Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 14
30 MIÐVTKUDAGUR 31. MAÍ 2000 JD’V Hvernig jeppinn varð til - eða: Raunasaga Bantam Stundum hefur verið sagt að amer- íski herjeppinn hafi verið sigurvegar- inn í heimsstyrjöldinni síðari. Oftast er nafli Wiily’s nefnt í þessu sambandi og víst er um það að sá framleiðandi sýndi mikið harðfylgi og dugnað við að koma jeppanum á framfæri og gera hann að því sem hann varð. En þar komu fleiri við sögu og kannski hefur þáttur Bantam löngum verið vanmet- inn í því samhengi. En hvað var þetta Bantam? Árið 1930 stofnaði breski bíla- framleiðandinn Austin dótturfyrir- tæki í Bandaríkjun- um til að framleiða þar litlu Austin-bíl- ana sem urðu svo vinsælir í Evrópu og m.a. áttu sinn þátt í að koma bílafram- leiðslu BMW á lagg- irnar. En Ameríkan- ar hafa löngum átt bágt með að sætta sig við evrópska smábila og Austin náði aldrei fótfestu í Bandaríkj- unum. Árið 1934 var fyrirtækið nær gjald- þrota. Þá tók stjóm- arformaðurinn Roy Evans það í sínar hendur og stofhaði um það nýtt fyrir- tæki, American Bantam Car Company. Hann hélt að vísu áfram með fram- leiðslu litlu Austin-bílanna en endur- bætti þá. Jafnframt breikkaði hann linuna og framleiddi fleiri gerðir. Þannig hélt hann fyrirtækinu á floti - en ekkert mikið meira en það. Bantam býr til jeppa Þetta sama ár, 1934, varð bylting í Svipurinn á jeppunum að framan var með margvíslegum hætti framan af, hvort sem þeir hétu Bantam, Wiliy’s eða Ford. Framan af voru Bantam jepparnir ekki þverir fyrir að framan eins og síðar varð. Wiliy’s Quad var um tíma með svipað útlit, en hér er það frumherjinn, Bantam, sem situr fyrir á mynd. Bantam á íslandi? Eftir því sem undirritaður hefur heyrt bárust a.m.k. tveir Banta-mjeppar til íslands. Sagn- ir hafa heyrst af því að leifar annars þeirra kunni að vera til einhvers staðar ennþá. Vel væri þegið að frétta nánar af hvort svo er, eða frá einhverjum sem kann að rekja sögu Bantam- jeppa á íslandi. Hafa má sam- band við SHH i sima 550 5000 eða senda honum línu á eftirfar- andi póstfang: SHH DV bilar Pósthólf 5380 125 Reykjavík og aftengjanlegt gegnum miilikassa. Bantam - og raunar fleiri - fundu í framhaldi af því upp aðferð fyrir tengj- anlega niðurgírun (lágt drif) í sama miilikassa. 1938 voru stríðsvindar famir að blása um heiminn og Roy Evans gerði sér ljóst hve hagnýtt gæti verið i stríði að hafa létt og öflugt tor- fæmtæki sem þyrfti ekki að halda sig við lagða vegi. Hann armörkin svo að á endanum vom það aðeins Bantam, Willy’s og Ford sem sendu teikningar og sýningarbíl í sam- keppnina. Fengu að skoða Bantam-bílinn Þegar fyrstu drög vom skoðuð komst Bantam næst því að standast það sem krafist var þótt því væri leynt að bíllinn myndi verða þyngri en til- skilið 590 kg hámark. í lok september þetta ár, 1940, var sýningarbíll Bantam tilbúinn en ekki hinna. Fulltrúar Wiily’s og Ford fengu þó að kynna sér Bantam-bílinn að vild og skiluðu um slðir sínum sýningarbílum þó það Af myndum að dæma viröist Bantamjeppinn vera ei- iítið stærri en Willy’s/Ford. framleiðslu aldrifsbila þegar Dodge fann upp á því að nota sama drifíð hvort heldur var í aftur- eða framhás- ingu og gera framhjóladrifið tengjan- Hversu mikið metur þú lífþitt? frex Erþess