Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 Fréttir I>V Hækkun ríkisjaröaleigu og afnám kaupskyldu ríkisins á framkvæmdum leiguliða undirbúin: Stillt upp við vegg - menn kaupa ekki ef þeir borga smápeninga í leigu, segir formaður landbúnaðarnefndar Hjálmar Jónsson, alþing- ismaður og formaður land- búnaðarnefndar Alþingis, segist taka undir hugmynd- ir Guðna Ágústssonar land- búnaðarráðherra um að selja jarðir í eigu ríkisins. „Það er að segja að ríkis- jarðimar verði seldar án þess að ofbjóða markaðnum því auðvitað verður að fá ásættanlegt verð fyrir þær,“ segir hann. Hjálmar segir að með því að hrinda slíkri hugmynd í framkvæmd væri í raun loks verið að uppfylla einn megintilgang þess samnings sem ríki og kirkja gerðu árið 1907 um að ríkið tæki við forsjá fjölda kirkjujarða. Hann segir mikil- vægt að sú endurskoðun sem nú fer fram á jarðalögunum geri kleift aö hrinda söluhugmyndum í fram- kvæmd, meðal annars með hækkun jarðaleigu og að ríkiö verði leyst undan óeðlilegum skyldum um kaup á mannvirkjum og ræktun burthorfmna leiguliða sinna. Kaupskylda ríkis gengur ekki „Ég hef loforð frá landbúnaðar- Elnlng „Guöni er kominn skemmtilega nærri okkur sjáif- stæöismönnum, “ segir Hjáimar Jónsson, formaö- ur landbúnaöar- nefndar Alþingis. ráðherra um það að hann muni leggja fram frumvarp á þessu ári. í jarðalögunum er margt gengið sér til húð- ar og það er mikilvægt að koma með nýjar og nútíma- legar reglur. Til dæmis um þá skyldu ríkisins að kaupa allar framkvæmdir leigu- liðans á jörðinni, hún geng- ur ekki upp. Það er ekki hægt að skuldbinda ríkið þannig af hálfu leiguliðans sem getur framkvæmt það sem hann vill og síðan er ríkið skyldugt að kaupa ef hann vill flytjast burt,“ seg- ir Hjálmar, en slik breyting myndi vitanlega aðeins eiga við um framkvæmdir sem ráð- ist yrði i eftir gildistöku slíkra laga. Leigan hækkar líklega Sú leiga sem ríkið fær fyrir jarðir sínar og eignir á þeim er ekki há. Ár- leg leiga miðast við 3% af fasteigna- mati en matið er yfirleitt býsna lágt og leigan þar með sömuleiðis. Þessu viil Hjálmar að verði breytt í því skyni að örva bændur, sem forkaups- rétt eiga, til að kaupa jarðimar. „Það er langeðlilegast að þeir sem búa í sveit eigi sínar jarðir en eðli- lega vilja menn ekki kaupa ef þeir geta haft jörð á leigu fyrir smápen- inga,“ segir Hjálmar. Hann segist vona, og reyndar telja líklegt, að þessu verði breytt samfara þeirri end- urskoðun sem nú fer fram á lögunum. Sala á náttúruperlum ekki útilokuð Hjálmar segir að við sölu ríkis- jarða þurfi að taka sérstakt tillit til náttúruperlna og náttúruminja. „Að sjálfsögðu þarf að fara varlega í sölu á ýmsum náttúruperlum en ekki útiloka hana, enda eru lög í gildi sem vemda minjar," segir Hjálmar. Málmey í Skagafirði, sem er í kjör- dæmi Hjálmars, hefur verið á sölu- lista samgönguráðuneytisins. „Ég tel að varlega þurfi að fara í að selja Málmey einkaðaðilum. Ég vænti þess og tel það langeðlilegast að sveitarfélagið Skagafiörður eignist Málmey, eins og Drangey, verði vörsluaöili eyjarinnar. En það er að sjálfsögðu hægt að horfa til fleiri átta með eignarhald á Málmey,“ segir Hjálmar. Herðlr Guðni á sniglinum? Hjálmar segir áðumefndan samn- ing ríkis og kirkju frá 1907 meðal annars hafa átt rót sína í því að margir bændur voru leiguliðar á jörðunum en að miklu eðlilegra hefði verið talið að þeir eignuðust þær. „Nú, nærri öld seinna, er það í fyrsta skipti sem ég veit til að land- búnaðarráðherra lýsir vilja til þess að uppfylla þessar fyrirætlanir. Þó að vísu megi segja að þarna sé hraði snigilsins lifandi kominn þá vil ég meina að Guðni sé þarna með rétta hugsun. Endurskoðun