Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Qupperneq 12
-I-
I
*
vikuna
18.-25.5 2000
20. vika
Toni Braxton er “one fine look-
ing woman”. Titilinn á laginu
hennar, He Wasn’t Man Enough
fær karlmenn hvaðanæva úr
heiminum til að stökkva upp og
öskra: “Toni, ég er það. Ég er
það!”
Topp 20 Uilnir
(01) Tell Me Einar Ágúst & Telma VlflUf á lista © 6
(02) Freestyler Boomfunk MC’s <P* *
@ The Ballad Of Chasey L. Bloodhound Gang 4 <P* ^
(04) Run To The Water Live 4^ 11
(05) He Wasn't Man Enough Toni Braxton ^ 9
06) Ex-Girlfriend No Doubt ^ 10
(07) Thong Song Sisqo / 4
08) I Wanna Mmmm The Lawyer X 7
(09) Say My Name Destiny's Child ^ 12
(lO) You Can Do It lce Cube 4- 8
ílj) Fool Again Westlife 4 7
(12) Freakin'lt Will Smith 9
(73) Are You Still Having Fun Eagle Eye Cherry ■X 9
(74) Mama Toid Me.. Tom Jones&Sterephonics 4- 6
(75) Never Be The.. Melanie C&Lisa Left Eye
(16) Oops 1 Did It Again Britney Spears 4 5
(77) Orginal (órafmagnað) Sálin Hans Jóns Míns 4 15
(78) There You Go Pink <*>* 4 <P*
(79) My Heart Goes Boom French Affair 4 7
(20) Búinn Að Fá Nóg Buttercup t 8
Sætin 21 til 40
© topplag vikunnar J hdsldkkvari vikunnar 21. Mambo Italiano Shaft 4 5
22. Don't Wanna Let You Go Five 4/ 8
23. Dirty Water Made In London t 2
)( nýtl á listanum 24. Lucky Star Superfunk « 6
25. Vertu Hjá Mér Á Móti Sól t 8
'W' slendurístað <F?s 26. Bingo Bango Basement Jaxx t 5
/k hækkar sig frá 1 sfflislu viku 27. Just Around The Hill Sash t 3
28. Sunshine Reggae Laid Back t 4
J lækkarsiafrá siðjstu viku 29. Music Non Stop Kent 4r 3
30. American Pie Madonna 4- 13
fallvikunnar 31. You Sang to Me Marc Anthony U 3
32. Waste Smash Mouth 4 7
33. Fill Me In Craig David t 5
34. Toca s Miracle Fragma 4/ 4
35. Feel The Same Triple X t 3
36. Freistingar Land og Synir 4 14
37. Billie Jean Bates 4 5
38. Now Or Never Tom Novy & Lima X 1
39. Shackless Mary Mary t 2
40. Everything Vertical Horizon X 1
%
Superfunk ásamt Ron Carroll - bera nafn með rentu.
Dimitri from Paris er nýfarinn og Laurent Garnier er á leiðinni.
Bæði Daft Punk og Air senda frá sér plötur sem mikið er
beðið eftir, en eins og Trausti Júlíusson komst að þá er engin
ástæða til þess að láta sér leiðast á meðan beðið er.
Ekkert lát á
frá Frakklandi
Mlrwais. Tekur
vlö af William Or-
blt á tökkunum
hjá Madonnu.
Laurent Garnler:
mætir með sex
manna sveit í
Skautahöllina.
Franskt popp og rokk var lengi
talið eitthvað það hallærislegasta
sem til var. Fyrir utan nokkra snill-
inga eins og t.d. Serge Gainsbourg
og rapparann MC Solaar þá var
hlegið að þeim. Frakkar virtust bara
engan veginn skilja út á hvað þetta
gekk. (Man einhver eftir rokkhljóm-
sveitinni í kvikmyndinni Subway?).
En þetta átti eftir að breytast. í byrj-
un árs 1997 kom út platan
„Homework" með franska house-
dúóinu Daft Punk. Platan sló ræki-
lega (og verðskuldað) i gegn bæði
austan hafs og vestan. Ári seinna
kom svo „Moon Safari" með Air og
alla tíð síðan hefur gæðatónlistin
streymt frá París með jafn reglulegu
millibili og ostamir og rauövínið.
Nokkrar af bestu plötum síðasta
árs komu frá Frakklandi. Þetta voru
t.d. plötur með Cassius, Alex
Gopher, Rinocerose og Kojak.
Árið 2000 byrjaði með marglofaðri
plötu Laurent Garnier „Unreasona-
ble Behaviour", en síðan eru komn-
ar margar fleiri áhugaverðar
franskar plötur. Kíkjum á nokkrar
þeirra.
Hið ofurtæra powerdiskó,
Superfunk
Hljómsveitin Superfunk er skipuð
þeim Fafa Montego, Mike 303 og
Stephane B frá Marseille. Þeir gera
tónlist sem er einhverskonar sam-
bland af house, funk og diskó með
hip hop og elektró-innskotum. Þeir
ólust upp við jafnólíka hluti og
Supertramp, Giorgio Moroder,
Earth Wind & Fire, Donnu Summer
og „Heroes“ með Bowie. Þeir gáfu
m.a. út efni undir nafninu „Dealers
de funk“ áður en þeir stofnuðu
Superfunk.
