Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Side 11
Bandaríski rapparinn Canibus er
kominn með nýja plötu. Eins og
Trausti Júlíusson komst að þegar
hann hlustaði á gripinn er hann
harðari og kröftugri en nokkru
sinni fyrr.
fær uppreisn sni
Fyrsta Canibus-platan „Can-I-
Bus“ kom út 1998. Hann var þá
einn af ferskustu textasmiðum
rappsins en þó að slatti af fínum
lögum hafi verið á plötunni olli
hún samt vonbrigðum. Tónlistin
var ekki alltaf í sama gæðaflokki
og framlag Canibusar sjálfs. Platan
náði að vísu gullsölu í Bandaríkj-
unum en margir þeirra sem keyptu
hana voru vonsviknir.
Gafst upp á tölvuforritun-
inni
Canibus heitir réttu nafni
Germaine Williams. Hann ólst
upp á eins ólikum stöðum og
Bronx, Miami, Atlanta, Englandi
og Jamaica, en er nú búsettur í
New Jersey. Hann vann við alls
konar störf áður en hann byrjaði
að rappa, var við verkamannastörf,
skrifstofustörf og var um tíma
tölvuforritari, en fann sig ekki í
neinu af þessu. Hann hafði þörf fyr-
ir að skapa eitthvað og fékk útrás
fyrir þá þörf þegar hann fór að
rappa. Canibus vakti fyrst athygli
fyrir gesta-rapp á plötum með Lost
Boys, DJ Clue og Wyclef Jean og
fyrir mixtape þar sem hann rappar
yfir alls konar snilldarverk úr
rappsögunni. Hann skaust samt
fyrir alvöru upp á rappstjömuhim-
ininn þegar hann háði einvígi við
LL Cool J í laginu „2nd Round
Knockout". Fékk hann sjálfan
Mike Tyson til að koma fram í lag-
inu og LL Cool J átti aldrei mögu-
leika.
Ósáttur við Wyclef
Þegar Canibus tók upp fyrstu
plötuna sína var hann á tónleika-
ferðalagi með Wyclef Jean. Wyclef
vann að gerð plötunnar með Cani-
bus og Canibus er mjög ósáttur við
vinnu hans á plötunni. Honum
fmnst hann ekki hafa lagt sig fram
sem skyldi og því hafi útkoman
orðið eins slök og raun bar vitni. í
laginu 2000 B.C. á nýju plötunni
biðst hann afsökunar á því hvað
fyrsta platan var léleg: „You mad at
my last album/I apologize for
it/Yo, I can’t call it/Muthafuckin’
Wyclef spoiled it.“
2000 B.C.
Á nýju plötunni, 2000 B.C.
(Before Canibus), stjórnar hann
sjálfur upptökunum. Hann var
ákveðinn í að láta ekki einhvem
pródúser klúðra málunum fyrir sér
í þetta skiptið og vann því lögin frá
upphafi til enda með upptöku-
mönnunum. í staðinn fyrir að
skjótast í stúdíóið á milli tónleika
til þess að rappa, eins og þegar
fyrri platan var gerð, var hann í
stúdíóinu allan tímann. Hann bað
um ákveðin sánd og hætti ekki fyrr
en hann var búinn að ná þeim. Út-
koman er lika ekkert í líkingu við
þægilegt grúv Fugees-leiðtogans
heldur dúndrandi kraftmikil rapp-
lög. Lög eins og The C-Quel, 2000
B.C., Phuk U, Chaos, I’ll Buss’em U
Punish’em, sem hann rappar með
Rakim og Mic-Nifícent, eru hlaðin
hálfgerðum sprengikrafti. Auk
Rakim koma þeir Kurupt, Ras
Kass og Killah
Priest fram á plötunni. Áður en
Can-I-Bus kom út bjuggust allir við
því að Canibus yrði næsta stór-
stjama rappsins. Það varð ekki en
nú er að sjá hvemig honum gengur
þegar hann hefur hlutina eins og
hann vill hafa þá!
Canibus er ósáttur við vinnubrögð Wyclef Jean á fyrri plötu sinni og biðst af-
sökunar á hversu léleg platan var í einu lagi á nýju plötunni.
plötudómar
Hitar upp fyrir
Radiohead
Hljómsveitin Sigur rós er al-
deilis búin að komast í feitt eftir
að tilkynnt var um það á dögunum
að hún kæmi til með að hita upp
fyrir stórsveitina Radiohead á tíu
tónleikum hennar í Evrópu. Þetta
kemur sér sérstaklega vel fyrir
hljómsveitina þar sem Sigur rós
gefur út sína fyrstu breiðskífu í
Englandi í næstu viku og ætti að
vekja enn meiri athygli á henni
fyrir vikið. Thom Yorke, söngv-
ari Radiohead, lýsti því yfir í
breskum fjölmiðlum á vordögum
að hann hefði orðið yfir sig hrif-
inn er hann heyrði tónlist Sigur
rósar og kemur þessi tilkynning í
beinu framhaldi af þvi. Radiohead
hefur einmitt undanfarið lagt
mikla áherslu á að styðja ungar og
upprennandi hljómsveitir til dáða
með því að taka þær með í hljóm-
leikaferð og þykir það einatt mik-
il stuðningur og von um bjarta
framtíð. Við vonum bara að Sigur
rós fái að klára settið sitt og það
verði ekki slökkt á henni eins og
gerðist i Bretlandi í vetur.
Ice-T
f lögguna
Hinn aldni og ávallt svali frum-
kvöðull bófarappsins, Ice-T, hefur
mörg jám í eldinum þessa dagana.
