Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Side 26
42
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
DV
Ættfræði_________________
Umsjón: Helga D. Siguröardóttir
85 ára_____________________________
Jogvan Hansen,
Breiöabliksvegi 3, Vestmannaeyjum.
80 ára_____________________________
Gunnar Konráösson,
Lækjargötu 22a, Akureyri.
Ólafur Sigurjónsson,
Sðlvangi, Blönduósi.
Sigrún Magnúsdóttir,
Melgerði 21, Kópavogi.
Þórdís H. Thoroddsen,
Aðalstræti 78, Patreksfirði.
75 ára_____________________________
Gísli Gíslason,
Miðgrund, Varmahlið.
Halldóra Jónsdóttir,
Þinghólsbraut 27, Kópavogi.
70 ára_____________________________
Jón Sigurösson,
Sundlaugavegi 26, Reykjavík.
Matthías Magnússon,
Hraunbæ 84, Reykjavík.
Steindór Bjarnfreösson,
Grýtubakka 22, Reykjavík.
Svala Björgvinsdóttir,
Butru, Fljótshliðarhreppi.
50 ára_____________________________
Dýrleif Kristín Steindórsdóttir,
Rimasíðu 5, Akureyri.
Einar Árnason,
Krókamýri 22, Garðabæ.
Guðbjörg J. Sigurjónsdóttir,
Hvassaleiti 153, Reykjavík.
Gunnar M. Sigurðsson,
Mjósundi 13, Hafnarfiröi.
Sólrún Bragadóttir,
Klapparstíg 1, Sandgerði.
Steinunn Eggertsdóttir,
Vallargerði 4e, Akureyri.
Sveinlaug Júlíusdóttir,
Vallargerði 36, Kópavogi.
40 ára_____________________________
Ágúst Guðmundsson,
Austurbrún 24, Reykjavík.
Gunnar Thor Jónsson,
Eskihlið 29, Reykjavík.
Haraldur Arnar Haraldsson,
Mávahlíð 1, Reykjavík.
Hilmar Harðarson,
Reykjabyggð 55, Mosfellsbæ.
Hrólfur Ölvirsson,
Bugöulæk 3, Reykjavík.
Jóhanna Guðnadóttir,
Sólbakka 2, Breiðdalsvík.
Sigurbjörn S. Magnússon,
Sandholti 42, Ólafsvík.
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen Baldur Fredriksen
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suturhlíö35 • Símí 581 3300
allan solarhringinn. www.utfararstota.ehf.is
Hólmfríöur Elín Helgadóttir, Suðurgötu
12, Sauðárkróki, lést á Dvalarheimili
aldraðra 22. júní.
Hulda Guðmundsdóttir andaöist að
hjúkrunarheimilinu Eir 21. júní.
Hannes Ingvi Kristjánsson, Sætúni,
Vatnsleysuströnd, lést á heimili sínu 21.
júní.
Sjptiu og fámmri
Áki Guðni Gránz
málarameistari
Áki Guðni Granz málarameistari,
Norðurstíg 5, Ytri-Njarðvík, er sjö-
tíu og fimm ára gamall í dag.
Ferill
Áki Guðni er fæddur í Vest-
mannaeyjum og þar ólst hann upp.
Hann lærði málaraiðn hjá Engil-
bert Gíslasyni í Vestmannaeyjum.
Síðan hefur hann unnið málarastörf
á Selfossi, í Reykjavík og í Njarðvík.
Hann hefur samhliða aðalstarfi mál-
að fjölda málverka, mótað styttur og
gert brjóst- og lágmyndir. Hann hef-
ur þrisvar haldið sýningar á verk-
um sínum, fyrst árið 1968 og svo
1974 og 1994.
Hann hefur einnig starfað mikið
að íþrótta- og félagsmálum.
Áki Guðni var einn af stofnend-
um Sjáifstæðisfélags Njarðvíkur og
var í hreppsnefnd og bæjarstjóm
Njarðvíkur í 16 ár, þar af forseti
bæjarstjómar í fjögur ár, frá 1982 til
1986.
