Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2000, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
Fréttir
Deilt um olíuflutninga um Reykjanesbraut:
Snúast um hags-
muni Helguvíkur
- aö mati forstjóra Olíufélagsins - Esso fær flutningsstyrk, segir Kristján Pálsson
Þingmenn, undir forystu Hjálm-
ars Árnasonar, hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu þar sem því er
beint til umhverfisráðherra að láta
fara fram athugun á áhrifum olíu-
flutninga um Reykjanesbraut.
Forstjóri Olíufélagsins hf., Geir
Magnússon, sagði í ijölmiðlum á
þriðjudag að áhyggjur þingmanna
nú af hugsanlegri mengun vegna
aksturs olíubíla um Reykjanesbraut
stafaði fyrst og fremst af áhuga Suð-
urnesjamanna um að flytja olíum-
svif frá Reykjavíkurhöfn til Helgu-
víkur. Hann kvaðst ekki sjá að
meiri hætta stafaði af olíuflutning-
um um Reykjanesbraut en annars
staðar þar sem slíkir flutningar
færu fram.
Fá fiutningsstyrk
Kristján Pálsson er meðflutnings-
maður að tillögu þingmanna. Hann
segir að í sínum huga sé ekki verið
að leggja til að þessir oliuflutningar
verði bannaðir.
„Menn eru fyrst og fremst að
velta fyrir sér mengunarhættu sem
stafar af miklum
olíuflutningum á
þessum vegi.
Mestu vatnsból
svæðisins eru
þama við veg-
kantinn. Það er
svo sem ekkert
óeðlilegt að menn
hafi áhyggjur af
því. Búið er að
koma upp kerfi
gríðarmikils bíla-
flota Esso sem
eingöngu er í því
að flytja eldneyti
á milli Hvalijarð-
ar og Keflavíkur.
Út á þessa flutninga hafa þeir svo
fengið niðurgreiðslur, sérstakan
flutningsstyrk.
Það er því eðlilegt að menn komi
þessum flutningum sem næst not-
andanum sem er á flugvellinum í
Keflavík. í Helguvík er gríðarmikið
tankapláss á vegum Vamarliðsins
og það hefur boðið fram þann mögu-
leika að við notum þessa tanka.
Geir Magnús-
son, forstjóri
Olíufélagsins hf.:
„Suöurnesja-
menn vilja flytja
olíuumsvif til
Helguvíkur. “
Þetta er bara
spurningin um
samkomulag og
samvinnu við að
nýta þá kosti sem
eru suður frá.
Þetta eru mál
sem allir aðilar
þurfa að komast
að sameiginlegri
niðurstöðu um,“
segir Kristján
Pálsson.
Ekki veriö aö
beita þrýst-
ingi
Ellert Eiríks-
Reykjanesbæjar,
sagði við DV að þeir hefðu auðvitað
áhuga á því að auka umsvif hafnar-
innar í Helguvík. „Það er hins veg-
ar alveg óskylt flutningi á eldsneyti
um Reykjanesbraut. Að draga úr
þeim flutningum er fyrst og fremt
til að draga úr umferð þungaflutn-
inga sem slíta veginum mun hraðar
en önnur umferð. Hins vegar eru
Kristján Pálsson
alþingismaður:
„Eölilegt aö
menn komi
þessum flutning-
um sem næst
notandanum. “
son, bæjarstjóri
það áhyggjur
manna vegna
mengunar. Það
eldsneyti sem fer
niður í hraun-
flákana á þessu
svæði getur ekki
gert annað en að
fara beint niður I
grunnvatnið."
- Eruð þið ekki
að beita þing-
mönnum fyrir
ykkur. í þessu
máli?
„Ég held að
þingmennimir
séu það sjálfstæð-
ir og hugmyndaríkir í sínum mál-
flutningi, að þeir þurfi ekki mikinn
þrýsting. Þeir eru þó margir búsett-
ir hér, eins og Kristján Pálsson,
Hjálmar Árnason, Sigríður Jóhann-
esdóttir og fleiri þingmenn. Þeir
keyra daglega þarna á milli og gera
sér örugglega mjög góða grein fyrir
um hvað málið snýst.“
-Hkr.
