Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Page 16
Þorsteinn
Guömundsson
e
og ég fylgdist meö Eurovision-
keppninni um síðustu helgi og ég
verð að segja að ég er ekki alveg að
ná þessu, komið þið blessuð og sæl.
Það sem ég skil ekki er af hverju
Kýpur lenti svona neðarlega. Var
þetta ekki stórflnt lag hjá þeim?
Þetta er kristið fólk (ekki eins og
sumir helvítis guðleysingjar sem
ég mun aldrei hleypa inn í himna-
ríki), textinn var auðskilinn og lag-
ið grípandi þannig að maður fór að
dilla sér með því. Þetta var svona
lag eins og Eurovisionlög eiga ...
Annars var þetta stórskemmtileg
dagskrá. Ég ætlaði að pissa á mig
af hlátri þegar unga konan sem
kynnti dagskrána sneri blaðinu
sinu á hvolf í byrjun. Hvílíkt grín,
ha, ha, ha. Og þetta var nú ekki
allt vegna þess að þegar lögin voru
búin og komið að stigagjöfinni þá
rugluðust kynnamir aftur og töl-
uðu eins og útsendingin væri búin
og þökkuðu fyrir sig. Það þurfti
svo að kalla í þau í heymartækin
til þess að minna þau á að stiga-
gjöfin væri eftir. Hvílíkt ótrúlegt grín. Þetta
er sænskur húmor eins og hann ...
... gerist bestur.
Sænska lagið var líka rosalega
melódískt. Hrafn Gunnlaugsson
söng það með miklum töktum og
svo hafa þeir fengið að nota búninga
úr búningasafninu hans fyrir dans-
arana sem stóðu sig alveg með
prýði. Mér finnst nú eiginlega að
Hrafn ætti að pæla í því hvort hann
ætti ekki frekar að leggja sönginn
fyrir sig en alltaf að vera að gera
þessar bíómyndir sem allir em
bara hálfhræddir við. Þetta er nú
bara ...
... svona hugmynd
íslenska lagið var alveg skit-
sæmilegt. Það var ágætlega sungið
og það var gaman að sjá Eyjólf
Kristjánsson í bakröddunum.
Hann er i sérstöku uppáhaldi hjá
mér. Telma er voða sæt stelpa en
þó að ég sé alveg að fíla pilsið sem
Einar Ágúst var í þá setur maður
smáspumingarmerki við öll þessi
tattú sem hann er með á hand-
leggnum og hálsinum. Hann
minnir dálítið á pennaveski sem
er búið að krota æðislega mikið
á. En kannski er ég bara svona...
... gamaldags
Ég er hins vegar alveg á móti
dönsku körlunum sem unnu. Hvað á
það að þýða að vera að syngja „óð til
þroskaðra kvenna“? Síðan hvenær
er það málið að fara að eltast við
gamlar konur? Ég er hræddur um
að innlögnum á fæðingardeild
Landspítalans myndi fækka mjög
mikið ef karlmenn væru alltaf á eft-
ir eldri konum. Það á ekki að
syngja óð til eldri kvenna. Ég skap-
aði þær til þess að passa böm svo
að ungar konur gætu farið meira
út að skemmta sér og búið ...
... til börn!
Svo voru þeir feitir, með svo ótrúlega stuttar lappir að þeir eiga
sjálfsagt í erfiðleikum með að stíga yfir þröskulda (það má hugsanlega
skrifa það á minn reikning), gráhærðir og sungu eins og sambland af
Willie Nelson og Cher. Það er ekki alveg blandan sem maður átti von
á í vandaðri keppni eins og þessari. Jæja, ég vona bara að næsta
keppni verði sanngjarnari og ... já, munið að trúa á mig. Bæ, bæ.
Guð.
PS. Já, svo var það kona úti á landi sem er búin að vera að biðja til
mín að lækna manninn sinn af krabbameini. Sorry, ég get voða lítið gert
í því. Ég er eiginlega alveg hættur i þessum svokölluðu kraftaverkum.
16
19. maí 2000
Lettland tók í fyrsta skipti þátt í
Eurovision í ár og tók upp á þeirri
skemmtilegu nýbreytni að senda
skemmtOegt og ferskt léttrokk í
slaginn. Þetta skilaði góðum ár-
Emgri því Brainstorm varð í þriðja
sæti með lagið My Star. Það er eft-
ir söngvarann Renars Kaupers
sem semur flest lög sveitarinnar.
