Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 DV Fréttir Gunnar Þorsteinsson um brotthlaup safnaðarmeðlima sinna: - Christ Gospel Church sendi mann til að kljúfa Krossinn Niöurskuröur Mest er skorið niður í Reykjavík. F j árlagaf rum varp: Mesti niður- skurðurinn í Reykjavík - en virkjanavegir víkja Niöurskurður stj ómarflokkanna á útgjöldum ríkis- sjóðs mun engin áhrif hafa á fram- kvæmdir við Reykjanesbraut né Suðurstrandarveg á Reykjanesi. Þá mun lagningu bundins slitlags á ®eir Haarde. landsbyggðinni verða framhaldið samkvæmt áætl- un. Alls nemur niðurskurður í vega- málum um 800 milljónum. Helstu vegaframkvæmdir sem frestað verð- ur eru mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar, flutningur Hringbrautar og þjónustuvegir við Reykjavíkurflugvöll. Þá mun ætlun- in að fresta framkvæmdum við Þjórsárbrú og lagningu virkjana- vega á Austurlandi. -GAR Drengur slasast: Féll af stóra stökkbrettinu Ellefu ára gamall drengur féll af stóra stökkbrettinu i Sundhöll Reykjavíkur á sunnudag. Drengur- inn hafnaði því miður ekki í laug- inni heldur á gúmmímottu á gólf- inu. Að sögn lögreglu rotaðist hann við fallið en komst skömmu síðar til meðvitundar. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann i Fossvogi. Að sögn læknis á vakt á slysadeild er reiknað með að dreng- urinn útskrifist í dag. Tildrög slyss- ins munu ókunn. -aþ salta matinn minn betur heldur taka þessar pillur.“ Sársaukafullt uppgjör Gunnar i Krossinum segir að uppgjörið við Kristján í Bethaníu og hans fólk hafi verið sársaukafullt og skilið eftir ör. En nú séu erjurnar að baki og starfsemi Krossins hafi aldrei fyrr staðið með jafn miklum blóma og allt á góðri siglingu: „Við erum hamingjusöm, safnaðarstarfið hefur aldrei verið betra og ijárhag- urinn aldrei betri. Við blómstrum." Gjaldkerinn á línunni Gunnar í Krossinum segir það lúalegt af Kristjáni i Bethaníu að staðhæfa að skuldir Krossins nemi á þriðja hundrað mUljóna króna þegar reikningsuppgjör sýni allt aðra tölu. Hann segist ekki skilja hvað manninum gangi til annað en koma höggi á Krossinn með lygum um fjárhagsstöðu sem Kristján ætti reyndar að þekkja manna best eftir að hafa gegnt starfi gjaldkera hjá Krossinum svo árum skiptir. Gunn- ar teygir sig í símann og hringir í Kolbein Sigurðsson, núverandi gjaldkera Krossins, sem staddur er í sumarhúsi í Árnessýslu. Gunnar stillir samtalið inn á hátalarakerfi símans: „Hverjar eru skuldirnar?" spyr Gunnar. „Þær eru eitthvað innan við hundrað milljónirnar," svarar Kol- beinn gjaldkeri. „Ætli þær séu ekki um 50 milljón- ir?“ spyr Gunnar. „Ég veit það ekki alveg,“ svarar Kolbeinn. „Þær eru kannski 70 milljónir," segir Gunnar og slítur samtalinu við gjaldkerann. Manhattan höfuðborgarinnar „Ég vissi að við vorum að taka áhættu þegar við hófum bygginga- framkvæmdir hér en ég sagði alltaf að miðborgin myndi elta okkur hingað. Það er nú að rætast með til- komu stærstu verslunarmiðstöðvar landsins hér í næsta nágrenni okk- ar. Þetta verður Manhattan höfuð- borgarsvæðisins þannig að fjárfest- ing okkar hér í þessu húsnæði er gulltrygg." Gunnar er á leið til Bandaríkj- anna til að predika. Hann tekur með sér bömin sín og rokkhljómsveit DV-MYND E.ÓL. Gunnar í Krossinum og Sigurbjörg dóttir hans Við erum hamingjusöm og á fullri siglingu inn í framtíðina. með Pál Rósinkrans í fararbroddi. Fyrsta predikunin er í Tampa í Flórída á miðvikudaginn og að henni lokinni rokktónleikar með Páli og félögum. Þaðan verður hald- ið til Baton Rouge í Louisiana og dagskráin endurtekin. Ferðalagi Gunnars i Krossinum og rokkhljóm- sveitar Páls Rósinkrans lýkur svo í Pennsylvaníu. Erfiöur vetur „Síðasti vetur er sá erfiðasti sem ég hef lifað en nú hefur Drottinn blessað þetta allt,“ segir Gunnar og á þar ekki einvörðungu við deilum- ar í Krossinum heldur einnig það að hann missti Sigurbjörgu móður sina á sviplegan hátt á árinu. „En við höldum áfram. Við erum hamingjusöm og á fullri siglingu inn í framtíðina. Blessaður sé Drott- inn,“ segir Gunnar í Krossinum og heldur þar með ásamt fylgdarliði sínu út á