Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Page 8
8
Viðskipti
Umsjón: Víðskiptablaðiö
Hagnaður Þróunarfélags
íslands 962 milljónir
Þróunarfélag íslands hf. skilaði
1.370 millj. kr. hagnaði fyrir skatta á
fyrri helmingi ársins 2000. Þegar tek-
ið hefur verið tillit til skatta að fjár-
hæð 408 millj. kr. nemur hagnaður
ársins 962 millj. kr. samanborið við
349 millj. kr. árið áður og hækkar því
um 175% milli ára. Stærsta einstaka
eign félagsins er um 26% hlutur í
Opnum kerfum hf. sem hefur hækkað
verulega á tímabilinu.
Fram kemur i frétt frá fyrirtækinu
að raunávöxtun hlutabréfa í eigu fé-
lagsins nam 96,5% á ársgrundvelli.
Hagnaöur
Austurbakka
13 milljónir
Austurbakki hf. var rekinn með 13
milljóna króna hagnaði á fyrstu sex
mánuðum þessa árs, samanborið við
17,5 miiljóna króna hagnað á sama
tímabili árið á undan. Sölutekjur
jukust um 14% frá sama tíma í fyrra
og voru 869 milljónir en aðrar tekjur
námu 24,9 milljónum á móti 29,6
milljónum í fyrra. Afskriftir námu
5,3 miiljónum og nær áttfolduðust
frá fyrstu sex mánuðum ársins 1999.
Fjármunagjöld hækka úr 1,2 milljón-
um í 5,9 milljónir en inni í þeirri
tölu er gjaldfærð verðbreytinga-
færsla upp á 2,8 milljónir.
Fram kemur í frétt frá Austurbakka
að kostnaðarverð seldra vara vex hlut-
fallslega en laun og launatengd gjöld
hafa aukist um 22 milljónir milli ára
en þar af er gjaldfærð eftirlaunaskuld-
binding 2,8 milljónir, þannig að raun-
hækkun launa er 19,1 miiljón. Ástæð-
an er fleira starfsfólk og einnig hafa
kjarasamningar og almennt launa-
skrið haft áhrif á þessa tölu.
Félagið flutti í nýtt og glæsilegt
eigið húsnæði 7. apríl sl. og hefur
flutningurinn kallað á umtalsverð
útgjöld. Einnig eru með þessu komn-
ar aðrar forsendur í liðinn afskriftir.
Afskriftir, sem er reiknuð tala,
hækka úr 720 þúsundum í 5,3 millj-
ónir. Fjármunagjöld hækka úr 1,2
milljónum í 5,9 milljónir en inni í
þeirri tölu er gjaldfærð verðbreyt-
ingafærsla upp á 2,8 milljónir.
Nettóhagnaður eftir skatta verður
12.974 þúsund á móti 17.502 þúsund á
síðasta ári. Ef litið er tO reiknaðra
liða, sem áður er getið, er afkoman
betri eftir sex mánuði 2000 i saman-
burði við sex mánaða uppgjör 1999.
Að teknu tilliti til ofangreindra
þátta telur stjóm félagsins að niður-
staða reikninganna sé vel viðunandi
en bendir jafnframt á að árið í heild
sýni betri mynd af rekstrinum þar
sem seinni hluti ársins ætti að koma
sterkar inn í myndina.
- eykst um 175% frá sama tímabili í fyrra
Nafnávöxtun hlutabréfa Þróunarfé-
lagsins sem skráð eru á Aðailista
Verðbréfaþingsins nam 125,2%. Til
samanburðar má geta þess að heildar-
vísitala Aðallistans hækkaði um 3% á
tímabilinu að mótteknum arði með-
töldum sem jafngildir 6% hækkun á
ársgrundvelli.
Gengishagnaður hlutabréfa nam
alls 1.536 millj. kr., þar af er innleyst-
ur hagnaður vegna sölu hlutabréfa
369 millj. kr. og óinnleystur gengis-
hagnaður 1.167 millj. kr. Á tímabilinu
vora keypt hlutabréf fyrir 2.286 millj.
kr. og seld fyrir 2.252 millj. kr. Geng-
istap vegna skuldabréfaeignar félags-
ins nam 68 miilj. kr. á tímabilinu og
er það fært að fullu til gjalda í rekstr-
arreikningi.
Arðsemí eigin fjár 74,3%
í lok tímabilsins nemur eigið fé fé-
lagsins 3.833 millj. kr. eða um 58% af
heildareignum. Arðsemi eigin fjár
var 74,3% á ársgrundvelli. Á timabil-
inu hækkuðu hlutabréf í Þróunarfé-
lagi íslands um 42,8% að teknu tilliti
til 20% arðgreiðslu. Hlutafé félagsins
er 1.100 miilj. kr. og er félagið skráð á
Aðallista Verðbréfaþings íslands hf.
Hluthafar eru um 480 í lok júní.
Stjóra félagsins hefur samþykkt að
rafræn skráning hluta í félaginu
verði tekin upp í haust.
Hlutabréf sem eru skráð á Verð-
bréfaþingi nema 70% af heildareign-
um og mun afkoma félagsins á seinni
hluta ársins því ráðast að miklu leyti
af þróun á innlendum hlutabréfa-
markaði.
Baugur með 291 milljón í hagnað
- var 205 milljónir á sama tímabili í fyrra
Hagnaður af rekstri Baugs
hf. fyrstu 6 mánuði ársins var
291 milljón króna sem er betri
afkoma en á sama tímabili á
síðasta ári en þá nam hagnað-
ur 205 milljónum króna.
Bætt afkoma félagsins
skýrist einkum af hagræðingu
í rekstri og breyttri sölusam-
setningu, það er stærri hluti
sölu fer nú fram á sérvöru-
sviði félagsins. Þessi hagnaður
er aðeins lægri en meðaltalsspá verð-
bréfafyrirtækjanna í Viðskiptablaðinu
en þar var spáð 334 milljóna
hagnaði.
Hagnaður fyrir fjármagns-
gjöld og afskriftir var 759 miilj-
ónir króna en var 416 milljónir
á sama tímabili 1999. Þá jókst
veltufé frá rekstri um 226 miilj-
ónir króna sem er 96% aukning
frá fyrra ári.
Jón Asgelr
Jóhannesson.
Jákvæð samlegðaráhrif
Eins og áður segir hefúr samsetning
sölu Baugs breyst mjög á tímabilinu í
samræmi við stefnumörkun félagsins.
Sífellt stærri hluti sölunnar er nú í sér-
vöru og lyfjum en þessum rekstri fylg-
ir hlutfallslega hærri launakostnaður.
Félagið hefur aukið mjög þróunar-
vinnu vegna undirbúnings stórra verk-
efna sem ráðist verður í á næstunni.
Annar rekstrarkostnaður hefur
hækkað óverulega eða um 12 milljónir
króna, um 1,3%. Er þetta skýrt merki
um þá lækkun kostnaðar sem til er
komin vegna samlegðaráhrifa og
markvissari stýringu vöruflæðis og
vöruvals.
Skeljungur kaupir Hans Petersen
í fyrradag var gengið frá kaupum
Skeljungs hf. á 90% hlut í Hans Peter-
sen á genginu 7,35, eða fyrir samtals
um 670 milljónir króna. Miðað við
kaupverðið er Hans Petersen metinn
á 740 milljónir króna. Seljendur
hlutabréfanna eru hópur hluthafa,
undir forystu Hildar Petersen, stjóm-
arformanns félagsins, og Islands-
banki-FBA. í frétt vegna kaupanna
kemur fram að óskað verður eftir að
Hans Petersen verði tekið af Vaxtar-
lista VÞÍ og mun Skeljungur í fram-
haldinu óska eftir innlausn annarra
hlutabréfa í félaginu. Til stendur að
halda rekstri Hans Petersen áfram
undir sama nafni og með svipuðu
sniði og verið hefur.
Áður en kom að kaupunum átti
Hans Petersen-fjölskyldan samanlagt
u.þ.b. 54% hlutafjár i fyrirtækinu en
Íslandsbanki-FBA u.þ.b. 35% sem
hann keypti nýverið.
