Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Side 4
Vikan 2 2. september til 2 8 . s e a t e m to e r
...1.1—f—Í—ð—E-
F T J R
Ifókus
„Það var frábært á ballinu í gær.
Það var reyndar algjör snilld.
Skólaböll Menntaskólans við Sund
klikka aldrei, Sálin spilaði og allt
gekk snurðulaust. í hléinu voru
svo bara dj-ar. Þessi vika er búin
aö vera mjög erfíð vegna skipu-
lagningar á skólaballinu, þá bæði
gæslumál og miðasala, en allt
gekk þetta vel.“
Ómar Örn Ólafsson, ármaður
Menntaskólans viö Sund og fim-
leikastjarna.
Mjög góð bók
„Ég var mjög ánægður með
lasagnað sem ég fékk um helgina
og kærastan mín útbjó handa mér,
það var alveg frábært. Við vorum
bæði með svona ljósar og grænar
lasagnaplötur og svo var kjötrétt-
urinn sjálfur mjög
góður. Þetta var
svona afmælisveisla
sem var haldin fyrir
mig. Ég var líka að
klára bók sem heitir
Meistarinn og
Margaríta eftir Mik-
ael Búrgakov, mjög
góð bók.“
Birgir ísleifur
Gunnarsson, formaður Nemendafé-
lags MH.
„Nemendafélagið stóð fyrir golf-
móti á föstudaginn; það var haldið
í Hvammsvik i Hvalfirði. Það var
metþátttaka hjá okkur þetta árið,
ég held að það hafi verið hátt í 160
manns. Það var mikið fjör á mót-
inu sjálfu, við grilluðum pylsur og
héldum svo hlöðupartí um kvöld-
ið. Allir skemmtu sér rosalega vel
... ehh, nema kannski einn sem
tók leigubíl heim i bæinn og borg-
aði fyrir það 9000 kall.“
Davíð Már Bjarnason, forseti
Nemendafélags Verzló.
Rífandi stemning
„Það var náttúrlega ball hjá
okkur MR-ingum á fimmtudaginn
á Astró. Maus lék fyrir dansi,
þetta var alveg príma. Ég var al-
veg búinn á fostudag-
inn þannig ég var
bara í rólegheitun-
um um kvöldið. Á
laugardagskvöldið j
fór ég í tvítugsaf- i
mæli hjá bekkjarfé- j
laga mínum, það j
var haldið á j
Dubliners, þar varj
rífandi stemning.
Síðan kíkti maður aðeins á röltið.
Þetta var svona klassískt djamm í
Reykjavík."
Gunnar Thorarensen, inspector
scholae MR.
Dancer in the Dark er nýjasta afkvæmi frænda okkar, Baunans Lars von Triers.
Um er að ræða dans- og söngvamynd sem var verðlaunuð á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes við frumsýningu. Fjölhæfa lukkutröllið Björk leikur aðalhlutverkið,
hina sjónskertu Selmu, og sló íslandsmetið í gullpálma þegar hún var verðlaunuð
sem besta aðalleikkona hátíðarinnar. Auk leiksins samdi hún tónlistina:
Aðstandendur „Myrkradansarans" veita verölaunum móttöku og ræða við fréttafólk á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Von Trier fékk í lið með sér úrval
leikara til að taka lagið og sprella í
Dancer in the Dark. Margir þeirra hafa
lítið fengist við kvikmyndaleik og var
kippt beint af leikhússviðinu og varpað
á hvíta tjaldið. Við handritsgerðina
hafði Trier ekki Björk i huga en í
vinnslunni sá hann myndband hennar
við lagið “It’s oh so Quiet“ og hreifst
af persónunni, ekki siður en söngkon-
unni. Þau hittust og Trier féll fyrir
hugmyndinni um að fela Björk tón-
smíðamar og hafa hana í aðalhlut-
verki.
Brösótt samstarf
Von Trier átti bágt með að ákveða
hvemig tónlist hann vildi nota í mynd-
inni en þegar Björk kom inn í dæmið
varpaði hann boltanum til hennar.
Hún bjó til tónlistina og Trier segist
ánægður með framlagið þó að hann
þyrfti tíma til að venjast lögunum. Dag-
inn sem tökur áttu að hefjast uppgötv-
aði leikstjórinn sér til skelfingar að
hann hafði ekki prófað Björk formlega
fyrir framan myndavél. Ekki kom það
að sök því leikurinn gekk snurðulaust
fyrir sig. Trier segist ekki geta hugsað
sér betri aðalleikara, þó að gengið hafi
á ýmsu þeirra á milli. Hann segir ekk-
ert óeðlilegt að upp komi ágreiningur
þegar ólíkir listamenn, sem era upp-
teknir af að skila góðu verki, leiða sam-
an hesta sína. Björk er óspör að lýsa
hæfileikum Triers en lýsir innra
manni hans sem togstreitu á milli
Napóleons og Línu langsokks.
Heimtaði hlutverk
Fyrst átti Björk aðeins að semja tón-
listina en Lars tókst að sannfæra hana
um að leika Selmu svo að tónlistin
kæmist almennilega til skila og þurfti
miklar fortölur. Björk lét hafa eftir sér
í viðtali að hún hefði engan áhuga á að
verða kvikmyndastjama og liði eins og
hún væri að halda fram hjá tónlistinni
með því að feta sig út á leiklistarbraut-
ina. Hún segist hafa hugsað um tónlist-
ina ailan sólarhringinn. „Ég er búin að
skrifa um mig og mínar tilfinningar á
síðustu þremur plötrnn og nú hður mér
vel með að skrifa frekar um Selmu,"
sagði hún. Mótleikari Bjarkar,
Catherine Deneuve, réð sig hins veg-
ar sjálf til starfa. Hún sendi Trier bón
um að fá hlutverk og hann þurfti eng-
an umhugsunarfrest.
Blind eftir teiknimyndagláp
Sagan er harmleikur. Selma (Björk)
er tékkneskur nýbúi í Bandaríkjunum
árið 1964. Hún þjáist af hræðilegum
augnsjúkdómi, svo hræðilegum að yfir
hann er ekki til latneskt fræðiheiti. Á
endanum munu augu hennar hætta að
nema það sem fyrir þau ber, og hún
neyðast til að fá sér schafer-hund og
hvítan staf fyrir milligöngu Helga
Hjörvars. Selma vinnur eins og
skepna í verksmiðju auðvaldsins til
þess að framfleyta sér og syni sínum,
Gene. Gene hefur erft sjúkdóm móður
sinnar og hætt er við að hann muni
líka missa sjónina ef ekkert verður að
gert. Selma verður að gera tilraun til
þess að koma honum undir læknis-
hendur en slíkt er dýrt. Leyndarmál
Selmu er áhuginn á söngleikjum. Hún
lifir sig inn í atburöarás þeirra, gleym-
ir vandamálum sínum og ber sigurorð
af óréttlæti, eins og von Trapp-familí-
an sigraði nasista með laginu
Edelweiss i myndinni Söngvaseiður. í
frumgerð handritsins, sem Björk fékk í
hendur, þjáðist Selma ekki af augn-
sjúkdómi. Hugmyndin að blindu henn-
ar kviknaði í kolli von Triers eftir að
hann hafði horft á teiknimynd Wamer
Brothers, frá fjórða áratugnum, um
blinda stúlku sem skynjaði heiminn
með augum leikfangadúkku sinnar.
Nýjar og endurunnar að-
ferðir
Að gera söngleik," segir Trier. „En
hver kann að búa til söngleik?,“ spyr
hann. Hann kaus að blanda
tónlistaratriðum saman við önnur í
heimildamyndastíl og notaði
fríhendistökur mikið til að nálgast
raunveruleikan betur. Einnig voru
sumar tökur gerðar á 100 myndavélum,
með ólíkum sjónarhomum. Trier segir
Selma er að vonum ánægð með nýju gleraugun sín, en sér varla hálfa sjón.
þessa leið hafa sparað mikinn tíma og
minnkað útgjöldin. „100 vélar ná öllu
sem gerist á tökustað, spuna leikara og
óvæntar uppákomur og bjóða upp á
færri tilraunir. Dansatriði sem tóku
tvo daga, hefðu tekið tvær vikur með
nokkrum vélurn," segir Bauninn. í
staðinn fyrir að nota sígildar aðferðir i
kvikmyndun á tónlist, að hafa
myndavélina á hreyfingu í samræmi
við tónlistina, með hjálp krana og
vagna, notaði von Trier kyrrar tökur.
Samt vill leikstjórinn ekki eigna sér
heiðurinn af neinu varðandi gerð
myndarinnar. „Til er mergð af
söngleikjum, og engin hugmyndanna
er ný - þetta er allt endurvinnsla,"
viðurkennir hann.
ITéikaralið
| BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR - Selma
(frumraun sem kvikmyndaleikari)
ÍCATHERINE DENEUVE - Kathy
(Repulsion)
IPETER STORMARE - Jeff
(Uie Big Lebowski, Fargo, Awakenings)
IDAVID MORSE - Bill
(The Green Miie. The Negotiator og Twelve Mon-
keys.)
ICARA SEYMOUR - Unda
(American Psycho. The Good Baby og Tbu've got
- Mail)
IJEAN-MARC BARR - Norman
" (The Big Blue, Brimbrot og Europa)
IEUKO IVANEK - lögmaður
(Donnie Brasco, Courage Under Fire og The Associ-
Iate)
JOEL GREY - Oldrich Novy
(Cabaret, The Player og Kafka)
I REATHEL BEAN - dómari
® (Sviösleikari á Broadway, leikift í nokkrum myndum
Iog þáttum.)
LUKE REILLY - vamarráðsmaður
_ (Private Parts, Imaginary Crimes og Bye Bye Blues)
1 SIOBHAN FALLON - Brenda
" (Men in Black, Forrest Gump og Striptease)
IUDO KIER - Dr. Porkomy
(Ógrynnl lélegra hryllingsmynda, Brimbrot, Arma-
Igeddon)
STELLAN SKARSGÁRD - Doctor
(Good Will Hunting, Amistad og The Hunt for Red
j^ctober)