Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 4
20
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000
Sport
Stjarnan-Haukar 26-31
1-0, 2-4, 4-5, 5-7, 8-7, 9-11, 12-11 (13-12),
13-13, 15-13, 16-14, 16-17, 17-20, 19-21,
20-25, 22-26, 23-28, 26-29, 26-31.
Stiarnan
Mörk/viti (skot/viti): Arnar Pétursson,
10/8 (14/8), Eduard Moskalenko, 6 (10),
Hafsteinn Hafsteinsson, 4 (6), Bjarni
Gunnarsson, 2/1 (6/2), Björgvin Rúnars-
son, 2 (8), David Kekilja, 2 (6).
Mörk úr hradaupphlaupum: 6 (Haf-
steinn, 3, Kekilja, 2, Björgvin).
Vitanýting: Skorað úr 9 af 10.
Varin skot/viti (skot á sig): Birkir ívar
Guðmundsson, 17 (47/4, 36%), Árni Þor-
varðarson, 0 (1/1, 0%)
Brottvisanir: 16 mínútur.
Rautt spjald: Kekilja fyrir 3x2 mín.
Haukar
Mörk/viti (skot/viti): Halldór Ingólfs-
son, 10/4 (16/4), Óskár Ármannsson, 5
(8), Einar Örn Jónsson, 5 (7), Petr
Baumruk, 3 (8), Rúnar Sigtryggsson, 3
(7), Jón Karl Bjömsson, 2/1 (2/1), Áli-
aksandr Shamkuts, 1 83), Þorvaröur
Tjörvi Ólafsson, 1 (3), Vignir Svavarsson,
1(2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 5
(Shamkuts, Baumruk, Einar Örn, Jón
Karl, Rúnar).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 5.
Varin skot/víti (skot á sig): Magnús
Sigmundsson, 10 (26/5, 38%), Bjami
Frostason, 5/1 (14/4, 36%), Jónas
Stefánsson, 0 (1/1, 0%).
Brottvísanir: 12 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjarni Viggósson og
Valgeir Ómarsson (5).
Gceói leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins: Eduard
Moskalenko, Stjörnunni
Framarinn Gunnar Berg Viktorsson
reynir hér skot á mark HK f Dígra-
nesi á laugardag en hann er greini-
lega hindraöur af Sverri Björnssyni.
Róbert Gunnarsson, Fram, og Alex-
ander Arnarson, HK, fylgjast meö á
Ifnunni.
DV-mynd E. Ól.
Bland i P oka
Júgóslavneski handknatt-
leiksmaóurinn Slavisa Raka-
novic, sem kom til landsins á
vegum Breiðabliks ekki alls fyr-
ir löngu, er farinn án þess að
spila leik fyrir félagið. Raka-
novic náöi ekki samkomulagi
um laun við stjóm handknatt-
leiksdeildar Breiðabliks.
Brasilíski knattspyrnusnill-
ingurinn Rivaldo hótar að fara
frá félaginu og flytjast aftur til
BrasUíu ef framkoma fólks á
Spáni í hans garð breytist ekki.
Rivaldo hefur verið gagnrýndur
fyrir slaka frammistöðu að und-
anfórnu og segir hann að það sé
vegna öfundsýki. Hann skrifaði
á dögunum undir nýjan sex ára
samning við Barcelona sem fær-
ir honum 450 mUljónir í árslaun
eftir skatta og hann er tUbúinn
tU að gefa eftir hverja krónu í
samningnum og flytja aftur til
BrasUiu ef það er það sem fólk
vUl. Ólíklegt þykir að Barcelona
hleypi honum burtu þar sem
hann er einn af lykilmönnum
liösins.
Svissneska tenniskonan
Martina Hingis er ekki á
flæðiskeri stödd hvað varðar far-
artæki. Um helgina vann hún
belgísku stúlkuna Kim Clijsters í
úrslitaleik FUderstadt-mótsins í
Þýskalandi og fékk að launum
glænýja Porsche-bifreið. Þetta er
þó ekki fyrsta Porsche-bifreiðin
sem Hingis eignast því þetta er
fjórða skiptið sem hún vinnur
þetta mót.
Bandariska tennisstúlkan
Serena Williams bar sigur úr
býtum í Prinessukeppninni í
Tokyo í Japan um helgina. Ser-
ena WiUiams vann frönsku
stúlkuna Julie Halard-Decugis í
tveimur settum, 7--5 og 6-1. Þetta
er áttundi sigur Serenu WiUiams
í einliðaleik en hún varð Ólymp-
iumeistari í tviliðaleik i Sydney
ásamt systur sinni, Venus WiUi-
ams.
-ósk
- hjá íslandsmeisturum Hauka í fyrstu þremur leikjunum
Haukar sóttu tvö stig tU Stjörn-
unnar í Garðabæinn á laugardag
með enn einni markasúpunni þegar
þeir unnu 31-26. Þar með hafa Hauk-
ar gert 103 mörk í fyrstu þremur
leikjum sínum í deUdinni og eru með
fuUt hús stiga.
