Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Side 22
38
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 Ö V
Bayou er stööugt og ekki gjarnt á aö
missa sig upp á tvö dekk.
Þegar hjólið er látið lulla yfir við-
kvæma mosabreiðu sér ekki einu
sinni á henni á eftir. Þess vegna henta
þau líka vel í blautum og viðkvæmum
Kawasaki KLF
220 Bayou
Vél: Eins strokks, fjórgengis, með
einum yfirliggjandi knastási.
Kæling: Loftkælt.
Rúmtak: 215 rúmsentímetrar.
Blöndungur: Mikuni VM24SS.
Start: Snúru- og rafstart.
Gírkassi: 5 gíra beinskipt með
bakkgír.
Tengsli:Tvöföld, sjálfvirk.
Fjöðrun framan: Sjálfstæð, tvöföld.
Slaglengd: 4,5 tommur.
Fjöðrun aftan: Quad-Link, tvöföld.
Slaglengd: 4,9 tommur.
Bremsur: Þrjár skálar.
Dekk framan: AT 21 x 8/9, slöngu-
laus.
Dekk aftan: AT 22 x 10/10, slöngu-
laus.
Driflína: Drifskaft.
Sætishæð: 28,7 tommur.
Bensíntankur: 9 lítrar.
Þurrvigt: 183 kíló
Umboð:Vélhjól & Sleðar.
Ágætispláss er fyrir farangur, bæöi
aö framan og aftan.
Hjóliö nýtur sín best í brölti og urö þar sem aö stutt er á milli hjóla.
Frábært verð
Það hlýtur að vera aðalkostur hjóls-
ins hversu ódýrt það er. Að loksins
skuli vera hægt að fá ijórhjól á minna
en hálfa milljón er aldeilis frábært og
því líklegt að vinsældir þeirra fari
brátt að aukast aftur. Þessi tæki henta
okkar aðstæðum mjög vel og mættu
því sjást meira i notkun. Með torfæru-
tækisskráningu má aka því stystu leið
úr þéttbýli og tryggingar verða líka
lægri. -NG
Á hvers manns
220
Bayou er létt hjói og fyrir einn mann
- þokkalegasta leiktæki ef því er aö
skipta. DV-myndir E.ÓI.
- reynsluakstur Kawasaki
Eitt ódýrasta fjórhjólið á markaðin-
um í dag eftir nýtilkomnar tollabreyt-
ingar er Kawasaki KLF 220 Bayou. Það
er lítið og nett hjól sem hentar vel ein-
um manni þótt það ráði vel við tvo og
er með drif á afturhjólum.
Átakalaust í akstri
Það sem finna má að Bayou-hjólinu
er að það mætti hafa aðeins meira afl
og því kannski ekki mikið leiktæki.
Lítil fjórgengisvélin hefur öðruvísi
snúningssvið en tvígengisvélamar og
þar af leiðandi meiri endingu. Hins
vegar gerir léttleiki og átakalaus akst-
ur þess það að verkum að það er hent-
ugt tæki í flest sem þessi hjól eru góð
fyrir. Það er varla hægt að hugsa sér
betra tæki í hvers kyns landbúnaðar-
störf og fyrir einn mann í veiðiskap er
það líka kjörið. Það er með farangurs-
grind bæði að framan og aftan og tek-
ur sú fremri 25 kíló. Það er líka stór
kostur við ijórhjól hvað þau skemma
lítið gróður og fara vel með náttúruna.
fjórhjóls
túnum og mýrlendi og flotgeta dekkj-
anna tryggir að það skilur ekki eftir
sig sár í mjúkum sverðinum.
Stööugt og gott í brölt
Bayou er mjög stöðugt í akstri og
erfitt að velta því, jafnvel þó maður
leggi sig allan fram. Ásetan er mjög
þægileg og reynir lítið á mann en mjög
stórir menn gætu verið aðkrepptir,
sérstaklega með hreyfanleika stýris.
Það er nokkuð hátt undir það og lítið
þvælist fyrir því nema stærstu steinar.
Þá hjálpar líka að það er stutt á milli
hjóla í því efni en samt ekki þannig að
það vilji reisa sig að framan nema vel
sé gefíð á hörðu undirlagi. Það er lítil
hætta á að missa það út í spól til hlið-
anna og þess vegna er Bayou kjörið í
hvers kyns brölt. Þyngdardreifmg er
einnig góð og það steypir sér lítið, jafn-
vel þótt stokkið sé á þvi. Fjöðrunin er
tiltölulega mjúk og þar hjálpa belgmik-
il dekkin og slaglengd hennar nokkuð
góð. Bremsur eru þokkalegar en aftur-
bremsa mætti vera betri. Lítill og lág-
þrýstur fjórgengismótor eins og er í
Bayou virkar þó vel sem mótorbremsa
og því þarf sjaldan að nota bremsum-
ar að ráði.
