Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Qupperneq 3
e f n i
Gunnar Bjarki Gunnarsson skoöar heimasíðu sína, Klám.is.
■■■■■■
im&t&rS'
„Mér fannst svo erfitt aö leita
mér að almennilegu klámi á Net-
inu. Maður sér eiginlega ekkert
nema auglýsingar þegar maður
smellir á klámsíðurnar," segir
Gunnar þegar hann er inntur eftir
ástæðu fyrir uppsetningu Klám.is.
„Upphaflega hugmyndin var sú að
taka saman bestu pomósíðumar á
Netinu, gefa þeim einkunn og
tengja þær við okkur. Gimnar seg-
ir þá félagana mikla áhugamenn
um klám og á þá við sjálfan sig og
Amor, samstarfsmann sinn, sem
viU ekki koma fram undir eigin
nafni.
Löglegt klám
Aðgangur að heimasíðunni er
ókeypis og þar má fmna margvís-
legt efni. Til dæmis Beib vikunnar,
sem verður kynning á klæðlitlum
íslenskum stúlkum. Gamla Gamla
er reynd kona, að eigin sögn. Hún
svarar spumingum forvitinna les-
enda og skrifar pistla með kynlífs-
ráðleggingum. Einnig er hægt að
lesa frumlegar smásögur, í ætt við
slepjuleg klámmyndahandrit, og
misvel skrifaðar. Allar virðast sög-
umar ná hámarki sínu í enda-
þarmssamförum og dæmi um fyrri
Félagarnir Gunnar
og Amor eru búnir
að koma á fót
fyrstu íslensku
klámsíðunni á
Netinu, Klam.is.
Gunnar upplýsir
okkur um hvernig
skuli klæmast á
Netinu og mætir
að sjálfsögðu til
viðtals í þjóðbún-
ingi perverta:
hvítum hlýrabol
og leðurjakka.
titla eru „Bermúdasvalimar" og
„Rómantísk anal upplifun“. Einnig
má finna spjallþráð með kyn-
lífstengdum umræðum, spila leiki,
lesa brandara, taka þátt í skoðana-
könnunum eða tengjast alvöru
klámsíðum. Allt snýst þetta um
kynlíf, en Gunnar segir að líka sé
mikið lagt upp úr húmor. En er
ekkert ólöglegt við þetta framtak?
Gunnar er harður á því að svo sé
ekki. „Það eina sem við gerum, er
að stytta fólki leið að alvöru klám-
efni.“ Hann líkir starfseminni við
ferðaskrifstofu sem auglýsi og selji
sukkferðir til Amsterdam og segist
hafa ráðfært sig við lögfróða menn
um málið.
íslenskur playboy
Aðspurður um aðgang krakka
svarar hann því til að það sé
vandamál foreldra. „Ég ber ekki
ábyrgð á bömum annarra,“ segir
hann. „Fólk ræður því sjálft hvort
það skoðar síðuna og ef einhverj-
um ofbýður efnið á hann hvort eð
er ekkert erindi þangað,“ áréttar
Gunnar og bendir á teygjanleika
hugtaksins klám. Sjálfur kippir
hann sér ekkert upp við trylltar
samfarir fólks, hvemig sem þær
fara fram, en finnst lítið koma til
dýra- og bamakláms enda hefur
hann ekki miðlun sliks efnis í
huga. Strákunum þykja viðtökum-
ar hafa verið góðar. „Núna fáum
við um þúsund gesti á hverjum
degi,“ tilkynnir Gunnar og er hissa
á því hversu margar stelpur hafa
sýnt henni áhuga. „Einu neikvæðu
viðhrögðin voru þegar einhverjar
mömmur fóru að rífa sig.“ Það
mun hafa farið fyrir brjóstið á ein-
hverjum þegar 14 ára stelpa var að
leitast eftir kynlífi við sér eldri
menn á spjallvefnum.“... En þetta
gæti allt eins hafa verið gamall
karl, það vitum við ekkert um. Við
tókum samt auglýsinguna út,“ seg-
ir Gunni og tekur þessu létt. Hann
á sér fyrirmynd í Hugh Hefner, út-
gefanda Playboy og þætti ekki
verfa að eignast óðalssetur af því
tagi sem Hefner á og deilir fúslega
með fyrirsætum og klámmynda-
leikkonum. Klám.is verður með
kynningu í þættinum Hausverk
um helgar, þessa helgina, og samn-
ingaviðræður eru hafnar um sam-
starf við strípidansstaði. Það má
þvi með sanni segja að Gunnar
Bjarki Gunnarsson sé orðinn net-
klámkóngur íslands, tvítugm’ að
aldri. En veit mamma hans af
þessu?
