Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2000, Síða 28
32
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
" Tilvera
jy%r
Rómantískur og fyndinn.
Súkkulaði
Sænski leikstjórinn Lasse Hel-
ström er í góðum málum þessa
dagana, nýjasta kvikmynd hans,
Cider House Rules, er tilnefnd til
sjö óskarsverðlauna, meðal annars
sem besta kvikmynd. Helström er
nú þegar farinn að huga að næsta
verkefni, Chocolat, sem er róman-
tísk gamanmynd um konu og sex
ára dóttur hennar, sem valda
ókyrrð í strangkaþólsku þorpi þeg-
ar þær hafa súkkulaðiverslun sína
opna á fostunni. í aðalhlutverkum
eru Johnny Depp og Juliette Bin-
oche. Aðrir leikarar eru Alfred
Molina og að öllum líkindum
einnig Judy Dench. Upptökur fara
fram í Frakklandi og Englandi.
. Þess má geta að Hallström og Depp
hafa áður átt samstarf, en Depp lék
undir stjórn Hallströms i What's
Eating Gilbert Grape?
Leikur sýndarveruleikaskutlu.
Jolie leikur
Löru Croft
Einhver vinsælasta tölvuleikja-
persónan er ævintýrakvendið Lara
Croft, nokkurs konar Indiana Jo-
nes tölvuleikjanna. Allt frá því hún
kom fyrst fram 1996 hafa verið
bollaleggingar um að gera kvik-
mynd um Löru og ævintýri henn-
ar. Nú sér loks fyrir endann á þess-
um boUaleggingum. Handritshöf-
undurinn Steve E. De Souza (Die
Hard, Judge Dredd) er búinn að
skrifa handritið og heitir myndin
Tomb Raider og leikstjórinn Simon
West (Con Air) hefur verið ráðinn
til verksins. Margar ungar leikkon-
ur hafa lýst sig reiðubúnar til að
leika Croft, en sú heppna er Angel-
ina Jolie sem er eitt heitasta ný-
stimið í HoUywood þessa stundina.
Bruce Wíilis
Aftur meö Shyamalan.
Áfram samstarf
Leikstjórinn M. Night Shyamal-
an, sem sló eftirminnilega í gegn
með The Sixth Sense, er að hefja
tökur á nýrri kvikmynd Unbreak-
able og fara tökur fram i heima-
borg hans, Fíladelflu. Shyamalan
var greinUega ánægður með sam-
starfið við Bruce WiUis í The Sixth
Sense því hann hefur ráðið hann
* aftur í aðalhlutverk í Unbreakeble.
Mótleikarar hans eru Samuel L.
Jackson og Robin Wright Penn,
sem hljóp i skarðið fyrir Julianne
Moore, sem hafði verið ráðin, en
stökk um borð í Hannibal, þegar
Jodie Foster yfirgaf þá skútu. FjaU-
ar myndin um mann sem er sá eini
sem lifir af jámbrautarslys.
Rubin „Hurricane“ Carter var kappsfullur hnefaleikakappi
sem var handtekinn fyrir morö á þremur manneskjum.
Fellibylur
Sambíóin frumsýna á morgun
FeUibyl (The Hurricane), kvikmynd
sem byggð er á sannsögulegum at-
burðum og fengið hefur afbragðs-
dóma í Bandaríkjunum. Hinn marg-
verðlaunaði leikstjóri Norman Jewi-
son leikstýrir myndinni sem byggð
er á ævi Rubin „Hurricane" Carter,
sem var kappsfuUur hnefaleika-
kappi er dreymdi um að verða
meistari i milliþungavigt. Þegar
hann er á góðri leið með að láta
draum sinn rætast er hann handtek-
inn ásamt félaga sínum fyrir morð á
þremur manneskjum. Þeir félagar
eru dæmdir saklausir í lífstíðarfang-
elsi. Carter á erfltt með að sætta sig
við fangelsisvistina og tU að fá útrás
fyrir reiðina skrifar hann ævisögu
sína, The Sixteenth Round. Bókin er
gefln út, en ekkert gerist þrátt fyrir
að menn á borð við Muhammad Ali
og Bob Dylan biðji um að mál hans
sé tekið til endurskoðunar. Smátt og
smátt einangrar Rubin sig frá um-
heiminum. Mörgum árum síðar fær
ungur svertingi, sem hefur lent öf-
ugum megin við lögin en er að reyna
að koma undir sig fótunum, þörf fyr-
ir að skipta sér af málinu. Er hann
sannfærður um sakleysi Carters og
fær til liðs við sig mikilsmetið fólk
tU að hefja baráttu fyrir því að Cart-
er verði látinn laus.
Denzel Washington, sem leikur
Rubin Carter, lagði mikið á sig til
að ná tökum á hlutverkinu, æfði
box í marga mánuði og setti sig
vel inn í líf Carters meðan hann
var fangi, og árangur erfiðisins
hefur borgað sig. Hann er tU-
nefndur til óskarsverðlauna.