Saga Brainstorm hófst í bænum
Jelgava árið 1989. Þá heyrði hinn
13 ára Renars í Depeche Mode og
fannst upplagt að stofna hljóm-
sveit. Hann fékk fjóra skólafélaga
til liðs við sig og boltinn byrjaði að
rúlla. Fyrstu árin fóru í að ná tök-
um á hljóðfærunum. Strákarnir
æfðu stíft í húsnæði bæjarskrifstof-
. unnar þar sem
þeir fengu inni
j og urðu vinsæl-
ir í bænum
i með taumlausu
l spiliríi. Sveitin
1 kallaði sig
j Patra Vetra í
byrjun og
fyrsta stóra platan kom út 1993.
Lettneskir blaðamenn líktu efninu
þar við Simple Minds, U2 og R.E.M
og platan gerði bandið umsvifa-
laust að einni vinsælustu sveit
Lettlands.
Flugrán í Moskvu
Næsta plata, Winter, kom 1994 og
þar gerðist Brainstorm þyngri, not-
aði m.a. selló og trompet. Hljóm-
sveitin kíkti á rokkfestivöl út fyrir
landsteinana en heima fyrir gengu
þyngslin illa í fólk. Hljómsveitin
dustaöi því rykið af gömlu stuð-
lagi, Aeroplanes og gaf út á smá-
skífu ‘95. Sú varð best selda smá-
Jæja, þá er Eurovision-keppnin búin.
Einar Ágúst og Telma stóöu sig
ágætlega og Olsen-bræður veröa
öruggl.ega á Broadway innanjíöar.
Þaö var þó eitt banc^í ý *
sem stakk í
euro-stúfinn í ár og
þaö voru kúl
gaurarnir í lettnesk
bandinu Brainstorm
skífa í Lettlandi til þessa og Brain-
storm notaði vinsældimar til að
safna lausnargjaldi fyrir lettneska
þotu sem var í gíslingu i Moskvu.
Nú var sveitin komin til að vera.
Fram á þennan dag hefur sveitin
gert þrjár plötur til viöbótar sem
allar hafa selst betur en sú síðasta.
Lettneski markaðurinn er vitan-
lega ekki stór og bandið hefur
alltaf stefht út fyrir landsteinana.
Strákarnir hafa spilað hjá ná-
grönnum sínum í hinum Éystra-
saltslöndunum, oft spilað í Rúss-
landi og öðrum austanlöndum, ver-
ið á festivölum á Norðurlöndunum
og hitaði m.a.s. upp fyrir
Supergrass á tvennum tónleikum i
Danmörku i fyrra. Plötumar hafa
verið á lettnesku nema sú síðasta,
„Among the Suns“, sem snúið var
á ensku. Strákamir hafa líka snúið
nöfnunum sínum yfir á ensku til
að eiga meiri séns í meikið. Renars
kallar sig nú Reynard Cowper.
Erfitt að vera Letti
„Að vera frá Lettlandi er eins og
að vera í bandi frá Keníu eða Tanz-
aníu,“ segir hann. „Þetta er land
sem enginn þekkir og því þurfum
við að leggja helmingi meira á okk-
ur til að kynna okkur.“
Góður árangur í Eurovision
kyndir nú vonandi undir sigur-
göngu Brainstorm. Það er vonandi
ekki langt í að efni með þeim félög-
um verði fáanlegt íslenskum plötu-
búðum en þangað til ættu áhuga-
samir að kíkja á heimasíðuna
þeirra þar sem hægt er að hlusta á
lög og panta plötur
(www.micrec.lv/eng-
lish/artists/brainstorm/brain-
storm.htm). Áfram Brainstorm!
Dr. Gunni
heimasíöa vikunnar
Heimasíða vikunnar að þessu
sinni er www.betra.net. Útlitið á
síðunni er kannski ekkert sérstak-
lega spennandi - frekar dökkt yfir-
bragð á öllu, og síðan mætti vera
meira myndskreytt en innihaldið
er þess i stað þeim mun betra. Hér
er nefnilega að finna stórsniðugt
próf þar sem stelpur geta tékkað á
því hvemig gæinn þeirra stendur
sig í rúminu. Pör geta einnig tékk-
að á því hvort þau passi virkilega
saman og einnig er hægt að komast
aö því hver og hvar maður var í
fyrra lífi. Daglega stjörnuspá er
einnig að finna á síöunni og svo
getur maður spreytt sig á gáfna-
prófi. Síðan á ættir sínar að rekja
til Selfoss en það eru þau Þorsteinn
Gunnarsson og Helga Auðunsdóttir
sem standa á bak við hana. Á síð-
unni má einnig komast að ýmsum
nýtilegum upplýsingum um sjálfan
sig ef maður tekur sjálfskoðunar-
prófið. Vert er að kikja á þessa
síðu.