Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 3
Hvítasunnuhelgin er gengin í garð. Einu sinni flykktist fólk út á land í útilegur og
mun það víst enn vera lenska hjá sumum. Það gæti samt eitthvað breyst um
þessa helgina því Fókus ásamt öðrum aðilum stendur fyrir Tónlistarhátíð Reykjavík-
ur, Reykjavík Music Festival, í Laugardalnum. En ekki bara það því einnig verða
haldin Fókus-partí á Kaffi Thomsen.
Agnar lofar geðveiku partíi og bendir fólki á að mæta snemma til að komast inn.
„Þetta verður straight parti öll
þrjú kvöldin, án hvíldar," segir
Agnar Tr. Le’macks, fram-
kvæmdastjóri Kaffi Thomsen,
um Fókus-partíið sem haldið
verður á Thomsen alla helgina.
„Þetta er hið opinbera partí
Reykjavik Music Festival. Allir
sem tengjast hátíðinni á einn eða
annan hátt verða þarna, þar á
meðal allir tónlistarmennirnir
sem spila auk blaðamanna. Síðan
erum við búnir að senda út
nokkra boðsmiða og einnig verður
Fókus með lítinn VlP-lista fyrir
nokkra heppna lesendur. Það er
samt ekki þar með sagt að þetta sé
lokað partí. Þetta er meira svona
opiö/lokað partí. Allir mega
koma svo lengi sem húsrúm leyf-
ir.“
Mætið snemma!
Seinast þegar haldið var stórt
partí á Thomsen var þegar Gus
mmmwmm
Árni E. sér um fjörið á efri hæðinni
ásamt slatta annarra skífuþeytara.
ástand á neðri hæðinni með þeim
Arnari og Frímanni ásamt
óvæntum gesti. Á sunnudagskvöld
mæta síðan þeir Alfred More og
Agzilla ferskir úr Frakklandstúr
ásamt franska rapparanum MC
Johnny Z sem er víst alveg magn-
aður. Á efri hæðinni veröa síðan
Ámi E, dd. Lux, dj. Sweet Chilli
og fleiri og fleiri.“
Gus-kvöldið var haldið. Fjöldi
manns lagði þá leið sina niður í
Hafnarstrætið og myndaðist löng
biðröð. „Það var svoddan haugur
af fólki sem mætti að röðin náði
yfir Pósthússtrætið. Miðað við
þessa reynslu ætti röðin ekki að
verða minni núna þannig að fólk
þarf að mæta tiltölulega snemma
til þess að komast inn,“ segir Agn-
ar.
Það ætti að vera gulrót fyrir fólk
að það er aldrei að vita nema ein-
hverjum takist að plata þá plötu-
snúða sem koma til landsins,
Laurent Garnier, SASH eða
ATB, til að kíkja í búrið og þeyta
nokkrar skífur.
Óendanlegur listi plötu-
snúða
Eins og fyrr segir verður þetta
stíf dagskrá öll þrjú kvöldin á
Thomsen. Það verður haugur af
tónlistarmönnum sem sjá til þess
að fólk hafi rytmískt tónaflæði fyr-
ir fólk að hreyfa sig við. „Það verð-
ur nóg framboð af úrvals plötu-
snúðum. Á neðri hæðinni, fostu-
dagskvöld, verða þeir Tim Taylor
og Thor ásamt óvæntum gesti. Á
laugardagskvöldið verður Hugar-
Þeir Halli Reynis og Þorvaldur Flemming sendu frá sér disk fyrir um viku sem nefnist
Myndir. Þeir eru báðir búsettir í flatneskju Danaveldis og var diskurinn tekinn upp
þar. Fókusi lék forvitni á að vita hvað væri í gangi og þess háttar hjá köppunum.
„Það var nú aldrei stefnan að
gera disk. Þetta einhvem veginn
bara gerðist og þegar við áttuðum
okkur á því hvert stefndi þá var of
seint að bakka út úr því,“ segir
Þorvaldur Flemming. Hann ásamt
Halla Reynis, trúbador par
excellence, var fyrir stuttu að
senda frá sér geisladiskinn Mynd-
ir. Þeir félagar segja að þessi disk-
ur hafi í raun verið í getjun í ell-
efu ár en þeir tóku fyrsta lagið,
Landslagið, upp 1989.
Þeir búa núna báðir í Dan-
mörku. Þorvaldur býr í Kaup-
mannahöfn þar sem hann rekur
sitt eigið tölvufyrirtæki. Halli býr
hins vegar stutt frá Árhus á Jót-
landi ásamt fjölskyldu sinni og
stefnir á tölvunám í haust.
Samkvæmt lýsingum strákanna
var tilurð disksins lyginni líkust.
Halli: „Þetta var algert ævintýri
frá a til ö. Til að byrja með voru
mörg laganna samin í gegnum
síma og tölvupóst. Eitt sinn sendi
Þorvaldur mér texta í gegnum
imeil. Tveim mínútum seinna
hringdi ég í hann og spilaði fyrir
hann lagið i símann."
Það gekk á ýmsu meðan á upp-
tökum stóð. „Við lentum i alls kon-
ar hremmingum við upptökurnar
en því var tekið með bros á vör og
jákvæður hugsunarháttur viðhafð-
ur út í eitt. Það var reyndar stofn-
aður félagsskapur í kringum þetta
batterí, pósitífi-klúbburinn, sem
búið er að koma upp vefsíðu fyrir,
www.positiveclub.com. Þannig
komumst við í gegnum," segir Þor-
valdur. „Við sögðum oft að Guð
væri sjötti meðlimurinn okkar.
Þannig virkaði það allavega á
stundum."
Davíð, Steinn og Jakob:
Verðum ekki fuilir í
vinnunni
Islendinga-
meik:
Dazed and
Confused
elska okkur
Fyrirbærið
Fyrirbs
bóbó:
Komið til
að vera
fundir
^ Það vilja
æði margir í
kjallarann
hjá Britney
Teknótöffarinn:
Luke Slater á
Fróni
Orville Jos-
ph Pennant:
uðfaðirinn
Éger=16
Fatlaður Hrís-
eyingur
1-
Elíza í
Bellatrix:
Hlakkar til að
hitta köttinn
Ahorfendaverð-
laun DV:
Grímur mætti
með leg í poka
11 f Í ö
rawg»«i»i
Svitakompa aóðærisins
Sandra Bullock í afvötnun
Afkvnþokkun klámmvndaleikkonu
Of erfitt að aefa út rokk
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Teitur af Orvllle
Joseph Pennant.
9. júní 2000 f Ó k U S
3