Hann er að komast aftur á skjá
imbakassans með leik sínum í
þáttunum “Law & Order: Special
Victims" á NBC sjónvarpsstöð-
inni. Þar mun
hann fara með
hlutverk leynilög-
reglumanns í kyn-
ferðisafbrotadeild
New York-lögregl-
unnar. Ætti kapp-
inn að geta leyst
verkefnið vel af
hólmi ef miðað er
við þá reynslu sem hann hefur afl-
að sér í viðskiptum siniun við
lögguna í gegnum tíðina. Ice-T hef-
ur áður leikið í þáttunum
„Players" og „New York Und-
ercover" auk fjölda bíómynda.
Meðan hann hlúir að leikferlinum
hyggst rapparinn gefa út safnplöt-
una „The Greatest Hits: Evidence
Tomorrow“ og verða á henni hans
helstu smellir allt frá upphafl fer-
ilsins.
h v a ö Ý fyrir hvern?
★★★ Flytjandi: Dysted piatan: When We Were Young Útgefandi: Go-Beat/Skffan Lengd: 58:39 mín. Þetta er hliðarverkefni Rollo úr Fait- hless. Platan inniheldur 13 lög sem hann hefur unnið í samvinnu við Mark Bates. Þetta er ekki danstónlist f anda Faithless heldur róleg sumarplata stfl- uð inn á Ibiza chill-markaðinn. When We Were Young minnir um margt á hljómsveitir eins og Massive Attack. Það eru þessar seiðmögnuðu stemningar sem þeim Dusted-félögum hefur tekist aö búa til f mörgum lag- anna. Þessi plata verður þess vegna örugglega vel þegin af unnendum gæða trip-hops.
★★★, Fiytjandi: Ýmsir flytiendur piatan: Harpsichord 2000 Útgefandi: S.h.a.d.o / 12 tónar Lengd: 64:52 Safnplata þar sem nútímaútgáfa fyrir- rennara pfanósins, harpsfkordið, er f fyrirrúmi. Þekktustu nöfnin eru Mom- us, The Make Up og Stereo Total, en önnur eru m.a. Valvola, The Secret Goldfish, Cinerama, Micromars og Remington Super 60. Platan er gráupplögð fýrir þá sem fila efni frá útgáfum eins og Emperor Norton og Bungalow og hljómsveitir eins og Stereolab, Pizzicato 5 og The Cardigans. Tónlistin er létt, grúfi og svöl popptónlist með sterkum keim af því sem þótti svalast og flottast á 7. áratugnum, sérstaklega f París.
★★★ Fiytjandi: Phunky Data Platan: 38 Útgefandi: 65:50 mfn. ‘ Lengd: Edel/Japis Þetta er önnur plata franska house dúósins Phunky Data, sem er skipuð þeim Kiko og Olivier Raymond. Sú fyrri „Fashion or Not?" kom út 1998 og hlaut mjög góðar viðtökur. Phunky Data er sem sagt enn eitt house-nafn- ið frá Frakklandi. Tónlistin á 38 er að mestu leyti pump- andi tónlist fyrir dansgólfið og ætti þar með að höfða til flestra næturlífs- og dansfíkla landsins. Þetta er diskóskot- ið og fönkf house f franska stílnum og fer líka stundum út f deep house og teknóskotið house.
skemmtileqar
staöreyndir
niöurstaöa
Þema plötunnar er bernskan og text-
arnir eru byggöir á bernsku Rollos og
pælingum hans um það hvað það er
að vera barn. Myndin á umslaginu er
teiknimynd af litlum strák að spila á
flautu úti í skógi þar sem alls konar
skrimsli úr ævintýraheimi bernskunnar
elta hann.
Raf harpsfkord eins og Spinetta,
Clavinet og Clavichord urðu fyrst áber-
andi í barokk-poppi 7. áratugarins.
Sándiö kom svo aftur í fönkadelískri
blökkutðnlist á 8. áratugnum og var
áberandi í ftölskum sándtrökkum á
svipuðum tfma. Þetta safn er tilraun til
að endurvekja hinn fagra tón
harpsfkordsins.
Þeir Kiko og Olivier eru frá Grenoble og
nafnið á plötunni vfsar í þaö. Frakk-
landi er skipt f héruð sem hafa númer
og þeir eru frá héraði 38. Þeir félagar
eru greinilega mjög þjóðernissinnaðir
Grenoble-búar þvf að myndirnar á um-
slaginu eru líka allar þaðan.
Þessi plata kemur töluvert á óvart.
Ekki bara að þetta er róleg plata frá
Rollo, heldur Ifka hvað útsetningarnar
eru fjölbreyttar. Það er drengjakór f
einu laganna, sum lögin eru með svip-
uðum reggf-áhrifum og maður heyrir
hjá Massive Attack, önnur eru hrein
popplög. Ágætis plata.
trausti júlíusson
Hér er engin öskrandi snilld en sem
bakgrunnsplata á kaffihúsi eöa ann-
ars staðar er platan aö gera sig vel.
Hún rennur vel og áreynslulaust og
harpsfkordið gefur öllu snyrtilegan
blæ. Nokkur lög standa upp úr jafnri
heildinni og þetta er ágætis plata þó
hún flytji engar stórfréttir.
dr. gunni
Þetta er ágætis plata. Hún er full af
flottum grúvum. Þeim Kiko og Olivier
hefur tekist að gera heilsteypta og fjöl-
breytta plötu sem þrátt fyrir það aö
vera með flottu sándi og fínum lögum
er ekki að færa okkur neitt sem ekki
hefur heyrst áður. Ágæt plata sem
sagt, en engin bylting.
trausti júlíusson
11. Sgúst 2000 f Ó k U S
11