Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Side 11
11
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000_
py útiönd
Yasser Arafat
Forseti Palestínumanna segir næstu
vikur verða afgerandi fyrir nýtt ríki.
Palestínskt ríki
verður stofnað
innan fárra vikna
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, sagði í Nablus á Vestur-
bakkanum í gær að lýst yrði yfir
stofnun palestínsks ríkis innan fá-
einna vikna. Arafat hefur margsinn-
is sagt að palestínskt riki yrði stofn-
að síðar á árinu en hann hefur
aldrei lagt fram jafnnákvæma tíma-
setningu og nú.
„Lýst verður yfir stofnun palest-
ínsks ríkis á komandi vikum,“ sagði
Arafat á fundi með þúsundum
stuðningsmanna Fatah-samtak-
anna, sem eru meginstoðin í Frelsis-
samtökum Palestínu (PLO), í skóla í
Nablus.
Á sama tíma vöruðu palestinskir
embættismenn við því að fyrirhug-
aður leiðtogafundur ísraela, Palest-
ínumanna og Bandaríkjamanna
færi út um þúfur ef ekki þokaðist í
átt að endanlegu friðarsamkomulagi
þegar á fyrsta deginum.
Vellríkur vinur Tonys Blairs segist ekki hafa gert neitt rangt:
Nornaveisla í Baskalandi
Þúsundir ferðamanna úr allri Evrópu tóku þátt í mikilli nornaveislu í helli ein-
um í Baskalandi um helgina. Hátíð þessi er haldin árlega í þorpinu Zugarram-
urdi, nærri landamærum Spánar og Frakklands.
Borgaði ekki nema 600
þúsund krónur í skatta
Vellauðugur kaupsýslumaður og
góðvinur Tonys Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, Levy lávarður,
greiddi ekki nema sem svarar um
sex hundruð þúsund krónur i tekju-
skatt á síðasta ári, að því er breska
blaðið Sunday Times greindi frá í
gær. Það er jafnhá upphæð og mað-
ur á meðallaunum í Bretlandi, 2,4
milljónum króna, greiðir í skatta.
Levy lávarður, sem reyndi árang-
urslaust að stöðva birtingu fréttar
Sunday Times, sagði að hann væri
fórnarlamb óþokkabragða og að
upplýsinganna hlyti að hafa verið
aflað á ólöglegan hátt, að því er
fram kemur á fréttavef BBC.
Levy lávarður vísar því harðlega
á bug að hann reyni að koma sér
hjá því að greiða skatta.
„Ég hef ekkert að fela,“ sagði
Levy í viðtali við Rás 4 hjá BBC.
Hann sagðist hafa greitt meira en
Vinur í vanda
Góðvinur Tonys Blairs, forsætisráöherra Bretlands, og margfaldur milli
vanda vegna þess hversu lítið hann greiddi í skatta á síðasta ári.
er i
þrjú hundruð milljónir króna í
skatta árið 1988 þegar hann seldi
hljómplötufyrirtæki sem hann átti
fyrir rúman milljarð króna að nú-
virði.
Þegar Levy var spurður hvers
vegna hann hefði aðeins greitt um
sex hundruð þúsund krónur í skatta
í fyrra sagði hann að mestallir pen-
ingamir hans væru bundnir í
tveimur fallegum heimilum sem
hann hefði ekki neinar tekjur af.
Lávarðurinn seldi annað fyrir-
tæki sitt 1997 og í viðtalinu við BBC
sagðist hann í grundvallaratriðum
hafa lifað á fjármagnstekjum næstu
tvö ár þar á eftir. Hann sagðist ekki
eiga neina bankareikninga í
skattaparadísum erlendis.
Levy lávarður rétti af fjármál
breska Verkamannaflokksins með
því að safna rúmum 800 milljónum
króna fyrir síðustu kosningar.
MMC Pajero, langur, árg. 2000, ek.
6 þús., beinsk., turbo dísil, rafdr. r.,
rafdr. sp., litaö gler, ABS, álf., o.fl. -
o.fl. Lán getur fylgt.
Ásett verð 3.090 þús.
MMC Pajero stuttur, árg. 2000, ek.
5 þús., beinsk., turbo dísil, rafdr. r.,
rafdr. sp., litaö gler, ABS, upph.33“,
álf., o.fl. - o.fl. Asett verð 2.490 þús.
VW Golf Highline, árg. '99, ek. 11
þús., beinsk., með öllu, leðuráklæði,
toppl., 16“ álf., spoiler, eini leddarinn
á landinu. Ásett verð 1.890 þús.
VW Golf Comfortline, árg. '99, ek.32
þús., beinsk., með öllu, 17“ álf., low
profile, spoilerakitt allan hringinn,
líósahlífar, ristar í húddi, svaaakalegur.
Asett verð 1.790 þús.
i.
Alfa Romeo V-6,191 hö., árg. '98,
ek. 22 þús., beinsk., með öllu,
leðuráklæði, toppl, spoiler, 6 gíra, 17“
álf. Ásett verð 2.550 þús.
Toyota Avensis 1600 Terra, árg. '98
ek.28 þús., beinsk., með öllu, spoiler
15“ álf. Ásett verð 1.550 þús.
Hrismyri 3, Selfossi
Drap skólafélaga sinn
Þrettán ára skólapiltur í úthverfi
borgarinnar Lille í Frakklandi varð
tólf ára félaga sínum að bana með 22
hnífstungum þann 15. júní síðastlið-
inn.
Pilturinn játaði á sig glæpinn
viku siðar. Hann hafði þá mætt í
skólann eins og ekkert væri.
Að sögn franska blaðsins Libér-
ation hafði fórnarlambið boðið
morðingjanum heim með sér. Þar
mun sá tólf ára hafa móðgað móður
hins með þeim afleiðingum að eldri
drengurinn greip til hnífs sem hann
kastaði síðan út um gluggann að
verknaðinum loknum.
Að sögn lögreglunnar á
ódæðispilturinn erfitt að gera grein-
armun á raunveruleikanum og til-
búnum heimi sýndarveruleika.
Orval no+a^ra bíla af 5llom s+aer^o^ 03 ^er&uwi /
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hægt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum
VW Caravelle Syncro, dísil, f.skrd. VW Caravelle, bensín, f.skrd. 10.05.1996, VW LT35’ dísil, f.skrd. 6.11.1997,
29.04.1993, bsk., 5 dyra, ekinn 202 þ.km, bsk., 4 dyra, ekinn 75 þ.km, rauður. bsk., 4 dyra, ekinn 37 þ. km, hvítur.
rauður. Verð kr.1.050.000. Verð kr.1.720.000. Verð kr- 2.090.000.
MMC Pajero, 2,5 dísil, f. skrd. 16.11.1995,
bsk., 5 dyra, ekinn 61 þ.km, blár.
Verðkr.1.900.000. _______________
VW Caravelle TDi, f.skrd. 28.11.1996,
bsk., 5 dyra, ekinn 270 þ.km, blár.
Verð kr 1.280.000.
Mersedes Benz Vrto, f.skrd. 23.10.1997,
bsk, 4 dyra, ekinn 38 þ.km, hvítur.
Verð kr.1.850.000.
Ford Transit 100S, f.skrd. 7.05.1998,
bsk., 5 dyra, ekinn 47 þ.km, hvítur.
Verð kr.1.090.000.
VW Caravelle Syncro, f.skrd. 31.01.1996,
bsk., 5 dyra, ekinn 135 þ.km, hvítur.
Verð kr.1.550.000.
Borgartúní 26. ámar 561 7510 & 561 751