Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 14
í f ó k u s S a m k y n - hneigð er það eina sem getur talist i fókus þessa dagana enda helgin undirlögð af skemmtilegum hátíðahöldum. Loksins getur venjulegt samkynhneigt fólk fengið að njóta sín og þarf ekki að standa í skugganum af, að því er virðist, eina samkynhneigða fólkinu á íslandi, Páii Óskari og Rósu Spot. Nú er tíminn til að koma út úr skápnum því Hinsegin dagar eru komnir til að vera og meira að segja borgarstjórinn í Reykjavík heldur tölur um ágæti þessara hátíða- halda. Timamir eru líka að taka slík- um stakkaskiptum að þess verður vart langt að bíða að samkynhneigðir fái að gifta sig í kirkjum og ættleiða börn eins og aðrir. Málið er semsagt einfalt, það er kúl að vera hommi eða lessa, og ef þú ert ekki kominn út úr skápnum þá er þetta helgin. Kolbrún Halldórs er líka alveg sammála þessu og þó að hún verði aldrei í fókus fær hún samt prik fyrir að átta sig á þessu. ú r f ó k u s Ríkisbáknið Sjónvarpið er auðvit- að alltaf úr fókus. Það sem er hins veg- ar sérstaklega úr fókus þessa vikuna eru blessaðar stúlkukindumar sem í daglegu tali em nefndar þulur. Að sjónvarp allra landsmanna skuli telja það nauðsynlegt að láta misgáfulega útlítandi ljóshærðar (oftast) ungmeyj- ar þylja upp þá mnu sem allir em þeg- ar búnir að lesa í dagblöðum og sjón- varpshandbókum og textavarpi er með öllu út í hött. Sjónvarpsþulumar em einfaldlega arfur fortiðar og eiga eng- an tilverurétt. Fólki væri nær að halda að afturhaldsseggjunum sem ekki vilja leggja niður Sjónvarpið eða einkavæða það telji þulumar vera siðasta hálm- stráið fyrir tilvist þess. Það er heldur ekki eins og þessar blessuðu þulur hafi mikið til bmnns að bera, auðvitað sleppa þær Ragnheiður Clausen og Rósa Ingólfs þó, en restin er ekki upp á marga fiska. Sökin liggur þó ekki hjá blessuðum skjátunum, stjórnendur Sjónvarpsins ættu að sjá sóma sinn í því að eyða frekar launum þeirra í að kaupa Bó Halldórs yfir eða jafnvel eitthvað af öllum þáttunum sem Stöð 2 er búin að stela frá þeim. Hún er vesturbæíngur í húð og hár þrátt fyrir nokkurra ára stopp í Breiðholtinu. Eftir að hafa dansað frá sér allt vit á íslandi fór hún til Stokkhólms aðeins 16 ára gömul til þess að dansa í hinum Konunglega ballettskóla þeirra Svía. Fókus lék nhugur á að vita meira Q O V*# v**<4 Bllott i.'íte'J.4': um þessa ungu sídansandi snót: Hún heitir Katrín Á. Johnson og þrátt fyrir að vera tengd inn í hið mikla veldi Ó. Johnson & Kaaber drekkur stúlkukindin ekki kaffi. Fókus plataði hana til þess að hitta sig undir fjögur augu I bóka- herbergi blaðsins þar sem stúlkan hása var krafin svara um fyrri af- rek. „Ég kalla mig vesturbæing þrátt fyrir að ég hafi stoppað aðeins í Breiðholtinu í uppvextinum. Fram til þriggja ára aldurs bjó ég i návígi við KR-inga en þá fluttum við upp í Breiðholt. Eftir að hafa verið í Breiðholtinu til 12 ára aldurs, sæll- ar minningar, fluttum við aftur inn í vesturbæ. Einu sinni vesturbæ- ingur - alltaf vesturbæingur." Katrín var - eins og margir aðr- ir villingar - í Hagaskóla, en strax þegar hún var fimm ára og varla byrjuð að geta hnýtt reimamar sln- ar var hún send í baUettskóla Eddu Scheving. Þar var hún til níu ára aldurs en þá tók við þjálfun á fjölum Þjóðleikhússins. Sænskt stúdentspróf „Samhliða ballettinum var ég að sjálfsögðu líka í venjulegu bóklegu námi og það hélst eftir að ég fór til Svíþjóðar - 16 ára gömul. Þar var ég við nám í skóla sem heitir Kon- unglegi sænski ballettskólinn. Ég dansaði þar í þrjú ár og hef yfir að ráða sænsku stúdentsprófi í dag.