Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Qupperneq 6
f i ]
1
m
Þríeykið úr Hafnarfirði, Davíð Þór Jónsson, Jakob Bjarnar Grétarsson og Steinn Ármann Magnússon,
hafa í gegnum tíðina verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum. Þeir segjast sjálfir hafa breytt íslensku útvarpi
á sínum tíma en nú er komið að sjónvarpinu og á mánudaginn fer í loftið nýr sjónvarpsþáttur þeirra á
Stöð 2, HNN - Hafnfirska fréttanetið. Koníakstofan á Hótel Holti er staðurinn þar sem þeir slaka á eftir
vinnu og leyfðu þeir Höskuldi Magnússyni að setjast niður með sér til að ræða nýja þáttinn og komst
hann m.a. að því af hverju hann er skammstafaður HNN.
„Við viljum gefa þá mynd af
okkur að fólki finnist það geta
treyst okkur fyrir verðbréfunum
sínum. Þetta er enginn fiflagang-
ur, við erum hættir þvi. Við vitum
það að við höfum þann kross að
bera að við erum úr Hafnarfirðin-
um en við ætlum að reyna núna og
ég er handviss um að við getum
það, við ætlum að vera alvöru. Nú
erum við loks alvöru," segja þre-
menningamir Davíð Þór Jóns-
son, Jakob Bjamar Grétarsson
og Steinn Ármann Magnússon
þegar þeir hafa komið sér mak-
indalega fyrir í sófa koníakstof-
unnar á Hótel Holti.
„Fólk hefur mikið verið að tala
um það að vmdanfömu að það vanti
svona alvöru rannsóknarblaöa-
mennsku," segir Jakob en Steinn
er ekki sammála. „Hver var að tala
um það?“ „Jú, það eru mjög
reynslulitlir menn sem eru að
standa i þessu. Gamlir ruddar í
blaðamennsku sem hafa ráðið sig í
fyrirtæki sem annast markaðs-
tengsl, leika sér að þeim sem nú
standa í eldlínu frétta eins og
skopparakringlum. Það vantar
reynsluna og þá reynslu höfum
við.“
„Og snyrtimennskuna,“ bætir
Steinn við.
„Við höfum áður, hver á sinn
hátt, tekið þátt í að ryðja nýrri teg-
und fjölmiðlunar braut. Eins og
reyndar margir á undan okkur, t.d.
forseti íslands, hann var nú órag-
ur við það á sínum tíma,“ segir
Davíð. „Við ætlum heldur ekki að
vera púkalega klæddir," segir
Steinn og Davíð tekur undir. „Nei,
það fælir fólk náttúrlega bara frá
sannleikanum ef þú setur hann
ekki í neytendavæna pakkningu.
En það vantar að líta á framvindu
heimsmálanna í víðara samhengi
og hinar undirliggjandi orsakir
framvindunnar. Mikið af konflikt-
um og deilum sem við erum að
heyra af í dag eiga sér kannski
mjög djúpar rætur sem aldrei er
vikið aö heldur aðeins það keisar-
ans skegg sem debatið snýst um
hverju sinni.“
Leslie Stahl er átrúnað-
argoðið
Og málefnin, þið virðist œtla að
koma víða viö.
„Það eru málefni líðandi stund-
ar, þetta er fréttamagasín," segir
Jakob.
íslensk eöa erlend?
„Við byrjum á því að beina
fókusnum að innlendum vett-
vangi."
„En fyrst um sinn munum við
einskoröa umfjöllun okkur um al-
þjóðapólitíkina við utanríkismál ís-
lendinga og afstöðu til umheims-
ins. Ég held að við reynum að ein-
beita okkur að því flytja þær frétt-
ir sem standa markhópi okkar
næst, íslenska málsvæðið," segir
Davíð.
En þaó vindur svo kannski upp á
sig þegar veldi stöðvarinnar fœrist
út?
„Jú, jú, möguleikamir eru óend-
anlegir," segir Steinn.
Veröur umfjöllunin á persónu-
legu nótunum?
„Já.“ Steinn er fljótur til svars
en Jakob er ekki sammála. „Já og
nei, fagmannleg kannski fyrst og
fremst."
„En við munum ekki hika við að
draga upp mjög ítarlegar myndir af
þeim persónum sem standa i eldlín-
unni hveiju sinni,“ bætir Davíð við
en Steini fmnst svarið ekki nægi-
lega gott. „Jú, hún verður fagmann-
leg en lika persónuleg og rætin.“
„Þú ætlaöir að segja gætin, var
það ekki?“
„Nei, rætin.“
„Róttæk?“
„Nei, rætin. Ef við fáum ekki
góða díla í búðum þá kemur þaö
fram í okkar fréttaflutningi," segir
Steinn en hinir eru ekki alveg sam-
mála.
Eru einhverjar fyrirmyndir sem
þiö horfiö til?
„Við lítum kannski helst til fólks
eins og Dan Rathers, Andy Roon-
ey og Leslie Stahl,“ segir Jakob.
„Leslie Stahl er kannski sérstak-
lega mitt idol og ástæðan er
kannski fyrst og fremst hvernig
henni tekst að taka á hverju máli af
innsæi og næmi en þó af rögg-
semi,“ bætir Davíð við.
