Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
Fréttir DV
Grunnvatn nær ekki að flæða af lóð á Akureyri:
Bærinn aðgerðalaus
- segir Bragi Steinsson sem hefur tapað milljónum
„Þetta hafa verið stanslaus slags-
mál undanfarin átta ár. Þetta sumar
er þriðja sumarið sem ég þarf að
grafa í sundur alla lóðina mína til
þess að reyna að stemma stigu viö
grunnvatninu," segir Bragi Steins-
son, íbúi í Hraunholti á Akureyri.
Bragi hefur búið í Hraunholtinu
sl. 19 ár og fyrir um átta árum fór
hann að taka eftir því að lóðin um-
hverfis húsið hans var alltaf blaut.
Hann fór að athuga málið þegar
ástandið var orðið þannig að ekki
var hægt að fara út úr húsinu án
þess að vera í stígvélum. Ástæðan
getur verið margþætt að sögn
Braga. Ekki er ólíklegt að bygging-
arframkvæmdir fyrir ofan húsið
eða jarðvegsframkvæmdir hafi orð-
ið til þess að rennsli stöðvaðist. Því
neitar Guðmundur Guðlaugsson,
bæjarverkfræðingur Akureyrarbæj-
ar, ekki.
Bragi er orðinn langþreyttur á
öllu því tilstandi sem vatnsílaum-
inum fylgir.
„Svæöið er ein mýri og húsið mitt
er orðið verðlaust vegna þessa. Ég
hef stritað alla mína ævi til þess að
eignast þetta húsnæði og nú þegar
húsið er mitt get ég ekki fengið að
njóta þess að búa í því. Hér hef ég
lagt drenlagnir til þess að bægja
vatnsrennslinu frá og þær eyðileggj-
ast nánast samstundis."
Þvælt á milli deilda
Lóð Braga er orðin sundurgrafm
og i síðustu viku ákvað hann að
mæla vatnsrennslið sem fór i gegn-
um lóðina. Á einum sólarhring
runnu 21.800 lítrar af vatni í gegn-
um lóðina og höfðu þá skurðirnir á
lóðinni, 90 metrar samtals, verið
opnir í heila viku. Aðspurður segir
Bragi að viðbrögð bæjarins hafi ver-
ið lítil sem engin.
„Þeir þvæla mér á milli deilda og
visa hver á annan. Ég hef tapað 2-3
miiljónum í beinan kostnað og þá er
vinnutap og tilfínningalegt tjón al-
gjörlega ótalið. Bamabörnin mín
búa hérna í næsta húsi og ég hef
þurft að stjaka þeim frá mér vegna
slysahættu á lóðinni minni. Nú er
svo komið að ég er búinn að gefast
upp og ætla að höfða mál. Ég reikna
með því að ég þurfi að ráða til mín
lögfræðing að sunnan - það eru all-
ir tengdir þessari mafíu hér,“ sagði
Bragi.
Blaðamaður fékk afrit af þeim
gögnum sem hafa verið send á milli
Braga og bæjarstjórnarinnar á Ak-
ureyri. i þeim gögnum mátti meðal
annars finna að greinargerð frá
Jóni Geir Ágústs-
syni byggingarfull-
trúa dagsettri þann
25. júní 1998. Grein-
argerðin er unnin
að beiðni bæjar-
stjóra og í henni
segir „að þennan
mikla vatnsaga í
lóðinni þurfi að
koma í veg fyrir Kristján Þór
þar sem ástand Júlíusson.
hennar er með öllu óviðunandi."
Þegar haft var samband við Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóra Ak-
ureyrar, samsinnti hann því að lítið
hefði verið að gert.
„Vissulega hefur eitthvað verið
gert en það virðist ekki hafa verið
nóg. Bæjarverkfræðingi var falið af
bæjarráði að vinna í málinu en ég
veit ekki hvað hefur gerst í málinu
síðan. Það er ríkur vilji til þess að
leysa þetta mál hjá bæjarráði. Það
er þó víst að Bragi hefur ekki feng-
ið þá úrlausn mála sem hann hefur
verið að sækjast eftir á undanförn-
um árum og fyrir því eru ýmsar
ástæður. Þó get ég ekki nefnt hverj-
ar þessar ástæður eru,“ sagði Krist-
ján og bætti því við að hann langaði
til þess að kanna málið betur.
-ÓRV
Akureyri
Bragi Steinsson, íbúi í Hraunholti, er í stööugri baráttu viö vatn á lóö sinni.
Bæjaryfirvöld sýna málinu lítinn skilning.
Bolungarvík:
Mokveiði í höfninni
Menn hafa verið að draga ríga-
þorsk úti á Brimbrjótnum í Bolung-
arvík undanfarnar vikur. „Þetta er
fallegur fiskur og stórir aular innan
um,“ sagði Gísli Hjartarson á ísa-
firði í samtali við DV fyrir helgina.
„Ég vissi ekkert um þetta en vin-
ir mínir tveir, Atli Þór Ólafsson og
Gísli Sveinn Aðalsteinsson, sem
verið hafa hjá mér í læri í vetur,
voru að þrífa og bóna fyrir mig bíl-
inn á sunnudaginn og ráku þá aug-
Hámarkshraði
hækkar, slysum
fækkar
Fyrirhuguð eru tvenn mislæg
gatnamót á Reykjanesbraut við
Mjódd til að draga úr hárri slysa-
tíðni sem einkennt hefur brautina
en í dag eru þar 5 gatnamót með
umferðarljósum. Auknum umferð-
arþunga verður svarað með aíkasta-
meiri mannvirkjum. Breytingin á
að draga úr slysahættu, minnka taf-
ir og auðvelda umferð fleiri bíla á
Reykjanesbrautinni. Vinna við
fyrsta áfanga hefst á þessu ári og
lýkur árið 2002.
Samkvæmt frummati Línuhönn-
unar á umhverfisáhrifum mun
hljóðstig, sem er nú þegar yfir við-
miðunarmörkum á 4 stöðum, í flest-
um tilvikum hækka eða standa í
stað. Hámarkshraði mun að öllum
likindum hækka. Þá munu gatna-
mótin stuðla að minni eldsneytis-
notkun og þar með draga úr meng-
un. Þegar á allt er litið mun fram-
kvæmdin breyta samgöngukerfi
höfuðborgarsvæðisins til mikils
batnaðar og slysum á Reykjanes-
braut ætti að fækka um 40%. Vega-
gerðin stendur að framkvæmdinni
og er áætlaður kostnaður 1270 millj-
ónir króna. -HH
Zontasamtökin á íslandi:
Aðstoða konur af
landsbyggðinni
- vegna ofbeldis á heimilum
Fulltrúar Zontaklúbbanna á ís-
landi afhentu þann 24. maí sl.
Kvennaathvarfinu i Reykjavík eina
milljón króna sem renna í sjóð til
aðstoðar konum af landsbyggðinni,
sem þurfa að komast í athvarfið
vegna ofbeldis á heimilum sinum.
Var þetta rúmlega helmingur
þess fjár sem Zontakonur söfnuðu í
ár og er afrakstur af sölu gjafakorta
með hinni hefðbundnu gulu rós
Zonta, sem seld voru 17. og 18. mars
sl. Hinn helmingur fjársins rann í
alþjóðasöfnun Zonta Int. sem, ásamt
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna, eru að hefja baráttu gegn
umskurði stúlkubama í Vestur-Afr-
íkurikinu Burkina Faso. Kortin
verða áfram til sölu.
Zontasamtökin á íslandi þakka
landsmönnum góðar undirtektir,
ekki sist Ólafi Guðmundssyni, fyrr-
verandi lögregluvarðstjóra í Reykja-
vík, fyrir hans höfðinglegu gjöf í
söfnunina, 60 þúsund. krónur.
Zontasamtökin eru alþjóðleg
þjónustusamtök kvenna í ýmsum
starfsstéttum. í samtökunum eru
34.000 konur, klúbbarnir eru 1224 í
70 löndum í öllum heimsálfum og
hafa það að markmiði að vinna að
bættri stöðu kvenna og barna og
stuðla að líknarmálum.
Zontaklúbbarnir á íslandi eru sex
talsins, tveir i Reykjavík, tveir á
Akureyri, einn á Selfossi og einn á
ísafirði.
un í sjóstangirnar hans pabba heit-
ins, Hjartar stapa, og vildu óðir og
uppvægir fara að veiða. Þeir hnýttu
bara silungaspúna á og ég fór með
þá á Hnífsdalsbryggjuna. Þar var
ekkert að hafa svo við fórum út i
Vík. Þar var torfan við Brjótshaus-
inn og strákarnir drógu á auga-
bragði 50-60 kíló af þorski. Þá voru
spúnamir famir neðan úr. Meðal-
vigtin var um 2,5 kg og aular innan
um. Strákarnir urðu hálfvitlausir á
þessu og vildu ólmir fara daginn eft-
ir. Ég lét það eftir þeim og þeir fóru
vel útbúnir með sjóstangirnar, með
ekta króka og lóð. Ég sagði stopp
þegar þeir höfðu dregið 100 kg á inn-
an við klukkustund, enda erum við
ekki með kyóta. Nú eru allar kistur
fullar.
