Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2000, Síða 4
Eins og Fókus skýrði frá í síðasta tölublaði stendur yfir Evrópumót í tölvuleiknum Quake nú í sumar en Yngvi Freyr Einarsson er í landsliðinu og leggur hart að sér. Svíþjóð „Við töpuðum fyrir Portúgöl- um,“ svarar Yngvi Freyr Einars- son Quake-spilari þegar hann er inntur eftir því hvemig islenska liðinu hafl gengið í riðlakeppni Evrópumótsins í Quake. Hvaó tekur þá viö? „Þetta breytir í raun ekki miklu um áframhaldið, við förum bara í næsta land í riölinum, það verður annaðhvort írland eða Spánn.“ Leikinn við Portúgal spiluðu þeir félagarnir frá íslandi en eins og fram kom í siðasta tölublaði Fókuss mun Yngvi fara til Svíþjóðar um verslunar- mannahelgina til að keppa á móti þar en ekki er enn komið á hreint á móti hvoru þeirra landa sem eftir eru í riðlinum verður keppt. „Við verðum þrir sem fórum, tveir okkar eru úr liðinu og það er íslandsmótið sem kostar okkur en sá sem varð í þriðja sæti á mótinu fer líka og hann mun borga undir sig sjálfur," segir Yngvi. Stendur til aö œfa sig mikiö? „Nei, við æfum nú ekki svo rnikið," segir Yngvi og viður- kennir að það komi fyrir að jafn- vel hörðustu Quake-spilarar fái leið á leiknum. „Þá tekur maður sér bara pásu í svona tvær vik- ur.“ Zink, Fréttastofa atvinnulífsins, er nýtt fyrirbrigði í íslensku sjónvarpi sem hefur göngu sína á SkjáEinum og Aksjón á Akureyri eftir helgi. Um er að ræða kynningar á fyrirtækjum sem sendar verða út á milli dagskrárliða. Annar tveggja þeirra aðila sem sér um að færa landanum kynningarnar heitir Valdimar Helgason og er kennari sem tekur starf sitt mjög alvarlega en hefur áður fengist m.a. við módelstörf og margt annað. Fókus plataði þennan hressa mann í spjall og spurði hvernig frumraunin í sjónvarpi gengi: Hent út í diupu la oq verður a opro w I Q Valdimar Helgason er fréttamaöur Zink, Fréttastofu atvinnuiífsins sem hefur göngu sín á Skjá einum og Aksjón eftir helgi. Hann er kennari aö atvinnu en hef- ur áður fengist við módelstörf þannig hann ætti að koma vel fyrir í sjónvarpinu. ur segist Valdimar eiga yndislega eiginkonu sem hann hefur verið með i 20 ár og á með henni tvö böm, 16 og 6 ára. Hann hefur verið með reykinganámskeið fyrir Krabbameinsfélagið í flmm ár og svo var hann líka módel þegar hann var yngri. „Já, ég var í módelbransanum þegar ég var u.þ.b. 24-27 ára en lagði þá inn möppuna og hætti. Ég var aðallega að módelast hér heima en vann svolítið fyrir erlend fyrir- tæki. Þetta var bara svona aukabú- grein með kennslunni, enda gat maður unnið sér inn kennaralaun- in á einni helgi. Ég var aldrei tilbú- inn að gefa kennsluna upp á bátinn og var t.d. alveg hryllilega móðgað- ur einu sinni þegar ég var titlaður módel í einhverju blaðaviðtali enda var ég ekki módel, ég var kennari." Valdimar segir að Zink sé eitt- hvað sem aldrei hafl verið gert áður, þetta sé nýr þáttur fyrir ungt fólk á öllum aldri með nýju konsepti sem ætti að koma fólki skemmtilega á óvart. En er þetta ekki ansi kröpp beygja fyrir kennarann? „Alls ekki. Þetta er bara lífið sjálft og það þýðir ekkert að remb- ast á móti, eða eins og Yoko og Lennon sögðu: „Life is what happ- ens to you while you’re busy mak- ing other plans. Þetta er alveg týpískt dæmi um það. Svo á auðvit- að eftir að koma í ljós hvort ég verð áfram í þessu.“ ég þeim að verða að mönnum, sem er aðalatriðið." „Fréttaþáttur atvinnulífsins, Zink, er öðruvísi fréttaþáttur fyrir alla. Fyrirtæki sem vilja koma ein- hverju á framfæri hafa einfaldlega samband við okkur og við finnum fréttina fyrir þau og komum henni á framfæri á réttan hátt,“ segir Valdimar um þáttinn. Og hvemig hefur þetta gengið? „Þetta hefur gengið mjög vel hingað til. Manni er bara hent út í djúpu laugina og verður að læra að synda. Þetta eru nýir og öðruvísi hlutir á hverjum degi sem maöur þarf að takast á við og ég hef gam- an af því. Þetta er alla vega ekki færibandavinna. “ Eitthvaö furöulegt komiö upp á? „Ja, þú getur rétt ímyndað þér þegar 37 ára gamall maöur, sem hefur ekki fylgst með tiskunni í 10 ár, er poppaður upp og látinn klæð- ast fötum sem eru eftir nýjustu tísku. Þaö er mikið upplifun,” seg- ir Valdimar og vísar til kynningar sem hann gerði fyrir verslunina Kiss. Hann segir að ímynd frétta- mannsins sé ætíð í samræmi við viðfangsefni þáttarins og virðist greinilega tilbúinn að leggja ýmis- legt á sig því þegar gerð var kynn- ing fyrir þáttinn sjálfan stóð hann á haus, ber að ofan, niðri á strönd og gargaði kynninguna. Fólk þarf því greinilega ekki að hafa áhyggj- ur af því að það fái ekki það sem það vill. En svo við snúum okkur að sjón- varpsstjömunni sjálfri þá er óhætt að segja að hann kann vel við starf sitt sem kennari. „Ég umgengst mest krakka á aldrinum 13-16 ára og mér líður eins og ég sé á þeim aldri, enda er þetta langskemmtilegasta fólkið. Það er andinn sem skiptir máli. Menn geta verið hundgamlir 15 ára og ungir í anda níræðir." Aðspurð- „Það var bara hringt í mig og ég beðinn að koma i prufu. Þeir höfðu verið að auglýsa eftir fólki í prufu og margir höfðu komið en það var gamall nemandi minn sem hafði samband við mig og fékk mig í prufu. Ég var bara að leika mér yflr sumartimann en var orðinn leiður á golfinu eftir 4 ár þannig aö þetta var ágætt,“ segir Valdimar þegar hann er fyrst inntur eftir því hvemig það kom til að hann fór út í þetta. Valdimar er útskrifaður úr Kennaraháskólanum og hefur starfað sem kennari í 16 ár. Hann kennir á tölvur, stjömufræði, eðlis- fræði, efnafræði, líffræði, kyn- fræðslu, auk þess að sjá um tölvu- kerfið í Ölduselsskóla. „Svo kenni Valdlmar er ber að ofan í einni kynn- ingu Zinks eins og hér enda er ímynd fréttamannsins ætíð í samræmi við viðfangsefni þáttarins. Dúndur útsala. Allt að 80 % afsláttur. Divaa Kringlunni f Ó k U S 7. júlí 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.