Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000 Fréttir I>V Birtir upp í atvinnumálum Austfirðinga: Sandkorn 8000 tonna laxeldi í Mjóafirði - allt að 50 ný störf „Ef vel tekst til reiknum við með að hafa 25-30 manns í vinnu við lax- eldið og annar eins fjöldi gæti starfað við þjónustu í kringum það,“ segir Guðmundur Valur Stefánsson, fiski- fræðingur og framkvæmdastjóri Agva hf. Agva er nýtt eignarhaldsfyrirtæki sem stofnað er í kringum hugmynd- ina um stórt laxeldi á íslandi en ásamt Guðmundi er konan hans, Anna Katrín Árnadóttir, og Norðmað- urinn Ame Geiruiv eigendur og er Ame jafnframt framkvæmdastjóri Kirkenes Salmon sem er nyrsta lax- eldisstöð i heimi. Að sögn Guðmundar er málið á byrjunarstigi og liggur nú fyrir um- sókn um starfsleyfi hjá Hollustuvemd ríkisins. „Ef við fáum leyfið er gulltryggt að við fáum fjármagn erlendis frá og ég reikna með að það verði eitthvað í kringum milljarð," segir hann. Guðmundur segir það vera mikil- vægt að koma sterkt inn í greinina frá upphafi og skapa sér strax góöa Lyftlstöng fyrir atvinnulífiö Ef allt gengur upp gæti laxeldi hafist í Mjóafiröi fyrir austan strax á næsta vori. stöðu. „Það gengur ekki að stofna lítið fyrirtæki og standa síðan aleinn í þessu. Ef stofnað er stórt fyrirtæki sem gengur upp er aftur á móti lík- legt að smærri laxeldisstöðvar geti dafnað í kring,“ segir hann. hér grundvöllur Hugmynd- in með laxeld- inu í Mjóa- firöi gerir ráð fyrir að fisk- inum verði slátrað i Nes- kaupstað og hann fullunn- inn í ná- grenni Mjóa- fjarðar en með tímanum gæti þarna myndast vett- vangur fyrir 50 störf. „Ef okkur gengur vel þá hefur skapast fyrir þessari at- vinnugrein og fleiri geta fylgt í kjöl- farið," segir Guðmundur. Hann segir laxeldi eiga vaxandi velgengni að fagna síðustu ár og hafa markaðir í Evrópu og Bandaríkjun- um verið að styrkjast. „Það er laxeldi í Finnmörku og víðar þar sem aðstæður eru svipaðar og hér á landi og gengur mjög vel,“ segir hann. Að sögn Guðmundar er reiknað með að fiskeldið nái 8000 tónnum ef það tekst að halda því í sátt við um- hverfi sitt. Hann segir að ekki þurfi að líða langur tími þar til laxeldið geti hafist. „Takist okkur að fá starfsleyfið hjá Hollustuvemd getum við byrjað með takmarkaða framleiðslu strax næsta vor,“ segir Guðmundur. -jtr Stórlækkaðverð Plymouth Grand Voyager 3,0, árg. 1997. Ekinn 137 þús.km, 5 g., 7 manna, dökkblár, ssk., rafdrifnar rúður og speglar, ABS, samlæs., litað gler.hraðastillir, lengri gerð. Verð 2.240.000 / NÚ 1.690.000 Dodge Caravan 2,4, árg. 1997. Ekinn 93 þús.km, 7 manna, dökkgrænn, 150 ha., ssk., rafdr. speglar, ABS, samlæsingar, litað gler, hraðastillir, loftkæling. Verð 1.830.000 / NÚ 1.380.000 efMATTHÍASAR MIKLATORGI VIÐ PERLUNA Framhald stóra fíkniefnamálsins: Lögmaður og venslafólk ákært Síðastliðinn fostudag voru ákærur birtar í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir 12 manns vegna meints peningaþvott- ar og