“ Eftir dvölina í landi Volvoa og Saaba sneri snótin heim og byrjar að dansa með Islenska dans- ffokknum undir stjóm Katrínar HaU sem nafna hennar ber söguna vel. „Það var verið að breyta frá hin- um hefðbundna klassíska ballett yfir í nútímabaUett og ég held að ég fari með rétt mál þegar ég segi að aUir dansarar flokksins hafi verið ánægðir með breytinguna. Klass- ískur baUett er dádítið erfiður við- fangs í jafn litlum flokki og íslenski dansflokkurinn er. Við erum ein- ungis níu í hópnum - fimm stelpur og fjórir strákar.“ Baldur og önnur hörkutól Aðspurð segir Katrín að þrátt fyrir að hópurinn sé lítiU sé dá- litil samkeppni innan vé- banda hans. „Það er þó aUt á já kvæðu nótunum. Auðvitað verður maður pínu súr þegar maður fær ekki það hlut verk sem mann langar mest í en við því er ekkert að gera - bara brosa og harka það af sér.“ En hvað er verið að gera þessa dagana? „Ég er að dansa með ís- 1 e n s k a d a n s - flokknum og um þ e s s a r m u n d i r erum við að setja upp verkefni sem heitir Baldur og er það sam- starfsverkefni íslendinga, Norðmanna og Finna. Verkið er sett upp í sam- starfi við Kristni- hátíðarnefnd og söguviðurinn er Þrymskviðan sem segir frá Baldri, Loka, Þór og fleiri ásum og goðum. Við munum frumsýna verkið héma á íslandi þann 18. ágúst í Laugardalshöll inni og verða tvær sýningar þann dag. Síð- an verður verkið flutt úr landi og munum við sýna það frændum okkar i Noregi þar sem það verð- ur flutt á fjölunum í Bergen og í beinu framhaldi af því sýnum við Finnum verkið í Helsinki." ísland er inni Katrín útilokar ekki að dvelja aftur langdvölum erlendis en er ekki þó með hugann bund- inn við neitt ákveðið land. „Það er nú samt svo mikið að gerast á íslandi í dansinum að það væri eftirsjá í mörgum spennandi verkefnum sem hérna eru i boði. Um þessar mundir er ísland líka dálítið „inn“ i heim- inum þannig að þeir sem hingað koma og starfa með okk- ur eru á heims- mælikvarða eins og flokkurinn er á heimsmæli- kvarða. Ef ég hins vegar færi eitthvað eru það helst Hol- land og v i s s i r staðir í Þýska- 1 a n d i sem ég gæti hugs- að mér að vera á.“ F ó k u s mun hafa vökult auga með þessari stúlku - hún er til allra hluta vís. hverjir voru hvar meira é. www.visir.is Þó verslunarmannahelgin sé mesta ferða- helgi árslns var alveg slatti af liði í borg- inni. Sumir meika bara ekki sveitina og finnst steikt að vera i sérstaklega prent- uöum bolum á þjóöhátíð eöa með sauö- drukknum foreldrum á Akureyri. Thomsen hélt uppi góöri dagskrá um helg- ina. Þar voru ótrúlega margir á djamminu og allt var brjálað fram undir morgun alla þrjá dagana. Sem sagt góö djammhelgi á Thomsen. Meöal þeirra sem létu sjá sig um helgina var pariö sæta, Margeir og Arna Bang, félagarnir Arnar og Frímann. Þarna var líka fólk eins og meistari Maggi Legó , Tommi White og hin sæta Sóley sem allir strákar eru pínku skotnir í. Palli Steinars umboösmaöur var á svæði sem og Sveinn Speight tísku- Ijósmyndari. Skutlan hún Þóra af- greiddi karlpeninginn á barnum á Ijóshraða og . systurnar óaöskiljan- I |egu Hrafnhildur og 1 ' |1 Bára stílistar voru í fín- ni stemmningu. Fjölnir