Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Síða 3
e f n i
Þessa dagana standa yfir tökur á fyrstu kvikmyndinni sem kvikmyndagerðin Þeir
tveir gera í fuliri lengd. Um er að ræða heimildamynd um fjöltæknilistamann en list
hans felst í því að hefja ástarsamband með ýmsum konum, segja þeim svo upp og
smella Ijósmynd af konunum sem sýna viðbrögð þeirra þegar þeim er sagt upp.
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir hafði samband við Gunnar B. Guðmundsson, leikstjóra
myndarinnar, sem sagði frá gangi mála.
„Tökur á myndinni hófust 17.
júlí og munu standa yfir fram á
haust en eftirvinnsla myndarinn-
ar er þegar hafin og því má gera
ráð fyrir frumsýningu á hvíta
tjaldinu einhvern tímann á kom-
andi vetri. I augnablikinu er erfitt
að segja til um nákvæma tíma-
setningu,“ segir Gunnar B. Guð-
mundsson, leikstjóri myndarinn-
ar.
Hverjir eru það sem gera mynd-
ina og hvað heitir hún? „Vinnu-
heiti myndarinnar er „Konung-
legt bros“ og það nafn verður
myndinni að öllum líkindum gef-
ið. Framleiðsla myndarinnar er í
höndum kvikmyndagerðarinnar
Þeir tveir. Framleiðandi myndar-
innar er Óskar Þór Axelsson,"
segir Gunnar sem er að öðru leyti
mjög dulur um efni myndarinnar
og vill sem minnst gefa upp.
Some girls are bigger
than ouiers
Gunnar hefur áður gert slatta
af heimildamyndum og stutt-
myndum, eins og Some girls are
bigger than others 1993 (önnur
verðlaun á stuttmyndadögum í
Rvík 1994, Einhvers staðar
verða litlir að vera 1993, TF-
3BB 1994 (önnur verðlaun á stutt-
myndadögum í Rvik 1995), Á
blindflugi 1997 og Hræsni 1999.
Dularfullur fjöl-
tæknilistamaður
Um hvern er heimildamyndin,
hver er þessi fjöltœknilistamaöur?
„Myndin fjallar um fjöltæknilista-
mann hér í bæ. Hann hefur lagt
stund á list sína í um fjögur ár, ég
vil ekki segja hver það er en það
kemur í ljós bráðlega," segir
Gunnar enn dularfyllri.
Hvað er Þeir tveir? „Kvik-
myndagerðin Þeir tveir var stofn-
uð árið 1997. Fyrsta myndin sem
Þeir tveir gerðu er stuttmyndin Á
blindflugi. Hún fjallar um mann
sem er að reyna að hætta að
reykja. Myndin var frumsýnd í
nóvember 1998 í Háskólabíói, á
undan TAXI, mynd Lucs Bessons.
Á blindflugi hefur verið sýnd á
kvikmyndahátíðum víðs vegar
um heiminn, tíl dæmis í Egypta-
landi, Portúgal, Brasilíu, Þýska-
landi, Bretlandi, Ástraliu, svo ein-
hver séu nefnd.
Síðustu tvö árin hafa Þeir tveir
verið að gera fjöldann allan af
auglýsingum, eins og Georg spari-
grís íslandsbanka, rosalega raka-
drægu dömubindin Vania, Villi-
kött Freyju sem Jón Gnarr lék í,
Goða-pylsur og sprengjuna sem er
auglýsing fyrir Sambíóin og Sím-
ann GSM til þess að fá fólk til að
slökkva á gemsum í Sambíóunum
og Goða-pylsur,svo eitthvað sé
nefnt.“
Búast Þeir tveir við miklu, er
þetta myndin sem leiðir ykkur inn
í veröld þeirra frœgu og ríku?
„Ef marka má þær tökur sem
komnar eru í hús þá búumst við
við því að þessi mynd verði tíma-
mótaverk. Myndin ætti að verða
skemmtileg og spennandi og
höfða til allra þar sem hún fjallar
um „ástina" sem allir eru að leita
að, þó myndin nálgist ástina frá
mjög sérstöku sjónarhorni. Að
sjáifsögðu verðum við ríkir og
frægir, allavega eftir þetta stór-
kostlega viðtal,“ segir Gunnar að
lokum.
„Myndin fjallar um fjöltæknilistamann hér í bæ. Hann hefur lagt stund á list
sína í um fjögur ár. Ég vll ekki segja hver það er en það kemur í Ijós bráölega,"
segir Gunnar B. Guðmundsson, leikstjóri Konunglegs bross sem íslendingar
mega eiga von á innan tíðar.
kvikmynduðum hana meðan hún tók
myndimar. Davið er hins vegar meira
í listmálun og hefur gert talsvert af
„graffití" á húsveggi bæjarins í félagi
við kærustuna Tinnu. Við fundum
fyrir þau vegg á Hverfisgötunni sem
þau máluðu og við kvikmynduðum
þau á meðan. í desember eða janúar
lýkur tökum svo og munum við þá
fylgjast með þeim klára verkið í
snjónum.“ Sólveig nefnir fleiri ung-
menni sem birtast í myndinni. „Aðrir
sem fram koma í myndinni eru meðal
annars stelpa sem heitir Hrönn og er
DJ ásamt öðru, Svanhvít, sem er hár-
greiðslukona á Hár expó, og Róbert
sem er sjómaður. Þetta eru allt saman
krakkar sem þrátt fyrir peningaleysi
finnst þeir geta farið hvert sem er og
gert hvað sem er, ólíkt til dæmis
frönskum krökkum."
