Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 6
Hér hvílir
Þorsteinn
Audur Harctlds
okkar um eigin dauðleika. Fókusi lék forvitni á að vita hvort
dauðinn væri það feimnismál sem hann virðist vera og brá á
alvarlegan leik með nokkrum þjóðþekktum einstaklingum.
_JL
ovorc ki
.Ég verö örugglega alveg hundgamall. Þaö hefur nefni-
lega viljað loða við karlmenn í minni ætt,“ segir Þorsteinn
Hreggviðsson, betur þekktur sem Þossi á X-inu. Þossi er
þritugur i dag og þrátt fyrir aö það sé ekki hár aldur hefur
hann nú þegar ákveðnar hugmyndir um hvernig hann
myndi vilja hafa jarðarförina sína. „Ég myndi vilja að lag-
ið „Take Me down to Paradise City" með Guns and Roses
yrði spilað og ég myndi vilja vera jarðsettur í svartri kistu.
Mér finnst nefnilega svartar kistur mun virðulegri heldur
en hvitar. Ég myndi vilja að kistan væri eins og kross í lag-
inu þannig að ég gæti rétt vel úr höndunum. Síðan myndi
ég vilja hafa alvöru parti á eftir með nógu af áfengi þar
sem gestirnir myndu gleðjast og skemmta sér saman.
Enda er það ekkert sorgarefni þegar svona gamlir menn
deyja. Þá er maður hvort sem er farinn aö ganga við
göngugrind og missa sjónina og timi kominn á mann,“
segir Þossi sem er þó ekki farinn að leggja fyrir fýrir jarð-
arför sinni sem miðað við þessar lýsingar gæti orðiö
nokkuð kostnaðarsöm. „Ég held að þegar við deyjum sé
þetta iíf bara búið og það taki ekkert annað viö," segir
Þossi sem telur það óskhyggju þegar fólk segist hafa tal-
að við framliðið fólk. Hann sé alla vegna sáttur við þá til-
hugsun aö þegar hann deyr þá sé allt búið.
„Þegar ég fyrst fattaði hvað dauðinn var olli
það mér mikilli skelfingu en ég var fimm ára
þegar það átti sér stað,“ segir Auður Haralds
rithöfundur. Hún segir þá skelfingu síðan hafa
hjaðnað og nú í seinni tíö hafi hún alveg sæst
við hann og finnist hann eðlilegur, ef svo
má að orði komast. Það fer í taugarn-
ar á Auði hvernig nýjum uppgötvun-
um i læknavísindum er hampað.
„Það mætti halda að við værum
búin að sigrast á dauöanum þeg-
ar ekkert hefur verið gert annað
að seinka honum. Það er verið
að treina tóruna i fólki
sem síðan býr við
aðbúnað i
ellinni." Auður segir þó að fólk undir fimmtugu
eða svo ætti þó rétt á lækningu en eftir það
ætti náttúran aö fá að ráða þessu. Væntan-
lega dagsetningu dauðdaga síns hefur Auður
reiknað út frá andlátsaldri foreldra sinna og
annarrar ömmu en þau dóu öll 63 ára að aldri.
Aðspurð hvort hún sé byrjuð að skipuleggja
jarðarförina sína segir hún svo vera. „Ég ætla
að láta jaröa mig í einrúmi. Ég hef imugust á
jarðarförum og ætla mér ekki að fara að leggja
það á fólk að sitja í gegnum mína.“ Það er
einnig ósk Auöar að verða grafin I pappakassa
eða bréfpoka. „Ég vil verða sem fyrst að gagni
sem áburður. Helst finnst mér að fólk ætti að
rækta kartöflur eða þviumlíkt á leiðinu minu.“
Pál 1
Óskar
illan
Jurwi vrir dlfjjbrt JlJJ
fitj <rrhln)ik nium
íirj <’?• hliink núna
l>ví lumn vilfli
(ildrrn'Jqiupa
((fírjjfHjtiifpv
„Eg hef hugsað þonokkuð, eins og allir, ut i
dauöann. Við erum nú öll einu sinni gædd
þessum dauðlega móral," segir
Steinn Ármann Magnús- »•
son leikari. „En
þannig er mál * i.. “
meðvextiaöég
Kri.'itjrma
eiginlega
t
Steinn A.rmann Magnússon
f.28.10.1964 - d. örugglcga aldrci
Sá íslendinaur sem var llkastur Elvis.
Steinn svaf ekki hjá mörgum konum.
Ekki nema svona kannski 300
(sem hefur veríð skjalfest).
