Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Síða 8
8
Keflavaltarar
Dregnir eða
sjálfkeyrandi.
Nýir og notaðir
BQMRG
Slmi 568 1044
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
I
Fréttir
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um, sem hér segir:
Breiðvangur 8, 0301, Hafnarfirði, þingl.
eig. Agústa Hera Birgisdóttir og Haukur
Már Sigurðsson, gerðarbeiðandi Búnað-
arbanki Islands hf., föstudaginn 23. júní
2000 kl. 10.00.
Hlíðarbraut 3, Hafnarfirði, þingl. eig.
Haukur Sigtryggsson, gerðarbeiðendur
Islandsbanki hf., útibú 545, og Sparisjóð-
ur Hafnarfjarðar, föstudaginn 23. júní
2000 kl. 11.30.________________
Suðurhraun 2,0103, Garðabæ, þingl. eig.
Ragnar Öm Þórðarson, gerðarbeiðendur
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og
Sparisjóður Hafnarfjarðar, föstudaginn
23. júní 2000 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐl
Glerverksmiðjan á Hellu:
100 tonn af gleri brotnuðu í mél
Gífurlegt tjón varð í glerverk-
smiðjunni Samverk ehf. á Hellu í
jarðskjálftanum sem gekk yfir Suð-
urlandið á laugardag.
„Allt gler þarna inni brotnaði
meira og minna i mél. Þetta voru
um 100 tonn,“ sagði Ragnar Pálsson,
framkvæmdastjóri þessarar elstu
starfandi glerverksmiðju landsins.
„Það þarf að farga þessu öllu. Ég er
búinn að panta traktorsgröfur og
vörubíla til þess að moka þessu út.
Það er ekkert annað að gera en að
moka bara út.“
Samverk var stofnað árið 1969 og
sérhæFtr sig í einangrunargleri fyrir
húsbyggingar ásamt öðru gleri sem
notað er I húsum. Glerið sem brotn-
aði var aðallega á hráefnislagernum
en hluti af glerinu var fullunnið.
Um 20 manns starfa hjá glerverk-
smiðjunni og var einn maður inni i
verksmiðjunni er skjálftinn hrein
yfir. Starfsmaðurinn hafði ekki
tíma til þess að koma sér út úr hús-
inu, því glerið féll fyrir dyrnar og
lokaði hann inni.
„Það má segja að hann hafi bjarg-
ast giftusamlega. Hann bjargaði sér
upp á skurðarborðið sem var eini
staðurinn sem hann gat farið á.
Borðið hreyfðist um húsið og hann
ofan á því og glerið féll allt um
kring, en hann slapp alveg ómeidd-
ur,“ sagði Ragnar.
-SMK
Kaffistelliö fariö
Allt hrundi úr skápum og skúffum á bænum Stöðulfelli. Hérgefur að líta
ábúandann, Hrafnhildi Ágústsdóttur, með hluta af leirtauinu sem
skemmdist við hamfarirnar.
DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR
Jorðin rifin
Hamfarirnar um helgina hafa skapað fjölmörg verkefni fyrir Vegagerö ríkisins.
Eins og sjá má á þessari mynd hefur malbakið hreinlega rifnað i sundur
þegar skjálftabylgjan gekk yfir Suöurlandið.
Það fór betur en á horfðist þegar
jarðskjálftinn reið yfir bæinn
Stöðulfell í Gnúpverjahreppi á laug-
ardag. Heimafólkið var, eins og svo
margir sveitungar þeirra, við kaffi-
drykkju í félagsheimilinu Ámesi.
Þegar skjálftinn reið yfir svæðið fór
hver til síns heima til þess að kanna
skemmdir og huga að skepnum þar
sem það átti við. Þegar komið var
að bænum Stöðulfelli höfðu hestar
sem vom við bæinn brotið sér leið
út úr girðingu og kýr stukku um
túnin í óttakasti. Mikið hafði hrun-
ið úr klettum við bæinn sem hefur
væntanlega átt sinn þátt i því að
hræða skepnurnar.
Húsakynni heimafólksins að
Stöðulfelli sluppu ótrúlega vel, en
bæir hvor sínum megin við Stöðul-
fell voru gjörónýtir. Þrátt fyrir jarð-
hræringamar er flest heimafólkið
að Stöðulfelli hvergi bangið „nema
yngsta dóttir mín,“ sagði Hrafnhild-
ur Ágústsdóttir ábúandi. „Hún
dvaldi hjá ættingjum að Skálholti
nú í nótt og þegar ég talaði við hana
í dag sagði hún einfaldlega
„mamma, sæktu mig aldrei."