Ekkert kjaftæði, bara tóniist
Útvarpsstöðin 101 Reykjavík á
bylgjulengdinni 101,5 er væntanleg
í loftið innan tíðar og þá mun aldeil-
is kveða við nýjan tón í viðtækjum
landsmanna. Almenningur þarf
enga sjálfumglaða útvarpsstráka til
að segja hvað klukkan sé milli laga
eða hvaða lag með Jennifer Lopez
sé næst. Ó, nei. Á 101 Reykjavík
verður spilað rokk frá 1975 til árs-
ins 2000. „Rokk sem ekki hefur
fengið að heyrast á öðrum útvarps-
stöðvum,“ segir Birgir Ragnar
Baldursson útvarpsstjóri. Engir
þulir eða dagskrárgerðarfólk verður
spjallandi á milli laga, engir leikir
og ekkert talmál, bara tónlist allan
sólarhringinn. Þá verður nýr háttur
hafður á með auglýsingar sem hlust-
endur kunna eflaust vel að meta.
Týndur hlustendahópur
Markhópurinn verður fólk frá þrí-
l'TIlia i: l.-.’A.''í'T.'Al X. UtiTa
Hægt er að forvitnast um væntan-
iega útvarps- og sjónvarpsstöö á
fmlOl.is og tvl.is.
Birgir útvarpsstjóri.
tugu til iimmtugs en Birgi finnst sá
hlustendahópur hafa gleymst og að
allir séu að sinna hópnum 16 til 25
ára. „Svo er ég líka hundleiður á
þessu kjaftæði. Nokkrar útvarps-
stöðvar hafa lagt upp með það að
vera bara með tónlist en fljótlega
byrjar svo þáttagerðarfólk á sömu
stöðvum.“ Sendingar 101 Reykjavík-
ur munu nást á Faxaflóasvæðinu og
fyrsta útsending er áætluð í október.
Allt í opinni dagskrá
Þaö er Birgir og bróðir hans,
Hólmgeir, auk bandaríska fyrirtæk-
isins York Business Systems, sem
standa að stofnun útvarpsstöðvarinn-
ar og mynda hlutafélagið Útvarp 101
Reykjavík. En það er fleira í farvatn-
inu hjá teyminu, nefnilega ein sjón-
varpsstöð eða svo. Hólmgeir átti og
rak Skjá 1 til að byrja með þegar
Skjárinn var að stiga sín fyrstu spor
og þar vann Birgir einnig. Þeir
þekkja þvi til sjónvarpsstarfsemi og
eins hefur Birgir unnið hjá íslenska
útvarpsfélaginu og á Fínum miðli.
Eða eins og Birgir segir sjálfúr og
vitnar í stofnun Skjás eins: „Við
kunnum þetta, höfum gert þetta áður
og því er ekkert því tO fyrirstöðu að
gera þetta aftur.“ Stöð 1 hefur göngu
sina síðar í haust. Til að byrja með
verður lítið lagt upp úr innlendri dag-
skrárgerð þar sem hún er kostnaðar-
söm en þeim mun meira lagt upp úr
þekktu erlendu efni. „Við erum t.a.m.
komnir með VIP með Pamelu Ander-
son og Third Rock From The Sun auk
fleiri þátta og úrvalskvikmynda. Svo
erum við að sjálfsögðu með eitthvað
léttblátt á laugardagskvöldum."
Fréttastofa verður engin að sögn
Birgis.
Sendis beðið
Þegar Birgir er spurður hversu
mikið fjármagn þurfi til að koma af
stað útvarps- og sjónvarpsstöð verð-
ur frekar fátt um svör. „Það þarf
heilan helling en svo reka stöðvarn-
ar sig sjálfar með auglýsingatekj-
um.“ Hann segir allt til reiðu fyrir
fyrstu útsendingu og að aðeins sé
verið að bíða eftir útvarpssendinum
sem sé á leið til landsins. Þangað til
hlustum við á gömlu, ofurhressu
kappana sem eru að springa úr stuöi
alla morgna, alla daga. Og klukkan
er tíu mínútur gengin í tíuna!
Francisco Marecos Olmedo:
Paragvæskur trú-
bador
Napster og íslenskar
hljómsveitir
Margrét Eir:
Vinnualki frá helvíti
Wyclef:
Ræsti-
tæknir-
inn með
nýja
piötu
irsteinn Guð-
mundsson:
... er
lyftinga-
maour
Skólafólk í
neyslu-
kapp-
hlaupinu
Dagný Hulda
Erlendsdóttir:
Fjör í Rúss
landi
t1 í f i ö
MlíiMmiiM
Jackie Chan í villta vestrinu
Bvfluonakónaulær í fiskabúri
Fókus bvður á Shanahai Noon
Svnaiandi sætar i Sambíóunum
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Teitur af söng-
konunni og leikkonunni Margréti Eir.
25. ágúst 2000 f Ó k U S