I víking
- tekið í nýja Husaberg 501 hjólið
Baldur var fegurstur allra goða,
stendur einhvers staðar í Snorra
Eddu, en þessi nýja lina Husaberg-
hjóla kallast einmitt Baldur. Reynd-
ar heitir öll framleiðslulínan þeirra
eftir nöfnum úr goðafræðinni eins
og hægt er að sjá á heimasíðu
þeirra, www.husaberg.se. Slagorð
þeirra er líka gamall víkingamáls-
háttur, „Maöur velur sér vopn eftir
getu“ og þetta hjól er gott dæmi um
það og hentar vel miðlungsfærum
og upp úr.
Frískt á snúningi
Vélin í FE 501 er ansi skemmtileg
og hentar hjólinu við hvers konar
aðstæður, hvort sem er í krossi,
brölti eða hröðum slóðaakstri.
Þjöppuhlutfallið er nokkuð hátt og
þess vegna rís aflkúrfan hæst ofar-
lega í snúningssviðinu. Fyrir vikið
virkar hjólið mjög frískt og freist-
andi að gefa því inn en ef menn eru
ekki orðnir vanir hjólinu getur það
komið þeim í koll. Maður fann það
sjálfur hversu freistandi það var að
rafstart,
sjálfskipt.
Venö
75.000-230.000
^^YFTARAR EHF.
Hyrjarhöfða 9. Sími 585 2500
Þótt hér sé fjórgengishjól á ferðinni minnir léttleiki þess oftar á krossara en
drullumallara.
við að nóg sé að blása á hana til að
hún geri það sem hún á að gera.
Góð fjöörun
Það er mikill kostur á þessu hjóli
hversu góð fjöðrunin er og hvemig
hægt er að stilla hana að vild. Gott
dæmi eru framdempararnir sem
auk þess að stilla á hefðbundinn
hátt má stífa eða mýkja með þvi að
skrúfa til stillibolta efst á þeim sem
virkar beint á gorminn. Áukabún-
aður á hjólinu er Öhlins-stýris-
dempari sem alltaf er til bóta i tor-
færuhjólum, sérstaklega i hjóli sem
hentar vel fyrir blandaðan akstur
eins og þetta. Hann má einnig stilla
á ýmsa vegu, bæði slagsvið, þyngd
og afstöðu. Það vakti athygli mína
hvað frágangurinn á smáatriðum í
hjólinu hefur skánað og ekki er
hægt að segja annað en að Baldur sé
fallegt hjól. Verðið er líka orðið all-
gott eftir breytingu, sérstaklega þeg-
ar haft er í huga að hér er um hjól
að ræða sem svo að segja er tilbúið
í keppni ef þvi er að skipta. -NG
vera á botngjöf og hjólið er furðu-
fljótt að venjast undir manni. Sætis-
hæðin, 93 sentímetrar, virkar mikil
þegar sest er upp á hjólið í fyrsta
skipti en þegar komið er af stað
finnur maður ekki svo mikið fyrir
því. Reyndar var fjöðrunin stillt
frekar mjúk þegar hjólið var prófað.
Eitt fannst mér líka alveg frábært,
en það var hversu létt kúplingin er.
Hún er vökvakúpling og það liggur
Husabergur nýtur sín sérstaklega í
hrööum akstri á slóðum.
Baldur ásamt eiganda sínum, Sveini
Markússyni.
Husaberg FE 501 E
Rúmtak: 501 rúmsentímetri.
Þjöppuhlutfall: 11.8:1.
Start: Spark- og rafstart.
Rafall: I2V/70+70W.
Rafgeymir: 12V - 8Ah.
Blöndungur: Dellorto 0 40 mm.
Gírkassi: 6 gíra.
Pústkerfi: Ál, tvær í eina.
Stýrisdempari: Öhlins.
Framfjöðrun: Upside-down WP
MXMA.
Slaglengd: 43-280 mm.
Afturfjöðrun:WP 5018-E.
Slaglengd: 320 mm.
Frambremsa: Brembo tveggja
stimpla, 260 mm diskur.
Afturbremsa: Brembo 220 mm
diskur.
Hjólhaf: 1490 mm.
Sætishæð: 930 mm.
Bensíntankur: 9 lítra.
Þurrvigt: 112.5 kíló.
Verð: 744.000 kr.
Umboð:Vélhjól & Sleðar.