Eru þá engar fyrirmyndir á inn-
lendum vettvangi?
„Nei, alls engin,“ segir Davíð og
nú fer Steinn af stað. „Nei, og við
ætlum að vera svona hálfgerð
tískulögga á íslenska fréttamenn ef
svo má segja. Við ætlum að vera
svolítið aðhald fyrir þá en jafn-
framt smá grýla. Það má líka taka
það fram aö þetta er ekkert djók,
þetta er háalvarlegt. Við erum sam-
viska þjóðarinnar og refsivöndur."
Verða einhverjir gestir í þœttin-
um?
„Nei, ekki nema Andri Rúna en
hann verður fastur pistlahöfundur.
Er hann ekki einhver ættingi þinn
Steinn?" spyr Davíð. „Ja, ég hef
allavega mjög gott samband við
hann og hann er á mínum vegum.“
En hvað meö Áslák Gautason,
sem sást eitthvað í Ríkissjónvarp-
inu í vetur, kemur hann eitthvað í
heimsókn?
„Já, smiðurinn. Nei, vissulega er
gott að hafa tengingu við hinar
vinnandi stéttir og hver veit nema
við munum hafa samband við þær
og þá er náttúrlega Áslákur glæsi-
legur fulltrúi iðnaðarmanna."
„Það varð fljótlega úr, þegar við
fórum að velta þættinum fyrir okk-
ur, að vera ekki að draga einhverja
misvelklædda drullusokka inn í
þessa vönduðu umgjörð sem komin
er um þáttinn," segir Davíð og í
gang fara harðar umræður þangað
til Steinn stoppar hina af. „Og
strákar, ef ég má aðeins. Það væri
svolítiö að skjóta sig í fótinn að
vera að koma með einhverja kúka í
þáttinn."
„Það myndi líka aðeins þjóna
þeim tilgangi að draga úr gildi
þeirra sem eru í raun stjömurnar,"
tekur Davíð undir. „En Davíð, það
má alls ekki skilja það sem svo aö
við ætlum að hlífa einum né nein-
um. Við verðum mjög óvægnir og
rætnir.“ „Ég held að Steinn sé ekki
alveg búinn aö fletta orðinu rætinn
upp í orðabók,“ segir Davíð og þeir
Jakob fallast ekki alveg á það sem
Steinn segir.
Spörkum jafnvel í liggj-
andi fólk
Konsept þáttarins hefur vakiö
nokkra athygli, miðaldra karlmenn
með drykkjuvandamál.
„Ha, fenguð þið þann texta,“ segir
Davíð undrandi og hinir tveir eru
jafnhneykslaðir. „Það var einhver
rætinn á markaðsdeildinni, líklega
sá sami lesblindi og skammstafaði
Hafnfirska fréttanetið HNN, sem
sendi frá sér fréttatilkynninguna
þess efnis að þetta væri þáttur sem
áhugamenn um drykkfellda karl-
menn á fertugsaldri ættu ekki að
láta fram hjá sér fara. Ég held að
þetta sé af því aö á mínum sokka-
bandsárum stakk ég undan honum á
sveitaballi. En hann hefur verið lát-
inn fara þessi maður, skál fyrir því.“
„Auðvitað ætlum við ekki að
vera fullir í vinnunni, það er alveg
prinsipp mál að það verður ekki
lykt af okkur,“ bætir Steinn við.
Þetta veröur ekki Hausverkur um
helgar?
„Nei, þetta er ekki Hausverkur
um helgar.“
„Guði sé lof,“ segir Steinn og
Jakob er hneykslaður.
„Við hvað er eiginlega verið að
miða þetta?“
Ja, þetta er hara þaö sem fólk
heldur, þið verðiö greinilega að
sparka jleirum á markaðsdeildinni.
„Já, það er gott að þú segir að við
verðum að sparka einhverjum
vegna þess að það er nú eiginlega
það sem viö ætlum að gera. Við
ætlum aö sparka i fólk og sparka
þeim úr störfum og jafnvel sparka í
liggjandi fólk,“ segir Steinn við lít-
inn fognuð hinna.
„Ja, við ætliun kannski ekki að
sparka í liggjandi fólk en við mun-
um gefa þeim spark sem eiga það
skilið,“ segir Davíð og reynir að
róa Stein. „Ég tek þetta aftur að við
ætlum að sparka í liggjandi fólk.
Við ætlum að gefa drag í rassgatið
á þeim sem eiga það skilið.“
„Ég myndi segja að lokapunktur-
inn sé sá, ef einhver er að segja að
við séum bara einhveijir djókarar
og þetta sé nú bara enn einn Hafn-
arfjaröarbrandarinn, að við erum
mennirnir sem gerbreyttum ís-
lensku útvarpi fyrir nokkrum
árum og nú er röðin komin að sjón-
varpinu,“ segir Davíð og félagamir
taka undir. Við það að ganga út af
Holtinu fjarlægist smám saman
ómurinn af rifrildi þeirra félaga
um hver eigi svo að borga bjórinn.
6
f Ó k U S 9. júní 2000