Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Qupperneq 6
22 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 I^"V Að breyta eða breyta mikið, það er spurningin Nissan Terrano- jepparnir hafa verið vinsælir í minni breytingar og með tilkomu Terrano II hafa nokkur verkstæði verið að breyta þeim fyrir 38 tomma dekk. Einn þeirra sem hafa látið breyta hon- um á þann veg er Andrés aflrauna- kappi og fékk DV bílinn hans til reynsluaksturs. Einnig var prófað- ur 33 tomma bíll til samanburðar. Bíllinn hans Andrésar er með að- eins öðruvísi breytingum en þeim sem verið er að breyta hjá Fjalla- sporti, en þeir ásamt Breyti, sem breytti bíl Andrésar, sjá aðallega um breytingar á nýjum Terrano- jeppum. Hann er með öðruvísi brettaköntum og felgum. Þau hjá Fjallasporti eru hins vegar með breytingapakka fyrir þessa jeppa sem eru á breiðari dekkjum og felgum og með 38 tommur undir bilnum er hann tilbúinn í hvaða slag sem er. ' ' . A'v'i'-C-, •* ívi , \ A þessari mynd sést vel hvað aöfallshornið aö fram- an er gott. DV-mynd TÞ Jöklajeppabreyting Breytingamar hjá Fiallasporti eru helstar 10 sentímetra hækkun á yflrbyggingu og er afturhásing þá færð aftur um 10 sentímetra. Þegar afturhásing er færð aftur fæst mun betri fjöðrun I bílinn og hann hættir að stampa og stinga framendanum niður. Fíöðrunin er þá meira beint upp og niður og þar sem lengra er á milli hjóla skilar það sér í meiri drifgetu. Hækkun á undirvagni er svo 2 sentímetrar og sérstök styrking er sett á fram- fjöðrun. Drifhlutfollum er breytt í 5,42:1 og verður hann þá aðeins lægri kominn á 38 tommu dekk heldur en á upphaflegu dekkjun- um á verksmiðjudrifinu. Dísilvél- in ræður vel við þessar breytingar hvort sem um sjálfskiptan eða beinskiptan bíl er að ræða. Með 38 tommunum er orðið vel hátt undir hann og aðfallshornið það gott að framan að hann nær að klifra upp á krappa bakka og skominga. Bíll- inn hans Andrésar er þar að auki búinn loftlæsingum sem hefur mikið að segja, sérstaklega í erfiðu færi, eins og þungum snjó. Króm allan hringinn gefur honum skemmtilegri svip. í 33 tommu breytingunni er smekklegur bíll á ferðinni sem hentar vel í sum- arferðir. Ódýr breyting sem kemur vel út Með loftlæsinguna á, lítils háttar hleypt úr dekkjum og olíugjöfina t botni rótaði hann yfir þennan skafl og brekkuna fyrir ofan. DV-mynd TÞ Terrano á 38 tommum er ansi verklegur bíll og meö loftlæsingum mjög hent- ugur í fjalla- og jöklaferöir. DV-myndir E.ÓI. Á 33 tommu dekkjum er Terra- no II mjög skemmtilegur bill og er óhætt að mæla með þeirri breytingu fyrir þá sem vilja jeppa sem hentar jafnt í akstur innanbæjar sem flestar fjalla- ferðir. Engu er breytt í driflínu bílsins og þar sem Stigbretti eru til hægðarauka við að komast inn og út úr bílnum. Þegar gera á bílinn betrí Verið framsýn! i O Gírkassalegur O Driflegur o Hjóiaiegur veljið öiyggi og endingu Hjólalegusett Þbkkinq Reynsla Þjónusta FÁLKINN Suðurlandsbraut 8*108 Reykjavík Sími: 540 7000 • Fax: 540 7001 - Það borgat siy að rwki það bealn Breytingapakki Fjaliasport, Nissan Terrano II, 38 tommu: Hækkun á yfirbyggingu: 10 sentí- metrar. Hækkun á undirvagni: 2 sentí- metrar. Afturhásing: Færð aftur um 10 sentímetra. Framfjöðrun: Styrkt sérstaklega. Drifhlutfall: 5,42:1. Brettakantar: Gunnar Ingvi. Stigbretti: Ál. Felgur: 15x12 tommur. Dekk: 38 tommur. Ljósagrind: með kösturum. Verð frá 980.000 kr. Breytingapakki Fjallasport, Nissan Terrano II, 33 tommu. Hækkun á undirvagni: 2 sentí- metrar. Brettakantar: Gunnar Ingvi. Stigbretti: Ál. Felgur: 15x 10 tommur. Dekk: 33 tommur, Mickey Thompson. Ljósagrind: með kösturum. Verð frá 398.000 kr. vélin er spræk ræður hún vel við stærri dekkin og bíllinn er bara ansi snöggur upp á lagið þegar gef- iö er í. Einn af kostum Terrano- jeppans er hvað hann leggur vel á og 33 tommu dekkin takmarka það ekkert. Þau hjálpa honum hins vegar mikið í torfærum miðað við óbreyttan bíl og er ekki margt sem stendur fyrir honum, nema kannski stærri ár og lengri jökla- ferðir. Hækkunin á undirvagni er lítil, aðeins 2 sentímetrar, svo að stærri dekk koma lítið sem ekkert niður á aksturseiginleikum hans. Kastaragrindin og stigbrettin gefa honum verklegan svip og ekki skemma fallegar felgur fyrir. Hætt er þó við að þær láti fljótt á sjá í torfærum í drullu og sandi og risp- ist þá fljótt. Fyrir þá sem eru ekki forfallnir jeppadellumenn er þetta því kjörinn breytingapakki. Ekki skemmir fyrir að verðið er í ódýr- ari kantinum þar sem breytingin er tiltölulega lítil og ekki þarf að færa til hásingar eða lækka drif. -NG Breytingapakki Breyt- ir, Nissan Terrano II, 38 tommu: Dekk: 38 x 14,5 RI5 Álfelgur: 15x12 breyttar. Drifhlutföll: 5,42:1 Hásing færð til. Yfirbygging: Hækkuð um 6 senti- metra. Hækkun á fjórum yfirvagnsfest- ingum. Styrkingar: Grind, stýri. Lenging: Stýrisstöng, gírstöng. Síkkun á vatnskassa. Hækkun á stuðara. Brettakantar með grjótvamar- mottum. Gangbretti Hraðamælabreyting. Verð: 955.000 kr. Aukabúnaður í bíl Andrésar: Loftlæsingar að aftan. Loftdæla fyrir dekk. Ljósagrind og kastarar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.