Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Qupperneq 31
43 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000 I>v Tilvera Hitalagnir slitnuðu og vatnsból lækkaði hjá Hitaveitu Rangæinga: Tugmilljóna tjón - segir hitaveitustjórinn Hitaveitulagnir i nágrenni Hellu og Hvolsvallar fóru viöa í sundur eftir jarðskjálftann öfluga á laugardag og er enn hitavatnslaust á Hvolsvelli og hluta Hellu. „Það er reiknað með að við náum að koma heitu vatni á afla Hellu á morgun, mánudag, en það er ómögu- legt að segja til um hvenær við náum að gera við lögnina til Hvolsvaflar," sagði Ingvar Baldursson, hitaveitu- stjóri hjá Hitaveitu Rangæinga, í samtali við DV i gærkvöld. Hitavatnsuppspretta Rangæinga á Laugalandi lækkaði um 130 metra eft- ir skjálftann. Að sögn Ingvars er afar erfítt að meta tjónið á þessu stigi þar sem ekki er enn unnt að meta umfang bilana. „Ég treysti mér ekki til þess að koma með nákvæmar tölur því það fer eftir því hvort virkjunarsvæðin jafna sig en ef ekki þá gætum við ver- ið að tala um tugi mflljóna," sagði Ingvar. -jtr Margir eiga um sárt að binda vegna Suðurlandsskjálfta: Tjónið bæði tilfinninga- legt og fjárhagslegt - segir Sigurþór Árnason, íbúi á Hellu Gæti hafa farið verr Þaö var lán í óláni aö skjálftinn reiö yfir þegar fáir voru heima. Flestir voru staddir í íþróttahúsinu á Hellu þegar hörmungarnar dundu yfir. Ef einhver heföi veriö sofandi í þessu rúmi þegar skjálftinn reiö yfir þá heföi eflaust fariö verr. Þaö má líklega þakka veörinu, tímasetningu skjálftans og degi þeim sem hann bar upp á aö ekki fór verr en raun ber vitni. Myndin er tekin heima hjá Ingvari Baldurssyni, hitaveitustjóra á Hellu. Tilfinningalegt tjón Allt lauslegt fór á fleygiferð heima hjá Ingvari Baldurssyni, hitaveitustjóra á Hellu. Tilfmningalegt tjón er mikiö þar sem persónulegir munir hafa skemmst mikiö svo ekki sé talaö um skemmdir á húsnæöi. Byggingarfulltrúi V-Rangársýslu, Sigbjöm Jónsson, kom ásamt iðnað- armönnum til þess að kanna skemmdir eftir að Suðurlandsskjálft- inn hafði riðið yfir hús og híbýli íbúa Suðurlandsundirlendisins. „Við fyrstu sýn er óhætt að stað- hæfa að fjölmörg hús eru ónýt. í mörgum þeirra verður aldrei búið aft- ur. Best er líklega að hirða það sem hægt er að hirða úr sumum húsum og keyra síðan bara með jarðýtu á það sem eftir stendur.“ Iðnaðarmennimir sem með honum voru samsinntu honum. Enginn þeirra kannaðist við það að hafa nokkurn tíma séð annað eins. Sigurþór Árnason er 82 ára og hef- ur búið á svæðinu alla sína ævi. „Ég var að keyra héma ofan við bæinn þegar skjálftinn reið yfir. Ég hélt fyrst að það hefði hvellsprungið á dekkinu hjá mér og fór út til þess að athuga hvað væri í gangi. Þegar ég hafði séð að ekkert var að dekkinu hélt ég ferðhmi áfram og þá kom ann- ar kippur. Ég var ekki viss um hvort ég næði að halda bílnum á veginum - svo sterkur var kippurinn,“ greindi Sigurþór blaðamanni DV frá þar sem hann stóð í bókahrúgu sem hafði fall- ið úr hillusamstæðu í stofunni að Freyvangi 9. Alltaf gott veður? „Ég man ekki til þess að nokkuð á borð við þetta hafi gerst á svæðinu áður. Þrátt fyrir smávægilega kippi einstöku sinnum hefur aldrei áður fallið úr hillum hjá manni. Þegar ég var ungur sögðu foreldrar minir mér sögur af því að árið 1896 hafi orðið stór skjálfti sem m.a. varð hjónum á „Ég held að það sé óhætt að segja að tjónið sé meira tilfmningalegt heldur en fjárhagslegt - þó allir mun- imir kosti eitthvað. Þama átti ég handmálað kínverskt bollastefl sem brotnaði. Síðan fóm að sjálfsögðu myndir af veggjum eins og sjá má og bókahillur í gólf.“ Sigurþór kvaðst ekki kvíða því að gista hús sitt einn komandi nótt. Hann ætlaði að hreinsa lauslega muni frá dívaninum þar sem hann ætlaði að gista og á sunnudag átti hann von á vinafólki úr Reykjavík sem ætlaði að hjálpa honum að laga til. Sigurþór benti blaðamanni á það að hann hefði grennslast aðeins fyrir um jarðskjálfta á íslandi og að hann hefði tekið eftir einu. „Það er eins og það sé alltaf gott veður þegar jarðskjálftar ríða yfir landið - logn og stilla. Þetta er nokk- uð sem ég hef tekið eftir í gegnum tíð- ina. íslendingasögurnar greina líka frá því að veður hafi verið gott þegar hamfarir áttu sér stað.“ -ÓRV Mættur til starfa Hitaveitustjórinn, Ingvar Baldursson, haföi ekki mikinn tíma til aö skoöa tjón á húsi sínu. Hann var strax mættur tii vinnu svo aö heita vatniö kæmist aftur á til bæjarbúa. Hann fylgist hérna meö vinnuflokki sem er aö leggja nýja leiöslu í staö þeirrar sem fór / sundur. DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR Klukkan 15.41 Klukkan stöövaöist heima hjá hitaveitustjóranum, Ingvari Baldurssyni, þegar skjálftinn reið yfir. Klukkan var 15.41 þegar jöröin hóf aö titra undir fótum og skjálftinn á Suöurlandi reiö yfir. Selfossi að bana og að einnig hafi lát- ist kona sem var við bamsburð þegar skjálftinn reið yfir,“ sagði Sigurþór. Hann bætti því við að honum hefði ekki verið bmgðið þegar hann gekk inn um dymar hjá sér. Á leiðinni heim hafði hann tekið eftir þvi að mikið hafði fallið úr hillum í húsum í grennd við hann, ásamt þvi sem hann hafði orðið var við slæmt ástand vegarins. <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.