Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
I>V
Fréttir
Hrottaleg meöferð á hundi:
Með límband
vafið um trýnið
Erfiðleikar með GSM:
Eölilegt ástand
Margir áttu í erfiðleikum með að
ná sambandi úr GSM-símum sínum
í miðbænum á 17. júní og aðfaranótt
18. júní. Þetta átti bæði við um síma
sem tengdir eru Símanum og Tali.
Skýringuna segir Ólafur Stephen-
sen upplýsingafulltrúi Símans vera
þá aö GSM-kerfiö sé byggt upp af
ákveðnum fjölda talrása í kringum
hvern sendi. „Það koma alltaf topp-
ar þar sem mjög margir, jafnvel tug-
ir þúsunda eins og í þessu tilviki,
eru staddir á mjög litlu svæði. Þá
annar kerfið ekki eftirspum, ekki
frekar en t.d bilastæðin í miöbæn-
um á 17. júní. Þannig að þetta er
eölilegt ástand.“ Að sögn Ölafs er
ekki hægt að byggja upp GSM-kerfi
þannig að þau anni ástandi eins og
t.d. á 17. júní eða nýársnótt.
GSM-símanotendur munu því
áfram þurfa að sætta sig við að eiga
í vandræðum með að nota síma sína
á hátíðardögum. -ss
Samband dýravemdunarfélaga
hefur kært illa meðferð á hundi í
Neskaupstað til lögreglunnar þar. Að
sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur, for-
manns SDÍ, hafði maður samband
við skrifstofu SDÍ vegna svart-hvíts
hunds sem fundist hafði með rautt
límband vafið um trýnið. Voru leifar
af límbandi á afturfæti hans, sem
„gaf til kynna að hann hefði verið
bundinn á fótunum með sams konar
límbandi," eins og segir í bréfi SDÍ tii
lögreglunnar í Neskaupstað.
Sigríður sagði fleiri en einn aðila
hafa séð hundinn i þessu ástandi.
Þegar málið hafði verið kært tU
SDÍ setti það sig þegar í samband við
lögregluna í Neskaupstað. Einnig
hafði aðili sem sá hundinn í þessu
ástandi samband við lögregluna.
Varðstjóri lögreglunnar í Neskaup-
stað sagði við DV að hann kannaðist
ekki við að málið væri tU rannsókn-
ar þar.
Sigríður Ásgeirsdóttir sagði hins
vegar að lögregluþjónn á staðnum
hefði tjáð henni að hann myndi taka
saman skýrslu um það.
f vikunni var enn haft samband við
SDÍ vegna umrædds hunds. Hann var
þá aftur kominn til eigenda sinna. Þar
væri hann við iUt atlæti, að sögn
hringjanda, oftast bundinn úti en
flakkaði þess á miUi um bæinn að
sníkja mat. „Við munum fylgja þessu
máli eftir af festu," sagði Sigríður Ás-
geirsdóttir. „En það er gegnumsneitt
mjög erfitt að fá yfirvöld tU að taka
við sér í dýraverndunarmálum." -JSS
Veitingastaður sýknaður
af miskabótakröfu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði á dögunum reykvískan veitinga-
stað af 300.000 króna miskabóta-
kröfu manns sem veiktist af
campylobactersýkingu eftir að hafa
snætt þar hádegisverð.
í febrúar á síðasta ári snæddi 22
ára gamaU maður, Snæbjörn Kon-
ráðsson, hádegisverð af hlaðborði
veitingahússins Lystauka ehf. á
Grensásvegi í ReyKjavík. Daginn eft-
ir fann hann fýrir óþægindum í
maga. Er þau ágerðust leitaði hann
tU læknis og var lagður inn á sjúkra-
hús með campylobactersýkingu. AUs
var Snæbjöm rúmliggjandi i níu
daga vegna sýkingarinnar og auk
þess sagðist hann hafa átt við vanlíð-
an að stríða í mánuð á eftir.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
gaf út skýrslu þar sem fram kom að
fleiri en Snæbjörn veiktust af
campylobactersýkingu á sama tíma.
