Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Síða 15
Einn af holdgervingum kúlsins í rokkinu
er hinn fúllyndi meistari Lou Reed.
Þessi þvældi og rúnum risti rokkhundur
var að senda frá sér plötuna Ecstacy
og því þótti Dr. Gunna við hæfi að
skoða karlinn nánar.
Á sama hátt og hægt er að vera
risanúmer í smátíma en hafa engin
varanleg áhrif á söguna er hægt að
hafa mikil áhrif til frambúðar án
þess að selja mikið. Tónlist, textar
og persóna Lou Reed hafa haft slík
áhrif á gang rokksins að karlinn
væri enn í góðum málum þó hann
hefði hætt að gefa út plötur eftir
1975. Túlkun hans á öfgafullum til-
finningum og háttalagi mann-
skepnunnar, með svalri ljóðrænni
fjarlægð, var óþekkt fyrir hans tíð.
Með frábærum textum og lögum
bjó hann til imynd af sjálfum sér
sem gallhörðum strætisnagla með
óræðar kynlífslanganir. Hann flýg-
ur í annála kúlsins án þess
nokkum tímann að leiða hugann
að því hvemig tónlistin legðist I
lýðinn - sumar plötur hans hafa
beinlínis storkað hlustendum með
fífldirfskunni.
Alltaf á skjön
Lou verður 58 ára á þessu ári -
fæddist í úthverfi á Long Island
1942. Þar ólst hann upp við listænt
dundur og hlustaði á rokkið fæðast
í útvarpinu. Hann var verulega erf-
iður unglingur og svo uppreisnar-
gjam að foreldrunum þótti upplagt
að senda hann í rafstuðsmeðferð á
geðsjúkrahúsi þegar hann var 17
ára. Foreldrunum til mikillar
gremju kom Lou bara í helmingi
meira uppreisnarstuði af spítalan-
Stjörnukerfi ifókus
★ ★ ★ ★ * Gargandi snilld! ★ Notist í neyð.
★ ★★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun.
★ ★ ★ Góð afþreying. ^Skaðlegt.
★ ★ Nothæft gegn leiöindum.*®*
plötudómar
um og þá gáfust þeir upp. Lou fór í
menntaskóla og kynntist mönnum
sem áttu eftir að stofna með honum
hljómsveitina Velvet Underground
1965. Lou var aðalmaðurinn þar -
söng og spilaði á gítar - en yfirgaf
sveitina 1970. Velvet Underground
var húsband í listahópi Andy War-
hol i New York.
Tónlist sveitarinnar var svo á
skjön við bítla- og hippatónlistina
og tíðarandann að það liðu mörg ár
þar til bandið hlaut þann heiðurs-
sess í rokkinu sem það átti skilið.
Þegar Lou yfirgaf hljómsveitina
lognaðist hún út af á nokkrum
árum en hann kom endurfæddur
með tvær plötur 1972 eftir hrikaleg
sukkár í glamúrræsum stóra eplis-
ins. Fyrst kom Lou Reed, sem inni-
hélt sætari tónlist en hann hafði
áður gert, með safaríku poppsándi
og soul-söngkonum. Skömmu síðar
kom meistarverkið Transformer
sem David Bowie var með puttana
í. Þar eru klassísk lög, eins og Per-
fect Day og Walk on the Wild Side,
um kátan klæðskipting, en það
hlýtur að teljast frægasta lag Lou.
Með plötunni varð Lou nokkuð
stórt númer. Það er til marks um
sjálfseyðingarhvöt Lou og and-
styggð á aðdáendum sínum að
hann fylgdi plötunni eftir ári síðar
með plötunni Berlin, mjög erfíðri
plötu tónlistar- og textalega séð.
