Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Síða 9
9
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
DV Fréttir
Landsmót hestan^anna fram undan í Reykjavík:
Hitasott hræðir
ekki hestamenn
- forseti fer fyrir hópreið á landsmótinu
Hitasótt í hrossum hefur látið á
sér kræla reglulega síðan sóttin
kom til landsins fyrir 2 árum og
voru meðal annars smituð hross í
hópferð fyrir skömmu. Sigurborg
Daðadóttir dýralæknir sagði nýlega
í samtali við DV að sóttin væri kom-
in til að vera og að engin leið væri
að forðast hana. „Ég held það sé
með hestana eins og mannfólkið,
þegar þeir eru vel hraustir þá smit-
ast þeir síður og þetta veldur okkur
engum andvökum," segir Sigur-
björn Bárðarson, tamningamaður
og keppnismaður í hestaíþróttum.
Landsmót hestamanna hefst
þriðjudaginn 4. júlí og kemur þar
saman rjómi íslenskra hesta og
hestafólks en Sigurbjörn hefur engar
áhyggjur af þvi að hitasóttin taki
stóran toll þar. „Við verðum þar með
hressa og heilbrigða hesta og ég hef
ekki trú á því að margir sýkist því
jafnvel síðast, þegar pestin náði há-
marki og var ný hérna, veiktust að-
eins nokkrir," segir Sigurbjörn.
Að sögn hans verður komandi
Forvitnileg heimasíða bandarísku jarðvísindastofnunarinnar:
Allt sem
vita um
Bandaríska jarðvísindastofnunin,
USGS, heldur úti forvitnilegum vef
þar sem hægt er að fylgjast með öll-
um skjálftum sem eiga sér stað á
heimsvísu hverju sinni. Fram hefur
komið hversu fljótir sérfræðingar
við stofnunina voru að miðla upp-
lýsingum um skjálftann á laugar-
daginn á Netinu en um fjögurleytið
lágu réttar upplýsingar þegar fyrir.
Þegar farið er inn á vefmn er hægt
að skoða skjálftana i tímaröð og
einnig er hægt að smella á viðkom-
andi land og fá upplýsingar á þann
hátt.
Ekki er aðeins hægt að skoða á
þar til gerðu grafísku korti hvar og
þú vildir
skjálfta
hvenær skjálftinn átti upptök sín,
hversu stór hann var og hversu
djúpt upptök hans voru heldur er
einnig birt mynd af útprentun úr
skjálftamæli sem sýnir titringinn.
Auk þess er hægt að skoða skjálfta-
virknina á svæðinu í kjölfar stóra
skjálftans, skjálftinn á laugardag er
kortlagður til að sýna hvernig hann
fór um álfuna og síðan heimshorna
á milli og minnst er á þá staðreynd
að hann er sá stærsti á landinu síð-
an 1912. Fyrir þá sem vilja vita allt
um jarðskjálfta er því tilvalið að
skoða heimasíðu stofnunarinnar.
Slóðin að vefnum er:
http://quake.usgs.gov/ -KGP
-36' -:ET ÆC -'ií' J* -3*'
ÍCSAND
jBa.-riMaui.Tcasai.’oifiwiijpihiaoiiimixO*.
Sójunicity 1K7 - Pnrsenl, 7iaíe Boundaneí. m irflmr
USGS’Naharutl Earihquakr3nhjrmai.au Cattar
Ekki hræddur um hraust hross
Sigurbjörn Báröarson hestamaöur segir hraust hross í lítilli hættu á aö smit-
ast af hitasóttinni alræmdu og er ekkert hræddur viö aö sóttin láti á sér
kræla á glæsilegu landsmóti hestamanna sem er fram undan.
landsmót það stærsta og glæsilegasta
hingað til.
„Þarna verður ein stærsta hópreið
frá upphafi og forsetinn og mektar-
menni þjóðarinnar verða í fara-
broddi," segir Sigurbjörn.
- Hvar varst þú þegar þjóðhátíð-
arskjálftinn varð?
„Ég var í Víðidal við hátíðahöld
að leiða hryssu undir stóðhest og
þau kipptu sér ekkert upp við
skjálftann þrátt fyrir að jörðin
bylgjaðist undir okkur,“ segir Sig-
urbjörn.
Toyota
Nissan
Range Rover Ford
Chevrolet
Suzuki
Cherokee
JeepWillys
Land Rover
Musso
Isuzu
2E (D
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
Framleiðum brettakanta. sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa.
einnig boddíhluti í vörubíla og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir.