Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 4
Eins og Fókus sagði frá á dögun- um ætla bestu hljómsveitir íslands að troða upp á lceland Airwaves í von um að fanga athygli alþjóðlega tónlistarheimsins enda mætir fjöldi bransakalla á svæðið. Suede mætir á Airwaves Dagana 19. til 22. október verður tónlistarhátíðin Iceland Air- waves haldin í Reykjavík í annað skipti. Greinilegt er að hróður há- tíðarinnar hefur aukist mjög því von er á 120 manna hópi útsendara plötufyrirtækja og fjölmiðlafólks úr alþjóðlega tónlistargeiranum. Búist er við að á annað þúsund er- lendra gesta muni leggja leið sina hingað vegna Airwaves og heyrst hefur að nú þegar sé fjöldi fólks kominn á biðlista hjá Flugleiðum í Bandaríkjunum þess vegna. Flug- leiðir eru aðalstyrktaraðili hátíð- arinnar en hafa ekki auglýst mið- ana sérstaklega. í fyrra uppskar hip-hopsveitin Quarashi „publish- ingsamning" við útgáfufyrirtækið EMI í kjölfar tónleikanna í Flug- skýli 4. Því er til mikils að vinna fyrir þá íslensku tónlistarmenn sem fram koma i ár. Á milli 20 og 30 íslenskar sveitir stiga á stokk, auk 15 plötusnúða. Hápunktur há- tíðarinnar verður þegar breska rokksveitin Suede spilar í Laugar- dalshöll á laugardeginum. Skipu- leggjendur eiga í viðræðum við nokkur erlend bönd, þeirra á með- al Thievery Corporation og Flaming Lips, ef marka má upplýs- ingar á heimasíðunni, en hægt er að fylgjast með fréttum af hátíð- inni á heimasíðunni www.icelandairwaves.com og búist er við að dagskrá hátíðarinn- ar birtist þar á næstunni. Halldór Ómar hefur starfað við dyravörslu í 27 ár og segist hafa verið keyptur til Regnbogans, enda sé hann andlit fyrirtækisins. Dauðlangar í nýjjan einkennisbúning „Ég er framkvæmdastjóri móttöku- sviös í Regnboganum," segir Halldór Ómar Sigurðsson i samtali við Fókus, aðspurður um það við hvað hann starfar. Hvaó gerir framkvœmdastjóri mót- tökusviðs? „Ég fer í bankann fyrir Regnbogann og ég er líka í dyrunum. Ég er andlit Regnbogans,“ segir hann. Dyraverðirnir þurfa að gegna Er mikið aö gera í starfi þínu sem framkvœmdastjóri? „Já, það er mikið að gera. Ég hef starfað hjá Regnboganum frá upphafi og var keyptur til bíósins vegna þess að mönnum leist svo vel á mig. Ég er andlit fyrirtækisins." Ertu yfirmaóur hinna dyravaróanna sem framkvœmdastjóri móttökusviös? „Já, ég er það.“ Er þaó strembió starf? „Nei, ég er yfirmaður dyravarðanna og þeir þurfa að gegna mér alveg eins og ég er með þá á mínum herðum. Þannig er það nú.“ Einkennisbúningurinn gjör- ónýtur Halldór Ómar vinnur alla daga í Regnboganum: „Ég er hérna þangað til aUt er búið og fer yfirleitt heim svona um sexleytið." HaUdór hefur starfað við dyravörslu í 27 ár og hefur haft sinn einkennis- búning sem hann notar við störf sín. „Búningurinn er gjörónýtur núna en mig dauðlangar i nýjan. Búningurinn slitnar stundum vegna þess að ég er svo mikið í honum, svoleiðis að ég er ekkert í búningi núna.“ Stendur til aö festa kaup á nýjum búningi? „Ég veit ekki hvort það stendur til því aUt kostar þetta peninga," segir Halldór Ómar að lokum. lif II 1-4- kM I 1 ftaasi |g Ert þú á aldrinum 15 til 25 ára? Þá á Biotherm fullt erindi til þín. Biotherm-vörurnar eru mjög vinsælar hjá ungu, hressu fólki víða um heim. Biotherm eru náttúrulegar snyrtivörur fyrir ungt fólk sem nýtur lífsins. Því ekki að prófa? Klipptu út auglýsinguna og farðu með hana á næsta BIOTHERM útsölustað og þarfærðu fría gjöf. Þú getur valið um að fá hreinsi, andlitsvatn og rakakrem sem henta þurri, viðkvæmri, normal eða blandaðri húð. Vertu velkomin(n), það verður tekið vel á móti þér. (Líka ykkur, strákar.) Útsölustaðir: Andorra, Strandgötu 32, Hafnarfirði - Bjarg, Stillholti 14, Akranesi - Bylgjan, Hamraborg, Kópavogi - Fína, Háholti 14, Mosfellsbæ - Hjá Maríu, Amaró, Akureyri - Hygea, Kringlunni - Hygea, Laugavegi 23 - Snyrtivöruverslunin, Glæsibæ. AQUASOURCE RAKABAÐ SEM JAFNGILDIR 5000 LlTRUM AF LINDARVATNII EINNI KRUKKU. öflug rakagjöf sem slekkur þorsta húðfrumnanna tímunum saman. Rakafyllt kremið/hlaupið veitir k vellíðan og ánægjulega notkun. Það <„ er ferskt, frískandi og fullt af virkni gj;.,, 5000 lítra lindarvatns. fe / 4 f Ó k U S 11. ágúst 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.