Áki Guðni hefur hannað allmikið
af bæði merkjum og fánum fyrir
fyrirtæki og félög og ber þar fyrst að
nefna merki Njarðvíkurbæjar en
einnig til að mynda merki Kvenfé-
lags Njarðvíkur, Iðnaðarmannafé-
lags Suðumesja og fleiri.
Hann sat í undirbúningsnefnd
stofnunar félags Keflavíkurverk-
taka og var bæði meðstofnandi og í
stjórn félags málaraverktaka í
Keflavik.
Áki Guðni var meðstofnandi
Lionsklúbbs Njarðvíkur og hefur
verið virkur félagi allt frá stofnun,
árið 1957, auk þess sem hann er
meðlimur Oddfellowstúkunnar
Njarðar.
Fjölskylda
Áki Guðni kvæntist þann 17.7.
1948 Guðlaugu Karvelsdóttur
sjúkraliða, f. 12.12. 1929. Foreldrar
hennar voru Karvel Ögmundsson
útgerðarmaður og Anna Margrét
Olgeirsdóttir húsmóðir, Bjargi, Ytri-
Njarðvík. Áki Guðni og Guðlaug
skildu árið 1999.
Börn þeirra eru Guðrún Fjóla
Gránz viðskiptafræðingur, hennar
maður er Bjami Ragnarsson; Anna
Margrét Ákadóttir sérkennari, hún
á börnin Áka Guðna og Svanfríði
Dóru; Sólveig Björk Gránz, maður
hennar er Ásgeir Kjartansson og
þau eiga synina Kjartan, Áka, Dav-
íð og Bjarka; Karvel Gránz, börn
hans eru Guðlaug Sunna Gránz og
Carl Bergur Gránz, hann á synina
Karl Jóhann og Kristján.
Þórarinn Þórarinsson
- byggingameistari og kennari
Þórarinn Þórarinsson, bygginga-
meistari og kennari, Mánabraut 9,
Kópavogi, verður sjötugur á morg-
un, þriðjudaginn 27. júní.
Ferill
Þórarinn fæddist í Vigur við Isa-
fjarðardjúp og ólst þar upp til 19
ára aldurs. Þórarinn stundaði
bamaskólanám í Vigur. Veturinn
1947-1948 stundaði hann nám við
Héraðskólann á Laugarvatni. Árið
1949 hóf Þórarinn nám í húsasmíði
hjá Júlíusi T. Jónssyni og lauk
prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík
árið 1953 og hlaut meistararéttindi
í þeirri iðn árið 1957. Þórarinn
starfaði sem byggingameistari til
ársins 1977 en þá fór hann að
kenna við Grunnskóla Kópavogs
þar sem hann var til ársins 1984.
Árið 1980 útskrifaðist Þórarinn
frá Kennaraháskóla íslands með
próf í uppeldis- og kennslufræði.
Þórarinn kenndi svo við Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ
1984-1988.
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist Ólöfu Bjama-
dóttur skrifstofumanni þann 28.12.
1958. Ólöf er dóttir Bjama Bjöms-
sonar frá Núpdalstungu og Mar-
grétar Sigfúsdóttur frá Uppsölrun.
Dætur Þórarins og Ólafar eru
Margrét, f. 22.3. 1959, gift Frímanni
Ólafssyni, eiga þau þrjú böm;
Þórey Þóranna, f. 8.4. 1961, gift
Hjálmari Bjamasyni, eiga þau þrjá
syni; Bjamey, f. 12.10. 1970, gift
Þorsteini J.
Haraldssyni,
eiga þau tvo
syni, og Sól-
ey, f. 5.2 1972,
eiga þau eina
Systkini Þórarins, sammæðra
eru Ámi S. Haraldsson, f. 29.6.
1944; Kristrún E. Pétursdóttir, f.