í dómsúrskurði Amgríms ísbergs
héraðsdómara kemur fram að „við
skoðun heUbrigðiseftirlitisins á eld-
húsi veitingahússins hafi komið í
ljós að þrifum var ábótavant í eld-
húsinu, kjúklingar ekki afþýddir
eins og tU væri ætlast og þeir með-
höndlaðir á sama svæði og græn-
meti væri tilreitt. Það var niður-
staöa heUbrigðiseftirlitsins að
krossmengun í eldhúsi væri líkleg-
asta skýring sýkingarinnar þótt það
yrði ekki sannað."
Snæbjörn krafði tryggingafélag
Lystauka um bætur og voru honum
greiddar tæpar 90.000 krónur í þján-
ingabætur, tímabundið atvinnutap
og útlagðan kostnað auk innheimtu-
þóknunar lögmanns. Lystauki neit-
aði hins vegar að borga 300.000 í
miskabætur. Dómarinn sagði að
Lystauka bæri að borga þjáninga-
bætumar, en miskabætur ættu ekki
við í þessu tiffeUi. Málskostnaður
var felldur niður. -SMK
Hitað upp fyrir Kvennahlaupið
TaliO er aö um 20 þúsund konur hafi hlaupiö Kvennahlaup í gær sem er nokkuö færra en í fyrra. Aö venju var hlaupiö fjölmennast í Garöab en þar munu 4 til
5 þúsund konur hafa hlaupiö í rigningu en mildu veöri.
íslensk miðlun á Vestfjörðum í vanda:
Verra en hjá Rauða hernum
- segir starfsstúlka vestra - greitt verður úr málinu, segir stjórnarformaður
Starfsfólk íslenskrar miðlunar á
Vestfjörðum er farið að ókyrrast
verulega vegna þess að það hefur
ekki fengið laun sín greidd. Stjórn-
arformaður fyrirtækisins segir
vissulega þungt undir fæti en verið
sé að vinna að lausn málsins.
Starfsstúlka fyrirtækisins vestra
sagöi í samtali við DV að enn væri
ekki farið að greiða út laun vegna
maímánaðar og fátt um svör frá for-
svarsmönnum fyrirtækisins. „Það
eina sem þeir segja er að það séu
ekki til peningar. Þeir segja bara að
þaö sé alltaf verið aö funda um mál-
ið en ekkert gerist. Þegar Rauði her-
inn hætti að geta borgað út á sínum
tíma á föstudegi þá var tilkynnt um
það á mánudegi. Þetta er enn verra
hjá íslenskri miðlun, því nú er kom-
inn hálfur mánuður og það væri þvi
allt í lagi að fá eitthvað að heyra frá
þeim.“
Verðurlagaö
„Vandinn er aö það hafa ekki ver-
ið næg verkefni yfir daginn þó nóg
hafi verið aö gera við símaþjónust-
una á kvöldin,“ sagði stjómarfor-
maður fyrirtækisins á Vestfjörðum,
Fritz Már Jörgensen. „Viö emm
búnir að eyða griðarlegu fé í þjálfun
starfsfólks og munum leita allra
leiða til að halda þessum rekstri í
gangi. Stjóm félagsins er að vinna á
fullu að lausn þessa máls. Menn
voru með miklar væntingar vestra
um verkefni frá hinu opinbera sem
hefur síðan algjörlega brugðist.
Staðan er þó sú að ný og spennandi
verkefni eru að skila sér inn og það
er jákvætt og í takt við það sem
gerst hefur annars staðar.“
íslensk miðlun á Vestfjörðum
rekur starfsstöðvar í Bolungarvík,
ísafirði, Suðureyri og á Þingeyri.
