Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Page 13
13 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000__________________________________________________________________ PV____________________ Útlönd Milo Djukanovic Forseti Svartfjallalands vandar Milosevic ekki kveðjurnar. Milosevic sakað- ur um að flytja út hryðjuverk Milo Djukanovic, forseti Svart- fjallalands, sakaði Slobodan Milos- evic Júgóslavíuforseta í gær um að flytja út hryðjuverkastarfsemi til að grafa undan stjórnvöldum í Svart- fjailalandi sem myndar Júgóslavíu ásamt Serbíu. Djukanovic sagði að öryggissveitir hefðu handtekið menn sem grunaðir væru um aðild að banatilræðinu við júgóslavneska stjómarandstæðinginn Vuk Drasco- vic í síðustu viku. Tilræðið var gert í Svartfjallalandi. Eþíópar og Erítreumenn undirrita friðarsamkomulag: Auðveldar aðstoð við milljónir í vanda Friðarsamkomulagið sem Eþíóp- ar og Erítreumenn undirrituðu í gær mun auðvelda mjög alla aðstoð við allt að fimmtán milljónir manna sem eru í hættu vegna þurrka og hungursneyðar. Tíu milljónir þeirra eru í Eþíópíu. Með samkomulaginu i gær var bundinn endi á tveggja ára landamæraerjur Eþíópíu og Erít- reu. Stjórnvöld landanna tveggja hétu því að virða samkomulagið. Tugir þúsunda hermanna hafa fallið í átökunum og mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flosnað upp frá heim- ilum sínum. Utanríkisráðherrar landanna tók- ust í hendur þegar þeir höfðu undir- ritað friðarsamninginn sem gerður var fyrir milligöngu Einingarsam- taka Afríkuríkja. Ráðherrarnir höfðu ekki ræðst við vikum saman á meðan óbeinar samningaviðræð- ur fóru fram í Algeirsborg, höfuð- Samkomulag undirritaö Utanríkisráðherra Eþíópíu, Seyoum Mesfin, undirritar friðarsamkomulagið sem gert var við Erítreumenn í gær. borg Alsírs. Þess í stað fluttu sátta- semjarar boð á milli sendinefnda landanna. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að her- sveitir SÞ ættu að taka sér stöðu milli deiluaðila sem fyrst til að renna stoðum undir samkomulagið. Öryggisráð SÞ á eftir að fjalla um beiðni um friðargæslusveitir sem er hluti friðarsamningsins. Bandaríkin og Evrópusambandið styðja samkomulagið sem gert var í Algeirsborg og voru sendimenn þeirra viðstaddir undirritunina. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti yfir ánægju sinni með það og sagöi að sendimaður sinn, Anthony Lake, myndi fara aftur til Algeirsborgar til frekari viðræðna um endanlega útfærslu samkomulagsins. Bouteflika Alsirforseti fagnaði undirrituninni og sagði þetta nýja dögun friðar í Afriku. Uppboð a óskilahesti Jarpur hestur, ca 7-8 vetra, verður boðinn upp hjá Hestamannafélaginu Fáki, Víði- völlum, Víðidal, Reykjavík, þriðjudaginn 27. júní nk. kl. 14.00. Hesturinn er ómarkaður. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftlrfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Hl. Kveldúlfsgötu 28, íbúð 2c, Borgar- nesi, þingl. eig. Auðunn Eyþórsson, gerð- arbeiðandi Islandsbanki hf., miðvikudag- inn 21. júní 2000 kl. 10. ^ÝSLUMAÐURINNÚ30RGARNESI Gijótháls 1 Sími 575 1200 SöludeUd 575 1220 Mégane Break Grand Comfort Break státar ekki aðeins af stærra farangursrýxni en aðrir skutbílar í sama flokki heldur hefúr hann allan þann öryggis- og þægindabúnað sem hugurinn gimist. Mégane Break fæst nú í sérstakri Grand Comfort útgáfu; enn betur búinn. Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl. RENAULT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.