stýrihópur skOaði
af sér skýrslu tO menntamála-
ráðuneytisins í gær um stöðu
mála í Iðnskólanum.
„Okkur hefur miðað fram á
veginn,“ sagði Jón Gauti við DV í
gær. Hann sagði að menntamála-
ráðuneytið myndi ákveða á næst-
unni hvort stýrihópurinn muni
halda áfram störfum í Iðnskólan-
um. „Starfið er búið að vera í
gangi síðan í lok mars i fyrra
samkvæmt áætlun sem ráðuneyt-
ið lagði tO fyrir hópinn. Undir-
hópar hafa verið skipaðir í sam-
ræmi við það. Þeir hafa verið að
störfum og nokkrir þeirra eru að
skOa þessa dagana hugmyndum
um framvindu. Það hefur enginn
stoppað umbótastarflð. En upp-
bygging tekur langan tlma, það er
löng reynsla fyrir því.“
-JSS
Enn hefur blossað upp ófriður í Iðnskólanum í Reykjavík. Kennarar hafa
samþykkt vantraust á formann stýrihóps sem á að vinna að umbótum í skól-
anum. Peir segja umbótastarfið hafa „einkennst af mjög fámennum og í
ýmsum tilvikum ósamstiga hópum fulltrúa kennara og skólameistara".
„Þeir ganga svo langt að rétta
manni flugfarseðil heim og ekki ein-
göngu okkur íslendingunum heldur
öðrum Norðurlandabúum," segir
Sigrún Haraldsdóttir sem búsett
hefur verið í Danmörku undanfarin
fimm ár með manni sínum og syni.
Sigrún skrifaði grein í Nordjyske
Stiftstidende í Danmörku i síðasta
mánuði um fákunnáttu Dana í garð
íslendinga. TOefni greinarinnar
voru greinaskrif um norska ein-
stæða fjögurra barna móður sem
var bókstaflega gerð útlæg frá Dan-
mörku en sú kona hafði flutt búferl-
um eftir erfiðan skOnað og vOdi
hefja nýtt líf. Systir hennar býr i
Vra og hafði látið vel af félagslegri
þjónustu. Landið sem átti að vera
svo vinalegt vafð í skyndingu fjand-
samlegt í hennar garð.
„Þegar við lásum greinina um
konuna, sem hafði fengið mjög
óréttláta meðferð, urðum við að láta
í okkur heyra. Raunin er sú að ef
um Norðurlandabúa er að ræða er
bara hægt að senda þá heim og eng-
inn segir neitt," segir Sigrún. „ís-
lenskri konu var boðinn farseðiO
heim þegar hún sótti um stuðning
félagslega kerfisins eftir að hún og
danskur maður hennar höfðu slitið
samvistum en þau eiga tvö böm
saman,“ segir Sigrún jafnframt, en
þau fengu margar símhringingar
frá Dönum sem voru á sama máli
um ósanngirnina í garð annarra
Norðurlandabúa.
„Þegar ég var í skóla hér í Dan-
mörku talaði kennarinn minn um
Norðurlöndin fjögur, þ.e.a.s. Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnland og Noreg.
Þegar ég leiðrétti hann og sagði
hann hafa gleymt að minnast á ís-
land varð hann aOur eitt spuming-
armerki. Svo sagði hann það varla
taka því að minnast á ísland, í það
minnsta ekki í markaðsfræði-
kennslu. Þá er vankunnáttan gífur-
leg og sumir telja Margréti drottn-
ingu drottna yfir íslandi og þar
fram eftir götunum. Það er náttúr-
lega af hreinu áhugaleysi að dönsk
yfirvöld hafa brugðist þeirri skyldu
að kenna sögu Norðurlandabúa og
þá sérstaklega íslands. Svo eru Dan-
ir að styrkja dönskukennslu á ís-
landi en þeim væri nær að huga bet-
ur að sinni kennslu," segir Sigrún.
-hól
www.bnmborg.is
brimborgar
Nissan Micra 1,3 10/96
5 g., 5 d., rauður, ek. 58 þús. km, framdr.
Verð 650.000
Hyundai Accent 1,3 06/96
5 g., 3 d., grænn, ek. 63 þús. km, framdr.
Verð 570.000
Ford Mondeo 2,0 12/97
5 g., 4 d., hvítur, ek. 94 þús. km, framdr.
Verð 1.250.000
Daewoo Nubira 1,6 03/99
5 g., 4 d., grænn, ek. 10 þús. km, framdr.
Verð 1.130.000
Volvo 460 2,0 10/95
5 g., 4 d., grænn, framdr.
Verð 690.000
Renault Laguna 2,0 02/96
ssk., 5 d., blár, ek. 58 þús. km, framdr.
Verð 950.000
Isuzu crew cab 2,3 10/92
5 g., 4 d., ek. 91 þús. km, 4x4.
Verð 850.000
Nissan Pathfinder 3,0 02/92
ssk., 4 d., hvítur, ek. 144 þús. km, 4x4.
Verð 830.000
Opið laugardaga 11-16
brimborg
Reykjavik • Akureyri
Brimborg Reykjavík, Bíldshöfða 6, sími: 51 5 7000
Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700