Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Qupperneq 13
33 "V MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000
29
711 í hvað
sem er
- reynsluakstur
Toyota Land Cruiser 90 L
Skelfilegri hugsun laust niður í
huga minn þar sem ég geystist áfram
með annað augað á veginum og hitt á
tölvuskjánum við hliðina á stýrinu þar
sem ég fylgdist með ferðum sjálfs mín
á landakorti af Hellisheiðinni, „Ég
verð að skila honum aftur.“ Hann er
Toyota Land Cruiser 90 LX, fullbreytt-
ur bíll, sem Skúli Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Toyota, lánaði DV til
reynsluaksturs. Reynsluaksturinn stóð
í tvo daga og það verður að segjast eins
og er að það var allt of stuttur tími til
að fullreyna bíl sem þennan. Hann var
þó prófaður í innanbæjarakstri, lang-
keyrslu á þjóðvegum, í grýttum lækjar-
farvegi og í snjó sem enn er hægt að
frnna í Bláfjöllunum.
Hraöskreiöur skriödreki
Það verður að segjast að Land Cruis-
erinn reyndist ótrúlega vel við allar
þessar mismunandi aðstæður og fátt
þrátt fyrir að vera á 38 tomma dekkj-
um. Aflstýrið sá til þess að aksturinn
var átakalaus í aðkrepptum innanbæj-
arakstri og í hraðakstri úti á vegum
var stýrið þó ekki of létt. Það gaf góða
tilfinningu fyrir veginum hvort sem
var á malbiki eða möl. í bílnum var
sjálfskipting sem rann mjúklega á
milli gíra án þess að ökumaðurinn
yrði mikið var við það, nema þá helst
er vélin var botnuð á ferð og hún
skipti sér niður. Dísilvélin, með
túrbínunni, vann ótrúlega vel, reif bíl-
inn áfram og augljóst var að sumir V8
bílar þyrftu að hafa sig aila við til að
halda í við Cruiserinn. Bíllinn var út-
búinn með sídrifi en hægt að læsa
millikassanum. Þá var einnig hægt að
læsa báðum drifunum og virkuðu læs-
ingamar vel, billinn var eins og skrið-
dreki þegar búið var að læsa þeim og
honum ekið í snjó. Bremsumar vora
fremur þungar en tóku vel í og gáfu ör-
yggistiifmningu
þegar bremsað var.
Þó þurfti helst til
mikið átak þegar
bilnum var nauð-
hemlað á mikilli
ferð.
Þægilegur aö
innan, fallegur
aö utan
Það fer vel um
ökumanninn i Land
Cruiser 90 bíinum.
Sætin em þægileg
og veita góðan
stuðning. Útsýnið
er gott í allar áttir
en þó þurfti að hafa
sérstaka gát þegar
bakkað var þar sem
bíilinn var hár og
erfitt að sjá það sem
var beint fyrir aftan
hann, nálægt bíln-
um. Öll stjómtæki
em þægilega stað-
sett og auðveld í
notkun. Mælamir
era skýrir og auð-
velt að fylgjast með
þeim. Land Cruiser
90 bíllinn er í raun
ekkert sérstaklega
stór þegar komið er
inn í hann. Þar fer
þó vel um fjóra fúll-
orðna en þegar sá
fimmti bætist við
fer aðeins að
þrengja um þá sem
era i aftursætinu.
Farangursrýmið er
þægilegt í umgengni
þar sem afturhurðin
opnast til hliðar og
þvælist því ekki fyr-
ir. Þar ætti að vera
nægjanlegt rými í
flestum tilvikum.
Hönnuðum
Toyota hefur tekist
vel þegar þeir teikn-
uðu Land Craiser 90
bílinn því hann er
mjög fallegur og
samsvarar sér vel.
38 tommu breyting-
in á 90 bílnum hefúr
tekist- ótrúlega vel
og hefur strákunum
hjá Arctic Trucks
tekist að halda lín-
um bílsins og ýkja
þær við breyting-
una. Brettakantam-
ir ganga inn á hurð-
imar þannig að þeir
renna saman við bíl-
inn og virðast vera
hluti af uppruna-
legri hönnun hans. Þessi breyting er
vafalaust sú glæsilegasta sem sést hef-
Á torfærum slóöum stendur Land Cruiser 90 bíllinn
sig vei og á honum er hægt a6 komast hvert á land
sem er, a.m.k. þangað sem leyfilegt er aö fara.
