Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2000, Blaðsíða 9
» Þeir Botn-\ ,0 leðjumenn eru \ búnir að fá sér sæti i . '0 áhorfendastæðunum á i ; Stjörnuveliinum þar sem iicimamenn taka á móti FH-ingum í bikamum, iiði Botnleðjunnar úr heimabænum Hafn- arftrði. Á svæðinu eru reyndar aöeins þeir Heiðar öm Kristjánsson söngv- ari og Haraldur Freyr Gíslason trommuleikari því bassaleikarinn, Ragnar Páll Steinarsson, harðneitaði að láta sjá sig á knattspymuveilinum. ar gagiivart Halla um þau starfslok. „Þeir náðu svona helvíti vel saman,“ byrjar Heiðar áður en hann hleypir Halla að sem er greini- lega mikið niðri fyrir um þetta mál. „Já, hann rak okkur alla og fór sóló,“ segir Halli. „Er bara að meika þaðúti." Hann er að spila meö einhverjum Bretum úti er þaö ekki? „Jú, hvað heita þeir aftur?" spyr Heiðar. „Starlovers," skýtur Halli inn og heldur áfram. „Hann er úti í Bretlandi að horfa á vídeó á nóttunni og sofa á daginn.“ „Þetta bara gekk ekki upp,“ segir Heiðar. „Hann bara rak okkur alla og fór sóló,“ ítrekar Halli en Heiðar tekur svo við og reynir að feta meðalveginn í yfirlýsingunum. „Við fórum þama út og vorum bún- ir að vera einhvern tíma. Hann er með stelpu sem er í Bellatrix og var ekki á leiðinni heim aftur og samstarflð með honum hafði ekki gengið allt of vel og því fór sem fór. Án þess að vera að ráðast á hann sem persónu eða eitt- hvað svoleiðis.“ „Þó svo að það væri hægt,“ segir Halli að lokum þó svo hann vildi ef- laust segja meira. Nú er að færast líf i leikinn og FH- ingar sækja látlaust. Þegar drengimir era spurðir að því hvort einhverjir af gömlu félögunum úr Hafnarflrðinum séu að spila með FH er enginn tími til að svara því þeir rísa úr sætum og fagna FH-ingum sem vora að komast 2-0 yfir með marki frá krúnurökuðum dreng. „Já, hann Jón Gunnar félagi okkar er einmitt búinn að skora bæði mörkin," segja þeir þegar fagnaðarlæt- in eru um garð gengin. Magnyl í London Síðasta plata Botnleðju kom út fyrir jólin 1998 og bar heitið Magnyl. Eftir útgáfu hennar fluttu piltamir út til London til að reyna fyrir sér. Eins og allir vita gengur allt hægt fyrir sig úti í hinum stóra heima og snera þeir heim í fyrravetur, enda að nógu að hverfa hér heima. Afraksturinn var útgáfa einnar smáskifu og nú á vor- dögum gáfu þeir Magnyl loksins út I Bretlandi. Hvernig voru viöbrögöin úti í Bret- landi? „Þau vora bara mjög góð. Þar sem hún var tekin fyrir í blöðum fékk hún alltaf mjög góða dóma en hún er nátt- úrlega á íslensku og þetta er lítil út- gáfa,“ segir Heiðar um plötuna. „Þetta var bara hugsað svo að fólk geti nálg- ast eitthvað með okkur þarna úti.“ „Við gáfum að visu út smáskífú i Englandi síðasta vetur sem hét Somet- hing New,“ bætir Halli við og á þar við erlendu útgáfuna af Ég drukkna hér. Hver gaf út plötuna? „Það var Error Music eins og ailtaf. Við erum samt með dreiflngar- samning við Pinnacle," segir Halli „Já, við erum komnir með ágætan dreifmgarsamning við gott fyrirtæki en það var Rafh Jónsson sem gaf þetta út og eigum við honum mikið að þakka.“ Heiðari flnnst greinilega timi til kominn að útgefandinn fái verð- skuldað lof. Og spiluöuö þiö ekki eitthvaö úti? „Jú, við eram búnir að fara þrisvar út til Englands frá þvi að við gáfúm út smáskífuna," segir Heiðar og Halli það getur auðvitað flp alltaf eitthvað komið upp á. Við stefnum á að fara 1 stúdiö í ágúst eða september og þá verður hún tekin upp erlendis." „Væntanlega i Englandi,“ bætir Halli við. Þannig aö þiö eruó alveg komnir meó efniviö í nýja plötu? r J: „Já, það er eiginlega alveg komið, það vantar kannski 10% upp á,“ segir Heiðar. „Það vantar endasprettinn." „Þessi 10% sem virka,“ segir Hallí sposkur á svip. „Og þaö er bara verið að vinna í því á fúliu núna, alveg brjáluð vinna," segir Heiðar og bætir við að þeir séu reyndar að fara að spila á tón- leikahátíð í Helsinki nú um helgina. „Þetta er frekar rokkað festival þarna um helgina,“ segir Halli og Heiðar er sammála. „Já, þetta er fyrst og fremst rokk- festival og við verðum rokkaðir þama. Finnarnir eru náttúrlega ekki þekktir fyrir mikið annað en pönk, rokk og metal og læti þannig að ég held að þetta verði svona háifgerð vodkaferð tfl Finnlands." Hvaö meö spilamennsku hérna heima í sumar? „Við verðum að spila eitthvað seinnipartinn í júlí, líklegast á Gaukn- um og svo