Árið 1974 kom tónleikaplatan Rock
‘N’ Roll Animal, þar sem frekar
silalegt band spilaði undir á meðan
stífmálaður Lou söng smellina í
hálfgerðum kabarettfíling. Hann
átti þó eftir að ganga enn lengra í
rokkgeðveikinni með tvöfoldu plöt-
unni Metal Machine Music sem
kom út 1975 og innihélt lítið annað
„Ecstacy er eitt af mínum bestu lögum og platan er öll um alsælu í hinum ýmsu
myndum,“ segir meistari Lou Reed.
en pirrandi gitar-„fíddbakk“. Inni á
milli komu poppaðri plötur, eins og
Coney Island Baby (1976) og Street
Hassle (1978), og Lou hafði vakandi
auga með pönkbylgjunni sem skall
á á seinni helmingi 8. áratugarins.
Traustur textasmiður
Hinn uppreisnargjami ungling-
ur varð sér- og fúllyndur með aldr-
inum. Þegar sló í brýnu með útgef-
anda í lok 8. áratugarins notaði
Lou tækifærið og hellti sér yfir
hann á tónleikaplötu. Auðvitað
hafði Lou ástæðu til að hafa and-
styggð á niðurdrepandi borgaraleg-
um gildum (foreldrar hans sendu
hann jú í raflost) en þegar hann
giftist Sylviu Morales í byrjun 9.
áratugarins fór mesti pönkbrodd-
urinn úr attitjútinu. Við tók hnign-
un. Fullt af ágætum plötum, svo
sem og m.a.s. kombakk hjá Velvet
Underground (hálfmisheppnað), en
ekkert komst í hálfkvisti við fyrri
snilld. Nýja platan slagar kannski
ekki upp í allra mestu snilldina -
enda ósanngjamt að fara fram á
það - en hún sýnir Lou í ansi góð-
um gír miðað við nærri því sextug-
an mann. Plötuna tróð hann út
með 14 lögum, þ.á m. Like a Poss-
um sem er 18 mínútur og minnir á
drungann í Sister Ray, enda segist
Lou hafa verið að springa af hug-
myndum. í textagerðinni er Lou
traustur, sjáðu bara þetta dæmi:
„I’ve got a hole in my heart the size
of a tmck. It wont be filled by a
one-night fuck.“
Með Lou leika karlar sem hafa
verið með honum lengi en auk þess
nýja kærastan, fjöllistakonan og
sellóleikarinn Laurie Anderson.
„Ég setti flæðið á oddinn á þessari
plötu,“ segir Lou, „líkamlegt, gáfu-
legt og tilfinningalegt flæði. Ég veit
að fólk hlustar ekki lengur á plötur
í réttri röð en það er ástæða fyrir
því hvemig lögunum á plötunni
var raðað upp, það er upphaf,
miðja og endir.“
Lou er ánægður með plötuna og
sérstaklega titillagið: „Ecstacy er
eitt af mínum bestu lögum og plat-
an er öll um alsælu í hinum ýmsu
myndum.“
Lou fer í tónleikaferð til að fylgja
plötunni eftir og mun einnig lesa
úr bókinni Pass Thru Fire, tæplega
500 bls. bók sem nýverið kom út.
Þar er safnað saman á einn stað
öllum textiun Lou frá fyrstu plötu
Velvet Underground til nýju plöt-
unnar - sumu af því albesta sem í
rokkinu hefur birst.
smar
eigin leiðir
Söngvari Rage Against the Machine, Zack de
la Rocha, fer í hljóðver í New York í næsta
mánuöi til að hefja upptökur á sinni fyrstu sól-
óskífu. Zack gerði óskaiista yfirfólk sem hann
vildi vinna með og
, _ f.r ' hefur nú feng-
ið þann
> sem var
efstur á
listan-
um til
a ð
vi n n a
með sér
f j ö g u r
lög. Það er
El-P úr neðan-
jarðar-rappsveitinni
Company Flow. Sveitin var að spila í Japan
þegar fréttirnar bárust og þá var Japansferðin
stytt svo El-P gæti farið til New York til að
leggia á ráðin með Zack. Aörir sem hafa verið
nefndir sem samstarfsaðilar Zacks eru Roni
Size, DJ Premier og Mos Def. Sama fyrirtæki
og gefur út RATM mun gefa þessa sólóplötu
út, en ekkert hefur verið sagt um hvenær má
eiga von á henni.
