Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000 DV 13 Menning Tónlist Hljómlistarmennirnir sem léku og sungu í Hverageröiskirkju um helgina. Unnur Sveinbjarnardóttir, Guöný Guðmundsdóttir, Peter Maté, Auður Hafsteinsdóttir, Kristinn Sigmundsson, Gunnar Kvaran, Georg Klutsch og Jónas Ingimundarson. Hinir kos- mísku víbrar Tónlistarhátíðin Bjartar sumar- nætur stóð yfir í Hveragerðis- kirkju núna um helgina og mark- aði hún upphaf sýningar á nokkrum handritum Beethovens í safnaðarheimili kirkjunnar. Sýn- ingin, sem stendur fram eftir vik- unni, er forvitnileg, en því miður eru öll handritin eftirprentanir svo maður getur ekki fundið „hina kosmísku víbra sem óriginalamir hljóta að radíera frá sér“, svo mað- ur bregði fyrir sig nýaldarmáli. Ýmislegt er þó gaman að sjá, eins og bréfið fræga sem Beethoven skrifaði með læknisskrift til „hinn- ar ódauðlegu elsku“ en lengi vel vissi enginn hver það var. Tónlist- arfræðingurinn Maynard Solomon setti fram sannfærandi tilgátu í bók sem kom út árið 1977 um að konan hefði verið greifafrú að nafni Antonie Brentano og getur það allt eins verið rétt. Sjálfsagt muna margir eftir bréfmu úr kvik- myndinni Immortal Beloved með Gary Oldman en þar reynt var að komast til botns á gátunni hver ástkona Beethovens var, með til- heyrandi Hollywood-tilþrifum en engan veginn sannfærandi niður- stöðu. Ljóðræn og skáldleg túlkun Fyrstu tónleikar hátiðarinnar voru á föstudagskvöldið og hófust að sjálfsögðu á verki eftir Beet- hoven, píanókvartett nr. 3 í C-dúr. Flytjendur voru þau Auður Haf- steinsdóttir flðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Unnur Svein- bjamardóttir vióluleikari og Peter Maté pianóleikari. Fyrsti kaflinn var glæsilega fluttur, hljóðfærin vel samstillt og túlkunin þróttmik- il. Sama má segja um síðasta þátt- inn en miðkaflinn var heldur lak- ari, píanóið var dálítið hlutlaust þegar það var í aðalhlutverki en fiðlan hins vegar aðeins of áber- andi og örlítið gróf einstöku sinn- um. Næst á dagskrá var fantasía í f- moll eftir Franz Schubert fyrir tvo píanóleikara og eitt píanó og kom Jónas Ingimundarson þar til liðs við Peter Maté. Píanódúett er ekki fyrir hvem sem er, þvi minnsta ósamræmi píanóleikaranna er mun meira áberandi en samleikur strengjaleikara eða einvígi tenóra. Menn þurfa að vera búnir að spila sig saman í áratugi og oft eru bestu píanódúettarnir þvi hjón, tvíburar eða jafnvel simastvíburar. Ekkert af þessu á við þá Peter og Jónas en þrátt fyrir það var túlkun þeirra ljóðræn og skáldleg, heildarhljóm- urinn fallegur, þráðurinn slitnaði aldrei og því skiptu smávægilegar misfellur engu máli. Var þetta sér- lega ánægjulegur flutningur á einni fegurstu tónsmíð Schuberts. Fuglar á þakglugga Eftir hlé var komið að sónötu fyrir flðlu og sembal eftir tónskáld- ið og ballettdansarann Jean-Marie Leclair. Auður lék á fiðluna og Pet- er plokkaði strengi sembalsins en fyrir þá sem ekki vita er semball- inn nokkurskonar forfaðir píanós- ins. Til gamans má geta að sumir segja að semballinn hljómi eins og fuglar að gogga fóður á þakglugga en semballeikarar myndu sjálfsagt ekki samþykkja þá fullyrðingu. Hvað um það, semballinn, eða plokkharpan eins og hann er líka kallaður, kom bara ágætlega út i mikilli endurómun kirkjunnar. Fiðluleikurinn var sömuleiðis afar góður enda kallaði Auður fram mikla danshrynjandi þegar við átti og lék skýrt og áreynslulaust allt til loka. Síðasta verkið á tónleikunum var konsert í a-moll fyrir fagott, strengi og plokkhörpu eftir Vivaldi og auk þeirra Unnar og Auðar komu fram þau Guðný Guðmunds- dóttir flðluleikari og Georg Klutsch fagottleikari en Peter Maté var plokkherpir sem fyrr. Konsertinn var frábærlega vel fluttur, ekki síst af fagottleikaranum, allar nótur voru skýrar og túlkunin lífleg, samspilið prýðilegt og styrkleika- jafnvægi gottþ. Var þetta skemmti- legur endir á fjölbreyttri dagskrá. Jónas Sen Bjama Viðars Magnússonar verða eftirtalin fyrirtceki lokuð mánudaginn 26. júní, frá kl. 12.00 ÍSLENSKA UMBOÐSSALAN HF ICELANDIC SALES AGENCY LTD VELAR& ÞJéNUSTA hf Þekktir fyrir þjónustu 'Hí/ ITITANI ISreBderÉp Dráttarbeisli undir flestar geröir jeppa og fólksbíla. BILASALA AKURBYRAR HF DAIAVEGUR I6B * KÓPAVOGl SÍMI544 44S4 FREYJUNESl 2 • 603 AKOREYR? SÍM! 461 2533 • FAX 461 2S43 Lágir, gildir, háir, grannir... ... gaskútar fyrir grillin, prímusana og tjaldluktirnar. Oliufélagið hf www.esso.ls Mercedes Benz 420E, 4 d., árg. 1992,steingr., ek. 142 þ. km, M/ÖLLU, 290 hö. V. 2.950 þ. MMC Pajero 2800 DTI, 5 d., skr. 11 '98,st.grár, ek. 24 þ. km, ssk., 33“, ABS, leður, sóll., o.fl. V. 3.200 þ. Mercedes Benz 220E, 4 d., árg. MMC Galant V6 2500 stw, 5 d., skr. 1996,grænn, ek. 99 þ. km, ssk., 04.'97, blágrænn, ek. 35 þ. km, ssk., ABS, álf. sóll., o.fl. V. 2.200 þ. áhv. ABS, álf. o.fl. V. 1.850 þ. 1.750 þ. MIKIÐ OG GOTT ÚRVAL BÍLA Á SKRÁ OG Á STAÐNUMVANTAR TJALDVAGNA OG FELLIHÝSI - MIKIL EFTIRSPURN Pontiac Grand Prix 3800 turbo, 4 d., árg. 1998, svartur, ek. 4 þ. míi., ssk., leður, 16“. V. 3.800 þ. _ _ ( BÍl ASAUNN Möldur ehf. OPIMUNARTiMI: ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 10-18. LAUGARDAGA FRÁ KL.13-16. BÍLASALA Tryggvabraut 14, 600 Akureyri 461 3020 - 461 3019 Jeep Wrangler 4000, 3 d., árg. 1991, svartur, ek.127 þ. km, bsk., 33“ o.fl. o.fl. V. 990 þ. Toyota Landcr. 90 VX 3000 DT, 5 d., árg. 1997, hvítur, ek. 58 þ. km, ssk., 33“ o.fl. V. 3.090 þ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.