Bankinn og Hildur Petersen,
stjómarformaður félagsins, áttu sam-
vinnu um sölu á hlutunum til Skelj-
ungs hf., en bankinn hafði milligöngu
um samninga á milli aðila.
Aætluð ársvelta 1100 mil|j-
ónlr
Áætluð ársvelta félagsins árið 2000
er 1,1 milljarður króna. Ekki er gert
ráð fyrir breytingum í mannahaldi
hjá félaginu, umfram það sem eðlilegt
má teljast á tímamótum sem þessum.
Boðað verður til hluthafafundar í
Hans Petersen hf. á næstunni þar
sem félaginu verður kosin ný stjóm.
Með kaupum þessum hyggst Skelj-
ungur hf. enn víkka út starfsvettvang
sinn og þátttöku í viðskiptalífmu og
þar með renna fleiri styrkum stoðum
undir rekstur Skeljungs hf. Skeljung-
ur hf. hefur á undanfomum árum
haslað sér völl í smásöluverslun með
opnun Select-verslana á stærstu og
nýjustu Shell-þjónustustöðvum sín-
um. Að auki hefur verið boðið upp á
stóraukið vöruval á öðrum Shell-
þjónustustöðvum félagsins. Leitast
verður við að samræma þá þætti í
rekstri beggja félaganna sem augsýni-
lega falla vel saman. Vonast er til að
það geti leitt til verulegrar hagræð-
ingar í rekstri fyrirtækjanna þegar
fram líða stundir. Aðalskrifstofa
Hans Petersen hf. er að Suðurlands-
braut 4 í Reykjavík en þar eru einnig
höfúðstöðvar Skeljungs hf. Augljóst
er því að rask vegna eigendaskipta
verður í lágmarki.
Nú skokst allt út
40% afsláttur
á reiðhjólum
Áður 28.900 nú 17.900 ,
úrval aukahlutáföC AQ
með 50%&fslœtti tpö hjól
17
Opið 10-18 virka daga
sendum um«
EVRÖ
Skeifunni • Grensásvegi 3
Sími: 533 1414 • Fax: 533 1479 • www.evro.is
Hagnaður Sparisjóðs
vélstjóra 72 milljónir
- fyrstu sex mánuði ársins
Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra fyrstu
sex mánuði ársins 2000 nam rúmri 72,1
milljón króna fyrir skatta, samanborið
við 90,3 milljónir króna á sama timabili
árið 1999. Er hér um að ræða 20% sam-
drátt hagnaðar.
í frétt frá Sparisjóðnum kemur fram
að hann færði verðbréf með ábyrgð rik-
issjóðs á markaðsgengi en gengi þeirra
lækkaði verulega á timabilinu og eru
því orsök versnandi afkomu. Áhrif
gengislækkunarinnar er um 90 milljón-
ir króna. Þessi gengislækkun hefúr nú
að hluta til gengið til baka. Að teknu til-
liti til skatta var hagnaður fyrstu sex
mánuði ársins 40,6 milljónir króna í
samanburði við 57,2 milljónir króna á
sama tíma árið 1999. Hagnaður hefur
því dregist saman um 16,6 milljónir
króna eða um 29%.
Samkvæmt árshlutauppgjöri voru
vaxtatekjur alls 716,3 milljónir króna og
jukust um 14% í samanburði við sama
tímabil árið 1999. Vaxtagjöld hækkuðu á
sama tíma um 38% og námu alls 557,7
milljónum króna. Hreinar rekstrartekj-
ur Sparisjóðsins námu 361,5 milljónum
króna en voru 341,9 milljónir króna á
sama tíma árið 1999. Hreinar rekstrar-
tekjur höfðu því aukist um 6%. Framlag
í afskriftarreikning útlána var 26,3 millj-
ónir króna en var 23,5 milljónir króna á
sama tímabili árið 1999.
