Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2000, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
Hagsýni
DV
Húsráð, þjónustumiðstöð fyrir húsfélög þar sem allt er á einum stað:
Ráðgjöf og hlunnindi
fyrir 75 krónur á mánuði
DV-MYND E.ÓL.
Fanny Kristin Tryggvadóttir:
Húseigendur sem áöur þurftu aö eyöa dýrmætum tíma og fyrirhöfn í aö leita eftir ráöum og iausnum varöandi eignir
sínar og málefni húsfélagsins hjá einstökum aöilum úti um allan bæ geta nú fengiö þær á einum staö.
„Aö Húsráðum standa aðilar sem
höfðu á sinni könnu þjónustu við
húsfélög á ýmsum sviðum og þekkja
mjög vel starfsemi húsfélaga og þær
þarfir sem þar eru. Áður sinntu þeir
þessari þjónustu hver í sínu horni
en sáu fljótt aö það væri best og hag-
kvæmast fyrir alla aðila aö sameina
kraftana. Húseigendur sem áður
þurftu að eyða dýrmætum tíma og
fyrirhöfn í að leita eftir ráðum og
lausnum varðandi eignir sínar og
málefni húsfélagsins hjá einstökum
aðilum úti um allan bæ geta nú
fengið þær á einum stað,“ segir
Fanny Kristín Tryggvadóttir, fram-
kvæmdastjóri Húsráða, þjónustu-
miðstöðvar fyrir húsfélög, sem sett
var á stofn í fyrravetur.
Hjá Húsráðum er veitt þjónusta
og ráðgjöf varðandi alla þætti sem
snerta rekstur húsfélaga, viðhald og
viðgerðir, bókhald og ársuppgjör,
lögfræðileg málefni, innheimtu van-
skilagjalda o.s.frv. Húsráð starf-
rækja upplýsingaþjónustu þar sem
með einu símtali er hægt að fá upp-
lýsingar um óliklegustu hluti á
þessu sviði. Húsráðum tengjast Hús-
eigendafélagið, verkfræðistofan
Verkvangur, húsfélagaþjónusta ís-
landsbanka, Þema-löggiltir endur-
skoðendur og GÁJ-lögfræðistofa.
Með samvinnunni varð til upplýs-
ingabanki sem aiitaf er að stækka
og meðlimir geta sótt í.
Fljótt að borga sig
Stofngjald er ekkert og mánaðar-
gjaldið er einungis 75 krónur á mán-
uði fyrir hverja íbúð. Fyrir þetta
gjald fá ibúar aðgang að upplýsinga-
síma Húsráða. Einnig fær húsfélag-
ið án endurgjalds einn viðtalstíma
hjá lögmanni Húseigendafélagsins
og lögmanni GÁJ lögfræðistofu,
einnar klukkustundar verkfræði-
ráðgjöf endurgjaldslaust, auk ráð-
gjafar um hvemig bókhaldsþjónusta
hentar hverjum og einum aðila. Þá
eru ótalin sérkjör hjá þessum fagað-
ilum og hlunnindi eins og t.d. 12%
afsláttur í Húsasmiðjunni, bæði fyr-
ir húsfélagið og einstaka aðila þess.
Þeir gefa þá upp kennitölu við af-
greiðslukassana. Mánaðargjaldið er
fljótt að borga sig, jafnvel þótt með-
limir nýti einungis afsláttarkjörin.
Skráning í Húsráð fer fram í hjá
þjónustufulltrúum íslandsbanka en
skiiyrði fyrir aðild húsfélaga er að
þau noti húsfélagaþjónustu bank-
ans. Einstakir íbúar í húsfélaginu
geta hins vegar verið í viðskiptum
við hvaða banka eða sparisjóð sem
er. Þess ber að geta að þjónusta og
ráðgjöf Húsráða stendur ekki bara
húsfélögunum sem slíkum til boða
heldur einnig einstökum félags-
mönnum, t.d. ef þá vantar iðnaðar-
mann, ráðgjöf eða aðra þjónustu. Þá
er aðild óháð stærð húsfélags, íbúð-
ir í húsfélagi geta verið frá 2 og upp
úr.
Léttír stjórnum húsfélaga
lífið
Aðaifundir húsfélaga eru viða
haldnir um þessar mundir en sam-
kvæmt lögunum á að haida þá fyrir
apriilok. Á aðalfundum koma oft
upp ágreiningsmál varðandi við-
hald og framkvæmdir húseignanna.
Eru forsvarsmenn húsfélaganna þá
síður en svo í öfundsverðri stöðu.