Þorgeirs var mætt- ur enda er hann alls staðar. Annar maður sem er alls staöur og er sérlegur verndari álagningarskráa er Björgvin Guðmunds- son, nýr formaður Heimdallar, og var hann á Thomsen. Svo voru líka manneskjur eins og Guöný DJ, Tóti DB&t auglýsinga- frömuður og sjálfur Kiddi Bigfoot. Á Kaffibarnum hanga miðbæjarrotturnar sem aldrei fara af 101- svæðinu. Á sunnu- dagskvöldið var allt gengið af hárgreiðslu- stofunni Mojo mætt, Gummi. Baldur og hár- greiösludrottningin Gunnhildur B. sem var í smart pels sem allir tóku eftir. Með Gunnhildi var vinkona hennar, poppsöng- konan Svala Björgvins. Besti vinur barn- anna, nefnilega hún Ásta i Stundinni okk- ar, var i góöri stemmningu ásamt systur sinni þó ekki hafi sést til Kela í þetta skiptið. Á Klaustrinu var mikið af fólki alla helgina. Þar var hin mjög svo aríska Eva Sólon, þula, sminka og ungskáld, ásamt vinkonu. Þar var líka sjálfur Fjölnir Þorgeirs at- hafnamaður meö Marín Mönduog vinkonum þeirra. Fjölnir sýndi stúlkunum suö- ræna dansa og þótti dansa með stæl. Á sama stað sást líka til sjónvarpskóngsins Johnny National sem viröist hafa komið víöa viö um helg- ina. Strákarnir í sportinu slá sjaldan slöku við og „strákarnir okkar", Herbert, Arnar, Baldur og hinir risarnir ! körfuboltalandsliöinu voru glaðir eftir gott mót. Starfsmönnum FM957 finnst gaman að skvetta í sig og þaö gerðu þeir Jói Jó, Kalli Lúog Valgeir Viljhálms. Þeir voru harðir í Tequila-skotunum eins og sönnum karl- mönnum sæmir. Fleiri djammarar voru mættir, eins og þau Pétur Ottesen at- hafnamaður, Erik á Vegamótum, leikkon- an Margréti Eir og vinkonur. Ari Magg Ijósmyndari, Lindafatahönnuður og starfs- lið Skjás Eins voru lika mætt á helgarvakt- ina. Þá sást aö sjálfsögöu til klámkóngs Isiands, Siguröar John Lúðvíkssonar, sem enn hefur slegiö í gegn með því aö færa okkur verslunina Private í Skeifunni þar sem fólk finnur vist allt milli himins og jarðar. Ekki má gleyma manninum sem var rekinn af SkjáEinum, Axel Axelssyni. sem ku vera farinn að vinna á dægurmálaútvarpi Rásar 2, þokkalegt skref niöur á við fyrir svona sætan strák. Annars sást einnig til Sverris Sverrissonar i meistaraliöi Fylkis, Þurý í Onyx, Jóns Arn- ar, þjálfara kvennalandsliðs- ins. Prikiö er, þrátt fyrir að vera einn minnsti skemmtistaður þorgarinnar, alltaf troðfullt af fólki. Þetta virðist vera staðurinn ásamt Vega- mótum þar sem ung- pólitíkusarnir vilja vera. Á sunnudags- kvöldið sást til manna eins og Sigurðar Kára, formanns Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Með honum var lögfræðingurinn Birgir Tjörvi Pétursson. Annar pólitíkus sem er yfirleitt á djamminu um helgar og lét sig heldur ekki vanta núna er Vilhjálm- ur H. Vilhjálmsson, nýútskrifaður lögfræð- ingur og formaður ungra jafnaðarmanna. Þar var líka Unnur Brá Konráösdóttir Vöku- stelpa og með henni Margrét Einarsdótt- ir laganemi. Á Skuggabar er sér- stök tegund djammara og djúst- ara. Ari Magg Ijós- myndari, Linda, fata- hönnuður meö meiru, Heba súper beib ásamt Rósu sem er alveg að fara að byrja á Skjá Einum og þar sást líka starfsliö Skjás Eins i góðum gír. Þar voru líka mættir menn eins og Heiðar Örn framleiöslustjóri frá Hvíta Húsinu, Ágúst Orri, lögfræöingur frá Eimskip, Kalli Lú á FM957. Mil Tíska* Gæði* Betra verð 14 f Ó k U S 11. ágúst 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.