Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Qupperneq 16
32
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 33 "V
SÓUVfíVG
Smiðjuvegi 32 • Kópavogi • sími 544 5000
www.solning.is
Flestar breytingar á Nissan- og Izusu-jeppum og pallbilum hafa veriö hann-
aöar í Fjallasporti.
Fjallasport
• Víð gerum góð dekk betri
• Betra grip í hálku
• Meiri ending
• Öruggari í bleytu
• Minni hávaði
Tímarit
mánaðarins
Fæst á
blaðsölustöðum
Fyrirtækið Fjallasport á Malarhöfða
2a í Reykjavík er ungt, einungis
tveggja ára. Eigendur þess eru hjónin
Reynir Jónsson og Kristín Sigurðar-
dóttir. Þó svo að fyrirtækið sé ungt er
Reynir ekki nýr í breytingabransan-
um. Hann starfaði áður í Breytinga-
deildinn hjá Toyota frá stofnun hennar
og hefur því töluverða reynslu í jeppa-
breytingum. Fjallasport var stofnað
sérstaklega til að sjá um breytingar á
Nissan- og Izusu-bflum og leggur
áherslu á þær tegundir þó svo að fyrir-
tækið taki einnig að sér breytingar á
öðrum tegundum. Fjallasport rekur
einnig verslun sem selur vörur til
breytinga á jeppum og aukahluti fyrir
jeppa auk útivistarklæðnaðar frá
Helly/Hansen sem FjaUasport hefur
umboð fyrir. Áhersla er lögð á að eiga
allt f Nissan- og Izusu-bíla en í Fjalla-
sporti fá jeppamenn ahnenna auka-
hluti eins og t.d. dekkjaviðgerðarsett,
tóg, spil, loftdælur, druilutjakka,
landakort GPS-tæki, talstöðvar og ann-
að það sem nauðsynlegt er að hafa í vel
búnum fjallabfl.
Þróunarvinna
Fjallasport hefur verið leiðandi í
hönnun breytinga fyrir Nissan- og
Izusu-bílana. Þar hafa flestir brettak-
antamir fyrir þessar tegundir verið
hannaðir. „Við smíðum allt sjálfir í
sambandi við breytingamar nema
drifsköft sem þurfa að fara í renni-
bekk. Viö gerum fyrstu kantana úr
treijaplasti, reynum að halda linum
bílsins en ýkjum þær þannig að útlitið
verði smekklegt og falli að línunum í
bílnum," segir Reynir. Fyrstu bílum
þessara tegunda, Nissan og Trooper,
hefur verið breytt í Fiallasporti. Þar
var fyrsta Trooper-jeppanum breytt
fyrir 38 tomma dekk, einnig fyrsta
Terranoinum. Núna er verið að breyta
fyrstu Nissan Double Cab fyrir 38
tommur. Hásingin er færð aftur um 10
sm og sett er gormafjöðrun undir
hann. Einnig er verið að smíða fyrsta
skriðgírinn fyrir Trooper í Fialla-
sporti. „Það að hanna breytingar fyrir
jeppa er stórmál í sjálfú sér. Verið er
að taka einhvem bfl sem framleiðand-
inn er búinn að framleiða og menn
vilja breyta honum fyrir stór dekk án
þess að skemma einkennin, karakter-
inn í bilnum - halda aksturseiginleik-
unum en fyrir því er ákveðin formúla
svo að bfllinn þoli stóm dekkin. Þetta
er verk sem þarf að vanda vel og erum
við með heildarlausnir fyrir breyting-
amar,“ segir Reynir. „Þegar stór dekk
em sett undir jeppa eykst álag á drif og
öxla. Legur í jeppum era hins vegar í
mikilli yfirstærð hjá framleiðendum
vegna þess að öxlamir þurfa að kom-
ast í gegnum þær. Því skiptir aukið
álag vegna dekkjanna engu máli fyrir
legumar. Eins er með bremsumar, þar
hefúr hraðinn miklu meiri áhrif en
stærri dekk. Stærra dekk hægir á hjól-
inu, þannig að billinn bremsar ekkert
verr,“ bætir Reynir við.