„Það hefur ekki verið ýkja vinsælt
að sitja í stjómum húsfélaga vegna
þess hve mikið álag getur verið á
stjórnarmönnum vegna verkefna á
vegum félaganna. Og þegar kemur
að aðalfundi eru launin stundum
ekki önnur en vanþakklæti og
skammir. Við getum hins vegar létt
þessum stjómarmönnum lífið með
því að veita okkar þjónustu á einum
stað. Þeir þurfa þá ekki að eyða
heilu dögunum í að þvælast um bæ-
inn eða liggja í símanum í leit að
ráðgjöf eða iðnaöarmönnum. Við
erum í tengslum við mjög trausta
fagaðila og reynslan af samstarfi við
þá er mjög góð. Hjá okkur liggur
mikil uppsöfnuð reynsla sem sifellt
eykst og félagsmenn geta notið
hennar. Forsenda okkar starfs er
traust, reynsla og fagmennska og
ætti að virka sem hvati fyrir fólk að
taka að sér trúnaðarstörf fyrir hús-
félög.“
- Hverjir nota þjónustu Húsráða
og hvenær er leitaö til ykkar?
„Það er algengt viðhorf og byggt
á misskilningi að við séum aðallega
til fyrir húsfélög sem eru í kreppu,
þar sem allt er í skralli. Húsfélög
þar sem allt er í stakasta lagi hafa
nýtt þjónustu okkar mjög vel. Þá er
verið að huga að fyrirbyggjandi að-
gerðum og einföldum tíma- og pen-
ingasparnaði vegna erinda fyrir
húsfélagið. í húsfélögum þar sem
starfsemin er lítil sem engin er til-
hneiging til að ýta vandamálunum á
undan sér án þess að taka á þeim.
Þá lenda húsfélög hins vegar í
slæmum vítahring sem getur orðið
mjög dýr þegar loksins er tekið í
taumana. Því fyrr sem málum er
komið í eðlilegan farveg þvi betra.
Þar getum við veitt hjálp, gert erfið
mál auðveldari viðureignar.“
Deilur til lykta leiddar
Mikilvægt er að óháöur aðili hafi
umsjón með stærri verkefnum, út-
boðum vegna viðhalds og fram-
Dýrt að vera í vanskilum
Lánsfé er mjög auðfengið í dag og
getur veitt fólki ýmis lífsgæði eins
og bíla, utanlandsferöir, innrétting-
ar o.fl. En lán þarf að greiða og þá
getur stundum komið babb í bátinn.
Vanskil geta hlaðist upp og lánin
endað í innheimtu - dýrri inn-
heimtu. En lántakendur og þeir sem
ábyrgjast lán fyrir aðra gera sér
ekki alltaf grein fyrir stöðu sinni ef
lán lendir í vanskOum. Oft er hægt
að komast hjá óþægindum og auka-
kostnaði með því að semja við
kröfuhafa áður en í óefni er komið.
Það er dýrt að vera í vanskilum.
Ábyrgöarmenn
Þeir sem taka lán og þeir sem
ábyrgjast lántökur annarra þurfa að
gera sér grein fyrir þeim skyldum
sem þeir taka á sig með undirritun
sinni á skuldaskjal. Aðalskuldarinn
tekur á sig þá skyldu að greiða lán-
ið ásamt vöxtum og kostnaöi.
Ábyrgðarmenn taka á sig þá skyldu
að greiða lánið ásamt vöxtum og
kostnaði ef aðalskuldari stendur
ekki í skilum. Ef aðalskuldari stend-
ur ekki í skilum getur kröfuhafinn
gengið beint að ábyrgðarmönnum.
Þegar svo háttar er talaö um sjálf-
skuldarábyrgð ábyrgðarmanna. .
Viöbrögö við \
vanskilum s--sx% ^
Lánveitendur . \ 1
þurfa að bregð-
ast hart við
vanskilum '
svo þeir tapi
ekki kröfum sínum. '
Til eru ákveðnar réttar-
reglur um viðbrögö við van-
skilum. Ef um er að ræða kröfu *' i
sem er til innheimtu hjá lánastofn-
un er krafan þar áfram i innheimtu
nokkum tíma eftir að hún lendir í
vanskilum. Eftir það, oft tvær vikur
til þrjá mánuði, er krafan oftast
send til innheimtu hjá lögfræðingi.
Lögfræöileg innheimta
f~ Lögfræðileg inn-
I f ■ / heimta er
y/// (y.
unnin
^ n umboði
og er
.'>***'
a
ábyrgð
lögíræð-
ings. Við lög-
’fræðilega inn-
heimtu er úrræðum
lögfræðinnar beitt
með atbeina réttarvörslu-
kerfisins (dómstóla og sýslumanns-
embætta).
