Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Side 8
Elín verður á Broadway í kvöld.
bóksölunnar í skólanum og er alltaf
að safna sér. Hún á nú um 200 þús-
und kall inni í banka og stefhir að
því að fara í eitthvað geggjað ferða-
lag eða kaupa sér ibúð en þegar hún
er spurð að því hvort hún eigi hluta-
bréf svarar hún því neitandi.
En í hverju myndiröu kaupa ef þú
tœkir 200 þúsund kallinn og fœrir til
veröbréfasala?
„Íslandsbanka-FBA og kannski is-
lenskri erfðagreiningu," svarar
skutlan og fer að undirbúa sig undir
kvöldið.
Gestir Fókusvefsins á Vísí.is hafa eytt vikunni í að velja sína
stúlku úr hópi keppenda í Ungfrú ísland 2000. Rétt áður en
Fókus fór í prentun var niðurstaða kosningarinnar sú að Elín
Málmfríður Magnúsdóttir fékk flest atkvæði netverja.
Ungfrú ifókus
- á 200 þúsund kall inni í banka
„Nei, ég býst ekkert við því frekar
en hinar, það er alltaf 1 á móti 24, en
auðvitað geri ég mitt besta,“ segir
hin 19 ára Elin Málmfríður Magn-
úsdóttir, aðspurð um það hvort hún
muni ekki bara vinna keppnina rétt
eins og þegar hún tók Ungfrú Vestur-
land með trompi og varð þar að auki
Elle-stúlka Vesturlands.
Vill búa á bóndabæ
En er eitthvaö hœgt að gera sitt
besta í fegöuröarsamkeppni, er ekki
aöalmálið að vera bara sæt?
„Nei, maður verður að standa sig.
Bera sig vel og koma vel fram,“ út-
skýrir Elin og þakkar um leið fýrir
nýjasta titilinn: Ungfrú Fókus.
Elín er alin upp á Eystri-Leirár-
görðum 2 en þar eru um 70 nautgrip-
ir í fjósi, 300 kindur, hundur, köttur
og nokkrir hestar. Og það sem meira
er: Elínu langar ekkert sérlega til að
fLytja í bæinn. Sem eru tíðindi því yf-
irleitt er talað um að unga fólkið á
landsbyggðinni sé á leið í bæinn.
„Ég vil alla vega búa á bóndabæ í
framtíðinni," segir Eltn og bætir því
við að Reykjavík sé ekki paradís í
hennar augum. „Það eru alger for-
réttindi að fá að alast upp í sveit og
ég vil síður ala mín böm upp í bæn-
um.“
Og hvaö œtlaröu aö eignast mörg
börn?
„Þrjú til fimm,“ svarar Elín þó það
sé auðvitað ekki alveg ákveðið en
hins vegar er hún alveg ákveðin
hvað karlefni varðar. „Ég er trúlofuð
Valþóri Ásgrímssynl og bý hjá hon-
um héma á Akranesi. Ég er í fjöl-
brautaskólanum héma og vinn á
Hróa hetti en hann er útskrifaður og
er að vinna til að geta hafið nám í há-
skólanum næsta haust.“
Myndi kaupa í íslands-
banka-FBÁ
„Ég leit alltaf upp til Hófí og þeirra
þegar ég var stelpa og því er þetta
eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt
um að gera,“ segir Elín og er ekkert
að fela aðdáun sína á fegurðardrottn-
ingum fyrri ára.
Annars stefhir Elín á nám tengt
viðskiptum enda er hún gjaldkeri
„Tónlistin á þessarri plötu verð-
ur ekki eins og tónlist Ununar því
ég reyni að endurtaka mig ekki,“
segir Ragnheiður Eiríksdóttur,
betur þekkt sem Heiða í Unun um
sína fyrstu sólaplötu sem er nú í
burðarliðnum og er áætluð að
komi á markað í haust. Hvað
plötugerðina varðar þá hljóp held-
ur betur á snærið hjá Heiðu um
daginn því hún var ein þeirra fjög-
urra tónlistarmanna sem hlutu
500 þúsund króna styrk frá Félagi
tónskálda og textahöfunda fyrir
skömmu.
í heimspeki í Háskólanum
Hvað sólóplötu Heiðu varðar þá
segir hún að þar verði pottþétt rokk
að finna ásamt ýmsu öðru. Lög og
textar eru öll eftir hana og líkt og
hjá Unun er ástin áberandi yrkis-
efni. „Já, það eru einhverjar ástar-
sorgir þarna," játar Heiða sem sem-
ur eingöngu á íslensku.“Ég vildi
gera alíslenska plötu og mér finnst
göfugra að semja á íslensku heldur
en ensku." Samhliða plötunni er
Heiða að skrifa BA-ritgerð í heim-
speki en hún áætlar að útskrifast
um næstu jól frá Háskólanum.
Sumarið hjá Heiðu mun að mestu
fara í þaö að taka upp plötuna en
það er Birgir Örn Thoroddsen sem
er hennar helsti aðstoðarmaður.