Terrano
Terrano er mjög vinsæll á 33“ dekkj-
um. Það þarf einungis að hækka hann
um 2 cm tfl að koma 33 tomma dekkj-
um undir. Klippa þarf úr brettum, það
er svolítil vinna. Fyrsta 38 tomma
Terrano-bflnum var breytt í Fialla-
sporti í janúar, síðan er búið að breyta
9 bflum. Flytja þarf hásinguna aftur
þegar bílnum er breytt fyrir 38 tomm-
ur. „Terrano er á sérstaklega góðu
verði því það er svo mikill búnaður í
honum. Hann er vænlegur kostur og
nokkuð sterkbyggður, t.d. er sama aft-
urhásing undir honum og er undir
Patrol,“ segir Reynm.
Reynir Jónsson, eigandi Fjallasports, hefur sérhæft sig í breytingum á Niss-
an- og Izusu-bílum. DV-myndir JAK
Patrol
Að mati Reynis er Nissan Patrol
jeppinn bestur fyrir stór dekk vegna
þess að hann er með heila hásingu að
framan. „Hann er mjög sterkbyggður,
tveimur númerum of stór í öllu,“ segir
Reynir. Patrolinn er að koma með
nýrri öflugri vél, 4 strokka, 3 lítra,
Common Rail disilvél, svipaðri vél og
er í Trooper. Helst hefur verið sett út á
Jóhann Sigurösson, starfsmaður f Fjallasporti, festir Ijóskastara á Patrol-
jeppa.
aflleysi í Patrolnum en það ætti að
vera úr sögunni með þessari vél. Nýr
Patrol með nýju vélinni var einmitt í
vinnslu hjá Fíallasporti meðan á
vinnslu þessa blaðs stóð og því var
fylgst með af athygli. Það sem gert var
Flipaskurður (siping)
við 38 tomma Patrol-jeppann var að
hann var hækkaður um 10 sm á undir-
vagni með klossum en stundum era
settir lengri gormar. Síkka þurfti stíf-
ur, breyta stýrisarmi og lengja
dempara. Klippa þurfti einnig úr fram-
brettum og sílsum og settir vora stærri
brettakantar. Stigbretti vora færð utar
og krómrör sett þar utan með. Bretta-
kantar era klæddir með sérstöku efni
að innan svo þeir skemmist ekki af
gijótkasti. Drif vora lækkuð úr 4,68:1
niður í 5,42:1 og hraðamælir leiðréttur
með sérstökum hraðamælabreyti.
Dekkin sem fóra undir eru 38 tommur
á hæð, 15,5 tommur á breidd og felg-
umar era 15x12 tommur. Auk þess var
sett í þennan svarta Patrol krómuð
grillgrind, ljóskastarar, vindskeið að
aftan, varadekkshlíf, toppgrind, króm-
aðir speglar og púst
Trooper
Trooperinn hefúr verið mjög vin-
sæll síðustu misseri og búið er að
breyta mörgum bílum. Trooperinn er
gríðarlega öflugur, vélin togar mikið
og bfllinn er mjög sterkbyggður. Flest-
um þeirra hefur verið breytt fyrir 33
og 35 tommur. Hann þarf að hækka
um 3 sm fyrir 33 tommur og 6 sm fyr-
ir 35 tommur. Búið er að setja hátt í 30
bfla á 38 tomma dekk og með lægri
drifhlutfóllum er hann mjög skemmti-
legur þannig. Gríðarlegur munur er á
breyttum bílum þegar búið er að
lækka drifin/hlutfóllm í þeim. Vinnsl-
an í þeim verður skemmtilegri en sér-
staklega munar um lægri drif þegar
færið er þungt. Þá er mikilvægt að
geta ekið nógu hægt. -JAK