Superfunk fóru til Chicago til
þess að upplifa fæðingarstað house-
tónlistarinnar og var hvarvetna tek-
ið opnum örmum. „Það er örugglega
út af Daft Punk,“ segja þeir. Platan
„Hold Up“ sem nýlega kom út hjá
Fiat Lux merkinu er tekin upp í þar
í borg. Fyrsta lagið sem sló í gegn af
henni heitir „Lucky Star“ og er
sungið af gömlu Chicago-kempunni,
Ron Carroll. Þar er samplað úr
laginu „Josephine“með Chris Rea.
Eðal-house frá Demon
Maðurinn á bak við Demon-nafnið
er hinn 22 ára gamli Parisarbúi,
Jérémie Mondon. Hans bakgrunnur
er fyrst og fremst hip hop. „Wu Tang
Clan, Mob Deep, Gangstarr og Black-
moon er það sem mótaði mig,“ segir
harm. Hann gerði samning við plötu-
útgáfuna 20000ST sem er rekin af
kunningjum hans. „Þeir héldu að ég
væri að gera hip hop“. Þegar hann
sendi frá sér 12 tommuna „Atypique“
árið 1997 kom hins vegar í ljós að
þetta var ekta franskt house.
Stóra platan hans „Midnight
Funk“ sem kom út í byrjun ársins
er klassískt Parísar-house. Pottþétt
tónlist, en minnir á köflum kannski
aðeins of mikið á Etienne de Crécy
(Motorbass og Superdiscount).
Nýi Madonnu-strákurinn,
Mirwais
Tónlistarmaðurinn Mirwais
Ahmaezai er fæddur 1 Afganistan,
en alinn upp í París. Hann hefur
verið lengi í bransanum, því að
hann hóf ferilinn í lok áttimda ára-
tugarins í dúóinu Taxi Girl, sem
var tilraun til þess að sameina
pönk, diskó og raftónlist í anda
Kraftwerk. Eftir það var hann í mis-
vonlausum popphljómsveitum og
vann sem upptökumaður og -stjóri.
Hann sendi seint á síðasta ári frá
sér lagið „Disco Science" sem hefur
verið lýst eins og „Flat Eric í Studio
54“. Það samplar hið ágæta rokklag
„Cannonball" meö The Breeders.
Madonna heyrði lagið og hringdi
í Mirwais sem í framhaldi af því
símtali var ráðinn til að vinna að
næstu plötunni hennar. Plata hans
sjálfs „Production" er nýkomin út.
Á henni eru 9 lög
sem flest eru ein-
hverskonar diskó-
skotið house í anda
Daft Punk og er
nokkuð vel heppnuð.
Eitt laganna á plöt-
unni „V.I.“ er unnið
upp úr meistara-
stykkinu „Cargo Cul-
te“ með Serge Gains-
bourg. í öðru laganna „Paradise"
syngur Madonna.
A Reminiscent Drive og
vísindamaðurinn Jay AT-
anski
Ef Mirwais og Superfunk eru í
ætt við Daft Punk, þá er A Remin-
iscent Drive meira í takt við Air.
A.R.D. er listamannsnafn Parísar-
búans Jay Alanski. Fyrsta platan
hans „Mercy Street“ kom út árið
1997. Á henni var mjög róleg og
næstum draumkennd tónlist. Það er
ekki óeðlilegt að Alanski semji
ambient og oft mjög myndræna tón-
list því að hann er líka ljósmyndari
og kvikmyndagerðarmaður. Hann
er undir áhrifum frá jafn ólíkum
hlutum og brasilískum ryþmum,
indverskri og Norðm--Afrískri þjóð-
lagatónlist og tónskáldum eins og
Debussy, Ravel og Satie.
A Reminiscent Drive hefur nýver-
ið sent frá sér sína aðra plötu. Hún
heitir „Ambrosia" og kemur, eins og
fyrri platan út hjá plötufyrirtæki
Laurent Garnier, F-Commun-
ications. Ólíkt fyrri plötunni þá not-
ar Alanski tölvur við gerð þessarar
plötu. Hann bjó til 65 lög, lét útgáf-
una hafa 35 og þeir völdu svo þau 13
sem eru á plötunni. „Ambrosia" hef-
ur víðast hvar fengið mjög góða
dóma, en þó eru einstaka gagn-
rýnendur sem þola hana alls ekki.
Áhugavert sem sagt, en ekki allra.
Og svo líka þetta...
En það er langt frá því að listinn sé |
tæmdur með þessum nöfnum. Plata
trip hop gúrúsins DJ Cam „Loa
Project" er rétt ókomin, Hljómsveitin
Micronauts gaf nýlega út plötuna
„Bleep to Bleep“ sem víðast hefur
fengið góða dóma og ný plata St.
Germain „Tourist" sem kemur út á
hinu margrómaða djassmerki Blue
Note þykir ekkert minna en meist-
araverk. Svo er von á nýrri Phunky ,
Data plötu í júni og þannig mætti
lengi halda áfram. Svo við segjum
enn og aftur: „Allez la France!"
Nokkrar flotlar franskan
Laurent Garnler-Unreasonable Behaviour (F Communications/Japis)
Demon-Mldnlght Funk (20000ST/Japis)
Superfunk-Hold Up (Rat Lux/Skifan)
Dlmltrl from Parls-A Nlght At The Playboy Manslon (Virgin/Skífan)
A Remlnlscent Drlve-Ambrosla (F Communications/Japis)
Mirwals-Productlon (Epic/Skífan)
DJ Cam-Loa Project (Columbia/Sklfan)
Alr-Vlrgln Sulcldes (Virgin/Skífan)
f Ó k U S 19. maí 2000
-L