Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Side 30
42
Tilvera
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
DV
Heimilisfólkið að Leikskálum 2 á Hellu:
Ætlaði aldrei að
taka enda
- lágum í gólfinu og biðum, sagði Helga Magnúsdóttir
„Við vorum inni í borðstofu, ég og
maðurinn minn, við vorum að borða
síðbúinn hádegismat. Þá kom skjálft-
inn svo hryllilega mikill. Maðurinn
minn ætlaði að standa upp en datt og
meiddi sig, ég ætlaði til hans en datt
líka, svo að við lágum bæði í gólflnu
meðan skjálftinn reið yfir. Mér fannst
þetta aldrei ætla að taka enda. Þegar
þeim fyrsta lauk fórum við að reyna
að komast út þá kom annar en hann
var mikið styttri," sagði Helga Magn-
úsdóttir, sem býr að Leikskálum 2 á
Hellu. Hús Helgu er stórskemmt ef
ekki ónýtt eftir jarðskjálftann. Það er
allt mikið spnmgið að utan sem inn-
an og lítil von til að hægt verði að
koma því í samt horf á ný. „Hávaðinn
var ægilegur, svo hrundi allt dótið
okkar í gólfið. Ég er héðan úr sýsl-
unni og ég hef aldrei fundið neitt
þessu líkt fyrr, þetta var yfirgengi-
legt,“ sagði Helga. -NH
Verslunin á vegamótum Landvegar:
Allt hrundi úr hillum
- afgreiðslumaður fékk sjónvarp yfir sig
„Hér lék allt á reiðiskjálfi, ég var
að afgreiða ófríska konu sem var
með bam með sér þegar skjálftinn
kom, við hlupum bara strax út úr
búðinni með alla hlutina úr hillun-
um hrynjandi allt í kringum okk-
ur,“ sagði Andrea Pálsdóttir, af-
greiðslukona í versluninni á vega-
mótum Landvegar.
Þaðan er örstutt að upptökum
jarðskjálftans enda var skjálftinn
fimasterkur þar. Allt var hrunið úr
hillunum sem hrunið gat, ungur af-
greiðslumaður í bensinafgreiðsl-
unni var rétt búinn að fá allt yfir sig
úr hillunum, þar á meðal sjónvarps-
tæki. „Ég var á leiðinni út þegar
sjónvarpstækið kom fljúgandi að
mér, ég datt og náði að henda því af
mér en lenti þá sjálfur á afgreiðslu-
borðinu," sagði Kristinn Jónsson,
afgreiðslumaður í versluninni á
Vegamótum. -NH
Apótekinu á Hellu var ekki vægt
frekar en öðrum húsum. Þar var allt
úti um allt, lyfjaglös og vörur úti um
öll gólf. Að sögn Sigríðar Pálínu Am-
ardóttur apótekara er enn ekki hægt
að áætla hversu mikið tjónið er, en
ljóst sé að það er mikið. -NH
DV-MYND NH
Sigríður Pálína Arnardóttir
apótekari
/ apótekinu fóru lyf og vörur
um öll gólf.
Ur versluninni á Vegamótum
Kristinn afgreiöslumaöur viö sjónvarpið sem hann fékk yfir sig.
DV-MYND NH
Snubbóttur endir a hatióaholdunum
BergleifJoensen, veitingamaöur 1 félagsheimilinu Árnesi, hugar hér aö
skemmdum sem uröu í jaröskjálftanum á laugardag. Ekki er óvarlegt að
áætla aö hann hafi tapaö um 100 þúsund krónum vegna leirtaus og drykkja
sem fóru í gólfið.
Kristján X á Hellu:
Bjarnheiöur Hauksdóttir, starfs-
stúlka í félagsheimilinu Árnesi, hug-
ar hér að kaffivél sem fór í gólfiö í
jaröskjálftanum í gær.
I veitingahúsinu Kristjáni X á
Hellu var fjöldi fólks þegar ósköp-
in dundu yfir. Kjartan Erlingsson
veitingamaður var í eldhúsinu.
„Þegar ég áttaði mig á hvað var að
gerast stökk ég út í hom, það var
eina leiðin til að komast undan
diskum og öðra sem var á flugi um
eldhúsið. Þegar þetta var riðið yfir
fór ég héma fram og var allt úti
um allt. Þá fór ég fram í sal til að
gá að fólkinu, þar var enginn. Fólk-
ið var allt komið út úr húsinu, allt
meira og minna í sjokki yfir
skjálftanum, tvær konur fengu
taugaáfall og ein sneri sig þegar
hún var að hlaupa út,“ sagði Kjart-
an. í næsta húsi við Kristján X er
gamla Hellubíó, þar var fjöldi fólks
í skímarveislu þegar skjálftinn
kom þar greip mikil hræðsla um
sig og fólk þusti út.
Heimilið í rúst
Þrátt fyrir að skjálftinn hafi fært
allt úr stað á Kristjáni X er húsið
að sjá lítið skemmt. Sömu sögu er
ekki að segja af heimili Kjartans
Erlingssonar veitingamanns. Þar
stórskemmdist húsið. Tveggja
tommu sprunga myndaðist á milli
húshluta og allt innanstokks fór til
ferða. Víst er að hús Kjartans er
eitt af þeim húsum á Hellu sem
tæplega verða gerð upp að nýju eft-
ir hamfarimar. -NH
Hlaupió frá boröum
Undirskálar undir bollum í félagsheimilinu Árnesi fylltust viö jaröhræringarnar
f gær. Fólk sem eina stundina sat rólegt viö kaffidrykkju rauk út og fór til
síns heima aö kanna skemmdir. Eftir stóöu kaffi og kræsingar óhreyföar.
Apótekið á Hellu:
Lyf Og
vörur
um öll
Allt úti um allt
Veitingastaðurinn
og heimilið í rúst
Helga Magnúsdóttir
Húsiö var allt krosssprungið eftir landskjálftann.