jarðalaganna er flókið verkefni en með nýjum vinnubrögðum tekst vonandi að ljúka henni þannig að Alþingi geti tekið málið til umfiöllunar í haust. Þannig komast jarðimar í hendur bændum og öðrum sem vilja nýta þær. Ég er viss um að það mun ganga betur en að ríkið eigi þær og mér finnst Guðni þarna vera kom- inn skemmtilega nærri okkur sjálf- stæðismönnum," segir Hjálmar sem þó segist ekki vilja hleypa Guðna inn í Sjálfstæðisflokkinn að svo stöddu: „En það gæti hugsast ef það mætti treysta því að Guðni Ágústs- son hefði þessa hugsun á fleiri svið- um,“ svarar Hjálmar Jónsson. -GAR Hafa hjólað heim til Danmerkur frá ýmsum hornum Evrópu - eru nú á íslandi: Þrír „gamlir danskir" hjóla hringinn - finnst ótrúlegt að íslendingar aki á stórum jepptun á malbiki í stórum stíl „Viö lögðum af stað á hjólunum okkar frá Keflavík og ætlum að fara allan hringinn. Þetta er stórbrotið land - þetta reynir dálítið á okkur að hjóla héma en okkur líkar vel við þessa grófgerðu náttúru," sagði Esben Kræn, 60 ára bifvélavirki frá Danmörku sem er að ljúka við að fara hringinn og rúmlega það á reið- hjólum umhverfis ísland. Með hon- um er tannlæknirinn Torkild Fjordgard, 53 ára, og aldursforset- inn Jorgen Klemmensen, 62 ára, sem vinnur fyrir Dansk Naturgas í tengslum við borpalla í Norðursjón- um. Þremenningarnir eru Vestur-Jót- ar og búa allir í nágrenni við Esbjerg. „Við erum búnir að hjóla heim til Danmerkur frá mörgum hornum í Evrópu og upplifum því vel það sem er í kringum okkur,“ sagði Esben. „Við erum búnir að hjóla heim frá Spáni, Grikklandi og Norður-Finnlandi og höf- um einnig hjólað á ír- landi og Skotlandi. Þetta eru búnar að vera um 10 ferðir á um 15 árum. Þetta heldur manni í formi og er gott fyrir sál- ina,“ sagði Esben. Þremenningamir hófu för sína í Keflavík en hjóluðu síðan austur, um Suðurland, Austur- land og Norðurland. Þeg- ar DV hitti þá í Húna- vatnssýslu sögðu þeir að fiórði félagi þeirra hefði þurft að hætta fremur snemma í ferðinni vegna vöðvatognunar í fæti. Af sérkennum íslend- inga sögðu Danimir að þeim þætti með ólíkind- um hve margir stórir Hraustir Danir Esben Kræn, 60 ára, Torkild Fjordgard, 53 ára, og aldursforset- inn Jdrgen Klemmensen, 62 ára, á leiö sinni hringinn.. jeppar, jafnvel á risa- stórum dekkjum, aka um malbikaða vegi landsins, ekki síst í byggð. Þremenningam- ir hlógu mikið og geröu að gamni sínu að dönsk- um hætti. Á leiðinni höfðu þeir félagar tvisvar hitt Sig- urð Tryggvason, 13 ára úr Rimaskóla, sem var að safna fé fyrir MS- sjúka. „Er hann bara 13 ára - þetta er gott fram- tak hjá þessum dreng,“ sögðu Danirnir. Þeir voru búnir að fá sér sopa og örlítinn bita, settust á hnakkana, nikkuðu höfðinu kankvíslega að dönsk- um hætti og sögðu: „Farvel". -Ótt DV-MYND DVÓ Hjólar til styrktar MS-sJúkllngum Heilbrigðisráöherra, bæjarstjórinn á Akranesi, Siggi og fleiri syngia Kátir voru karlar. Hjólaferðin frá Akureyri: Við erum stolt af þér, Siggi - segir ráðherra DV, LAXÁ: Það var mikið um dýrðir þegar 13 ára hjólreiðakappinn Sigurður Tryggvi Tryggvason, sem er að hjóla frá Akureyri til Reykjavíkur til stuðnings MS-sjúklingum, hitti Ingi- björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð- herra og forráðamenn Akraneskaup- staðar við Laxá í Leirársveit. Ingi- björg sagðist stolt af honum, sérstak- lega af því hann væri Skagamaður, og færði honum smáupphæð í söfn- unina auk Akranesbókar. Þá færði Gísli Gislason, bæjarstjóri á Akra- nesi, Sigga fé í söfnunina og einn af fimm fyrstu fánum sem gerðir voru í tilefhi heimsóknar Stoke til Akra- ness auk ÍA-búningsins. Siggi þakk- aði fyrir og gaf þeim báðum bol. Síð- an sungu allir Kátir