. ■•■ :"■;■ •:■.■.!■ ■■■ ■ : ,„•■■' "
\ ; •*;;. f, i. -y.,
. . .
meira hræddur um að drepast aldrei. Sem ung-
barn var mér vart hugað lif, fæðingin var tæp
og stuttu seinna fékk ég kíghósta og fleiri
barnaveikir. Þá sagði gömul, fróð kona við
hana móður mina: „Fyrst hann Steinn
drapst ekki af þessu þá drepst
hann aldrei."
„Þess vegna er ég systematískt
búinn að vera aö vinna í því aö
drepa mig með tóbaksreykingum,
áfengisdrykkju og fleiri viðbjóði.
Þar sem ég veit þetta hef ég oft
hugsað að það gæti verið gott ef
einhver myndi bara koma og
keyra á mig. Konan min er að
vísu búin að bjóðast til þess en
svo rann henni reiðin. Ég
igLmyndi helst kjósa að deyja
“ óvænt og óvart."
Dr. Love er sjálfskipaður kynlífsfræðingur götunnar. Hann leysir úr tilfinningaflækjum lesenda Fókuss og gesta Fókusvefsins á
Vísi.is. Einungis er hægt að svara völdum bréfum en þeir sem eru virkilega þurfandi geta lertað á náðir Dr. Love í síma 908 1717.
í gamla daga var dauðinn ekkert feimnismál. Fólk dó á heimil-
unum og engum þótti það neitt tiltökumál. í dag er hann fjarri
okkur jafnvel þótt heilt dagblað fjalli um lítið annað. En það fer
ekki saman umfjöllun okkar um látna einstaklinga og hugsun
Dauð 63la
ems
DR. LOVE fékk þessl tvö bréf send sama dag-
inn fyrir tilviljun. Þar sem bréfin eru siáandi lik
ákvað hann aö blrta þau bæbl - og svara þeim
báöum í elnu í kjölfariö.
Bréf 1 tll Dr. Love:
KÆRI Dr. LOVE
Ég er 17 ára strákur og get ekki fróaö mér
nema yfir hommaklámi. Mig langar ekki til aö
vera hommi því mér finnst ég vera svo mikiö
freak. Auövitaö reyni ég viö stelpur en ég finn
ekki fyrir neinu en hins vegar fæ ég bóner á aö
horfa á flottan rass á strákum. Kæri Dr. Love,
er ég algjört freak og ógeö?
P.S. Ég vil ekki veröa hommi en ég er ekki meö
fordóma. Þinn A.
Bréf 2 til Dr. Love:
HÆ PALLI
Ég er tvitugur og ég var aö spá: Er ég hommi
eöa er ég ekki hommi? Þannig er mál meö vexti
aö þaö eina sem ég hugsa um þegar ég fróa
mér eru karlmenn en þegar ég er búinn aö fróa
mér þá get ég ekki hugsaö um karlmenn. Ég
get bara hugsaö um þá í þessum gredduköst-
um sem ég fæ. Um daginn þá kynntist ég strák
sem er hommi og viö fórum eitthvaö aö spjalla
og svo vildi hann meira en þaö var þara ekki
inni í dæminu hjá mér. Éggat bara ekki hugsaö
mér aö vera meö öörum karlmanni. Ég er búinn
aö vera meö stelpu og er aö dúlla mér meö
annarri núna og þaö gengur alveg eins og i
sögu. Er ég hommi eöa hvaö??? Þinn B
SVAR DR. LOVE
Kæru A og B
Alþingi var að samþykkja ný lög um daginn
(með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða - aðeins
einn var á móti og 3 sátu hjá) um stjúpættleið-
ingar samkynhneigðra sem búa í staðfestri
samvist. Þetta þýðir það að það er hvergi I
HEIMINUM jafngott að búa og á íslandi ef mað-
ur er samkynhneigður. Lagalega séð!
Auðvitað er gjörsamlega frábært að ALÞINGI Is-
lendinga skuli sýna svona mikinn skilning, ná-
ungakærleika og mannúö í verki eins og gert
var um daginn. Það er frábært að vilja vera góð-
ur og skilnmgsrikur og ala ekki á fordómum.
Sérstaklega þegar maður er í svona valdastöðu
eins og þetta fólk uppi á Alþingi. Var það ekki
Oscar Wilde sem sagði: „It's Nice to Be
Important - But It’s More Important to Be
Nicei"
Lög og reglur eru náttúrlega lítið annað en bók-
stafir og orð á einskis nýtum pappir ef samfé-
lagið skilur þau ekki og fer ekki eftir þeim. Það
er í höndum þjóðfélagsins sjálfs. En það mun
líka hafa góð áhrif á samfélagið að Alþingi sýni
þessum málstað svona mikla samstöðu. Pælið
í öllu því liði sem á nú eftir að hugsa sig tvisvar
um áður en það fer að dissa homma og lesbiur
aftur!
