Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Qupperneq 33
53
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
DV
Tilvera
Geráu uel uiá barniá þitt
Skráning er hafin á 14 vikna barnanámskeið í
Heilsugarði Gauja litla sem hefjast 19. og 21. sept.
Barnanámskeiðin eru aldursskipt, 7-9 ára og 10-12 ára.
Námskeiðin eru ætluð
börnum sem eiga við offitu
að stríða. Unnið er náið með
foreldrum sem fá fræðslu frá
næringarráðgjafa, lækni,
hjúkrunarfræðing og öðrum
fræðingum sem málinu
tengjast.
Eftir tveeeia ára reynslu okkar vitum
við að námskeiðið skila goöum
árangri,eykursjálfstraustogl.fegleö.
barnsins þíns. Takmarkaður fjold.
þátttakenda gerir namske.ð.ð
persónulegra og árangursr.kara.
Dagskráin er fjölbreytt með skemmtilegum
nýjungum og fjölda þekktra gestakennara.
HEILSUGARÐUR
GAUJA LITLA
Upplýsingar og skráning í síma 561-8585
Sigurður Flosason gerir fyrsta samning sinnar tegundar á íslandi:
Flotinn endurnýjaður
Loksins, loksins:
Mikki og
Katazeta gift-
ast í New York
Hollywoodstjörnurnar Michael
Douglas og Catherine Zeta Jones hafa
loksins komist að niðurstöðu um hvar
þau ætla að láta pússa sig saman. New
York verður það, heillin, og að athöfn-
inni lokinni verður slegið upp veislu
á hinu glæsilega Plaza-hóteli. Að sögn
breska blaðsins Mirror gerist þetta
þann 18. nóvember.
Talsmaður Michaels sagði blaðinu
að hjónaleysin vildu eyða öllum sögu-
sögnum um veislustaðinn í eitt skipti
fyrir öll.
„Plaza-hótelið í New York var bók-
að fyrir mörgum mánuðum og aldrei
hefur verið spurning um að halda
veisluna annars staðar. Þetta er stór-
kostlegur staður og fullkominn fyrir
stóra daginn þeirra," sagði talsmaður-
inn.
Katazeta hefur stundað líkamsrækt
af kappi frá þvi Dylan, sonur þeirra,
kom í heiminn í ágúst. Hún er stað-
ráðin í að ná aftur fyrra vaxtarlagi áð-
ur en hún klæðist brúðarkjólnum.
„Það er einstakt og algerlega
ómetanlegt að fá svona upp i hend-
urnar,“ segir Sigurður Flosason,
þjóðþekktur saxófónleikari,
flautuleikari, klarínettuleikari með
meiru, þar sem hann stendur í fund-
arherbergi DV umkringdur stóru
safni af dýrindis (og fokdýrum)
hljóðfærum. Hljóðfærahúsið gerði
samning við Sigurð í vikunni, þann
fyrsta sinnar tegundar hér á landi,
um að hann aðstoðaði verslunina
við kynningu á hljóðfærum frá
Yamaha í tvö ár. í staðinn fær hann
til eignar flautur, klarínett og saxó-
fóna af nýjustu og bestu gerð að
heildarverðmæti um 2,7 milljónir
króna.
Sérsmíðuð hljóðfæri
„Samningurinn gengur út á það
að Hljóðfærahúsið endurnýjar
hljóðfærin min, allan flotann, mér
að kostnaðarlausu gegn því að ég
verði talsmaður þessarar frábæru
vöru sem ég hef reyndar notað svo
til eingöngu fram að þessu,“ segir
Sigurður glaðbeittur.
- Þér fmnst ekki að þú sért að
selja þig?
„Nei,“ segir hann, „mér myndi
kannski finnast það ef ég hefði ver-
ið að nota aðrar gerðir hingað til en
fyrsta hljóðfærið sem ég eignaðist,
árið 1973, þegar ég var níu ára, það
var Yamaha flauta og síðan hef ég
að langmestu leyti verið trúr þessu
merki. Minn gamli kennari í Amer-
íku, Eugine Rousseau, einn frægasti
klassíski saxófónleikari í heimi, er
aðalráðgjafi Yamaha í saxófónhönn-
un. Ég var hjá honum í fimm ár og
fylgdist þá með þróun í hönnuninni
frá fyrstu hendi.“
„Þetta byrjaði þannig að Sigurður
fór að skoða bæklinga hjá okkur
með endurnýjun í huga og þá kom í
ljós að hann hafði mestan áhuga á
sérsmíðuðum hljóðfærum, algerri
hágæðavöru sem við höfðum aldrei
flutt inn. Okkur langaði mikið til að
fá svona hljóðfæri til landsins og
þarna var tækifæri,“ segir Jóhann
Ingvason verslunarstjóri.
„Þessi efsti klassi er í rauninni
bara framleiddur eftir pöntunum,"
bætir Sigurður við.
Þeir útskýra að algengt sé erlend-
is að framleiðendur hljóðfæra ráði
sér þekkta hljóðfæraleikara til að
kynna gripina, en hvað þýðir
„kynning" í þessu sambandi?
„Hún þýðir að þeir geta haldið
því á lofti að ég leiki á þessi hljóð-
færi,“ segir Sigurður, „og ég leik
kannski á kynningum fyrir hljóð-
færakennara og þess háttar. Aðal-
lega er þeim frjálst að nota nafnið
mitt í tengslum við þetta merki
þessi tvö ár, svo sjáum við til hvem-
ig samstarfið þróast."
Kemur víða við
„Það er rétt að taka fram að þessi
samningur hindrar Sigurð ekki á
neinn hátt í að nota önnur hljóð-
færi, það væri út í hött,“ segir Jó-
hann. „Hann á sinn gamla Selmer
Sigurður Rosason faömar nýjan tenórsaxófón
Meö honum á myndinni eru átta ný hljóöfæri í viðbót, þrír saxófónar, þrjár flautur og tvö klarínett.
altsaxófón sem hann ætlar ekkert
að skilja við sig. Enda er það fá-
heyrt að sami maðurinn spili á
svona mörg hljóðfæri og noti þau
kannski mörg á sömu tónleikun-
um.“
„Já, ég kem víða við í tónlistarlíf-
inu,“ viðurkennir Sigurður. „Ég
spila fyrst og fremst djass en leik
líka klassíska músík og stundum
popp, starfa mikið í leikhúsum og
spila inn á plötur ... og ég hef ekki
fundið nein önnur hljóðfæri sem
nýtast mér jafnvel á þessum breiða
vettvangi."
-SA
New York, New York
Dásamleg borg, og þess vegna ætla
þau Michael Douglas og Catherine
Zeta Jones aö láta þússa sig saman
þar og hvergi annars staðar.
r