„Ég verð svo einnig að finna mér
einhverja hálfdagsvinnu," segir
Heiða sem eins og svo margir lista-
menn lifir ekki á listinni einni sam-
an og er með augun galopin þessa
dagana fyrir sumarvinnu.
Fjórir fengu 500 þúsund
„Ég lifi á 57 þúsund krónum á
mánuði sem nemi í Háskóla íslands
þannig að þessi styrkur kemur sér
mjög vel,“ segir Heiða ánægð, en
styrkirnir frá FTT eru veittir ár-
lega. Fyrir utan Heiðu þá fengu
Friðrik Karlsson, Sigurður
Flosason og Jón Ólafsson einnig
styrk upp á hálfa milljón og er því
hægt að búast við sólóplötum frá
þessu fólki á árinu. Sex til viðbótar
fengu minni undirbúningsstyrki:
100 þúsund kall fengu Jakob Frí-
mann Magnússon ogTorfi Ólafs-
son, fimmtíu þúsund fengu Pétur
Stefánsson, Gísli Helgason,
Pálmi Sigurhjartarson og Daníel
Ágúst Haraldsson.
^að hefur ekki heyrst mikið
í Heiðu í Unun að undan-
Drnu. Pað gæti þó farið að
breytast því stelpan
vinnur þessa dagana að
sinni fyrstu sólóplötu sem
3r væntanleg í verslanir með
haustinu.
Heiöa er ein þeirra tónlistarmanna sem fengu styrk í ár frá FTT. í fyrra fengu Eyjólfur Kristjánsson, Jóhann Ásmundsson,
Jóhann Helgason og Þórir Baldursson styrklnn. Eyvi og Þórir gáfu báöir út sólóplötu fyrir peninginn og eins áætlar Heiða
aö gera viö sína fjárhæð.
Fæstir vilja viðurkenna það en við íslendingar höfum lengi lagt okkur í
líma við að herma eftir Svíum. Eitt best heppnaða tilvikið er Hrafn Gunn-
laugsson. í mörg ár haf menn keppst við að hampa honum í hástert á milli
þess sem þeir skoða myndir af Roger Pontare til að athuga hvort hann sé
ekki örugglega eins. I ljósi þessa hefur Hrafn fengið að leika lausum hala
með sérvisku og pervertisma. í Evróvisjón 1994 var nærri búið að koma upp
um okkur þegar Roger keppti í fyrra skiptið fyrir hönd Svíþjóðar. Það að
honum var skipað að vera snyrtiiegur bjargaði því. Eftir að Myrkrahöfðing-
inn barst til Svía fengu þeir nóg af Hrafni og leyfðu Roger að fara hamfor-
um í undarlegheitum í Evróvisjón til að undirstrika hver sé meistarinn.
Hrafn Gunnlaugsson íslendlngur.
Roger Pontare Svíi.
Nú er Haraldur Öm loks kominn
heim úr pólforinni og þar með
kominn tími fyrir hann að finna
sér nýtt markmið. Það sem Harald-
ur gleymdi þó í þessari fór sinni
var að safna áheitum og styrkja
þar með eitthvert gott málefni í
stað þess að auglýsa bara fyrirtæki
á vonarvöl. En Fókus fyrirgefur
honum, eins og öllum öðrum, fyrir
þessa yfirsjón og kastar fram hug-
myndum um yfirbót:
1. Hanga á fótunum í krana fýrir utan Kringl-
una í einn mánuö til styrktar ungum alkóhólist-
um og fíkniefnaneytendum undir slagorðinu:
Hanglr þurr!
2. Ganga fáklæddur þvert yfir Sahara-eyði-
mörkina til styrktar Uppgræðslusjóði Land-
græðslu ríkisins.
3. Róa langsum yfir Atlantshafið - frá Islandi
til Suðurskautslandsins - til styrktar leikfanga-
kaupum barnaspítala væntanlegrar herstöðv-
ar NATO í Póllandi.
4. Setja dvalarmet í geimstöðinni MÍR til
styrktar MlR - Menningarmiðstöðvar Rúss-
lands og íslands.
5. Búa I gleraugnaslöngugryfju í tvær vikur til
styrktar Blindrafélaginu.
6. Kafa frá ósum Amazon-fljóts að upptökum
þess til styrktar ellilífeyrisþegum.
7. Hlekkja sig viö ísskáp í eitt ár til styrktar
baráttu gegn notkun freonkældra ísskápa.
Verndum ósonlagið.
8. Búa I sérhannaðri kúlu á botni Þingvalla-
vatns I þrjá mánuði til að mótmæla tilveru
Sogsvirkjunar undir slagoröinu: Urriðinn á rétt-
innl
9. Svifa í kringum hnöttinn á svifdreka til
styrktar áframhaldandi flugi til Húsavíkur.
10. Glápa á alla þætti Leiöarljóss - Guiding
Light - í maraþonlotu til styrktar Ríkissjónvarp-
inu svo efla megi dagskrárgerð þar á bæ.
Rccbök
f Ó k U S 19. maí 2000