á Taltónleikaröðinni. Síðan er náttúrlega svo stutt í þetta stúdíó- dæmi sem er bara í ágúst." menn orðnir stofna fjölskyldu og svona,“ segirHeiðar. Tmfim „Við fullorðnuðuinsf hægt en þegar við fullorðn- '' ; uðumst þá gerðum við það með stæl,“ bætir Hafli við. „Við erum búnir að hlaupa af okkur homin." „Nei, nei það eru nú smá hnúðar eftir,“ segir Heiðar. er verið aö horfa mikiö til er mjög stór markaður," s og þeir virðast ekki kvíða „Við byijum bara á þ< ? .V 1 [ ! bætir við að þeir hafi fariö góðan túr til að kynna smáskífuna og hafi svo farið tvisvar út tfl spilamennsku eftir að stóra platan kom út. KGB gekk ekki upp Leikurinn fer rólega af stað en eftir nokkrar minútur fara hlutimar að gerast og FH-ingar komast yfir með góðu marki eftir vel útfærða sókn. Botnleðjumenn rísa á fætur og fagna sínum mönnum og augljóst er að þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir fara á fótboltaleik. Þiö eruö svo komnir meó nýjan mann? „Já, við erum komnir með aðstoðar- mann núna sem spilar með okkur á öllum tónleikum. Hann heitir Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaðurinn sjálfur," segir Heiðar. „Andri sveitti er hann kailaður," segja þeir félagar í gríni um nýja manninn sem áður spfl- aði með Bisund. Nú eruö þiö komnir meö gitarleikara í staö hljómborðsleikara, breytir það miklu? „Við höfum aldrei verið að spila mikið inn á tvo gitara fyrr en núna,“ segir Heiðar. „Þetta er orðið meira gítarskraut, á jákvæðan hátt,“ bætir Haili við. „Meiri melódíur á gítarinn." Engin rosa sóló samt? „Nei, engin sóló, bara fallegar harm- oníur saman,“ segir Halli. Vodkaferð til Finnlands Það er farið að líða undir lok fyrri hálfleiks og Heiðar dregur upp forláta trefll til að verjast kvöldkuldanum. „Hvað í andskotanum ertu að gera“ segir Halli þegar hann sér að treffliinn er i Stjörnulitunum en Heiðari er al- veg sama. Og er svo von á plötu í haust? „Já, vonandi, það stefnir allt í það,“ segir Heiðar og heldur áfram. „Án Botnleðja orðin ráðsett Það er kominn hálfleikur og Botn- leðjumenn eru sáttir við stöðuna 2-0 í háifleik þannig að um er að gera að halda spjallinu áfram. Er ekkert stefnt aö því aö flytja út aftur? „Nei, ekki alia vega í bráð,“ segir Halli og Heiðar bætir við að það gerist ekki nema þeir hafi eitthvað skriflegt í höndunum. „Ekki nema maður sé með fóst laun og geti séð fyrir fjölskyldu úti,“ segir Halli. Þaö hefur auglóslega ýmislegt breyst hjá ykkur undanfariö, Halli kominn með krakka og Heiðar búinn að tosa sig viö kœrustuna? „Ég henti henni og er kominn með aðra,“ segir Heiðar, en Halla finnst ekki nóg um. „Og Heiðar er kominn með stjúp- böm,“ bætir Halli við og kann greini- Horft til Evrópu Seinni hálfleikur er hafinn og Stjömumenn byrja strax að sækja stift. Heiðar hefúr greinilega áhyggjur af að sínir menn nái að halda þetta út en Halli er rólegri. Einhver gargar að taka eigi Hödda senter út af þvi hann geti ekki neitt. „Já, Höddi skinka," segir Heiðar hlæjandi. En œtlar Botnleöja ekki að reyna frekarfyrir sér í Bandaríkjunum? „Við fórum náttúrlega einu sinni þama til Los Angeles," segir Heiðar og þá kemur glott á Halla. „Og eram enn þá að borga af því,“ segir hann með smá beiskju í röddinni. „En jú, við höfum verið með eitt- hvað fólk að vinna að því. Við eram náttúrlega með hana önnu Hildi um- boðsmann, sem býr i Englandi og er líka að vinna fyrir Bellatrix, og hún er með einhver sambönd þar í gangi þannig að það er allt í vinnslu. Annars England, tökum Skandinaviu og svo bara vinnum við okkur út frá þvi. en aflt í rólegheitunum.“ Þannig aö Botnleöja mun veröa til um ókomin ár? „Já, á meðan við höfum gaman af þessu. Það er búið að ganga svo ótrú- lega mikið á innan hljómsveitarinnar að það þarf djöfúlli mikiö tfl að það slitni upp úr þessum vinskap," segir Halii, en þegar hann ætlar að fara út 1 það hvað þyrfti að gerast til að upp úr slitnaöi er Heiðar fljótur að stoppa hann af. „Þetta er ekki prenthæft." Þá er svo komið að leikurinn er að fjara út og FH-ingar hafa sigrað 2-0. Síðasta spumingin er borin fram á leiðinni út í bU. Fór Botnleðja á Kristnihátíð? „Ónei, ef það hefði verið stofnað fé- lag gegn Kristnihátíð þá hefði ég geng- ið í það,“ gellur í Halla þegar hann sest inn í bílinn. 9 4T 7. júlí 2000 f Ó k U S 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.