Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Side 23
$> %’r MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000
39
Langhlauparinn frá l<TM
KTM á íslandi hefur látið flytja
inn eitt stykki KTM 660 Rallye sem
þeir ætla að nota til æfingaaksturs,
meðal annars fyrir Karl Gunnlaugs-
son sem keppir á slíku hjóli í eyði-
merkurrallinu. Hjólið sem um ræð-
ir fór nýtt í París - Dakar - Kairó
rallið og kom svo beint hingað eftir
upptekningu hjá verksmiðju. DV
notaði tækifærið og fékk að taka í
hjólið sem er sérhannað til aksturs
í lengri maraþonkeppnum í mótor-
hjólaralli. Keppnisshjólið er byggt á
KTM LCE 640 hjólinu og má því líta
á þennan reynsluakstur sem nokk-
urs konar úttekt fyrir þess háttar
hjól, allavega í aðalatriðum.
Stórt og togmikið
Hjólið er stórt og mikið og svo að
það virkar næstum fráhrindandi
þegar fyrst er komið að því. Ásetan
er fjallhá og sætið grjóthart en þeg-
ar maður fer að hugsa betur um það
er góð ástæða fyrir því. í langri
keppni þreytist maður á að dúa
mikið í hnakknum og því er hann
stífur. Fyrir vikið finnur ökumaður
aðeins fyrir titringi hjólsins í stað-
inn og það veldur doða smástund
sem líður síðan hjá. Það vekur strax
athygli í akstri hversu gott tog er í
hjólinu á bókstaflega öllu snúnings-
sviðinu og það virðist alltaf eiga
eitthvað eftir. Þannig er hægt að
keyra það vel hratt án þess að vera
á botnsnúning sem þreytir mann.
Þægilegt á langa-löngu
langkeyrslunni
Þótt hjólið sé hátt og mikið er það
stöðugt í akstri og slaglöng fjöðrun-
in bókstaflega étur upp allar ójöfn-
ur. Stýrið er breitt og beint og áset-
an virkar þægilega á mann og það
er jafnþægilegt að standa á því i
akstri enda er þess háttar aksturs-
tækni mikið notuð í lengri keppn-
um. Það er eins og það standi skrif-
að utan á hjólið að það sé lang-
keyrsluhjól og í raun og veru er
ekkert því til fyrirstöðu að hoppa
upp á það, keyra þvert yfir hálendið
og stoppa næst á Akureyri. Það er
með stórum bensintank og þar að
auki eru tveir aukatankar á því sem
samtals taka 46 lítra af bensíni.
Sérútbúið til rallíaksturs
Það sem er öðruvísi í þessu hjóli
en 640 hjólinu er margt, og má þá
fyrst telja að það er með aðeins
stærri mótor. Vélin rúmar meiri
olíu og er með auka olíukælum og
undir henni er sérstyrkt hlíf til að
vernda neðri hluta hennar. Ofan á
því er ýmis sérbúnaður eins og upp-
lýst leiðatafla með rafdrifinni rúllu
fyrir pappírinn og er henni stjórnað
með rofa undir vinstra handfangi.
Fyrir ofan hana er stafrænn skjár
sem sýnir kílómetrafjölda og er
honum stjórnað með rofum vinstra
megin á stýri. Auk þess er festing
og tengi fyrir GPS-tæki á hjólinu.
Fyrir utan þennan búnað er 640
hjólið að mestu leyti eins, og þar af
leiðandi talsvert léttara og því að
öllum líkindum hið skemmtilegasta
hjól. Vonandi fáum við tækifæri til
að kynnast því þó síðar verði.
-NG
KTM 660 Rallye
Vél: 2 strokka, fjórgengis, 4 ventla.
Rúmtak: 653.7 rúmsentímetrar.
Hestöfl: 62.
Þjöppuhlutfall: 11.0:1.
Kúpling: Fjöldiska blautkúpling.
Gírkassi: 5 gíra „dog-type“.
Kveikja: Kokusan CDI.
Kæling:Vatnskælt.
Rafstart: Já.
Blöndungur: Dell’Orto PHM 40 SD
Grind: Miðjurör með tvöfaldri
körfu, Chrome-Molybdenum.
Stýri:Tapered Magura.
Framdemparar:WP UpSideDown
43 mm.
Afturfjöðrun:WP-Monoshock.
Slaglengd framan: 280 mm.
Slaglengd aftan:320 mm.
Frambremsa: Brembo 300 mm
diskabremsa.
Afturbremsa: Brembo 220 mm
diskabremsa.
Framdekk: Michelin 90/90-
2ltommuT 63.
Afturdekk: Michelin 140/90-
2ltommuT 63.
Bensíntankur: 28 lítrar.
Varatankar: 16 lítrar.
Þyngd: 156 kíló. r—
Verð KTM 640:788.000 kr.
Umboð: KTM á íslandi.
Það er þægilegt að standa á hjólinu, jafnvel þótt verið sé að keyra það hratt
og í beygjum.
Tíl allra hluta
nytsamlegt
- fyrsta Honda Varadero hjólið frá Vatnagörðum
I fyrra kom fyrst á markað frá
Honda tilraun þeirra til að búa til
hjól sem hentaði til hvaða ferðalaga
sem er, jafnt á malbiki sem utan
þess, og kallast græjan Varadero.