25.6. 1949; Björg Pétursdóttir, f.
11.9. 1951 og Elsa B. Pétursdóttir, f.
2.1. 1957.
Foreldrar Þórarins vour Þórar-
inn Sigurðsson, Heimabæ, Fola-
fæti, f. 7.9. 1908, drukknaði í sjó-
róðri frá Súðavík 24.1. 1930 og
Þórey Sigurðardóttir, Folafæti, f.
22. 9. 1911, d. 22. 10. 1979.
Fósturforeldrar Þórarins voru
Bjami Sigurðsson, bóndi i Vigur,
og Björg Bjömsdóttir húsmóðir,
frá Veðramóti i Skagaflrði.
Fóstursystkini Þórarins em Sig-
urður Bjarnason, fyrrv. sendiherra
og alþm., Bjöm Bjamason bóndi,
látinn, Baldur Bjamason bóndi,
látinn, Þorbjörg Bjamadóttir,
fyrrv. skólastjóri, Þórann Bjarna-
dóttir, fyrrv. kennari, og Sigurlaug
Bjamadóttir, fyrrv. alþm. og kenn-
ari. Þórarinn verður að heiman á
afmælisdaginn en mun láta and-
virðir afmæliskaífis renna til um-
hyggju, félags langveikra bama, og
biður hann þá sem hugðust gleðja
hann með skeytum og gjöfum að
láta Umhyggju njóta þess.
gift Páli Einarssyni,
dóttur.
M'erkiir ísSemdiimgair
Guðfinna Þorsteinsdóttir
Guðfinna Þorsteinsdóttir skáldkona, sem orti und-
ir skáldanafninu Erla, fæddist á Skjögrastöð-
um i Skógum í Suður-Múlasýslu þann 26. júní ár-
ið 1891. Hún var dóttir hjónanna Þorsteins Ei-
ríkssonar og Rannveigar Sigfúsdóttur.
Átta ára gömul fór hún í fóstur til Jörgens
Sigfússonar og Margrétar Gunnarsdóttur að
Krossavík í Vopnaflrði og ólst þar upp eftir
það.
Veturinn 1911-1912 gekk Guðfmna í ung-
lingaskóla á Vopnafirði en áður hafði hún
stundað heimalærdóm eins og þá tíðkaðist.
Guðfinna var mjög fjölhæf og dugleg til
vinnu og vann jafnvel mörg störf í einu. Hún
drýgði heimilistekjumar með aukaverkum eins
og til dæmis að flétta tágakörfur og einnig eignað-
ist hún prjónavel sem hún notaði mikið og hún orti
jafnan við öll dagleg störf. Guðfinna sótti einmitt yrk-
isefni sín í dagleg störf, þrár sínar og drauma. Bæk-
ur sem eftir hana liggja eru Hélublóm, frá árinu
1937, Fífúlogar, frá árinu 1945, og Ævintýri dags-
ins, frá árinu 1958, en sú síðastnefhda innihélt
barnaljóð.
Guðflnna tók einnig saman frásagnasöfnin
Völuskjóðu og Vogrek auk þess sem hún
þýddi skáldsöguna Slag vindhörpunnar eftir
William Heinesen.
Guðflnna var gift Valdimar P. Jóhann-
essyni ffá Syðri-Vík og eignuðust þau níu
börn. Skáldhörpusnillingurinn Þorsteinn
Valdimarsson var sonur þeirra en fleiri lista-
menn vom í ættinni því að Rannveig, móðir
Guðfmnu, var vel skáldmælt og Sigfús, afl hennar,
ritaði margar sögur í þjóðsagnasafn Jóns Ámasonar.
Albræður Áka Guðna eru Her-
bert Gránz, málarameistari á Sel-
fossi, kona hans er Erla Jakobsdótt-
ir, og Gunnar Gránz málari sem
einnig er búsettur á Selfossi.