Með haustinu mun svo Martin
Wheeler, höfundur tónlistarinnar í
myndinni, koma til landsins og leita
fyrir sér um samstarf við islenskar
hljómsveitir og tónlistarmenn fyrir
myndina. Þar sem tökum lýkur ekki
fyrr en í janúar og klipping myndar-
innar tekur sinn tima mun myndin
ekki verða frumsýnd fyrr en eftir um
það bil ár. Frumsýning verður í öllum
löndunum samtímis, sýnd á Stöð 2
hér á íslandi en þar hafa Sólveig og
hennar fólk fengið mikla hjálp og
stuðning.
Eins og sést hér á undan er mikið
að gera hjá Sólveigu og mörg verkefhi
sem bíða hennar. Sem dæmi má nefna
íslenska kvikmynd og mjög áhuga-
verða heimildamynd um Odell Barnes
sem tekinn var af lífi í Texas 1. mars
á þessu ári og mikið var fjallað um í
íjölmiðlum á þeim tíma.
„Ég var fengin til að gera þessa
mynd af sjónvarpsstöðinni ARTE.
Hugmyndin var að setja saman fjög-
urra tíma sjónvarpsdagskrá um ungt
fólk í borgum Evrópu. Frá hverju
landi kæmi „pakki“ sem samanstæði
af klukkustundar langri heimildar-
mynd um ungt fólk í borg í landinu og
svo innlendri kvikmynd og stutt-
mynd. Þetta yrði því sex kvölda pró-
gramm sem sýnt yrði i öllum þátttök-
ulöndunum," segir Sólveig.
Ný leið farin
„Til að fmna rétta fólkið gripum
við til þess ráðs að auglýsa eftir fólki
í myndina og fengum mikil viðbrögð.
Fvrir valinu urðu fjögur ungmenni.
Áo,.sða þess að við völdum þetta
ákveðna fólk var að við vildum gera
myndina í samstarfi við þau, um líf
þeirra og störf frá bæði okkar sjónar-
hóli og þeirra. Þetta er heimildamynd
en þó leikin að miklum hluta. Þannig
flnnst mér best að vinna heimilda-
myndir. Það eru engin bein viðtöl í
myndinni því ég vildi prófa eitthvað
nýtt í kvikmyndagerð," segir Sólveig
og bætir við að í stað viðtalanna búi
þau til aðstæður þar sem unga fólkið
kemur saman, t.d. á kaffihúsum, og
ræðir ákveðna hluti. Þetta sé þó allt
gert í samvinnu við þau.
Hárgreiðslukona og sjóari
„Til dæmis eru í myndinni tvö ung-
menni sem eru par, Tinna og Davíð.
Þau eru ofsalega sæt og eru bæði í
Listaháskóla íslands. Tinna er að taka
svolítið sérstakar ljósmyndir og við
Síðastliðna daga hafa
staðið yfir tökur á
heimildamynd um
ungt fólk í Reykjavík
sem unnin er á veg-
um fransk-þýsku
sjónvarpsstöðvarinnar
ARTE. Fengnir voru
kvikmyndagerðar-
menn frá sex Evrópu-
löndum til að gera
mynd í einni af borg-
um landsins og er
leikstjóri íslensku
myndarinnar Sólveig
Anspach sem gerði
fyrir skömmu verð-
launamyndina Hertu
upp hugann. Fókus
mælti sér mót við
Sólveigu og spurði
hana út í þetta nýja
verkefni.
Halldór Ómar
Sigurðsson:
Langar í
nýjan ein-
kennis-
búning
Unga verðbréfafólkið:
Eru þau Patrick
Boris Dlugosch:
á
menrting-
arnótt
Sinéad
O’Connor:
Lesbía með
boðskap
Gamlir elsk-
hugar:
Hvernig
áttu að
hefna þín?
IM
Ægir Örn Val-
geirsson:
Hver verður
herra Island?
Elíza M. Geirs-
dóttir:
Keppir ekki
við Britney
Spears
Haukur og Daníel:
Stofna um-
boðsskrif-
stof u í
London
10 gm.. % ♦a
111 o
Hinseain daoar i Revkiavík
Clonnev oa Markv Mark í Stormunum
Fókus bvður þér á Galaxv Quest
Virainio Lima í kabarett
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Teitur af
Elizu M. Geirsdóttur
11. ágúst 2000 f Ó k U S
3