Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Side 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
DV
Fram til orrustu
Filippseyskir hermenn yfirgefa búöir
sínar á Jolo-eyju til aö berjast vjö
uppreisnarmenn múslíma sem hafa
fjölda gísla á valdi sínu.
Mannræningjar á
Jolo-eyju á flótta
Fjölmargir uppreisnarmenn
múslíma á Jolo-eyju á Filippseyjum
lögðu á flótta þaðan í gær undan
árásum filippseyska hersins. Til-
gangur hemaðaraðgerðanna var að
frelsa gíslana 22 sem uppreisnar-
mennirnir hafa í haldi. Nokkrir
uppreisnarmenn hafa fallið i árás-
unum og fleiri hafa verið teknir
höndum.
Stjórnvöld á Filippseyjum sögðu
síðdegis í gær að gíslamir væru all-
ir á lífi.
„Allar fregnir um að nokkrir gísl-
anna hafi fallið eru rangar að því er
við best vitum. Allir eru á lífi,“
sagði herforinginn Angelo Sayyaf,
eftir að hann hafði greint Joseph
Estrada og stjórn hans frá gangi
mála.
Frönsk stjómvöld sögðu í gær að
þau hefðu ekki neinar traustar upp-
lýsingar um hagi tveggja franskra
gísla. Frakkar eru andvígir hemað-
araðgerðum Filippseyjastjórnar.
VIII lægri skatta
á bensín og bíla
Angela Merkel, leiðtogi kristi-
legra jafnaðarmanna sem eru í
stjórnarandstöðu í Þýskalandi,
hvatti til þess í gær að álögur á elds-
neyti og bíla yrðu lækkaðar. Hún
hitti fulltrúa flutningabílstjóra og
bænda um helgina.
Stjórnvöld sögðu að þau hefðu aft-
ur á móti engin áform um að lækka
umhverfisskatta eða aðra eldsneyt-
isskatta. Stjórnvöld ætla að ræða
leiðir í vikunni til að létta ýmsum
hópum byrðina vegna hás eldsneyt-
isverðs, svo sem eftirlaunaþegum,
láglaunafólki og þeim sem þurfa að
ferðast um langan veg í og úr vinnu.
Þýskir fjölmiðlar sögðu í gær að
stjórnin myndi hittast þegar í dag,
mánudag, til að ræða aðgerðir.
Þýskir flutningabílstjórar og
bændur mótmæltu háu eldsneytis-
verði í síðustu viku, eins og kolleg-
ar þeirra víða í Evrópu, en engin
mótmæli vora í gær.
Fellibylurinn Gordon stefnir á Flórída:
Þúsundum skipað
að fara að heiman
Um 280 þúsund manns var skipað
að yfirgefa heimili sín í dreifðum
byggðum við Mexíkóflóaströnd
norðanverðs Flórída í gær vegna
flóðahættu af völdum fellibylsins
Gordons sem stefndi þangað.
Veðurfræðingar áttu von á því að
fellibylurinn myndi ná landi ein-
hvern tíma í nótt að íslenskum
tíma. Yfirvöld vöruðu við því að
veðurhamurinn kynni að valda flóð-
um og einnig var talið að úrhellis-
rigning gæti skapað hættu. Ský-
strokkar gætu einnig myndast af
völdum fellibylsins. Skemmdir að
öðru leyti gætu þó orðið litlar, að
sögn embættismanna.
Hvassviðri og úrhellisrigning var
við Mexíkóflóaströnd Flórída í gær.
Fólk í borgum og bæjum hamstraði
matvæli og aðrir leituðu skjóls í sér-
stökum miðstöðvum.
Hermenn í þjóðvarðliðinu voru
við öOu búnir, svo og björgunar-
sveitir. Starfsmenn geimferðastöðv-
Fellibylur yfir Mexíkóflóa
Svona leit fellibylurinn Gordon út
þegar gervitungl tók mynd af honum
á föstudag. Stormurinn stefndi á
Flórída í gærkvöld og búist var viö
aö hann myndi valda flóöum.
arinnar á Canaveralhöfða voru
einnig við öllu búnir í gær ef óveðr-
ið skyldi taka stefnuna þangað.
„Þessi fellibylur mun hafa áhrif í
öllu ríkinu," sagði Jeb Bush ríkis-
stjóri í stjómstöð almannavama i
ríkishöfuðborginni Tallahassee.
Rikisstjórinn sagði fréttamönn-
um að íbúar hvarvetna á Flórída
ættu að taka alvarlega hættuna af
völdum Gordons, ekki aðeins fólk
sem býr þar sem auga fellibylsins
fer yfir.
Að sögn sérfræðinga í fellibylja-
miðstöðinni í Miami mun draga úr
veðurhamnum um leið og Gordon
fer yfir land. Vindhraðinn í gær
mældist um 280 kílómetrar á
klukkustund.
Gordon gerði mikinn usla i Mið-
Ameríkuríkinu Gvatemala þegar
hann fór þar yfir. Nítján létust af
hans völdum og fleiri slösuðust.
Gordon er sjöundi fellibylurinn
sem fær nafn á þessu tímabili.
