Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Page 4
Gestabók
Asíufaranna:
Nú gefst þjóöinni færi á að ferðast i huganum
um Asíu með því að fylgjast með ferðalagi Ei-
riks og Hrundar á Fókusvefnum. Allirgeta sent
þeim kveðju i gestabókinni og vitnað í pistlana
þeirra eins og Martin lúxusköttur sem svarar
galvaskur þótt hann tali ekki íslensku, enda
virðist hann hafa rekist á skötuhjúin eftir
þessari beisku kveðju að dæma:
At last, a picture of Hrund being cheerful.
Believe me readers, she had a fairly misera-
ble time for the last bit of her stay with us in
India. We're glad to see her looking so happy
(or is it just wind like with babies?). Good luck
for the rest of your trip. Martin the iuxury cat.
PS I know l’m fat and middle-aged but there's
no need to broadcast it to the world. Just
because i can't read lcelandic - don't think I
haven’t got my spies (funnily enough a phone
call from Klaustur). martinh@nda.vsnl.net.in
Þessi kveðja frá Vestmannaeyjum hljómar þó
ólíkt hlýlegar og hefur eflaust yljað þeim um
hjartarætur eftir mjálmið í Martin:
Eiríkur og Hrund. Ég hef verið að fylgjast með
ferðum ykkar undanfarna daga og hef gaman
af. Einhvern veginn þá lifi ég mig inn í ferða-
sögu ykkar og ímyndunaraflið ber mann hálfa
leið með ykkur á ferðum ykkar. Hafið kæra
þökk fyrir samfýlgdina. Kkv. Sigmar Gíslason,
stýrimaður frá Vestmannaeyjum. sig-
mar@lsl.!s
Það eru líka nokkrir sem senda þeim kveðjur
vegna magakveisu sem hefur hrjáð þau og hér
eru tvö dæmi:
Gaman að sjá að allt gengur vel fýrir utan skit-
una. Það er þrælgaman að fýlgjast með ykkur
og skoða myndirnar beint í gegnum Netið.
Bestu kveðjur, Dagbjartur, audurg@islandia.is
Það er hrikalegt að fá matareitrun og gera sér
ekki grein fyrir hvers vegna. Örlítil sorgarrönd
undir nögl, með sýklum sem þú gætir hafa
fengið hvar sem er, gæti hafa komist í
munninn og ofan í maga, það þarf oft ekki
mikið til. Kveðja, Garðar, gardarb@islandla.ls.
Asíufarinn Eiríkur.
GRIM
Um síðustu helgi útskrifaði Kvikmyndaskóli íslands 23 nemendur með pomp
og prakt í Háskólabíói. Við það tækifæri voru 4 stuttmyndir nemenda sýndar og
stal kvikmyndin Sjatteraður alveg senunni. Söguþráðurinn er virkilega „sick“
svo ekki sé meira sagt en hann er sprottinn úr höfði Bjarka Markússonar.
Þaö hefur sjaldan sést eins mikiö
ógeö í íslenskri kvikmynd og í stutt-
myndinni Sjatteraður síöan iðrin úr
Gísla Súrssyni láku út í Útlaganum.
Stuttmyndin fjallar um mannát og
söguþráðurinn sem er ótrúleg snilld
er saminn af Bjarka Magnússyni.
„Myndin hefði í rauninni ekki
þurft að vera svona ógeðfelld. Það
hefði vel verið hægt að gera kvik-
myndina án þess að sýna svona
mikið blóð en ég er samt virkilega
ánægður með útkomuna. Mamma
var hins vegar ekkert allt of hrif-
in,“ segir hinn 25 ára gamli kvik-
myndagerðarmaður, Bjarki Mark-
ússon, sem skrifaði handritið af
stuttmyndinni Sjatteraður. Myndin
var sýnd ásamt þremur öðrum
myndum í Háskólabíói um helgina
við útskrift Kvikmyndaskóla ís-
lands og fór virkilegur hrollur og
jafnvel öskur um salinn við mörg
atriði myndarinnar en söguþráður-
inn er mjög sérstakur.
Kjötúrgangur
úr sláturhusi
Myndin „Sjatteraður" fjallar í
grófum dráttum um dreng sem tek-
ur orðtakið „þú ert það sem þú
borðar" einum of alvarlega og
borðar m.a. vin sinn í þeirri von að
hann verði eins og hann.
„Mér finnst það mikið umhugs-
unarefni hvað við látum mikinn
ruslmat ofan í okkur,“ segir Bjarki
um hugmyndina að handritinu
sem kviknaði á fimm mínútum. í
myndinni eru margar brellur og
segist Bjarki hafa fengið hjálp frá
stelpu sem stundaði nám í forðun-
arskóla tú að búa til þá gervi-
líkamshluta sem notaðir eru í
myndinni.
„Fingumir sem aðalsöguhetjan
borðar eru annars vegar búnir til
úr vaxi og hins vegar úr mar-
sípani. Ég fór niður á Kentucky
Fried og fékk kjúklingabein til að
nota inni í þá,“ segir Bjarki sem
einnig leitaði á náðir sláturhúss til
að ná sér í kjötúrgang í myndina.
Blóðið sem sést á tjaldinu er þó
ekki ekta blóð heldur blanda af
vatni, sykri og matarlit.
Magqi örugglega
bragogóður
Bjarki er sjálfur engin græn-
metisæta heldur er roastbeef og
lambakjöt í miklu uppáhaldi hjá
honmn. Aðspurður hvaða íslend-
ing hann myndi helst leggja sér til
munns ef enginn annar matur byð-
ist þá nefnir hann Magnús Schev-
ing. „Ég get ímyndað mér að hann
sé ljúfur undir tönn því hann lætur
örugglega ekki mikið rusl ofan í
sig,“ segir Bjarki hugsi.
Nú var sagt vió útskriftina að ein-
ungis 2 af þessum 23 manna hóp
sem útskrifaðist muni plumma sig í
framtíðinni innan kvikmynda-
geirans. Heldurðu að þú veröir
annar þeirra?
„Alveg tvímælalaust en það að
gera kvikmynd er samt miklu erf-
iðara en ég hélt,“ segir Bjarki sem
vonast til að geta gert margar
athyglisverðar kvikmyndir í fram-
tíðinni.
...OG ADAM OG EVA ÁTTo TVO SrM». KAIN
OGABEt OG kAlN DRAP ABEt... GUNNAR ?
EN HVERNIG GAT HANN i»A ATT BÖÍlN
EF HANN VAR BARA EINN EFTiR ?
EH... 3Ú... ÞAÐ ER. EINMiTT ÞAR SEM
APARNiR l<OMA INN ! MVNDINA...
4
f Ó k U S 5. mai 2000