Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Qupperneq 12
KÖTUI
... og bílpróf. Lækniriiin minn
hefur bannað mér að borða sykur
og salt, ég vakna með gigtarverki,
ég sé ekki baun, heyri illa, þjáist
af þvagleka, pungsigi, flösu,
krónískum brjóstsviða, ég hef
ekki gagnast konunni minni i
áratugi og ég man ekkert stund-
inni lengur. Ég fylgist illa með
fréttum, ég skil ekki það sem ég
sé í sjónvarpinu (sérstaklega
ekki það sem á að vera fyndið)
og ég lít hræðiiega iila út. Sem
sagt mjög venjulegur eldri mað-
ur. En þegar það liggur sérstak-
lega iila á mér, þá gríp ég
bíllyklana í aðra höndina, ljós-
gráa flónelshattinn í hina, fer út að
keyra og keyri eins hægt og ég mögulega ...
... get.
Það er engu líkt. Ég sem fæ
aldrei neina athygli (meira að
segja stundum ekki einu sinni af-
greiðslu í verslunum) fæ fulla at-
hygli fólks í umferðinni. Það gláp-
ir inn um gluggann hjá mér þegar
það tekur fram úr, vinkar mér og
gefur mér fokkmerki með löngu-
töng. Þegar ég er úti að keyra líð-
ur mér eins og Celine Dion (eng-
inn þolir mig en það er vonlaust
að losna við mig). Ég brosi með
sjálfum mér, dreg hattinn fram á
andlitið, leysi vind og æsist allur
upp þannig að það liggur við að
mér standi aftur eins og í gamla ...
... daga.
Síðasta helgi var verslunar-
mannahelgin, mesta umferðar-
helgi ársins, og þá fór ég út að
keyra þó að ég ætti ekkert erindi.
Það má bóka að þá fóru allir karl-
ar með hatta út að keyra. Ég
keyrði til Vopnafjarðar þar sem
ég fékk mér pylsur á bensínstöð-
inni (kvartaði yfir því hvað þær
væru dýrar og borgaði með fimm-
krónupeningum) og sneri svo við.
Þetta var á mánudaginn þegar
ailir voru á leiðinni heim. Ég er
á stórum bíl þannig að það er
erfitt að taka fram úr mér og ég
keyri líka á miðjum veginum
þegar það er ekki umferð á móti.
Og ég var ekki kominn nema fimmtíu metra frá bensínstöðinni þeg-
ar það var kominn bhl í...
... rassinn á mér.
... sem vildi komast fram úr. Ég
leit i spegilinn og sveigði svo
hægt fyrir hann. Hann kloss-
bremsaði og hætti við. Þetta var
yndislegt. Ég átti ekki í nokkrum
vandræðum með að halda honum
fyrir aftan mig alla leið til
Reykjavíkur. Ég fylgdist með
honum verða pirraður, verða
reiður, brjálaður, örvæntingar-
fullur, ég fylgdist með þegar það
nrnnu tár niður kinnamar á
honum á Hvolsvelli og þegar
hann frikaði út og öskraði á Sel-
fossi. Ég sá að hann missti viljann til
að lifa í Hveragerði og keyrði næstum því út af í...
... Kömbunum.
Þetta var dálítið aumingjalegur
maður en rosalega snyrtilegur, dá-
lítið líkur Bergþóri Pálssyni óp-
erusöngvara (eða Helga Bjöms-
syni, þeir eru alveg eins). Og mér,
farlama gamalmenninu sem get
ekki einu sinni klippt á mér tá-
neglumar sjálfur, tókst að brjóta
hann gersamlega niður. Mér leið
eins og alvöru manni. Og það er
þetta sem við gerum, karlar með
hatta. Við brjótum fólk niður í
umferðinni. Svo framarlega sem
við lendum ekki sjálfir í þeirri
ógæfu að lenda fyrir ciftan ... karl
með hatt.
Að vera dömpað er eitt það versta sem fólk lendir í. Menn
upplifa þunglyndi, tómleikatilfinningu, niðurlægingu og detta í
það að fara að „segja söguna frá sinni hlið“ við alla á djamm-
inu og verða mjög sorrí. Fókus skoðaði málið og hér koma
nokkur skotheld ráð fyrir hina dömpuðu til þess að rífa sig upp
úr eymdinni, bregðast við af hörku og gera fyrrverandi makann
að fórnarlambi. Fólk ætti þó ekki að taka þetta of alvarlega en
getur alla vega hugsað sér gott til glóðarinnar.
Fyrrverandi parið Sean Penn skaphundur og Madonna voru ekki að gera góða hluti sem par. Penn á meira að segja að
hafa bundið frú sína viö stól þegar hún neitaði að hlýða honum. En Madonna hefndi sín eins og sannri konu sæmir.
Listin að
Ríða sig frá vandanum
Fyrstu vikurnar eftir aö hafa
verið dömpað fara margir í pakk-
ann að riða sig frá vandanum.
Þetta er algjör klassíker og er fínt
til þess að niðurlægja makann.
