Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 4
Taktu ólífuolíuna
með á ströndina:
Ólífuolía er ekki bara hentug
við matseldina heldur er hún
einnig orðin ómissandi i sólbaðið
ef marka má japanska visinda-
menn. Ólífuolían á nefnilega að
hafa fyrirbyggjandi áhrif á húð-
krabbamein og
er mælt með
því að menn
smyrji henni á
sig að sólbaði
loknu. Tilraun-
ir voru gerðar á
hárlausum
músum sem
sendar voru í
sólbað þrisvar í
viku og sýndu
þær mýs sem
voru smurðar
með ólífuolíu
miklu minni út-
brot og tilhneig-
ingu til húð-
krabbameins
heldur en þær
sem ekki fengu É m
ólífuolíumeð- .
ferð. Það skal
þó tekið fram að ólífuolían er eng-
in sólarvöm og það þýðir lítið að
maka henni á sig áður en lagst er
út í sólina. Það sakar hins vegar
örugglega ekki að sletta aðeins á
sig að sólbaðinu loknu svona rétt
á meðan maður stendur hvort sem
er yfir eldavélinni með flöskuna í
hendinni við kvöldmatarbraskið.
Stjáni stuð vinnur í Kassageröinni og auk þess er hann útvarpsmaður af lífi og sál og ef eitthvað vit væri í öllum þessum útvarpsstöðvum sem senda út á FM
myndi síminn í Kassagerðinni glóa núna.
Kristján Þórðarson var snemma á seinasta áratug vel þekktur hjá útvarpshlustendum
sem Stjáni stuð er hann kynnti lög af stakri snilld, m.a. á útvarpsstöðinni Sóiinni.
Seinustu ár hefur lítið sem ekkert í honum heyrst en hann tjáði Heiðari
Sumarliðasyni að hann væri samt sem áður alltaf að reyna að komast í útvarpið.
Fékkflís í rassinn
Þegar maður mætir Stjána á
vinnustaðnum hans í Kassagerð
Reykjavíkur er ekki um að villast
hver maðurinn er. Hann er vel
merktur með límmiðum á eyrna-
hlífunum sínum sem á stendur
Stjáni stuð.
„Ég fékk fyrst áhuga á útvarpi
þegar ég var lítiil en á þeim tíma
var pabbi minn útvarpsmaöur á
Rás 1. Ég byrjaði svo með útvarps-
þátt á Rótinni árið 1989, þá var ég
19 ára gamall.“
Eftir það var Stjáni um nokkurra
ára skeið með þátt á Sólinni en eft-
ir að hún hætti fékk hann hvergi
starf í útvarpi. Stjáni lét það ekki
halda sér frá útvarpsbransanum
heldur safnaði sér peningum og
var með eigin útvarpsstöð í viku.
„Það var rosalega dýrt þannig að
ég held að ég geri þetta ekki aftur.“
Stjáni átti stóran hlustendahóp
sem lét í ljós óánægju sína með það
að hann fengi ekki inni á neinni af
útvarpsstöðvunum. Stjáni segir að
m.a. hafi eitt fyrirtæki hér í bæ
hringt í eina ónefnda útvarpsstöð
og sagst ætla að hætta að auglýsa
þar ef Stjáni fengi ekki inni hjá
þeim. Stjáni var yfirleitt einn i út-
varpinu en fékk þó öðru hvoru vin
sinn, Sigga Rokk, til að vera með
sér.
„Við erum miklir grínarar eins
og Jón og Gulli,“ segir Stjáni sem
vill helst spila vinsældapopp og
segist í dag vera hrifnastur af Brit-
ney Spears og Christinu
Aguilera. „Það er minn helsti
draumur að fá að vera með þátt um
helgar í útvarpi."
Gifting á kortinu
„Ég er ekki líkamlega fatlaður en
ég er samt fatlaður," segir Stjáni en
hann er 75% öryrki. „Ég hef æft
borðtennis með íþróttafélaginu Ösp
sl. 4 ár. Ég er alveg ágætur spilari
en enginn stórmeistari. Á seinasta
móti náði ég bronsinu en stefnan
er tekin á gullið eða silfrið á vor-
mótinu. Ég sætti mig ekki við
bronsið aftur,“ segir Stjáni mjög
ákveðinn á svip.
Bráðlega mun Stjáni fara til
Hollands þar sem hann tekur þátt í
Evrópumóti fatlaðra í borðtennis.
„Það eru nokkrar sterkar þjóðir á
mótinu en ég verð bara að bíta á
jaxlinn og segja sjálfum mér að ég
geti þetta.“
Stjáni býr í Árbænum ásamt
kærustunni sinni, Soffíu, hana
hitti hann þegar þau voru saman í
Öskjuhlíðarskóla. „Einu sinni
leyfði ég henni að koma með mér í
útvarpið þegar ég tók viðtal við
Ladda en hún hló svo mikið í
beinni að hún fékk aldrei að koma
með mér aftur. Við erum trúlofuð
og erum að spá í að gifta okkur i
haust. Við erum búin að ákveða að
fara á Hótel Örk í brúðkaupsferð-
inni okkar.“ Stjáni segist þó ætla
að halda sig frá vatnsrennibraut-
inni, minnugur þess þegar hann
fór þangað síðast. „Ég ákvað að
renna mér niður á spýtu og endaði
með stóra flís í rassinum." Stjáni
segir einnig að það sé mjög erfitt að
eiga kærustu. „Sérstaklega af því
hún gleymir alltaf að búa um á
morgnana."
Vill minnka magann.
Um starfið hjá Kassagerðinni
hefur Stjáni aðeins góða hluti að
segja. „Þetta er besta vinna sem ég
hef verið í og ég á marga góða vini
í Kassagerðinni. Ég er aðallega á
tætaranum í öskjudeildinni en ég
flakka líka mikið á milli þeirra
deilda þar sem mín er þörf.“ Þegar
Stjáni er að lokum spurður um
framtíðarvonir sínar liggur hann
ekki á svörunum. „Ég stefni
ótrauður í útvarpsmennskuna og
ætla aldrei að hætta að reyna að
komast að. Fyrir mig persónulega
er helsta takmarkið að minnka
bumbuna." Og miðað við hversu
ákveðinn hann er á svipinn mun
honum örugglega takast
það.
WAR'NN VAR MEO "lO-U" AUölSfSlNSU A
ítPUNNI,,, JÁ ÞAe ER, A© OPNAST PARNA M4ÖG
STÓR MARkAOUR, AUT NORt>URH6IM3KAUTl&
EKKI S6T0A t&ik UPP "10-II" BUÐIR. ÞAR, >
0& iK t-Á 6 KKI ÞÁUblO fANOT A$> FARA?
uó, PETTA 6 8, T'tMA FUU&.„
f Ó k U S 19. maí 2000
4