Fyrirtækið er rekið sjálfstætt, í
þriðjungseigu móðurfyrirtækisins í
Reykjavík en að tveimur þriðju í
eigu heimamanna. Sjö starfsmenn
eru í Bolungarvík en tíu til tólf á
hverjum hinna staðanna. Samtals
em stöðugildin 37. Þá er starfsstöð
tilbúin á Patreksfirði en verður
ekki gangsett fyrr en verkefnastaða
hefur verið tryggð. -HKr.
Davíð bjartsýnn
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra var
bjartsýnn á efnahags-
horfur í hátíðarræðu
sinni á Austurvelli á
laugardag. Hann
sagði ekki útlit fyrir
frekari veröhækkan-
ir og umræðan um
efnahagsmálin hefði verið frekar óá-
byrg undanfarið og verðbólgan væri
á undanhaldi. Stöð 2 greindi frá.
69% með veiðileyfagjaldi
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallup eru 69% landsmanna fylgj-
andi því að lagt verði veiðileyfa-
gjald á þá sem hafa kvóta í fiskveiði-
lögsögunni en tæplega 22% eru því
andvíg. 49% svarenda í könnuninni
voru ósammála úrskurði Hæstarétt-
ar í Vatneyrarmálinu en 39% sam-
mála. Mbl. greindi frá.
Ríkið sýknað
Hæstiréttur hefur sýknað ís-
lenska ríkið og lögreglustjórann í
Reykjavík af kröfum Háspennu ehf.
um bætur vegna þeirrar ákvörðun-
ar að loka beri Háspennu klukkan
23.30 á kvöldin. Vildi Háspenna
meina að fyrirtækið hefði orðið af
tekjum vegna ákvörðunarinnar sem
ætti sér ekki stoð í lögreglusam-
þykkt. Mbl. greindi frá.
Flugleiðamönnum mútað?
Kári Kárason, framkvæmdastjóri
Flugleiðahótela hf., segir að reynt
hafi verið að bera fé á starfsfólk
gestamóttöku hótelsins til að fá það
tU að mæla með ákveðnu fyrirtæki í
ferðaþjónustu. Þetta er ástæða þess
að starfsmönnum var tilkynni á
fóstudag að þeim sem það gerðu yrði
vikið úr starfi. RÚV greindi frá.
Niðurstöður í haust
Ekki er gert ráð
fyrir því að niður-
stöður gerðardóms í
ágreiningsmáli öldr-
unarheimilisins
Grundar og heU-
brigðis- og trygging-
armálaráðuneytisins
liggi fyrir fyrr en í
haust. Dómendur komu í fyrsta
skipti saman á fóstudag frá því að
dómurinn var skipaður í vor. DeU-
an snýst um greiðslu daggjalda til
Grundar sem forsvarsmenn þess
telja of lága. Mbl. greindi frá.
Aukinn kvóti
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að auka rækjukvóta á
Flæmingjagrunni úr 9.300 lestum í
10.100 lestir. Mbl. greindi frá.
Enginn starfsmanna flytur
Enginn starfsmanna á skrifstofu
jafnréttismála hefur hug á að flytja
út á land með nýrri Jafnréttisstofu
en gert hefur verið ráð fyrir að skrif-
stofan hafi aðsetur á landsbyggðinni.
Elsa Þorkelsdóttir framkvæmda-
stjóri segir starfsmennina hins vegar
hafa orðið sammála um að beita sér
ekki gegn flutningunum.
Fálkaorðan veitt
Prestar og stjóm-
málamenn voru með-
al þeirra einstaklinga
sem forseti íslands,
herra Ólafur Ragnar
Grímsson, veitti
fálkaorðuna fyrir
störf sín í þágu lands
og þjóðar. Herra Karl
Sigurbjömsson biskup og Halldór
Ásgrimsson utanrikisráðherra voru
sæmdir stórriddarakrossi með
stjömu. Meðal þeirra sem forsetinn
veitti fálkaorðuna voru Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, Sólveig
Pétursdóttir dóms- og kirkjumála-
ráðherra og Vilborg Dagbjartsdóttir
skáld. Stöð 2 greindi frá. -hdm