Ellert Eiríksson,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar:
„Þingmenn eru
sjáifstæöir og
hugmyndaríkir og
þurfa ekki mik-
inn þrýsting. “
DV-MYND GVA
Niðursokknir í DV
Þessir menn tóku sér hlé frá annasamri vinnu til aö líta í DV í gær enda ágætt að glugga í blaöiö í góöu tómi þegar kalt er í veöri og lítt
eftirsóknarvert aö vera úti viö í kaffitímanum.
Hjól atvinnulífsins snúast vel á Akureyri:
Minnsta atvinnuleysi um árabil
- og útlit fyrir gott atvinnuástand næstu árin
DV, AKUREYRI:______________________
„Það er oft marktækt að horfa
beint til byggingariðnaðarins þegar
menn eru að meta ástandið í at-
vinnulífinu almennt. 1 þeim iðnaði
er mikil þensla hér í bæ og hefur
verið og ég sé ekki fyrir mér neina
breytingu á næstu árum, það verður
mikið byggt hér á næstunni," segir
Ásgeir Magnússon, formaður bæjar-
ráðs Akureyrar, um atvinnuástand-
ið í bænum sem er nú betra en það
hefur verið um nokkurt árabil.
Ef horft er á atvinnuleysistölur
nokkur ár aftur í tímann var verið
að glíma við atvinnuleysi á Akur-
eyri sem var frá um þrjú hundruð
og allt upp í á flmmta hundrað
manns, misjafnt eftir árstíma. Þessi
tala fór i um 160 á siðasta hausti og
reis ekki nema í um 200 á því tíma-
bili í vetur þegar atvinnuleysi er yf-
irleitt mest.
„Ég held að þessar tölur endur-
spegli þá miklu bjartsýni sem nú er
í bæjarfélaginu eftir nokkuð langan
tíma þar sem frekar var á brattann
að sækja og mér er t.d. til efs að það
hafi áður verið byggt jafnmikið og
nú er verið að gera. Við úthlutuðum
t.d. lóðum fyrir 179 íbúðir á síðasta
ári en á árunum á undan voru þetta
ekki nema 60-70 íbúðir árlega," seg-
ir Ásgeir.
Þá hefur verið byggt geysflega
mikið, bæði á vegum bæjarins og
ríkisins. Má í því sambandi nefna
skólabyggingar og íþróttamann-
virki, framkvæmdir við Háskólann
og Fjórðungssjúkrahúsið. Miklar
framkvæmdir
eru á vegum fyr-
irtækja og m.a.
eru að hefjast
framkvæmdir
við stærstu versl-
unarmiðstöðvar
utan höfuðborg-
arsvæðisins þar
sem reiknað er
með að verði
20-30 verslanir
og þjónustufyrir-
tæki.
Víðar í at-
vinnulíflnu á Ak-
gróska, útgerðar-
risamir báðir, Samherji og Útgerð-
arfélag Akureyringa hafa verið að
skila mjög góðri afkomu og áfram
mætti telja. Hins vegar gerist ekki
það, sem menn hafa verið að bíða
eftir, að íbúum bæjarins fjölgi veru-
lega. Þeim hefur þó ekki fækkað en
ekki hefur verið meira gert en rétt
að halda í horfinu.