Hér er málið að afgreiða alla sem
hann þekkir. Þetta ráð fellur þó
um sjálft sig ef þú ert sorrí á með-
an, attitúdið skiptir öllu. Alls
ekki að fara að tala um gömlu og
góðu dagana með makanum. Ef
einhver hjásvæfan fer að
kommentera á að þetta sé skrýtið
geturðu sagt glottandi: „Kynlífið
var nú aldrei hans sterkasta hlið.
Þess vegna er maður nú svona
sveltur.“
Framhjáhaid með þeim
fyrrverandi
Ef þú ert virkilega langrækinn
getur þú farið í það að halda fram
hjá með x-inu sem dömpaði þér
eftir að þú ert búinn að eignast
nýjan maka. í þessum bransa
skiptir öllu að vera fyrri til að ná
sér í maka, sérstaklega ef þú
sleist ekki sambandinu sjáifur. Ef
þú vinnur þann slag eru allar lik-
ur á því að gamli makinn sjái eft-
ir þér. Þú fullkomnar dæmið með
þvi að gera x-ið að viðhaldi sem
þú bjallar í þegar þér hentar.
Sitja um fórnarlamb
sitt
Flestir fríka út við tilhugsun-
ina um að einhver fylgist með
þeim. Þess vegna er algjör snilld
að fara í hlutverk „stalker". Stal-
ker er sá sem hringir á nóttunni
og skellir á. Keyrir löturhægt
fram hjá húsinu. Sendir svartar
rósir á Valentínusardeginum. Á
djamminu er hann alitaf nálægt
án þess að koma og tala við fórn-
arlamb sitt. Stalkerinn er alltaf
að.
Hrosshaus í rúmið
Allir muna eftir senunni í God-
father I þar sem maður sést
vakna í rúmi sínu sem er blautt
af blóði, blóði ómetanlegs gæð-
ings. Fyrir þá sem ekki geta redd-
að sér hrossi er svo sem hægt að
notast við önnur dýr og hamstrar
eru á fínum prís í Dýraríkinu.
Dauðir og blóðugir hamstrar,
mýs og rottur eru líka príma til
þess að hræða líftóruna úr stelp-
um.
Leigja götugengi
Flestir vija sjá fyrrverandi
makann þjást. Engin leið er betri
til þess en að beita ofbeldi þó Fók-
us mæli nú ekkert sérstaklega
með því. En við erum ekki lengur
svo vitlaus að gera það sjálf og í
nútímasamfélaginu er hægt að
kaupa allt. Þess vegna leigirðu
götugengi (það getur líka lamið
makann prófessjónal) til að berja
x-ið. Mikilvægt er að sjá til þess
að fiflið hljóti ekki varanlegan
skaða því þá er hægt að minnast
á atvikið næst þegar þið hittist á
djamminu. „Ég frétti að þú heföir
lent í óhappi um daginn.“
Stela kreditkortinu
Annað ráð sem alltaf virkar er
að meiða hatursmanninn fjár-
hagslega. Þetta er liklegt til þess
að fara verulega í taugarnar á
fólki. Steldu kreditkortinu, ávis-
anaheftinu eða bara öllu sem þú
getur frá x-inu og hann mun bil-
ast af reiði. Hér er mikilvægt að
reyna að gera skaðann sem per-
sónulegastan ef makinn fyrrver-
andi á ekki mikla peninga. Steldu
úrinu sem pabbi gaf hon-
um/henni rétt áður en hann fékk
sér nýja kellingu og fjölskyldu.
Reyndu líka að haga málum
þannig að það sé augljóst að þú
sért þjófurinn án þess að hægt sé
að sanna það.
Nota Netið
Þetta er augljóst að það eru
bara fávitar sem nota ekki þetta
tæki á sjálfri upplýsingaöld. Settu
inn allan hugsanlegan sora sem
þú veist um eða getur búið til.
Enginn getur varist Netinu. Ef þú
ert stelpa notar þú annað net sem
er ekki síður gott, net slúðurs og
sagna. Þú ferð í saumaklúbbinn
og segir öllum vinkonum þínum
frá því að gæinn sé ömurlegur í
rúminu, „mínútumaður“, og að
honum sé laus höndin. Hraðinn á
slikri sögu er geðveikur og mað-
urinn mun aldrei verða við kven-
mann kenndur eftir þetta.
Náðu fjölskyldunni á
þitt band
Hægt er að fara tvær leiðir. Þú
getur farið til fjölskyldunnar og
sagt þeim ömurlega hluti af mak-
anum og fá hana þannig til þess
að hata eigið afkvæmi. Það er
mjög sterkur leikur því ekkert er
jafnleiðinlegt og nöldur frá eigin
fjölskyldu. Hin leiðin sem er eig-
inlega sterkari er að vera æðisleg-
ur böddí fjölskyldunnar. Þú ert í
öllum fjölskylduboðum og ert fé-
lagi pabba hennar eða vinkona
mömmu hans. Þetta svínvirkar.
12
f Ó k U S 11. ágúst 2000