Fækkar í
PsoíWq'J
Leeroy Thornhill er hættur í Prodigy. Hann
hafði þann starfa að dansa í sveitinni. Eftir
eru því aðalkallinn Uam Howlett og söngvar-
arnir Keith Rlnt og Maxim. Leeroy fékk aldrei
aö synga svo þaö er kannski ekki að furða þó
hann hafi veriö orðinn gagnslítill. Liam sagöi:
.Brotthvarf Leeroys hefur augljóslega engin
áhrif á tónlistina. Við höfðum áhuga á mis-
munandi hlutum og höfðum verið að þróast f
misjafnar áttir, en ég virði hann og óska hon-
um alls hins besta. Sjálfur sagði Leeroy: „Ég
er búinn að vera f Prodigy í níu frábær ár en nú
vii ég einbeita mér að bandinu mínu sem heit-
ir Flightcrank." Næsta Prodigy-plata gengur
undir nafninu „Always Outnumbered, Never
Outgunned" en mun ekki koma út fyrr en á
næsta ári.
★★★★
Hljómsveitin: Idjut BoyS
piatan: Saturday Nite
Live
Útgefandi: Nuphonic / Japis
Lengd: 70,30 mín.
★★★★
Hijómsveitin: Hilmar Orn
Hilmarsson og Sigur Rós
piatan: Englar alheimsins
Útgefandi: Krúnk
Lengd: 46,36 mín.
★
Hljómsveitin: Valur Og
Regnúlpurnar
piatan: Reykjavík er köld
- Cohen á íslensku
Útgefandi: Slátur
Lengd: 41,12 mfn.
★ ★★★
Hljómsveitin: CMnÍC
Platan: Clinic
Útgefandi: Domino / Hljómalind
Lengd: 25,28 mfn.
hvaöf
Þetta er mixplata meö breska plötu-
snúöadúóinu Idjut Boys. Þeir eru
þekktir fýrir eðal-house-settin sín.
Þessi plata, sem inniheidur m.a. lög
frá McSultan, Femi Kuti, Syrup og
Isolée, sannar færni þeirra í aö búa
til þétt og hrffandi mix.
Þetta er tónlistin úr kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, Englar al-
heimsins. Á plötunni eru 15 stykki
eftir Hilmar Örn og tvö lög með Sig-
ur Rós: Bfum bfum bambaló og
Dánarfregnir og jarðafarir.
Þessi plata er einhvers konar
æösta stig stjörnudýrkunar, en á
henni syngur Valur Gunnarsson eig-
in þýðingar á 10 Leonard Cohen
lögum. Sér til fulltingis hefur hann
lið hljóðfæraleikara og söngkvenna.
Clinic er hrár rokkkvartett frá ensk-
um bftlaslóðum. Hann hefur verið
að vekja athygli og mun eflaust
koma sterkur inn þegar fýrsta al-
vörupiatan kemur út. Þessi er nfu-
laga safnplata með lögum af þrem
fýrstu smáskffum sveitarinnar.
fyrir hvernf
Þetta er svona léttleikandi organískt
house, að mestu djúpt og instrúm-
ental, með smá-dub-áhrifum, smá-
diskó-, smá-fönkf djassgrúvi og fullt
af áslætti. Það er með öllu ómögu-
legt að sitja kyrr undir þessari tón-
list. Þetta er plata fýrir alla unnend-
ur gæðadanstónlistar.
