Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 10
26 MIÐVKUDAGUR 31. MAÍ 2000 DV Góður ferðabíll Umgengni fyrir farþega er þægileg í Starex og alls staöar handföng og stig- bretti til hægöarauka. Hyundai Starex er nokkuð sérstak- ur bíll á islenska bílamarkaðinum. Hann er fjórhjóladrifínn fjölnotabíli með meira pláss en fLestir aðrir bOar og jafnframt lipur og þæghegur. Sem fjórhjóladrifsbíll er hann seldur sjö manna og er hann styttri og hærri en aðrir bílar í H-fjölskyldunni. DV-bílar fékk einn slíkan til prófunar í lengri ferð núna á dögunum og voru alls ekn- ir um 1000 kílómetrar á bílnum á ís- lenskum þjóðvegum og möl. Seigla í torfærum Geta Starex-bilsins í torfærum með dísilvélinni kom nokkuð á óvart. Skipt er í lága driflð með takka í miðju mælaborðinu en til að tengja framdrif- ið þarf að fara út og setja driflokumar á. Þannig seiglaðist hann áfram í gegn- um allt það sem fyrir hann var lagt. Þó naut hann sín best ef hægt var að malla í rólegheitum en ef fara þurfti á ferðinni steyptist hann nokkuð mikið að framan eins og búast mátti við af bíl með þessu lagi. Þó er fjöðrunin slaglöng og slær ekki saman og eftir- tektarvert hvað hún virkar vel á mal- arvegi. Nokkuð hátt er upp undir hann, sérstaklega undir haxm miðjan en afturstuðari gæti orðið til trafala þar sem hann skagar nokkuð út. Afturhlerinn er stór og opnast upp. Bíllinn er heldur ekki mikill sóði, hér er hann nýkominn úr langkeyrslu norður. Stórir hliðarspeglar og stuðari einkenna útlit bílsins að framanveröu. Takið eftir hversu straumlínulagaður framendinn er sem er óvenjuiegt í þessari gerð af bíl. Mælaborðið fær plús fyrir hversu auðvelt er að nálgast alla rofa og stjórn- tæki fyrir ökumann. Einnig er gott pláss fyrir hluti í kringum hann, ekki síst ofan á mælaborðinu. Vantar meira upptak Á langkeyrslunni er Starex dísil bara nokkuð þægilegur og togið í vél- inni tryggir að sjaldan þarf að gíra nið- ur úr fimmta gír. Hann er þó frekar latur af stað eins og búast má við en umboðið hefúr verið að athuga með að bjóða þá með millikæli og öðrum tölvukubb sem eflaust gera sitt fyrir hann. Nokkuð hvein I dekkjum sem voru hörð og gróf undir reynsluakst- ursbílnum og reyndar líka með nögl- um en ekki myndi saka að hafa mýkri dekk undir honum. Sætum er vel fyr- irkomið og eru miðjusætin með snún- ingsstólum og hægt að leggja aftursæti til hliðanna, annað eða bæði. Starex- inn er án grindar en hjólbotn með sterklegu stigalagi sem hefur þann ótvíræða kost að gólfið er lægra en ella og slétt þar að auki. Gott verð Hyundai Starex 4x4 er hinn þægileg- asti ferðabíll með dísOvélinni enda er hún þekkt fyrir seiglu og endingu í Mitsubishi vinnubílunum. Fieira í bílnum kemur frá Mitsubishi eins og gírkassi og hásingar og millikassinn er frá Borg Wamer og hefur reynst vel við islenskar aðstæður. Það keppa fáir við verðið á Starex miðað við hversu mikið fylgir í kaupunum, en hann kostar innan við tvær og hálfa milljón Takið eftir hversu hátt veröur undir hann með þessari litlu breytingu. DV-myndir Teitur Stökkbreyting á Pajero Hekla hf. fékk fyrstu Pajero-jepp- ana á dögunum með nýja útlitinu og setti strax bíl í létta breytingu. DV fékk þann bíl í stuttan reynsluakst- ur um leið og hann ók út af verk- stæðinu. Við fyrstu sýn verður ekki annað sagt en Pajeroinn verði ansi kraftalegur með þessari breytingu sem fer ávölum og sportlegmn lín- um hans vel. Bandarískir bílar Eigum ýmsar gerðir Chrysler, Dodge og Jeep bifreiða, nýjar og notaðar. Nýr Grand Cherokee Limited V8 4,7L árg. 2000 kr. 4.700.000.- Garðatorgi 3, 210 Garðabæ. Sími: 565-6241, 863 0820, 893 7333 (Lúðvík). Fax: 588-2670 • Netfang: netsalan@itn.is Sýningarbíll á staðnum. Opið: Mánudaga - Föstudaga 10-18 • Laugardaga 10-16 Netsalan ehf Línurnar (nýja Pajero-jeppanum falla vel að þessari breytingu, til stendur aö sérhanna á hann stigbretti einnig. Brölt og príl eru þessum jeppa auöveld enda er hann þaulreyndur úr þolröll- um erlendis sem eru blanda af leiðum og torfærum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.