„Ef við sjáum ekki verulega fjölgun
á yfirstandandi ári er varla um ann-
að að ræða en að senda bæjarstjórann
í leiðangur og láta hann telja í öllum
húsum. En að öllu gamni slepptu þá
held ég að þetta eigi sér sínar skýr-
ingar og þær eflaust fleiri en eina. Ég
á hins vegar von á þvi að við munum
sjá það í nánustu framtíð að íbúa-
fjöldinn aukist og fylgi þannig eftir
þeim miklu framkvæmdum sem hér
hafa verið og munu verða næstu
árin,“ segir Ásgeir Magnússon, for-
maður bæjarráðs. -gk
Asgeir
Magnússon:
„ Viö förum aö
sjá áhrifm í
auknum fólks-
fjölda. “
ureyri er mikil
I>V
Sandkorn
Sf ' Umsjón:
Haukur L, Hauksson
nctfang: sandkorn@ff.is
Enga leiðindaskarfa
Formannsslagurinn í Samfylk-
ingunni er loks að fara á fullt en
Össur Skarphéð-
insson varð fyrstur
til að gefa kost á
sér. Þegar þetta er
skrifað er enn beð-
ið ákvörðunar
Guðmundar Árai
Stefánssonar og
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur en þau
hafa helst verið nefnd sem keppi-
nautar Össurar. Nokkrir sérfræð-
ingar í ímyndarfræðum voru að
stinga saman nefjum um framboð
Össurar. Varð niðurstaðan af
þeim fundi að hann þætti helst til
of kátur og yrði að draga úr
húmornum til að öðlast landsföð-
urlegt yfirbragð. Þegar þessar
pælingar bárust til eyrna
nokkrum almennum kjósendum
hváðu þeir og sögðu að það sem
síst vantaði í framlínu íslenskra
stjómmála væri enn einn leiö-
indaskarfurinn ...
Hjarðmenn
í umfjöllun um Heklugos sagði
Stöð 2 frá því að huga þyrfti að
hrossum vegna
öskufalls. í því
sambandi var sí-
fellt talað um
hross I hjörðum og
hjarðir hrossa.
Einhverjir álíta
hjörð sjálfsagt gott
og gilt orð þegar
tala á um marga
hesta saman í hóp. En sú
orðnotkun fór hins vegar fyrir
hjartað á hestamönnum og unn-
endum „ástkæra ylhýra". Var á
það bent að venjulega eru hross í
stóði og þá talað um hestastóð.
En það getur fleirum fipast.
Þannig skrifaði náinn samstarfs-
maður ritara einu sinni um sels-
unga þegar verið var að skrifa
texta undir mynd af kópi...
Fangar aftur?
KR-ingar ætla að kynna nýjan
búning á næstu dögum sem hann-
aður er af sport-
vörurisanum Ree-
bok. Magnús Orri
Scrham, fram-
kvæmdastjóri
rekstrardeildar
KR, vildi lítið láta
uppi um nýja
búninginn í DV í
gær, sagði ein-
imgis að KR-ingar yrðu ekki eins
röndóttir. Þessar fréttir leggjast
misjafnlega vel í KR-inga og líst
mörgum beinlínis illa á að hrófla
við hinum klassisku KR-treyjum.
Einn gamalgróinn KR-ingur, sem
er fullur efasemda um breyting-
arnar nú, rifjaði upp breytingar
sem gerðar voru á búningnum
fyrir langalöngu þegar rendurnar
voru hafðar tvöfalt breiðari. Sagði
KR-ingurinn að þá hefði liðið ver-
ið eins og fangahópur og spilið í
hálfgerðum fjötrum ...
Fleiri slást
Það slást fleiri en „stóru strák-
arnir" í pólitik. Stofnfundur sam-
takanna Ungir
jafnaðarmenn
verður haldinn i
Iðnó um helgina.
Nýju samtökin
eru bræðingur úr
Grósku, Verðandi
og fleiri ungliða-
félögum á
vinstrikantinum.
Á stofnfundinum er búist við
hörðum formannsslag og ýmsir
nefndir til sögunnar í því sam-
bandi. Þar á meöal eru Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson, laganemi og
Þróttari, Björgvin G. Sigurðsson,
framtíðarstjama Samfylkingar á
Suðurlandi, og Finnur Beck, for-
maður Stúdentaráðs. Engin kona
hefur enn verið nefnd til sögunn-
ar en lítill, ólyginn fugl hvíslaði
nafni Katrínar Júlíusdóttur ...