Aðrir leikarar í myndinni eru
John Hannah, Deborah Kara Un-
ger, Liec Schreiber og ViceUous
Reon Shannon, sem leikur unga
manninn sem kemur Carter til
hjálpar. -HK
Ákæran gegn Carter/Artis:
Staðreyndir málsins
17. júní 1966
Tveir byssumenn ráðast inn
Lafayette-veitingastaðinn í Patter-
son í New Jersey og skjóta tvo
karlmenn og konu til bana. Upp-
rennandi hnefaleikastjarna,
Rubin Carter, og imgur aðdáandi
hans eru yíirheyrðir vegna morð-
anna. Báðir eru látnir gangast
undir lygapróf og standast það og
þeim er sleppt. Lögreglan segir að
Carter og Artis séu ekki grunaðir
um morðin.
29. júní 1966
Carter og Artis eru beðnir um
að koma aftur til yflrheyrslu og
gera það af frjálsum vilja og þar
sem ekkert nýtt kemur fram í
máli þeirra eru þeir látnir lausir
en unnið er áfram að rannsókn
málsins fram í miðjan október.
14. október 1966
Alfred P. Bello, þekktur glæpa-
maður sem sjálfur liggur undir
grun fyrir morðin, segist hafa séð
Carter og Artis flýja af morðstað,
báða með byssur. Carter og Artis
eru handteknir og síðar ákærðir
fyrir morðin þrjú.
27. maí 1967
Hvítur kviðdómur dæmir Cart-
er og Artis. Saksóknari fer fram á
dauðarefsingu, en kviðdómur
mælir með fangelsisvist. Carter og
Artis eru dæmdir hvor um sig í
þrefalt lífstíðarfangelsi.
September, 1974
Ævisaga Rubin Carters, The
Sixteenth Round, er gefln út.
Aldred Bello og Arthur D.
Bradley, sem eru einu vitnin sem
hafa borið kennsl á Carter og Art-
is, gefa báðir út yfirlýsingu um að
þeir hafl verið neyddir til að gefa
rangan vitnisburð og fengið 10000
dollar fyrir og uppgjöf saka.
HBSSSE1Z3
Hæstiréttur í New Jersey telur
málið allt þess eðlis að ekki sé
annað réttlátt en að fram fari
önnur réttarhöld. Carter og Artis
eru látnir lausir.
22. desember
Onnur réttarhöldin eru haldin.
Saksóknarinn snýr nú við blaðinu
og leiðir að þvi rök að morðin
hafi verið framin vegna kynþátta-
haturs og Carter og Artis eru
dæmdir á ný.
22. desember 1981
Artis er látinn laus gegn skil-
orði eftir að hafa setið inni í
fimmtán ár.
17. ágúst 1982
Hæstiréttur New Jersey fellir í
atkvæðagreiðslu sem fór 4-3,
beiðni Carters um ný réttarhöld.
7. nóvember 1985
H. Lee Sarokin dómari telur sig
flnna mikla annmarka á réttar-
höldum númer tvö og telur að
dómurmn hafi byggst á kynþátta-
hatri frekar en sönnunum og tel-
ur að ekki eigi að efna til þriðjðu
réttarhaldanna heldur láta Carter
lausan.
26. febrúar 1988
Eftir flögurra ára baráttu er
loks komið að því að saksóknara-
embættið í Passaic Coimty lætur
imdan þrýstingi og gefur skipun
um að Carter sé látinn laus. Tutt-
ugu og tveggja ára fangelsisvist er
lokið.
Skotinn og gulldrengurinn
Danny Boyle þurfti aö standa
í stappi viö forráöamenn 20th
Century Fox þar sem þeir vildu
fegra persónuna sem Leonardo
DiCaprio leikur.
Boyle, MacDonald
og Hodge:
Skoska
þríeykið
The Beach er fimmta kvikmyndin
sem Danny Boyle gerir í samstarfi
við framleiðandann Andrew
MacDonald og handritshöfundinn
John Hodge. Það var MacDonald sem
árið 1994 stofnaði kvikmyndafyrir-
tækið Figment í kringum kvikmynd-
ina Shallow Grave, sem Hodge hafði
gert handrit að. Boyle var fengin til
að leikstýra og var myndin gerð i
Skotlandi á heimaslóðum þremenn-
inganna og í aðalhlutverkum voru
þá óþekktir leikarar, Christopher
Eccleston, Ewan McGregor og Kerry
Fox. Það er skemmst frá því að segja
að myndin sló í gegn og samstarfið
var komið á traustan grundvöll
Næsta kvikmynd þeirra var Tra-
in-spotting, sem af mörgum er talin
hafa verið tímamótaverk í breskri
kvikmyndagerð. Hafði hún ótvírætt
áhrif til hins betra og er í dag ein
mest sótta breska kvikmynd allra
tíma. 1996 lá leið þeirra félaga til
Hollywood þar sem þeir kynntust
nýjum leikreglum og má kannski sjá
það á þeirra næstu kvikmynd A Life
Less Ordinary. Ewan McGregor lék
í þeirri kvikmynd í þriðja sinn fyrir
þá félaga. Áður en þeir félagar hófu
gerð Strandarinnar þá var gerð ein
stuttmynd, Alien Love Triangle, fyr-
ir Miramax með Kenneth Brannagh,
Courtney Cox og Heather Graham.