Hjólið er nú komið inn í fram-
leiðslulínu þessa árs og næsta og
hefur fengið góðar viðtökur og fyrir
tveimur vikun afhenti Honda/Peu-
geot-umboðið fyrsta eintakið hér
heima. Þessi gerð mótorhjóla, sem
ætluð eru til blandaðs aksturs, hef-
ur reyndar ekki selst vel á íslandi
hingað til. Erfitt er þó að ímynda
sér lientugri hjól fyrir okkar að-
stæður en einmitt þessi og það veit
sá mikli fjöldi útlendinga sem heim-
sækir landið á mótorhjólum á
hverju ári.
Vélin er óvenjustór og öflug í
Varadero miðað við önnur alhliða
torfæruhjól. Hún er vatnskæld, 1
lítra V2 með 8 ventlum og tveimur
yfirliggjandi knastásum á hvorn
strokk. Ailkúrfan er jöfn og breið og
þegar best lætur 95 hestöfl. Togið er
líka öflugt eða 99 Nm. við 6000 sn. á
mín. Að sjálfsögðu er það með raf-
starti en ein af nýjungunum er tví-
virkt bremsukerfi sem er arfur frá
Goldwing-ferðahjólunum. Tvívirkt
bremsukerfi virkar þannig að ef
tekið er í frambremsuhandfang eða
stigið á afturbremsu verða báðar
bremsur virkar en ef tipplað er einu
sinni snöggt á aðra hvora virkar
bara hún. Kerfið kaflast CBS og leit-
ast við að fullnýta bremsukrafta á
hvort hjól fyrir sig. Mikið var lagt
upp úr þvi að gera hjólið þægilegt
til langferða, meðal annars með
góðu sæti, töskufestingum og stór-
um 25 lítra bensíntanki.
-NG
Varadero er mikið hjól, sætishæðin er 84,5 sentímetrar og þyngdin 220 kíló.
Um torfærukeppni á vélhjólum
Vélhjólaíþróttaklúbburinn, eða VÍK
eins og hann er kallaður i daglegu tali,
er elsti starfandi mótorhjólaklúbbur
landsins, stofnaður í október 1978.
Markmið klúbbsins í upphafi var að
koma óskráðum keppnishjólum úr al-
mennri umferð inn á afmarkað keppn-
issvæði, þar sem félagsmenn gætu
stundað íþrótt sína.
Stööug fjölgun félagsmanna
I dag er fjöldi félagsmanna um 150
manns sem hafa löngun og áhuga á að
stunda mótorhjólaíþróttir, þ.e.
motocross og enduro. Meðal markmiða
félagsins er að skapa aðstöðu fyrir fé-
lagsmenn til að stunda íþróttir sínar á
löglegum svæðum, skapa aðstöðu fyrir
æskulýðsstarf og fræða félagsmenn um
öryggisbúnað og að umgangast náttúr-
una með virðingu. Klúbbnum hefur þó
ekki tekist að fá framtíðarsvæði undir
starfsemi sína og er því aðstaða félags-
manna VÍK til að stunda sína íþrótt lit-
il sem engin. Sú aukning sem orðið
hefúr í ástundun mótorhjólaíþróttar-
innar á sl. árum og þá sérstaklega í vor
hefúr aukið þörf fyrir að VÍK fái að-
stöðu þannig að hægt sé að beina
keppnistækjum félagsmanna á eitt af-
markað svæði.
Loftfimleikar á vélhjólum
Motocross er íþrótt þar sem allt að
40 keppendur eru ræstir í einu og
keyra þeir í stuttri braut með kröpp-
um beygjum, bröttum brekkum og
stórum stökkbrettum. Motocross er
talin ein erfiðasta íþrótt í heimi enda
mikið álaga á allan líkamann í um 20
mínútur. Eftir 15 mínútna akstur er
fyrsta manni gefið til kynna að 2
hringir séu eftir, þá hefst lokasprettur-
inn. Eftir þessa 2 hringi eru keppend-
ur flaggaðir út úr brautinni. Sá sem
kemur fyrstur í mark fær 20 stig, næsti
17 o.s.frv. Ein keppni eru 3 svona riðl-
ar og moto eins og það heitir á
motocross-máli. Sigurvegari dagsins er
sá sem fær flest stig út úr þessum
þremur riðlum. íslandsmeistari er sá
sem fær flest stig úr öllum íjórum
keppnum ársins.
Enduro er keppni í þoli
f enduro reynir meira á þol og útsjón-
arsemi keppenda en i motocross. Keppn-
in getur hlaupið á 2 til 7 klukkutímum.
Oftast er ekinn stór hringur, u.þ.b. lfr
km, 7 til 10 sinnum og er þá ekið eftir '
slóðum, árfarvegum, auðnum og í afls
kyns landslagi. Keppendur þurfa að
velja sér rétta leið, þ.e. rata, einnig að
spara kraftana og hjólið fyrir langan
akstur. Þeir hafa með sér smáverkfæri
og þurfa að taka eldsneyti einu sinni til
þrisvar í hverri keppni og skiptir þá
máli að hafa hraðar hendur. Sá sigrar
sem kemst fyrstur tiltekna vegalengd.
-HÁ