voru karlar en Fríða Sigurðardóttir, móðir Sigga, er frá Akranesi og því viðeigandi að syngja það. Siggi segist ekki þreyttur en ætlunin var að hjóla í Mosfellsbæ því þar átti hópur fólks, frá MS-sjúk- lingum og fólki í rafmagnshjólastól- um, að fylgja honum seinasta spöl- inn. Fósturfaðir Sigga, Grétar Giss- urarson, og langafi hans, Guðmund- ur Ó. Guðmundsson, sem er 78 ára, hjóluðu með honum 20 km í fyrra- dag. Þá höfðu safnast 1,7 milljónir og allt vitlaust að gera að sögn stjómar- manns í MS-samtökunum. -DVÓ Yfirlýsing: Treysta Hervari DV hefur borist yfirlýsing frá stjórn Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) þar sem stjórnin harmar það fiölmiðlafár sem varð í kringum afsögn fyrrverandi formanns VMSÍ. í yfirlýsingunni segir jafnframt að „vegna þeirra persónulegu árása sem formaður VLFA hefur mátt þola að undanfomu ... lýsir stjóm félagsins því yfir að hún ber fullt traust til Hervars Gunnarssonar." I yfirlýsingunni segir enn fremur að VLFA voni að viðræður á milli VMSl, Landssambands iðnverka- fólks og Þjónustusambands fslands skili því að þessi sambönd sameinist í eitt stórt á haustmánuðum. -ÓRV Vcörið i kvöld Bongóblíða Hæg breytileg átt eða hafgola og víðast léttskýjaö. Hlýjast í uppsveitum suðvestanlands. Solargangur og sjavarföll I Veðrið á morgun REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.27 23.40 Sólarupprás á morgun 03.41 02.52 Síðdegistlóö 17.36 22.09 Árdegisflóð á morgun 05.49 10.21 Skýringar á veðurtáknum ^VINPÁTT 10V-Hm yiL -io° ^XVINDSTYRKUR VrDnQT 1 metrum á sokúndu HEIÐSKÍRT jO UÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ *V.‘ Q RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA y ===== ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Víða vegavinna Helstu þjóövegir eru nú greiöfærir. Víöa er unniö aö vegagerö og eru vegfarendur beönir aö sýna sérstaka tillitssemi og haga akstri eftir merkingum. Hálendisvegir eru nú færir fjallabílum. Þá er taliö fært fyrir alla bíla um Kjöl, í Landmannalaugar af Sigöldu og um Kaldadal. Þykknar upp Á morgun veröur suöaustanátt, 13 til 18 m/s og rigning sunnan og vestan til en mun hægari vindur og þykknar upp á Norðausturlandi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast noröaustanlands. Suniuidagtil;, Vindur. 8-13 m/» Maimdagu Hiti 10'til 18* Vindur. 8-8 HKi 8* «118* 2ŒH5: J Víndun 8-10 m/s' Hiti 8* til 18* J*VK*:* Sunnan 8 tll 13 m/s. og skúrir eða rigning sunnan og vestantil en skýjað með köflum norðaustanlands. Mlldast norðaustantll. SV 5 tll 8 m/s. og skúrlr sunnan og vestantll en léttskýjað á Norður- og Austurtandl. Hltl 8 tll 18 stlg, hlýjast á Norðausturiandl. Vestan- og Suðvestanátt, nokkuð hvöss en síöar hægarl. Smáskúrir vestantll en léttskýjaö austantll. Hlýjast á austanlands. AKUREYRI alskýjaö 8 BERGSSTAÐIR skýjaö 8 BOLUNGARVÍK léttskýjaö 6 EGILSSTAÐIR 7 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 8 KEFLAVÍK léttskýjaö 9 RAUFARHÖFN súld 7 REYKJAVÍK léttskýjaö 7 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 9 BERGEN léttskýjað 10 HELSINKI skýjaö 13 KAUPMANNAHOFN skýjað 13 ÖSLÓ rigning 12 STOKKHÓLMUR súld 11 ÞÓRSHÖFN skýjaö 10 ÞRÁNDHEIMUR rigning 9 ALGARVE heiðskírt 21 AMSTERDAM skúr 13 BARCELONA hálfskýjaö 19 BERLÍN rigning. 13 CHICAGO léttskýjaö 23 DUBLIN skýjaö 14 HALIFAX alskýjaö 17 FRANKFURT rigning 14 HAMBORG þokumóöa 14 JAN MAYEN skýjaö 5 LONDON rigning 13 LÚXEMB0RG rigning 12 MALLORCA léttskýjaö 18 MONTREAL léttskýjaö 19 NARSSARSSUAQ skýjaö 9 NEWYORK skýjað 22 ORLANDO skýjaö 27 PARÍS rigning 14 VÍN skýjaö 14 WASHINGTON léttskýjaö 19 WINNIPEG léttskýjað 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.