Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 13
BHUH
. ?
■
I
I
íslendingar eru alltaf að gera góða hluti í útlöndum og nú hafa
tveir bæst í hópinn með því að stofna umboðsskrifstofu í
London þar sem koma á enn fleiri íslendingum á framfæri.
Fókus gróf drengina upp og fékk þá til að segja sér frá dæm-
" Vítamín gerir þér gott
„ísland er mjög heitt um þessar mundir. Þaö eru allir mjög forvitnir og þaö er
auövelt aö koma af staö umfjöllun," segja þeir Vítamínmenn. Ein af ástæðun-
um eru eflaust hagstæð flugfargjöld dótturfyrirtækis British Airways, Go, sem
hefur undanfarið flogið milli Bretlands og íslands.
Tveir ungir ofurhugar hafa sett á
stofn fyrirtækið Vítamín, þeir Jón
Haukur Baldvinsson (24) og Daníel
Freyr Atlason (23). Báðir stunda nám
í auglýsinga- og markaðsfræði í
London College of Printing og halda
utan í haust fyrir annað árið en nám-
ið tekur 3 ár. Skólinn er með þeim
virtari í þessum geira í heiminum og
er hvað þekktastur fyrir grafíska
hönnun. Þegar hafa margir íslending-
ar verið við nám í London College of
Printing og nærtækasta dæmið er ef-
laust Maggi ljósmyndari sem nú
vinnur fyrir tímaritið Dazed and
Confused.
íslendingar markaðssettir
úti
I gegnum fyrri störf Jóns Hauks
eru þeir þegar í sambandi við plötu-
fyrirtæki eins og Capital Records og
Columbia. Meðal verkefna Vítamíns
núna er að markaðssetja kvikmyndir
eftir þrjá íslenska kvikmyndagerðar-
menn, þá Baldur Eyþórsson, Björn
Baldvinsson og Ástu Briem.
Þá vinnur Vítamín einnig að þvi
að koma íslensku sveitinni Atingere
á kortið í Lundúnum sem og The
Northern Light Orchestra. Von er á
plötu frá Atingere á íslenskan mark-
að í haust en bandið þykir efnilegt.
Sveitin ku vera á útleið í september.
Loks er það íslensk-bandaríska
hljómsveitin Skin en Vítamín sér um
kynningar á hljómsveitinni í Evrópu.
Almannatengsl og umboð
Það er'að sjáifsögðu auðveldara að
kynna íslenska tónlist og kvikmynda-
gerð þegar strákamir eru staddir úti í
London. „Margir íslendingar vilja kom-
ast út. Það er fullt af böndum sem vilja
hasla sér völl úti og þar sem við erum
úti þá er auðveldara fyrir okkur að
koma þeim á framfæri," segir Daníel.
Strákamir segja hugmyndina gamia
og hafa þróast lengi. Þeir segja markað
fyrir þjónustuna og möguleikann raun-
hæfan. „Þetta er alls ekki áhugamál
heldur er okkur full alvara,“ segir Dan-
íel.
Jón Haukur segist hafa verið viðloð-
andi útvarp frá 12 ára aldri auk þess
sem hann hefúr verið umboðsmaður
Botnleðju í nokkur ár og vinnur enn
fyrir hana að einhveiju leyti í Banda-
ríkjunum. í sumar vann hann m.a. að
Reykjavík Music Festival auk fleiri
verkefna. Þessa dagana er hann að
vinna að undirbúningi stofnunar
Vítamíns með Daníel en Daníel vinnur
einnig í Gallerí 17. Vítamínmenn standa
nú í viðræðum við marga íslenska lista-
menn sem hyggja á útlandsmarkað. Við-
ræðumar era á því stigi að erfitt er að
greina frá þeim en Jón Haukur lætm- þó
hafa eftir sér að um sé að ræða vinsæl-
ustu böndin á íslandi í dag.
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
Opið: fös. 10:00-20:00/lau. 10:00-18:00
TOPSHOPITOPMAN
Sf&ustw .
dagarmr
Útsölulok
Götumarkaðsstemmning
frá föstudegi til sunnudags.
Allar verslanir opnar
á sunnudag frá 13:00-17:00.
UPPLÝSINOHSÍMI 5 B 8 7 7 BB SKRIFSTOFUSfMI 5GB 9 2 0 0
11. ágúst 2000 f Ó k U S
I
13