Ég lét vin minn hann Jón Fann-
dal á flugvellinum vita af þessu og
hann gat varla beðið eftir að af-
greiða kvöldvélina á þriðjudaginn.
Síðan fór hann út á Brjót og dró í
frystikistuna á augabragði. Svo má
enginn veiða fisk,“ sagði Gísli. Að-
spurður sagðist hann ekki eiga
neinn kvóta og þvi mætti búast við
að hann yrði settur á bak við lás og
slá fyrir tiltækið. -HKr.
Atli Þór Ólafsson
Slægir sprotafisk á Brjótnum í Bolungarvík. Ætli „Stapinn“
eigi nokkurn kvóta?
Sandkorn
. Jilli, 'Umsjón:
Hördur kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Messufall?
Sagt er að nokkuð hafi farið
um Júlíus Hafstein, fram-
kvæmdastjóra
Kristnihátíðar, er
niðurstöður voru
kunngerðar úr
skoðanakönnun
sem fram fór á vis-
ir.is. Þar gafst fólki
kostur á að svara
spurningu Dags um
hvort það ætlaði á
hátíðina. Aðeins 7% svarenda
sögðust ætla á hátíðina og í fram-
reikningi fá menn þannig út að 20
þúsund manns muni mæta á
Þingvöll. Þetta er ansi langt frá
þeim 75 þúsundum sem aUur und-
irbúningur miðar við. Telja gár-
ungar nú víst að Júlíus verði að
leita á náðir ásatrúarmanna til að
ekki verði algjört messufaU...
Púkinn
Ungir Framsóknarmenn vUja
ólmir í ESB samkvæmt niðurstöð-
um fundar þeirra i
um helgina. Þykir
þetta og núverandi
afstaða HaUdórs
Ásgrimssonar til
málsins stefna |
stjómarsamstarf-
inu I nokkra tví-
sýnu. Davíð I
Oddsson hefur
þráfaldlega lýst því yfir að ótíma-
bært sé að huga að inngönguvið-
ræðum. Sagt er að nú hlakki mjög
í Össuri Skarphéðinssyni sem
sitji eins og púki á fjósbitanum við
að æsa ESB-hungrið upp í HaUdóri
með hugsanlegt nýtt stjórnarmynst-
ur Samfylkingar og Framsóknar í
huga...
Páll að flytja?
Ráðherrar og þingmenn hafa
verið iðnir við það að undan-
fömu að draga
stofnanir úr Reykja-
vík og út á lands-
byggðina. Nokkur
kosningafnykur
þykir af þeim mál-
um og minnast
menn umræðu um
flutning Byggða-
stofnunar norður í
land að frumkvæði Kristins H.
Gunnarssonar sem greinilega
hyggur á forystu í útvíkkuðu
kjördæmi. PáU Pétursson, sem
nú situr í forystusætinu fyrir
norðan, er líka að huga að stofn-
anaflutningi. Nú er það Jafnrétt-
isstofa sem planta á niður á Ak-
ureyri. Gárungar spyrja sig því
hvort Páll hyggi nú á endurkjör
og flutning í næsta kjördæmi við
hliðina...
Keimlíkur...
Ásatrúarmenn halda nú hátíð
mikla á Þingvöllum. Ekki gekk
það þó andskota-
laust fyrir Jörm-
und Inga Han-
sen og félaga að
fá að njóta þeirr-
ar aðstöðu sem
þar er upp sett
vegna kristnihá-
tíðar. Deilt var
m.a. um hvort
ásatrúarmenn ættu að greiða fyr-
ir afnot af kömrum Júlíusar Haf-
steins kristnihátíðarfram-
kvæmdastjóra. í síðustu viku rak
þennan kveðskap á fjörur Sand-
koms en orðabrengl varð í birt-
ingu þá en hér er hún rétt.
Þrisvar máttu segja mér
menn þó haldi risnu
aö heiönir fái að hœgja sér
viö hliöina á þeim kristnu.
Út má finna andríkur
eftir góöra beiðnum
að kúkurinn sé keimlíkur
úr kristnum manni og heiönum.
-PK