Keflavíkurflugvöll á leið í víking til Ameríku - alls ekki af baki dottinn. -EIR að hundrað safnaðarmeðlima yfir í nýtt trúfélag sitt er hann nefnir Bet- haníu. Vildi auknar vegtyllur „Kristján vildi auknar vegtyllur hér í Krossinum en fékk ekki. Hon- um var ekki treystandi fyrir meim því manninn skortir alla yflrsýn. Þá nýtti hann sér ákveðna óánægju sem hér var og fór með liðið. Ég gæti trúað að hann hafi farið með um 20 prósent safnaðarmeðlimanna. Kristján er ekkert annað en strengjabrúða Christ Gospel Church og Bethanía er trúarregla frekar en söfnuður. Þetta era nytsamir sak- leysingjar en sjálfur er ég feginn að þessum erjum er lokið. Þetta upp- gjör var óumflýjanlegt," segir Gunn- ar í Krossinum og býður After Eight, samhliða því sem hann tekur inn salt í pilluformi að ráði læknis. „Ég fór í allsherjar tékk og læknir- inn komst að því að mig vantaði salt í líkamann. Ég á hins vegar ekki að „Christ Gospel Church í Banda- ríkjunum vildi leggja starfsemi Krossins undir sig og við því brugð- umst við með því að slíta samstarf- inu. Þetta gerðist fyrir allnokkru en þeir ólu á óánægjunni og sendu meira að segja mann hingað til lands til að kljúfa Krossinn," segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum og hallar sér aftur í leðurstólnum á skrifstofu sinni í höfuðstöðvum safnaðarins f Kópavogi. Hann er svartklæddur og talar eins og sá sem valdið hefur. Sigurbjörg dóttir hans situr á móti honum og sam- sinnir öllu sem faðir hennar segir. Þau eru bæði óánægð og sár með yf- irlýsingar fyrrverandi gjaldkera Krossins, Kristjáns Rósinkransson- ar, sem staðhæfir að Krossinn sé klofinn og hann hafi náð hátt í ann- Frétt DV um klofninginn í Krossin- um Kristján í Bethaníu er ekkert annað en strengjabrúða Christ Gospel Church, segir Gunnar í Krossinum um fyrrum gjaldkera sinn. Uppgjör óumflýjanlegt Veörið i kvöld Bjart veður noröaustan til Hæg suðlæg eða breytileg átt. Súld verður með köflum sunnanlands og viö vesturströndina en bjart veður norðaustan til. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast í innsveitum norðaustanlands. REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag í kvöld 20.53 20.48 Sólarupprás á morgun 06.05 05.46 Síðdegísflóð 18.28 23.01 Árdegisflóð á morgun 06.53 11.26 Skydngai r á v&Sk trtá&mm ^VINDATT 10V-HITI -10° \ VINDSTYRKUR V mrítlT í metrum á sokúrxtu rKUS l HEiÐSKÍRT v- '%> o IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ V.., Q Q RIGNiNG SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA V ir ===== ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA FatrO Ágætis færö Allir helstu þjóövegir eru greiöfærir. Hálendisvegir eru flestir færir jeppum og stærri bílum.Vegurinn í Hrafntinnusker er lokaður og vegur F88 í Herðubreiðarlindir er lokaöur vegna vatnavaxta við Lindaáa. Rofar til suövestanlands Norðaustan 5 til 10 m/s. Rigning verður á austanverðu landinu, súld við norðvesturströndina en rofar til suðvestanlands. Hiti 6 til 15 stig, mildast suðvestan til FlnmiUi Vindur: 5-8 m/» í Hiii 6° til 15° Vindur: 5-8 Hiti 8° til 17° ’ Mlnnkandi norðanátt. Smáskúrir norðaustan tii, en littskýjað sunnan og vestan tll. Fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður. AKUREYRI alskýjaö 6 BERGSTAÐIR skýjaö 7 B0LUNGARVÍK alskýjaö 8 EGILSSTAÐIR 2 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 8 KEFLAVÍK úrkoma 8 RAUFARHÖFN skýjaö 5 REYKJAVÍK alskýjaö 8 STÓRHÖFÐI úrkoma 10 BERGEN alskýjað 13 HELSINKI skýjaö 14 KAUPMANNAHÖFN þoka 15 OSLÓ rigning 15 STOKKHÓLMUR 16 ÞÓRSHÖFN rigning 10 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 9 ALGARVE léttskýjaö 23 AMSTERDAM þokumóöa 14 BARCELONA heiöskírt 20 BERLÍN þoka 12 CHICAGO skýjaö 24 DUBLIN þoka 8 HALIFAX heiöskírt 12 FRANKFURT skýjaö 12 HAMBORG skýjaö 12 JAN MAYEN skýjaö 4 LONDON skýjaö 11 LÚXEMBORG rigning 12 MALLORCA heiöskírt 17 MONTREAL heiöskírt 16 NARSSARSSUAQ alskýjað 8 NEW YORK þokumöða 21 ORLANDO skýjaö 23 PARÍS skýjaö 13 VÍN skýjaö 18 WASHINGTON þokumööa 19 WINNIPEG léttskýjaö 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.