Hálfbróðir Áka Guðna var Ólafur
Gránz, húsgagnasmiður í Vest-
mannaeyjum, hann var giftur Ástu
Ólafsdóttur en þau eru nú bæði lát-
Faðir Áka Guðna var Karl Jó-
hann Gránz, húsgagnasmíðameist-
ari og málarameistari, f. 22.7. 1887,
d. 14.11. 1967. Móðir hans var Guð-
rún Ólafsdóttir húsmóðir, f. 10.9.
1897, d. 2.1. 1957. Þau bjuggu lengst
af í Vestmannaeyjum og á Selfossi.
Ætt
Karl Jóhann, faðir Áka Guðna,
var sonur Olavs Gránz klæðskera
og Önnu Guðmundsdóttur klæð-
skera en hún var dóttir Guðbjargar
Jónsdóttur, húsmóður á Stóra-
Kambi i Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Guðrún, móðir Áka Guðna, var
dóttir Ólafs Sigurðssonar, bónda á
Torfastöðum í Fljótshlíð, og Aðal-
heiðar Jónsdóttur, húsmóður frá
Amgeirsstöðum í Fljótshlíð. Ólafur
var sonur Sigurðar Ólafssonar,
bónda 1 Snotru í Landeyjum, og
Guðrúnar Þorsteinsdóttur húsmóð-
ur, dóttur Þorsteins Einarssonar,
bónda í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð,
og konu hans, Helgu Erlingsdóttur
húsfreyju.
Sigurður var sonur Ólafs Árna-
sonar, bónda í Múlakoti í Fljótshlíð,
og Þórunnar Þorsteinsdóttur ljós-
móður. Þórunn var dóttir Þorsteins
Eyjólfssonar, bónda og smiðs á
Vatnsskarðshólum, og Karítasar
Jónsdóttur húsfreyju. Móðir Kar-
ítasar var Þórunn Hannesdóttir
Scheving, dóttir Hannesar Lárus-
sonar Scheving, sýslumanns á
Möðruvöllum. Móðir hennar var
Jórunn Steinsdóttir hverrar faðir
var Steinn Jónsson, biskup á Hól-
um.
Eygló Lind Egilsdóttir
stuðningsfulltrúi
Eygló Lind Egilsdóttir
stuðningsfulltrúi, Gunn-
laugsgötu 4, Borgamesi,
verður fimmtug á morg-
un, þriðjudaginn 27. júní.
Ferill
Eygló ólst upp í Borg-
arnesi og varð gagnfræð-
ingur þaðan árið 1966.
Hún hefur síðan tekið
þátt í margvíslegum
námskeiðum. Eygló hef-
ur starfað i leikdeild Ungmennafé-
lagsins Skallagríms um margra
ára skeið, þar af sem formaður í
nokkur ár, og tekið þátt í mörgum
leiksýningum á vegum félagsins.
Hún hefur einnig unnið sem leið-
beinandi við uppsetningu leiksýn-
inga með nemendum grannskólans
í Borgarnesi.
Eygló hefur setið í stjóm
Kirkjukórs Borgarness og enn-
fremur sungið með honum i fjöl-
mörg ár, auk þess sem hún hefur
unnið við bamastarf kirkjunnar á
seinni árum. Þá var Eygló í Lions-
klúbbnum Öglu í nokkur ár.
Eygló sat í bæjarstjórn Borgar-
byggðar 1994-1998 og var svo vara-
maður í bæjarstjórn. Hún hefur
jafnframt setið í félagsmálanefnd
sveitarfélagsins frá 1994 og i stjóm
Dvalarheimilis aldraðra um skeið.
Eygló hefur stundað verslunar-
störf hjá Kaupfélagi Borgflrðinga
við ýmis verkefni. Hún starfaði við
Grunnskóla Borgarness, meðal
annars sem gangavörður, og
einnig við umönnun aldraðra um
árabil. Eygló starfar nú sem stuðn-
ingsfulltrúi við Sambýli fatlaðra í
Guömundur Pétursson bifreiðarstjóri,
Ásenda 10, Reykjavík, verður jarösung-
inn í dag, mánudaginn 26. júní, frá
Fossvogskapellu kl. 10.30.