Grjótkast á Gazaströndinni
Þeir voru ekki allir háir í loftinu, Palestínumennirnir, sem lentu í átökum viö ísraelska hermenn í gyöingalandnema-
byggöinni Netzarim á Gazaströndinni í gær. Palestínumennir köstuöu grjóti í hermennina sem svöruöu meö því aö
skjóta gúmmíhúöuðum kúlum á ungmennin. Aö minnsta kosti fimm Palestínumenn slösuðust og einn ísraelskur her-
maöur fékk stein í andlitiö. Átökin við landnemabyggöina hófust á laugardag.
Kjarnorkuver í Úralfjöllum:
Litlu mátti muna
að stórslys yrði
Hetjuleg framganga starfsmanna
kjamorkuvers í Úralfjöllunum i
Rússlandi kom í veg fyrir að þar
yrði stórslys á borð við það sem
varð í Tsjemobýl-kjarnorkuverinu í
Úkraínu árið 1986. Það er mesta
kjarnorkuslys sem nokkum tíma
hefur orðið í heiminum.
Þetta er haft eftir Aleksei
Jablokov frá Miðstöð fyrir umhverf-
isvandamál í Rússlandi í breska
blaðinu The Observer í gær. Hann
segir að aðeins hafi munað þrjátíu
mínútum.
Rússnesk yfirvöld fullyrða að full
tök hefðu verið á ástandinu þegar
straumrof varð í þremur kjama-
kljúfum í Belojarskverinu, ásamt
Majakverinu, í síðustu viku.
Fyrstu rannsóknir benda til að
skammhlaup hafi orðið í kjama-
kljúfnum. Ekki liggur ljóst fyrir
hver ástæða skammhlaupsins var
en ekki þykir ólíklegt að slælegu
viðhaldi hafi verið um að kenna.
Skyndilegt straumrof í kjam-
orkuverum, sem eiga að að vera
stöðugt í gangi, getur skapað stór-
hættu, að því er danska fréttastofan
Ritzau hefur eftir breska blaðinu.
Heimildarmenn Observer segja
að ein vararafstöð í Belojarskverinu
hafi ekki farið í gang eins og hún
átti að gera. Af þeim sökum hætti
kælikerfi eins kjarnaofnsins að
virka. Því varð hitastigið í kjama
ofnsins hættulega hátt en starfs-
mönnum tókst að gera við varaafl-
stöðina á hálftíma. Eftir annan hálf-
tíma hefði allt sprungið.
Stuttar fréttir
Rushdie úthúðar London
Breski rithöfund-
urinn Salman
Rushdie, sem ílutti
frá London til New
York fyrir nokkr-
um mánuðum, seg-
ir 1 viðtali við New
York Times að
baknag einkenni
í London og að borg-
engan innblástur.
Lést undir stýri
Danskur rútubílstjóri lést af
hjartaáfalli undir stýri á hraðbraut
á sunnanverðu Sjálandi á laugar-
dag. Slys hlaust af og slösuðust um
þrjátiu farþegar lítillega.
Mannskætt í Kólumbíu
Að minnsta kosti nítján hermenn
og sjö skæruliðar marxista féllu í
hörðum bardögum um eina helstu
smyglleið fyrir vopn og fíkniefni í
Kólumbíu, að því er yfirvöld þar
greindu frá í gær.
Bush biðlar til millistéttar
George W. Bush, ríkisstjóri i
Texas og forsetaefni repúblikana,
biðlaði í gær til bandarískrar milli-
stéttar fyrir kosningamar í haust og
gaf út sérstaka stefnuskrá henni til
handa. Þar er meðal annars rætt
um skatt og menntun.
Sendinefnd til Tsjetsjeníu
Sendinefnd frá Evrópuráðinu
kom til Moskvu í gær á leið sinni til
Tsjetsjeníu þar sem kanna á hvort
Rússar standi við loforð um að
virða mannréttindi í héraðinu þar
sem þeir hafa barist við uppreisnar-
menn síðastliðið ár.
írönum kennt um árás
Stjórn Saddams
Husseins i írak seg-
ir að útsendarar
írana hafi skotið
þremur flugskeyt-
um á íbúðarhverfi i
Bagdad á sunnu-
dag. írakar segja að
einn maður hafi
slasast í árásinni og að fjöldi húsa
hafi eyðilagst.
Aiiir áttburarnir fæddir
ítölsk kona fæddi í gær börnin sjö
sem eftir voru af áttburunum sem
hún gekk með. Eitt barnið dó
fljótlega. Fyrsta barnið af átta
fæddist fyrir helgi.
Hægrimenn sækja á
Kosningabandalag mið- og hægri-
flokka á Ítalíu myndi sigra núver-
andi stjórnarflokka í kosningunum
á næsta ári ef marka má fylgiskann-
anir.
bókmenntalífið
in veiti honum
Hague lofar mótmælendur
William Hague,
leiðtogi breskra
íhaldsmanna, bar í
gær lof á þá sem
tóku þátt í mót-
mælaaðgerðunum
gegn háu eldsneyt-
isverði í Bretlandi á
dögunum. Deilan
varð til þess að Verkamannaflokkur
Blairs missti forskot sitt á íhaldið.
ETA-félagar handteknir
Franska lögreglan handtók um
helgina ellefu menn sem grunaðir
eru um aðild að ETA, aðskilnaðar-
samtökum Baska. Frakkar hafa hert
aðgerðir sínar gegn ETA.