-ÓRV
Styrkleikamælingar Verkfræðistofnunar HÍ á húsum á Suðurlandi:
Ekki gerðar opinber-
ar nema að hluta
- til að dæma ekki hús léleg og eyðileggja þar með söluverð þeirra
Niðurstöður verkefnis sem Verk-
fræðistofnun Háskóla íslands vann
á árunum 1997-98 um m.a. ástand og
styrkleika húsa á Suðurlandi með
tilliti til hugsanlegra jarðskjálfta
hefur ekki verið gerð opinber nema
að hluta til, að sögn Bjama Bessa-
Við erum best í því sem
við erum aö gera
- aö bæta kynlífiö.
Opiö
mán.-fös.10-18
laug.10-16
Fókafeni 9 • S. 553 1300
sonar verkfræðings, sem vann
ásamt fleirum að könnuninni. At-
hugunin náði til 30-40 húsa á hverj-
um stað, þ.e. Selfossi, Hellu, Hvera-
gerði auk fjölda bóndabæja í Ölfusi,
Gnúpverjahreppi, Holtunum og víð-
ar á Suðurlandi. Húsin voru flokkuð
í timburhús, hlaðin hús og stein-
steypt hús og úrtakið valið eftir mis-
munandi byggingaraldri. Hlutfall
húsgerða reyndist vera 28 prósent
timburhús, 59 prósent steinsteypt
hús og 10 prósent húsanna voru
hlaðin.
„Við skoðuðum hús sem valin
voru af handahófi og sendum við-
komandi húseigendum skýrslu um
sitt hús,“ sagði Bjami. „Auk þess út-
bjuggum við almennar leiðbeining-
ar, s.s. ráðleggingar um frágang á
innanstokksmunum sem dreift var í
hvert einasta hús á Suðurlandi. Þær
vom byggðar á þeim atriðum sem
við höfðum séð að ábótavant var í
þeim húsum sem við skoðuðum. T.d.
var mjög stór hluti húseigenda með
ótryggt innbú. Við höfum birt hluta
niðurstaðna á a.m.k. einni erlendri
ráðstefnu, en ég skal ekki segja um
hvort um frekari birtingar verður
að ræða. Hugsunin var alltaf sú að
sértækar leiðbeiningar um einstök
hús færu aldrei annað en til viðkom-
andi húseiganda. Við vildum ekki
dæma einhver hús léleg því þar með
var búið að eyðileggja söluverð við-
komandi húss. Eftir að hafa sent sér-
tæku leiðbeiningarnar út hringdum
við í hvern einasta húseiganda og
fylgdum því eftir hvort viðkomandi
hefði gert eitthvað af því sem við
höfðum mælt með. Þá ræddum við
við sveitarstjómir um niðurstöður
rannsóknarinnar. “
Aðspurður um hvort ekki hefði
verið æskilegra fyrir fólk að hafa
vitneskju um hugsanlegan styrk-
leika húsa sinna þegar skjálftinn
reið yflr nú, sagði Bjami að flestir
gerðu sér grein fyrir honum. Hins
vegar væru húseigendur ekki til-
búnir til að fá leiðbeiningar um að
þeir þyrftu t.d. að setja jámagrind
innan á veggi húsa þeirra og
sprautasteypa þau. Þetta kostaði
hundruð þúsunda. Það væri ekki
einfalt mál að „skikka" fólk til að
gera slíka hluti. Sumir hefðu t.d.
einfaldlega ekki efni á slíkum fram-
kvæmdum.
„Ég held að það hefði ekki breytt
neinu með ástand, þótt allar niður-
stöður rannsóknarinnar hefðu verið
birtar," sagði Bjarni. „Það þarf eitt-
hvað að gerast, eins og skjáiftinn nú,
til að fólk fari að leggja út í kostnað-
arsamar styrkingar.“
Guðmundur I. Gunnlaugsson,
sveitarstjóri á Hellu, sagði að niður-
stöðumar hefðu fyrst og fremst ver-
ið kynntar húseigendum en einnig
sveitarstjómum. Hann sagði að mál-
ið hefði verið lagt i hendur húseig-
endum og þeir almennt hvattir til að
lagfæra það sem væri ábótavant.
Ábendingar Verkfræðistofnunar
hefðu örugglega gert mikið gagn því
margir hefðu farið að þeim einkum
hvað varðaði aðgerðir innanhúss.
-JSS
Dóttirin vill ekki koma heim vegna hamfaranna:
Mamma, sæktu mig aldrei
- sagöi 11 ára stúlka viö móöur sína