Hulda Björg Kristjánsdóttir, frá Víðivöll-
um í Fnjóskadal, verður jarðsungin frá
Hálskirkju þriðjudaginn 27. júní.
Halldóra S. Jónsdóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, verðurjarðsungin frá kapellu
Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 26.
júní, kl. 13.30.
Jóna Þorfinnsdóttir, Dalbraut 27,
Reykjavík, veröur jarösungin frá Foss-
vogskirkju í dag, mánudaginn 26. júní,
kl. 15.00.
Bjarni Viðar Magnússon, Ægissíöu 46,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hall-
grimskirkju í dag, mánudaginn 26. júní,
kl. 13.30.
Borgarnesi.
Fjölskylda
Eygló giftist 21.
nóv. 1970 Sigurði
Friðriki Sigurðssyni
búfræðikandidat, f.
17. okt. 1949.
Þau skildu.
Böm Eyglóar og
Sigurðs eru Sigríður
Lind, f. 17. 12. 1969,
tanntæknir; Egill, f.
28.06.1971, flugmaður, er hann i
sambúð með Ágústu Lúðvíksdótt-
ur, Guðveig Anna, f. 1. 3. 1976;
Kristín Lilja, f. 21.9. 1978, nemi;
Sonja Lind, f. 18. 9. 1981, nemi.
Eygló giftist 27. júní 1992 Róbert
Crosby, f. 7.4. 1946.
Þau skildu.
Böm þeirra eru Ingi Björn, f. 19.
5. ‘89; Martha Lind, f. 15.2. ’91.
Alsystkini Eyglóar eru Ólafur
Páll Lind, f. 16.8. ’39, bóndi í
Hundastapa, kvæntur Ólöfu G.
Guðmundsdóttur; Hilmar Lind, f.
13.8. ’40, hitaveitustarfsmaður í
Borgarnesi, kvæntur Vicenta Vill-
ela Adlawan; Kristinn Lind, f. 7.10.
‘41, bifreiðarstjóri í Borgamesi;
Guðmimdur Lind, f. 6.5. ‘43, bif-
reiðarstjóri í Borgamesi, var
kvæntur Kristinu Halldórsdóttur
sem nú er látin; Páll Lind, f. 14.6.
‘44, iðnverkamaður I Borgarnesi;
Rannveig Lind, f. 12.3. ‘46, skrif-
stofumaður í Reykjavík; Þorbergur
Lind, f. 8.10. ‘47, bifreiðarstjóri í
Borgamesi; Sigrún Lind, f. 8.10.
‘48, hjúkranarfræðingur í Reykja-
vík, gift Magnúsi Ingólfssyni;
Sonja Lind, f. 12.09. ‘51, búsett í
Englandi, gift Peter Careter; Sól-
rún Lind, f. 3.3. ‘53, starfsstúlka í
Borgamesi; Hans Lind, f. 27.4 ‘55,
d. 8.10. ‘55; Hans Lind, f. 20.7. ’57,
vélstjóri i Borgamesi, kvæntur
Sveinbjörgu Stefánsdóttur; Jenný
Lind, f. 14.2. ’59, snyrtifræðingur i
Borgamesi, gift Gunnari Ringsted.
Hálsystir sammæðra er Sóley Jo-
hansen, búsett í Færeyjum.
Foreldrar: Egill Pálsson, verka-
maður í Borgarnesi, f. 6.9 1912, d.
7.8. 1992, og k.h., Jóhanna Lind
Pálsson, f. 11. 9. 1916.
Eygló hélt upp á afmælið sitt
laugardaginn 24. júní en fyrir þá
sem vilja líta til Eyglóar á afmælis-
daginn er nóg á könnunni.