eiturlyfjamisferlis i tengslum við stóra fikniefnamálið svokallaða. Meðal þessa fólks var lögmaður, tannlæknir og tæplega sjötug kona. Flestir neituðu alfarið sakargiftum. Þessar fjórar ákærur tengjast stóra fikniefhamálinu svokailaða. Alls hafa 32 verið ákærðir í tengslum við stór- fellt fikniefhasmygl til íslands í gám- um Samskipa sem upp komst um í september í fyrra, en þrír hinna ákærðu voru starfsmenn skipafélags- ins. í þessum hluta málsins bárust bönd- in að miklum hluta til venslafólks meintra höfuðpaura smyglsins. Egill Ragnars Guðjohnsen og Geir Hlöðver Ericsson eru ákærðir fyrir móttöku og sölu á kókaíni, sem og peningaþvott. Guðmundur Kristján Guðbjömsson er ákærður fyrir peningaþvott, eignar- hald á eiturlyfjum og hylmingu. Finn- ur Sverrir Magnússon er ákærður fyr- ir peningaþvott og að hafa haft milli- göngu um kaup á fikniefhum. Sigurð- ur Guðmundsson, Bergljót Karlsdóttir, Ingibjörg Auður Finnsdóttir, Sigurður Hólm Guðbjömsson, Sigurlaug Björk Finnsdóttir, Sólveig Ósk Óskarsdóttir, Bjarki Þór Hilmarsson og Einar Ingi Marteinsson era ákærð fyrir peninga- þvott. DV-MYND HILMAR ÞÓR Sjá myndir á: www.billinn.is Tannlæknir og lögmaöur Ákærur á hend- ur Agli Ragnars Guðjohnsen tann- lækni og Sigurði Guðmundsyni hér- aðsdómslögmanni hafa vakið athygli í fjölmiðlum. Þeim, ásamt Geir Hlöðveri Ericssyni, er gert að sök að hafa stundað peningaþvætti fyrir Sverri Þór Gunnarsson, meintan höfuðpaur málsins. í byrjun september 1999 er Agli Ragnars gert að sök að hafa á tannlæknastofu sinni tekið við rúmum fjóram miiljónum króna frá Sverri Þór og geymt peningana í bankahólfi sínu. Sverrir Þór var hand- tekinn hinn 11. september. Sigurður er ásakaður um að hafa fimm dögum sið- ar tekið að sér að gera málamynda- kaupsaming á lögmannsstofu sinni á milli Egils Ragnars og Sverris Þórs um kaup þess síðamefnda á Rimax fyrir þessar rúmar fjórar milljónir. Sigurði í DÓMSALNUM Sigrún María Kristinsdóttir er svo gert að hafa tekið peningana í sína vörslu með því að geyma lykil bankahólfsins. Komu undan 8,5 milljónum Finnur Sverrir, Guðmundur Krist- ján og Sólveig Ósk era ákærð fyrir að hafa komið undan átta og háifri millj- ón króna í reiðufé í íslenskum krónum og holienskum gyllinum. Reiðuféð var falið undir dýnu í hjónarúmi Ólafs Ágústs Ægissonar, eins af meintum höfuðpaurum í innflutningsmálinu, og Sólveigar Óskar sambýliskonu hans. Fólkinu er gert að sök að hafa notað féð í eigin þágu eða ráðstafað því tii annarra, en við rannsókn málsins lagði lögreglan hald á 100.000 íslenskra króna og 41.000 hol- lensk gyliini af þessum 8.5 milljón- um. Bjarki Þór er ásakaður fyrir að hafa samtals 66 sinnum skipt alis rúmum 12 miiijón- um íslenskra króna á tveimur ------------------ árum í erlenda skiptimynt fyrir ákærða, Sverri Þór Gunnarsson, ágóða fíkniefnasölu sem Sverri Þór er gert að sök að hafa keypt meiri eiturlyf fyrir erlendis. í dómsal á fóstudaginn sagði Bjarki Þór að ákær- an á