Úrræöi sem lögfræöileg inn-
heimta felur i sér eru:
1. Heimild til að krefjast dráttar-
vaxta af vangreiddum aiborgunum.
2. Heimild til að gjaldfella eftir-
stöðvar alls höfuöstóls kröfunnar.
(Við gjaldfellingu kröfu eru allar
eftirstöðvar höfuðstóls kröfunnar
gjaldfelldar, hvort sem allir gjald-
dagar eru komnir eða ekki. Eftir að
krafa er gjaldfelld eru því allar eft-
irstöðvar höfuðstólsins gjaldkræf-
ar.)
3. Heimild til að krefjast dráttar-
vaxta af gjaldfelldum höfuðstól.
4. Heimild til að fá dæmt um kröf-
una, krefjast fjárnáms, nauðungar-
uppboðs og jafnvel gjaldþrotaskipta.
5. Heimild til að kreíjast þóknun-
ar vegna lögfræðilegrar innheimtu.
kvæmda við húseignir og þar kem-
ur Verkvangur til sögunnar. En
Húsráð snúast um fleira en viðhald
og framkvæmdir og kostnaður við
aðild er fljótur að skila sér. í húsfé-
lögum geta komið upp álitaefni sem
eingöngu er á færi lögfræðinga eða
endurskoðenda að svara, t.d. varð-
andi samskiptavandamál, dýrahald
eða kostnaðarskiptingu. Þannig
geta spunnist deilur vegna þess að
einhver heldur kött í trássi við hús-
reglur. Húsfélagið á þá frían viðtals-
tíma hjá lögmanni, en útseldur tími
lögmanns á almennum markaði get-
ur kostað allt að 10 þúsund krónur.
Ef um er að ræða húsfélag með 10
íbúðum er búið að spara árgjald
Húsráða fyrir allar íbúðimar sem
er 9.000 krónur. Annað dæmi gæti
verið deila um hve oft þurfi aö mála
sameignina í fjölbýlishúsi og hvort
gera þurfi við steypuna. Húsráð
býður þá upp á einnar klukkustund-
ar ráðgjöf frá Verkvangi án endur-
gjalds.
Eitt númer
„Aðalatriðið er heildarlausn á
einum stað í einu símanúmeri, 568
9988. Við leggjum áherslu á að með-
limir Húsráða fái góða iðnaðar-
menn sem skila vönduðu verki. Það
er ekki rétt að einblína einungis á
lægstu tilboðin og gleyma gæðum
vinnunnar því lægstu tilboðin geta í
orðið mjög dýr ef ekki er vandað til
verka," segir Fanný Tryggvadóttir.
-hlh
Viðhald heitt mál á að-
alfundum húsfélaga:
Vítahringur
aðgerðaleysis
dýrkeyptur
Viðhald húseigna er nokkuð
sem marga hryllir við og líta á
peninga sem i það fara sem
hreina sóun á fjármunum. Þess
vegna er því oft frestað að fara í
nauðsynlegar viðhaldsfram-
kvæmdir eða þær látnar alveg
eiga sig. Mjög algengt er að fólk
afneiti ástandi fasteignar og telji
sér trú um aö hægt sé að komast
hjá kostnaði við viöhald. Við-
hald er oft hitamál á aðalfundum
húsfélaga og verður mönnum oft
heitt í hamsi vegna áætlaðs við-
haldskostnaðar. En það er dýr-
ara að láta vera en láta vaða.
Staöreyndin er hins vegar sú,
studd rannsóknum, að árlega
þarf að verja 1-2% af byggingar-
kostnaði eða verðmæti eignar í
viðhald. Ef eðlilegu viðhaldi er
ekki sinnt minnkar um leið fjár-
hagslegt og huglægt verðmæti
eignar og virðing fyrir eigninni
minnkar. Óánægjan í húsinu
eykst og vítahringur myndast,
þar sem ástandi eignarinnar
hrakar. Loks, þegar í óefni er
komið, geta allir verið sammála
um að spýta þurfi i lófana og
taka til hendinni. En þá geta
skemmdir verið orðnar það
miklar og kostnaðurinn líka að
þetta verður þungur fjárhagsleg-
ur baggi. Því er ráðlegt að
stunda reglulegt viðhald, í stað
þess að láta vandamálin hrann-
ast upp - og viðgerðareikning-
ana hækka.
Nánari upplýsingar má fá á
www.verkvangur.is