Óvíst er hvar sú mynd er niðurkom-
in í dag.
iii£»gag»ifý«g
Háskólabíó/Bíóhollin/Laugarásbíó - Græna mílan:
Sakleysinginn í dauðadeildinni
Sagnameistarinn Stephen King
hefur sjaldan náð eins góðum tökum
á lesendmn sínum og í Grænu mil-
unni (The Green Mile) þar sem hann
nánast skrifar sig inn að hjarta les-
andans. Ástæðan er fyrst og fremst
ein aðalpersóna sögunnar, svarti ris-
inn, John Coffey (Michael Clarke
Duncan), sem dæmdur er til að láta
lífið í rafmagnsstólnum fyrir hrylli-
legt morð á litlum systrum, maður
sem allir hata en er samtekkert
nema góðmennskan. Aðkoma Coflf-
eys í dauðadeildina, sem kölluð er
Græna mílan, hvernig hann breytir
umhverfinu og örlög hans er þunga-
miðja sögunnar sem og kvikmyndar-
innar.
Yflrfangavörðurinn á Grænu míl-
unni, Paul Edgecomb (Tom Hanks),
sem er orðinn vistmaður á elliheim-
ili, segir sögu sina. Hann er sá fyrsti
sem verður aðnjótandi lækninga-
máttar Coffeys sem Edgecomb segir
réttilega að sé kraftaverkamaður.
Inn í söguna af Coffey og Edgecomb
fáum við innsýn í líf fanga og fanga-
varða þar sem ýms leyndarmál eru
grafin.
Fyrir fimm árum gerði leikstjóri
Grænu mílunnar, Frank Daramont,
kvikmyndina The Shawshank
Redemption, frábæra kvikmynd,
sem óðum er að vinna sér sæti
meðal klassískra kvikmynda. Sú
mynd var einnig fangelsismynd,
gerð eftir sögu Stephens Kings.
Það er því óhjákvæmilegt að
bera saman þessar tvær myndir
og þótt The Green Mile folni að-
eins við samanburðinn er hún
samt sem áður mjög vel gerð og
spennandi kvikmynd með áhuga-
verðum söguþræði þar sem verið
er á mörkum raunsæis og þess
sem enginn kann skýringu á.
Daramont, sem einnig skrifar
handrit að myndinni, fylgir sög-
unni vel og er lítið um breyting-
ar hjá honum. Þar af leiðandi er
myndin mjög löng, nánast engu
er sleppt, og hefði að ósekju mátt
stytta hana aðeins. Hún hefði
sjálfsagt orðið skarpari með
sterkari áherslum á hið góða og
illa. Græna mílan hefur samt
þann eiginleika langra og góðra
Michael Clarke Duncan
leikur fangann John Coffey
„Senuþjófurinn er svo Michael
Clarke Duncan sem nánast fyllir út
hvíta tjaldiö um leiö og hann birt-
ist, “ segir Hilmar í dómi sínum.
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
kvikmynda að lengdin er ekki
þreytandi.
Að lokum er vert að geta leik-
aranna sem eru hver öðrum
hetri. Hanks leikur Edgecomb á
látlausan hátt og gerir það meist-
aralega. Edgecomb er maðurinn
sem séð hefur allt, hefur sína
góðu aðstoðarmenn en þarf
einnig að kljást við Percy Wet-
more (Doug Hutchison), sadista í
fangavarðarbúningi. Senuþjófur-
inn er svo Michael Clarke Dunc-
an sem nánast fyllir út hvíta
tjaldið um leið og hann birtist. í
meðförum Duncans verður Coff-
ey ákaflega skýrt afmörkuð per-
sóna, treggáfaður risi með barns-
hjarta og hæfileika sem hann
skilur ekki.
Hilmar Karlsson
Leikstjóri og handritshöfundur: Frank
Darabond. Kvikmyndataka: David
Tattersall. Tónllst: Thomas Newman.
Aöalleikarar: Tom Hanks, Michael Cl-
arke Duncan, David Morse, Bonnie
Hunt, James Cromwell, Graham
Greene, Michael Jeter, Patricia Cl-
arkson og Doug Hutchison.