hendur honum hafi verið felld niður í vetur. Saksóknara Helga Magn- úsi Gunnarssyni var ekki kunnugt um það og mun það mál aftur vera tekið fyrir I næstu viku. Héraðsdómari Hjördís Hákonardóttir sagði að nauðsynlegt væri að bíða dóms í fyrri hluta fikniefnamálsins, sem má búast við að verði tilbúinn fyrir lok júní, og var aðalmeðferðum þessara ákæra frestað fram í september. -SMK _______■■ Urnsjón: Reynir Traustason netfang: sandkorn@ff.is KR á Meistaravelli Höfuðstöðv- ar KR hafa svo lengi sem elstu menn muna staðið við Frostaskjól í Reykjavík. Þar hefur verið byggður upp myndarlegur húsakostur og nú síðast nýtt og heljarstórt íþróttahús fyrir ekki löngu síðan. í vangavelt- um manna um stórveldisdrauma KR-inga hefur nafnið Frostaskjól komið inn í umræðuna. Þykir það minna um of á napurt skjól fyrir flækinga í stað þess að vísa á bú- setu virtra knattspyrnusnillinga. Hinu megin við KR-völiinn er hins vegar önnur gata sem heitir Meistaravellir sem þykir miklu betur við hæfi. Segja gárungar að vinna sé komin á fullt við að flytja skráningu og lögheimilið austur fyrir KR-völiinn... Kolbrún og Vaka Það er engin i lognmolla yfir stúdentapólitík- inni í Háskóla íslands þótt ( komið sé fram I á sumar. Ný-1 lega var kosinn f fulltrúi stúd- enta í stjóm I Félagsstofnun-' ar stúdenta. Þurfti að kjósa um fulltrúa því að venju var einn kandídat frá hvorri fylkingu. Kom furðusvipur á röskvufólk þegar Þór- lindur Kjartansson, formaður Vöku, tilkynnti að kandídat Vöku væri Kolbrún HaUdórsdóttir, alþingiskona Vinstrigrænna. Þetta grín vakti þó ekki almenna lukku og mun Eirík- ur Jónsson, formaður SHÍ, hafa talið það einkennfiegt að hafa eitt valdamesta embætti sem stúdentar skipa í flimtingum... Gaui í Halló Það er mikil ferð á þeim félög- um Halli HaUs- syniog PáU Þór Jónssyni í viðskiptalífinu. Þeir reka fjar- skiptafyrirtækið ! Halló-Frjáls fjar- skipti og hyggj- ---- ast stofna til 5 milljóna símanúmera á íslandi. Svo er að sjá að hugmyndin sé góð ef marka má viðbrögð fjárfesta. Nýverið keypti galdrakarlinn í Oz, Guðjón Már Guðjónsson, 6 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir tugi milljóna. Þetta er merkilegt fyrir þær sakir að Guð- jón er einn aðalhugmyndafræðingur Íslandssíma, samkeppnisaðila Halló, og tO skamms tíma meðal stærstu eigenda... Blækurnar bíða Flokksbræð-1 urnir Hjálmar Jónsson alþing- ismaður og Ólafur Garðar [ Einarsson, I fyrrum þingfor- seti, starfa I saman í nefhd í sem hefur með að gera mögu-1 legt samstarf Hjálparstofnunar kirkjunnar og Þróunarsamvinnu- stofnunar íslands. Ólafur Garðar er stjómarformaður Hjálparstofhunar og Seðlabankans að auki. Á fundi í síöustu viku var mikið hringt í GSM-síma Ólafs G. sem þungbúinn brá sér afsfðis til að tala á meðan aðrir biðu. Þá orti Hjálmar: Ólafur önnum kafinn oft um leiðsögn er krafinn. Blœkurnar bíöa í banka og kvíöa. Skyldi heimskreppan vera hafin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.