Auk þess að höföa til unnenda kvik-
myndatónlistar ætti þessi plata að
vera velkomin I safn þeirra sem
kunnu að meta plötu Sigur Rósar
frá því f fýrra, Ágætis byrjun. Miðaö
við sölutölur og úrslit íslensku tón-
listarverðlaunanna þá eru þeir ekki
fáir!
Þessi plata á lítið erindi til þeirra
sem hafa áhuga á að kynna sér
tónlist Leonards Cohen - uppruna-
legu útgáfurnar eru bara svo miklu
betri. Það má helst ímynda sér að
platan höfði til mjög langt leiddra
Cohen-manna og erlendra plötusafn-
ara.
Clinic er fyrir aödáendur Velvet Und-
erground, 22 Pistepirkko, Cramps,
Suicide, The Stooges og annarra
sveittra síxtfspönkara. Þótt rokkið
minni á gamla tíma kfkja stundum
inn nýmóðins taktar og glænýjar
hugmyndir.
skemmtilegar
staöreyn air
Þó að þeir Dan Taylor og Connie
McDonnell séu aðallega þekktir
sem plötusnúðar þá hafa þeir Ifka
gefið út sfna eigin tónlist, t.d. plöt-
una „Life...The Shoeing You Deser-
ve“, á Glasgow Underground í fýrra.
Allur frágangur og umgiörð þessarar
útgáfu er til fyrirmyndar. í bæklingrv
um sem fýlgir plötunni eru tilvitnanir
í samnefnda bók Einars Más, ein
fyrir hvert lag. Þær setja tónlistina f
samhengi við viðfangsefnið og
minna mann á senur úr myndinni.
Valur hefur eytt heilmiklum tíma
með átrúnaöargoðinu því að allir
textarnir eru þýddir (og oft staö-
færöir) af honum. Ef hægt er að
tala um persónulegt framlag, þá er
það falið í tilraun Vals til þess að
færa stemninguna f lögunum til ís-
lands.
Hljómsveitin vildi vernda sinar per-
sónuupplýsingar, meðlimirnir komu
fram með læknagrímur og lengi vel
var ekki vitað hverjir voru f bandinu.
Eftir eitthvert giggiö var grímunum
stolið og síðan hefur sveitin neyðst
til að sýna sitt rétta andlit.
niöurstaöa
Þessi plata er samfelld sæla, allt frá
grúvf bræðingi Keith Mansfield frá '77
til Francois K. remixins af Sorry Sorry
með Femi Kuti. Hámarkiö er samt
Beau Mot Plage með Isolée, eitt
besta lagiö I fyrra, hér í frábærri út-
gáfu. Saturday Nite Live festir
Nuphonic-útgáfuna f sessi sem gæða-
merki. Trausti Júliusson
Eins og myndin f heild er þessi plata
mjög er vel heppnuð. Verk Hilmars
eru i senn falleg og áhrifamikil og út-
gáfur Sigur Rósar á Bíum, bíum og
dánarfregnastefi Jóns Múla eru í
sama gæðaflokki og aðrar þeirra af-
urðir undanfarið, sambland af klóku
spilirii og dramatfk sem hrffur sam-
stundis. Trausti Júliusson
Þetta er frekar vond plata. Ef ein-
hver tilraun hefði verið gerð til þess
að túika tónlistina, með t.d. nýjum
útsetningum, þá hefði þetta kannski
virkað, en þegar meira að segja
söngvararnir reyna að hljóma alveg
eins og i upprunalegu útgáfunum þá
finnst manni þetta tilgangslaust.
Trausti Júlíusson
Þetta er ferskasta rokkplatan i
lengri tfma - tæpur hálftími af frfsk-
um gusti. Rokkið er einfalt og mið-
að við enskt rokk er hér meiri frum-
kraftur á ferðinni en siðan maður
man ekki alveg hvenær. Tvö, þrjú
lög eru þó greinilega uppfýllingarefni
og það dregur heildina niður.
Dr. Gunni
14. aprfl 2000
f ó k u s
15