Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Side 8
8
Fréttir
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
DV
- segir Jörmundur Ingi allsherjargoði um smærri kristna söfnuði á Þingvöllum
Nota ekki aðstöðuna
Jörmundur Ingi allsherjar goöi ásartrúarmanna segir aö hans menn muni
ekki nota aöstööuna sem Þjóökirkjan hefur látiö setja upp á Þingvöllum.
Jörmundur Ingi, allsherjargoði
ásartrúarmanna á íslandi, telur að
þjóðkirkjan sé að setja sig á háan
hest gagnvart öðrum trúarbrögðum
með því að bjóða
til Kristnihátíðar
á Þingvöllum.
„Þeir eru í
sjálfu sér að
bjóða til Kristni-
hátíðar, en ekki
Kristnitökuhátíð-
ar eins og haldið
hefur verið fram
i fjölmiðlum.
Væri verið að
fagna kristnitöku
væri það eitthvað sem ásatrúarfé-
lagið hefði ánægju af því að taka
þátt í og leggja nafn sitt við.
Kristnitakan var mikilvægur við-
burður í íslandssögu og allir vita að
þar komu heiðnir menn við sögu.“
Jörmundur Ingi sagðist ekki vera
hrifinn af því fyrirkomulagi sem
haft hefði verið á undirbúningi
Kristnihátíðarinnar og sagði heiðna
menn ekki koma til með að nýta sér
þá aðstöðu sem þarna hefði verið
komið upp.
„Eftir að þeir hófu undirbúning
hafa Þingvellir orðið eins og niður-
nítt frystihúsahverfl úti á landi.
Þegar við sáum þetta urðum við
ákaflega fegnir að hafa ekki tekið
þátt í þessu kraðaki. Þrátt fyrir að
við hefðum kannski getað haft
meiri og betri dagskrá og mun
meira fólk þá held ég að fólki finn-
ist það ekki vera á Þingvöllum þeg-
ar það er komið.“
Óhreinu börnin
í augum Jörmundar Inga eru
Þingvöllur komnir í búning
skemmtigarðs með veitingastaði og
ys og þys stórborgarlífsins í hjarta
þjóðgarðsins.
„Að sjálfsögðu þarf að gera fólki
þarna góða aðstöðu, en þetta er líka
afar andstæðukennt. Þarna er verið
að stefna tugþúsundum manns til
þess að fólkið geti notið náttúrunn-
ar og á sama tíma er náttúran tekin
frá því með því að koma upp veit-
ingatjöldum á hverju horni og
kömrum annars staðar. Ég skil það
mætavel að þessa aðstöðu þurfi þeg-
ar svo miklum fjölda er stefnt á
einn stað. Það er aftur á móti sorg-
legt að verið sé að gefa fólki tæki-
færi til þess að skoða Þingvelli en á
sama tíma sé byggt yfir þá.“
Jörmundur bætir því við að hon-
um þyki það vera táknrænt að eini
staðurinn á Þingvöllum, þar sem
töluvert grjóthrun varð í skjálftun-
um um daginn, hefði verið í Hesta-
gjá. Það hljóti að tákna eitthvað þeg-
ar hrunið kemur í veg fyrir að
„óhreinum bömum“ þjóðkirkjunn-
ar sé stjakað frá dagsljósinu.
„Hestagjá er sá staður sem þjóð-
kirkjan hafði ætlað að hola niður
öllum „óhreinu börnunum" sínum,
öllum þessu litlu söfnuðum sem
virðast þó í raun og veru trúa á
Guð. Um guðhræðslu þjóðkirkju-
manna efast ég hins vegar. Þjóð-
kirkjan er orðin að stjórnardeild í
ríkiskerfinu." -ÓRV
Jörmundur Ingi,
allsherjargoði
BALENO
TEGUND:
1,6 GLXWAGON 4x4
VERÐ:
1.695.000 KR.
$ SUZUKI
✓✓-------
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyrj: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. Isafjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, slmi 456 30 95.
Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00.
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Heiðnir menn ætla ekki að notfæra sér aðstöðuna á Þingvöllum:
Óhreinu börnin falin
Á að á úti í
náttúrunni ?
Fyrsta skóflustungan
Ingi Steinar Gunntaugsson, skóla-
stjórí Brekkubæjarskóla, tekur fyrstu
skóflustunguna aö framkvæmdum
vegna einsetningar skótans.
Akranes:
Einsetinn skóli
- framkvæmdir hafnar
DV. AKRANESI:
Framkvæmdir vegna einsetning-
ar grunnskólanna á Akranesi hófust
þegar fyrsta skóflustungan að fram-
kvæmdum við Brekkubæjarskóla
var tekin á dögunum. Verktaki er
Loftorka í Borgamesi. Áætlaður
heildarkostnaður viðbyggingarinn-
ar, sem á vera lokið á fimmtíu ára
afmæli skólans haustið 2001, er
rúmar 160 milljónir króna. Nýja viö-
byggingin mun tengjast eldri bygg-
ingu sem snýr í átt að íþróttahúsinu
við Vesturgötu. Viðbyggingin er
1400 fermetrar á þremur hæðum og
bætir alla kennsluaðstöðu til muna.
Á neðstu hæð verður aðstaða Tón-
listarskólans á Akranesi, auk að-
stöðu fyrir stoðþjónustu skólans,
þ.e. heilsugæslu, sálfræðing og ráð-
gjafa, biðstofu og húsnæði fyrir sér-
deild. Á annarri og þriðju hæð
verða 10 kennslustofur, fundaher-
bergi og geymslur. Allar kennslu-
stofumar verða með salemi og fata-
hengi. -DVÓ
Mikið byggt í
Borgarnesi
DV, BORGARNESI:_____________________
Nú er unnið að gatnagerð í Arn-
arkletti í Bjargslandi í Borgarnesi.
Þar hefur verið úthlutað lóðum und-
ir þrjú fjölbýlishús og tvö raðhús,
alls um 36 íbúðir. Reiknað er með
að framkvæmdir hefjist á næstunni.
Gatnagerð hefst senn norðan við
gróðrarstöðina Gleym-mér-ei og að
flugvailarafleggjaranum sem telst
vera framlenging á Sólbakka. Þar er
þegar búið að úthluta nokkrum lóð-
um. Þá er Kaupfélag Borgfirðinga í
samstarfl við aðra aðila, meðal ann-
ars Olíufélagið, að fara að reisa tæp-
lega 2.300 m2 verslunarhús við Borg-
arbraut í Borgarnesi. -DVÓ
Lögreglunni í Hólmavík barst tor-
kennilegur hlutur nú nýverið sem
fannst rekinn við bæinn Smáhamra í
Kirkjubólshreppi. Um er að ræða belg
sem barki er tengdur í og er gashylki
við hinn endann og festiarmur sem
ætla má að hafi verið mun stærri en
brotnað við mikið högg. Enga áletrun
er hægt að sjá sem segir til um fram-
leiðsluland eða hlutverk sem þessum
búnaði er ætlaður. Landhelgisgæsl-
unni verður sendur hluturinn til
rannsóknar. -GF
SUZUKI Baleno Wagon -
ferðavænn, alvöru fjölskyldubíll
Torkennileg-
ur hlutur
finnst rekinn
DV, HÓLMAVIK:~
DV-MYND GF
Furöuhlutur á reki
Höskuldur B. Erlingsson, lögreglu-
varöstjóri á Hólmavík, meö sjórekna
búnaðinn.