Og akkúrat meöan á öllu þessu frjálsræöi
stendur sitjið þið báðir og nagið á ykkur negl-
urnar af áhyggjum yfir því hvort þið séuð homm-
ar eða ekki! Þetta er versta tegund fordóma
sem þið gætuð nokkurn tíma upplifað, fordóm-
arnir sem þið hafið i garð ykkar sjálfra! Hver
kenndi ykkur þetta? Voru það foreldrar ykkar?
Eru þeir búnir að ala ykkur upp til þess að hata
ykkur sjálfa?
Það er frekar auðséð á báðum þessum bréfum
að þið eruð jú báðir hommar. Þið filið tilhugsun-
ina um kynlíf með karlmönnum og þið eruö með
hommakynlíf á heilanum þegar þið eruð að
nálgast það einlægasta sem þið getið gert og
fengiö: Fullnæginguna!
Þið verðið að passa ykkur á því að Ijúga ekki
svona að sjálfum ykkur. Þaö endar bara með
ósköpum! Gott dæmi er maðurinn sem var
hommi. En hann var svo sannfærður um að hann
væri „streit" að þegar hann reið karlmönnum þá
notaði hann aldrei smokka - af því að „það eru
bara hommar sem smitast af AIDS!“ Auðvitað
smitaðist maðurinn að lokum af HlV-veirunni og
konan hans reyndar líka. Þetta var sönn saga um
lygina. Hve lengi ætlið þið að Ijúga?
Málið er einfalt. Karlmenn sem pæla í karl-
mönnum eru ekki streit. Ég á við ykkur! Ef ykk-
ur tekst giftusamlega að hefja samband meö
stelpum (af þvi að þið reynið svo mikið) þá get-
ur meira en vel verið að þið séuð BISEXUAL. Tví-
kynhneigð heitir það á íslensku! Mér finnst það
mjög öfundsvert að vera tvíkynhneigður því þá
á maður 100% séns á deiti. Meira um þaö
seinna.
Og kæri B. minn, þessi hommi sem þú varst að
spjalla við um daginn; líkist hann að einhvetju
leyti karlmönnunum sem þú hugsar um þegar
þú fróar þér? Ekki það, nei? Nú, þá er ekki
nema von að þessi ákveðni hommi hafi ekki
komið þér til! Það er hægt að velja og hafna i
þessum bransa líka. Hommar stökkva ekki á
næsta homma eins og kerlingar á útsölu.
Gerið það fýrir mig, ekki kalla ykkur sjálfa „frik".
Ekki segjast ekki geta „hugsað ykkur að vera
meö öðrum karlmanni" þegar þið hugsið um
EKKERT NEMA KARLMENN á meðan á kynlifinu
stendur.
ALÞINGI finnst þið ekki vera „frík“. Samfélagið
í heild sinni er að gera sitt besta til að bæta
kjör samkynhneigðra á Islandi, landinu þar sem
þið búið. Meira að segja streit vinkona mín
sagði eitt sinn: „Ég vona að börnin min eigi eft-
ir að alast upp i heimi þar sem það skiptir engu
máli hverjum maöur er skotinn i.“
Það er svo ótalmargt ungt fólk (og eldra) sem
er að koma út úr skápnum þessa dagana án
þess að upplifa eitthvert vesen eöa slæm við-
brögð. Upplýstir foreldrar og vinir gera ungu
samkynhneigðu fólki svo miklu léttara fýrir. Svo
lifa allir í sátt og samlyndi, við jafnan lagalegan
rétt, gifta sig ef þeir vilja o.s.frv.! Það eru sjálf-
sögð mannréttindi að ráða því hvernig maður
vill lifa - og með hverjum.
Það er eitt alla vega alveg á hreinu: ÞIÐ ERUÐ
EKKI EINIR I HEIMINUM! ÞIÐ MEGIÐ ALDREI
GLEYMA ÞVÍ! Þið skrifuðuð þessi bréf, sinn i
hvoru horninu, sama daginn. Vonandi eigið þið
eftir að hittast sem fýrst og bera saman bækur
ykkar. EBa bréfin ykkar!
ÉG ELSKA YKKUR LÍKA,
DR. LOVE!
6
f Ó k U S 19. mal 2000