Heildarfjármagn þann 30. júní 2000
var 15.503,2 milljónir króna og hefúr
dregist saman um 680,9 milljónir króna
frá 31. desember 1999. Arðsemi eiginfjár
var 6%. Eiginfjárhlutfall samkvæmt
CAD-reglum er 10,1% en var 9,4% um
síðustu áramót.
Heildarinnlán Sparisjóðsins ásamt
lántöku námu 11.079,6 milljónum króna
og heildarútlán ásamt markaðsskulda-
bréfum námu 12.556,9 milljónum króna.
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
DV
Þetta helst
WWWWiMIWI
HEILDARVIÐSKIPTI 864 m. kr.
, Hlutabréf 327 m. kr.
Húsbréf 291 m. kr.
MEST VIÐSKIPTI
; Marel 60 m. kr.
i O Islandsbanki-FBA 59 m. kr.
Baugur 49 m. kr.
MESTA HÆKKUN
© Þróunafélag íslands 11,7%
© Marel 6,1%
© Eignarh.fél. Alþýðubankinn 4,8%
MESTA LÆKKUN
1 © Þorbjörn 5,8%
©Tæknival 5,6%
| © Jarðboranir 4,4%
Úrvalsvísitalan 1538,1 stig
Breyting O -0,429%
Lægsti sparn-
aður í Banda-
ríkjunum frá
upphafi
Tekjur í Bandaríkjunum jukust
aðeins í júlí en neysla jókst mikið
sem þýðir að fjárfesting fór niður og
náði sínu lægsta gildi frá því mæl-
ingar hófust. Neysla almennings
jókst um 0,6% milli júní og júlí þeg-
ar tekjurnar jukust um 0,3%. Spam-
aður var neikvæður um 0,2% sem
er lægsta gildi frá því mælingar
hófust 1959.
MESTU VIÐSKIPTÍ
i © Marel 585.990 i
! O Islandsbanki-FBA 370.989
| O Össur 331.826
; 0 Eimskip 219.525
Q Baugur 179.389
MESTA HÆKKUN *
0 Hl.b.sj. Búnaðarbanka 42 %
O Delta hf. 21 %
o Skeljungur 14 %
0 Olíufélagið 13 %
10 Þróunarfélagiö 13 %
I i 11....i—— ....................
síöastliöna 30 dæa
; O Loðnuvinnslan hf. -28 %
O Vaki fiskeldiskerfi hf. -21 %
© SH -17 %
0 Þormóður Rammi -13 %
e
Aukið peninga-
magn i Evrópu
Seðlabankinn í Evrópu sagði að
M3 hefði vaxið um 5,3% í júli miðaö
við ársgrundvöll en það er þó lægra
en í júní þegar aukningin var 5,4%
sem er metvöxtur. Takmark seðla-
bankans er að halda vextinum í
4,5% á ári.
MBdow jones 11252,84 O 0,54%
1 • Inikkei 17141,75 O 0,23%
Ws&p 1514,09 O 0,51%
Wnasdaq 4070,59 O 0.69%
SSfTSE 6378,40 O 1,40%
■F^pax 7282,39 O 0,77%
IDcacao 6569,04 O 0,70%
GENGIti IH 29.08.2000 kl. 9.11
KAUP SALA
ffj Dollar 80,170 80,570
ÉiO Pund 117,490 118,090
1*1 Kan. dollar 54,040 54,380
gg Pönsk kr. 9,6940 9,7470
|@Norekkr 8,9430 8,9920
E3 Sænsk kr. 8,5740 8,6210
9014. mark 12,1554 12,2285
n Fra. franki 11,0179 11,0841
H Belg. franki 1,7916 1,8024
1 Q Sviss. franki 46,7600 47,0200
C3 Holl. gyllini 32,7960 32,9931
3 Pýskt mark 36,9525 37,1746
83 Ú. lira 0,03733 0,03755
QQ Aust. sch. 5,2523 5,2838
M Port. oscudo 0,3605 0,3627
[jj 1 Spá. peseti 0,4344 0,4370
| < |Jap. yon 0,75120 0,75570
1 ‘ jírekt pund 91,767 92,319
SDR 104,8400 105,4700
JUecu 72,2729 72,7072