GPS-staösetningartækið og tölvan gerir þaö aö verk-
um að hægt er aö aka bflnum þó svo aö útsýniö sé
ekkert. Innréttingarnar í Land Cruiser 90 bíinum eru
þægilegar en innanrýmiö er ekki mikið.
Vélin í Land Cruiser 90 bílnum er ótrúlega öfiug miö-
aö viö aö hún er einungis fjögurra strokka.
Toyota Land Cruiser 90, breyttur fyrir 38“ dekk, hent-
ar sérlega vel til aksturs í snjó og á jöklum.
hægt út á hann að setja. Bíllinn var
mjög þægilegur og auðveldur í akstri
Land Cruiser 90 jeppinn hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.
DV-myndir JAK
ur og hönnuðum hennar til mikils
sóma.
Land Cruiser LX
4WD turbo dísil
Vél:
Dísil, með tölvustýrðu olíuverki
Rúmtak: 2982 rúmsentímetrar
Afl: 126 hestöfl
við 3600 snúninga á mín.
Tog: 295 Nm við
2400 snúninga á mín.
Dríf: Sítengt aldrif
Gírar: 5 gíra beinskiptur /
4 þrepa sjálfskiptur
Lengd: 4730 mm
Breidd: 1730 mm
Hæð: 1860 mm
Hæð undir lægsta punkt:
230 mm
Eigin þyngd: 1880 kíló
Verð, beinskiptur: kr. 3.045.000
Verð, sjálfskiptur: kr. 3.245.000
Umboð: P. Samúelsson.
Breytingin á bíl Skúla
Land Craiserinn er í grunninn með
38 tomma breytingu sem kostar 998.000
kr. hjá breytingadeild Toyota. Innifal-
in í henni er öll grunnbreytingm, þ.e.
færsla á hásingu um 12 sm, upphækk-
un um 100 mm, álfelgur, 38 tommu
Dick Cepek-dekk 4:88 drifhlutfóll og
fleira sem þessari breytingu fylgir. Þar
að auki er Skúli með
100% driflæsingu að fram-
an sem kostar kr. 253.000.
Á bílnum er ýmis annar
smábúnaður, s.s. grind að
framan og kastarar. Þá er
í bílnum allur nauðsyn-
legur fjarskiptabúnaður
til ferðalaga á fjöllum. Má
þar nefna talstöð, farsíma
og GPS-staðsetningartæki
sem era beintengd við
tölvu. Hægt er því að sjá á
landakorti nákvæmlega
hvar bíllinn er staddur á
landinu. Skúli var einn
margra sem fóra að skoða
Heklugosið í vetur. Þegar hann hélt
heimleiðis síðla dags vora Hellisheiðin
og Þrengslin orðin ófær vegna snjó-
þyngsla og bfla sem sátu fastir. Skúli
minnkaði þá loftþrýstinginn í dekkjun-
um og skellti sér út fyrir veginn og ók
yfir heiðina, blindandi í hríðinni, með
fram veginum, með aðstoð GPS-tækis-
ins og tölvunnar. -JAK
Brettakantarnir falla sérlega vel aö útlínum bíls-
ins, ýkja þær og undirstrika.
Eigum þessi hjól
fyrirliggjandi á lager
C R - 5 0 0 R
1 cyl. • 491 cc
65 hestöfl • 101 kg
^Verð kr. 685.000.-^
2 cyl. • 996 cc
110 hestöfl • 192 kg
^Verð kr. 1.060.000.-J
2 cyl. • 999 cc
136 hestöfl • 190 kg
^Verð kr. 1.430.000.-^
2 cyl. • 1099 cc
58 hestöfl • 279 kg
yVerð kr. 1.080.000.-^
V T-1 1 0 O C3
4 cyl. • 929 cc
152 hestöfl • 170 kg
^Verð kr. 1.239.000.-^
C B R - 6 0 O F
4 cyl. • 599 cc
110 hestöfl • 170 kg
^Verð kr. 999.000.-y
6 cyl. • 1520 cc
100 hestöfl • 300 kg
Verð kr. 1.499.000.-
2 cyl. • 745 cc
43 hestöfl • 229 kg
Verð kr. 880.000,-
V T - 7 5 0 C 2
HONDA
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagördum 24 • Sími: 520 1100
r