Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Síða 3
e f n i
Drengirnir í Sigur Rós eru óskabörn þjóðarinnar þetta misserið. Þeir rústuðu
íslensku tónlistarverðlaununum um daginn og hafa verið að spila úti í hinum stóra
heimi og það án þess að syngja á útlensku eins og flestir meikarar gera. Og
Sigur Rós er að meika það. Fókus tékkaði á piltunum og komst að ýmsu nýju.
„Við skrifuðum undir síðasta
föstudag," segir Georg Hólm,
bassaleikari og sérlegur talsmaður
drengjanna Orra Páls Dýrasonar
trommara, Kjartans Sveinssonar
hljómborðsleikara og Jón Þórs
Birgissonar söngvara og gítarleik-
ara um nýundirritaðan samning.
Nú? Heföuð þið ekki átt aö skrifa
undir á Langjökli eða við Eyja-
bakka?
„Nei, við vorum að skrifa undir
aöalatriði samningsins núna en
eigum eftir að skrifa undir þessar
tvö himdruð siður sem eiga aö
heita formlegi samningurinn. Og
þegar við gerum það getur vel ver-
ið að við gerum eitthvað sniðugt,
ég veit það ekki.“
íslensk Ágætis byrjun
„Þetta er þriggja plötu samning-
ur og það fyrsta sem gerist sam-
kvæmt honum er að Ágætis byijun
kemur út,“ útskýrir Georg, um leið
og hann neitar að tjá sig um hvort
þeir pútar séu orðnir miiijónamær-
tæki sem við erum að gera samn-
ing við og það tryggir okkur 100%
listrænt frelsi. Þeir eru ekki að
með því skilyrði að við förum í
jakkafot og setjum á okkur sólgler-
augu.“
Þó það myndi auðvitað fara ykk-
ur. En þið fáið sem sagt aö gefa
Ágœtis byrjun bara út eins og hún
er?
„Já. Hún verður bara eins og
hún er hér heima, á íslensku."
Er Jónsi ekkert að fara að slengja
textunum yfir á útlensku í náinni
framtíö?"
„Ekkert frekar. Ég efast um aö
það myndi breyta miklu fyrir okk-
ur. En það er sjálfsagt að prófa það,
kannski, einhvern tíma í framtíð-
inni. En við breytum ekki Ágœtis
byrjun. “
Halda 17. júní hátíðlegan
Hvaö meó útflutning, eruð þið ekk-
ert að hugsa um að flytja bara út?
„Ég veit ekki með strákana en
auðvitað langar mann alltaf til að
breyta aðeins til. Og kannski flyt
ég út í janúar," segir hinn jarð-
bundni bassaleikari Georg sem er
alveg laus við píkuskræki vegna
nýundirritaðs samnings.
Sigur Rós leggur í tónieikaferð í
lok júní og mun verða eitt aðal-
númerið á fyrirbæri sem kailast
Festival of Drifting en það flakkar
um Bretland og heldur tónlistarhá-
tiðir. Yfirferð okkar manna endar
svo í Hróarskeldu en annars er
auðvitað eitthvað verið að plana
varðandi haustið og þá heiminn í
því samhengi.
En svona að lokum; hvenœr fá af-
komendur Ingólfs aó heyra í ykkur
nœst?
„Það er ekkert ákveðið en verið
að þreifa fyrir sér með miöjan
júní.“
17. júní?
„Nei. Við höldum hann hátíðleg-
an.“
ingar eða ekki. „Þetta er lítið fyrir- fara að moka í okkur peningum
Sigur Rós veröur bara eins og hún hefur alltaf veriö þrátt fyrir samning viö Fat
Cat enda er útgáfufélagiö mjög öndergránd.
Pokemon-æðið ætlar engan endi að taka. Það byrjaði á litlum sýndarveruleika-
gæludýrum, þróaðist yfir í Game-boy-leiki og nú er þetta komið í litla spilapakka
sem yngri krakkar sjást skiptast á eins og gert er með körfuboltamyndir. Fókus
skildi þetta ekki alveg og ákvað að fá skýrarí mynd af málunum.
Piltarnir spá í spilin, tjékka á því hvaö vantar í safnið og hvaö sé hægt aö bjóöa í skiptum.
Gemsi
„Þetta er að verða álíka æði og
var með körfuboltamyndimar, á
smá í það en stefnir þangað,“ segir
Gísli Einarsson, eigandi spiiabúð-
arinnar Nexus á Hverfisgötunni.
Það sem um er að ræða eru
Pokemon-spilapakkamir sem eru
nýjasta afsprengiö af Pokemon-
gæludýrunum góðkunnu.
Um þessar mundir má sjá krakka
á aldrinum 6-12 ára sitja á hinum
ýmsu stöðum með möppur fullar af
þessum spiium og það virðast fjörag
skipti vera í gangi, ekki ólíkt því og
þegar skipst er á körfuboltamynd-
um. Gísli segir að það sem raun-
verulega sé i gangi sé það að krakk-
amir séu að skiptast á spilum til að
byggja upp heildstæðan og sterkan
pákka sem síðan er notaður í spilið
sjálft. Ein sagan segir að gutti einn
hafi lagt undir stokkinn sinn og
gemsann fyrir sex spil frá öðrum
dreng en ekki fengið.
Annar ekki eftirspurn
Þetta spil var kynnt hér á landi
um seinustu jól og hafa vinsældir
þess aukist ört. „Það er þaö vinsælt
að við hreinlega önnum ekki eftir-
spurn. Á þriðjudaginn seinasta
fengum við sendingu og ætluðum
að hafa hana tilbúna þegar væri
opnað og þegar við mættum að
versluninni stóðu um 20 krakkar i
biðröð fyrir framan hana,“ segir
Gísli.
Aldurshópurinn sem spiiar þetta
mest er 6-12 ára en þetta slæðist
jafnvel alveg upp í sextán ára
krakka, að sögn Gísla. Það er þó
ekki þar með sagt að eldri kynslóð
spiiafíkla sitji með auðar hendur
því önnur spil era á boðstólum sem
byggð era á hefð safnkortaspila,
ein þessi tegund spila er kölluð t.d.
Magic og Star Trek.
Að lokum má geta þess að þeir
sem þyrstir í frekari upplýsingar
geta kíkt á www.pokemon.is. Síðan
er enn í smíðum en eitthvað ætti
að fást þar af fróðleiksmolum. Þeir
sem eru að leita sér að spilafélög-
um fyrir hvers konar spil af þessu
tagi geta kíkt í Nexus því að þeir
hafa komið upp spilasal við hliðina
á verslun sinni.
Stjáni stuð er alltaf í
Fókusvefurinn:
Hver vinn-
ur Ungfrú
ísland?
Pearl Jam loksins
með nýja plötu
Söngvari 2000
naglbíta:
Villi að 4 A
grilla ÍH-
Allt um
lettnesku
hljómsveit-
ina úr
Júróvision-
keppninni
Tískan kl. 12
á hádegi:
Eru dopp-
ur virki-
lega
smart?
tl i f i ð
Listnemar Otskrifast
Fleiri óvæntar bólfarir
Fókus bvður í bíó
Skuaaa Baldur í Bíldudal
Flallarimur Ftelaa með svninau
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndlna tók Hilmar Þór af
Vilhelmi Anton.
19. maí 2000 f ÓkUS
3