viröi aö vera án Garmin GPS? R.SIGMUNDSSON S: 520 0000 • r.sigmundsson@rs.is • www.rs.is F æs t i ö 11 u m h e I st u útivistarverslunum hannaði þannig bíla út frá litla Austin- bílnum og kallaði Bantam Roadster. Þetta sama ár fékk hann bandaríska þjóðvarðliðið til að taka þrjá þannig bfla til prófunar og þrýsti á um nauðsyn þess að framleiða þá fyrir herinn en það var ekki fyrr en í júní 1940 að honum tókst að fá alvöru- fund um málið. Þá hafði þýski herinn sýnt hve hreyfanleg- ur hann var og hve léttilega hann lagði Frakkland imdir sig. Jafhframt hafði borist njósn af því að Þjóðverjar væru að vinna að því að breyta Volkswagen i létt torfærutæki til hemaðamota og nú fór að fara um menn vestan hafs. Eftir nokkra fundi ákvað herinn út- boðslýsingu fyrir léttan aldrifsbfl - traust vinnutæki sem gæti tekið 4-5 í sæti. Eigin þyngd mátti ekki fara yfir 590 kg. Bantam Roadster uppfyllti ekki þær kröfur sem gerðar vora í þessari lýsingu þó margt í henni væri sótt í eiginieika hans. Fyrir lá að Bantam stóð mjög illa fjárhagslega og hafði tak- markaða hönnunar- og framleiðslu- getu svo öðrum bílaframleiðendum var lika gefinn kostur á að spreyta sig. Innan 49 daga átti sýningareintak að liggja fyrir en 70 fúllbúnir bflar innan 75 daga. Stórir framleiðendur eins og Dodge og GM, sem höfðu þá náð góðu valdi á aldrifstækninni hristu hausinn yfir þessari fáránlegu kröfú um þyngd- Allar myndirnar meö þessari grein eru af uppgeröum Bantamjeppa, safngrip nú oröiö. Mælaboröiö er augljóslega ööruvísi. væri ekki fyrr en eftir að tilskilinn frestur var útrunn- inn. Þeir fóra líka yfír þyngdarmarkið. Undir venjuleg- um kringumstæð- um hefði Bantam sigrað I þessari bar- áttu. Bíll Bantam var tflbúinn á rétt- um tíma og að flestu leyti eftir útboðs- kröfúm. Hann stóð sig vel og gerði það sem af honum var krafist. Minni hátt- ar ágaflar, eins og ævinlega fylgja handsmíðuðum sýningareintökum, vora fljótt lagaðir. En bfllinn var full- hár frá jörð til að þægilegt væri að um- gangast hann og frekar aflvana. Willy Quad var i þægilegri hæð en ailtof þungur. Ford Pigmy var með besta stýrisbúnaðinn en eins og Bantam frekar aflvana. Þetta endaði með því að hver þessara þriggja framleiðenda fékk í mars 1941 pöntun upp á 1500 bíla að því tilskildu að upprunalegar út- boðskröfur væra haldnar. Besta veröiö vann Allir höfðu þessir bflar verið mjög áþekkir í útliti og málum. Nú urðu Einkennis- heiti upp- runalegu jeppanna Fyrsti jeppinn sem slíkur frá Bantam var einkenndur með stöf- unum GPV - General Purpose Vehicle. Wiliy’s-jeppinn í endan- legri útfærslu var einkenndur með stöfunum MB þar sem M stendur fyrir Mflitary (her) en B táknar að þetta var útfærsla nr. 2 - fyrri útfærslan hét einfaldlega MÁ. Herjeppinn sem Ford fram- leiddi fyrir herinn samkvæmt teikningum Willy’s var ein- kenndur með stöfunum GPW þar sem GP er sameiginlegt með Bantam-bílnum en W stendur fyrir tengslin við Wflly’s. Endan- legt tegundarheiti Bantam-jepp- anna, þeirra sem fóra til Rússa og Breta, var Bantam BRC en ekki veit undirritaður fyrir hvað það stendur. -SHH Ofurlítil frávik eru þegar litiö er ofan í - inn í - bílinn. Sætin viröast t.d. vera breiðari en i Willy’s/Ford.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.