í byrjun leiksins mátti strax
merkja töluverða spennu miUi lið-
anna, bæði inni á veUinum og á
bekknum. Nokkuð var um að farið
væri í andlitið á mönnum og mis-
ræmi í hvernig dómararnir tóku á
þessum brotum fór í taugamar á
jafnt leikmönnum sem þjálfurum. Oft
kastaðist i kekki miUi leikmanna og
var undirritaður farinn að halda að
dómaramir hefðu strax misst tökin á
leiknum. Fyrri hálfleikur var að öðm
leyti jafn en Stjömumenn höfðu eins
marks forskot í leikhléi.
Leikmenn virtust róast nokkuð eft-
ir hlé og dómararnir náðu aftur tök-
um á leiknum. Stjömumenn náðu
fljótlega tveggja marka forystu en
fengu síðan á sig mikið af brottvisun-
um og þurftu m.a. að vera þrír úti-
leikmenn inn á í hátt í minútu eftir
að hafa fengið á sig brottvísun vegna
rangrar skiptingar. Þennan liðsmun
nýttu Haukar sér og náðu fljótlega
frnim marka forskoti sem Stjömunni
tókst aldrei að saxa neitt á af ráði
þrátt fyrir að Garðbæingar gæfust
aldrei upp og reyndu alltaf sitt besta.
Lokatölur urðu fimm marka sigur
Hauka.
„Þetta var dálítið furðulegur leik-
ur. Við bjuggumst við Stjömumönn-
um sterkum og áttum í vandræðum
með þá, sérstaklega i fyrri hálfleik.
Þá var spenna milli liða og mér
fannst dómararnir kannski ekki taka
hart á sumum brotum. Það er nóg eft-
ir af mótinu. Við höfum verið að
ströggla um miöja deild síðustu 2-3
árin en þetta var eitt skref i átt að
því að vera í toppbaráttunni," sagði
Óskar Ármannsson Haukamaður eft-
ir leikinn en hann fór mikinn undir
lok leiksins þegar sigurinn var að
komast í höfn. Þá áttu Halldór og
Einar Öm einnig góðan leik.
„Við misstum leikinn frá okkur í
seinni hálfleik þegar þeir náðu fimm
marka forskoti og ég var ekki sáttur
við dómgæsluna þegar við fengum á
okkur allar þessar brottvisanir. Ég
var sáttur við fyrri hálfleikinn en
þegar við misstum þá í fimm mörk
var þetta orðið erfitt. Þetta eru
kannski of jöfn lið til að raunhæft sé
að vinna slíkan mun upp,“ sagði
Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörn-
unnar. Ef Stjarnan hefði ekki fengið
á sig þessar brottvisanir hefði leikur-
inn sjálfsagt orðið mun meira spenn-
andi en raunin varð.
Eduard Moskalenko átti frábæran
leik á línunni en hann fiskaði átta
vítaköst í leiknum auk þess að skora
sex mörk og var vörn Hauka í mikl-
um vandræðum með hann. Þá var
Arnar ömggur í vítaköstunum en á
enn eitthvað í land með að ná sér á
fullt eftir meiðslin. -HI
Fram vann 11 marka sigur á HK í Digranesi:
Ahugaleysi
Fram sigraði HK, 30-19, í Digra-
nesi á laugardaginn í bragðdaufum
leik. Þeir voru frekar áhugalausir og
daufir leikmenn liðanna í leik þeirra
á laugardaginn. Hvort staðan í leik
Islands og Tékklands hefur haft þar
áhrif skal ósagt látið en að minnsta
kosti var fátt í leik liðanna sem
gladdi augað.
Fyrri hálfleikur var jafn á öllum
tölum þangaö til Fediouhine, þjálfari
Fram, setti son sinn í homið og var
með 3 skyttur utan við. Við þetta
riðlaðist varnarleikur Kópavogsbúa
og Framarar hófu að síga fram úr.
Þaö var svo ljóst strax í upphafi
seinni hálfleiks að ræða þjálfara
Fram hafði vakið leikmenn hans
meira en ræða Páls Ólafssonar, þjálf-
ara HK. Seinni hálfleikurinn var
eign Fram og breikkaði bilið hægt og
sígandi allan leikinn. Til marks um
muninn á liðunum í þessum leik er
að Framarar nýttu 62% sókna sinna
á meðan HK nýtti 38%. í seinni hálf-
leik var munurinn enn meiri, Fram
nýtti 72% en HK 37%.
Lið HK verður að gera betur en í
þessum leik ef það ætlar ekki að
lenda í slæmum málum í vetur. Liðið
virtist áhugalaust og vantaði alla
baráttu í það. Það leyfði Frömumm
að labba fram hjá sér hvað eftir ann-
að. Það var því skondið í stöðunni
19-29 að þá heyrðist í HK-vöminni,
„ekki mark!“ Svolítið seint í rassinn
gripið en vel meint engu að siður.
HK-liðið var i meðalmennskunni í
þessum leik. Þó var Jaliesky Garcia
ógnandi eins og áður, stór leikmaður
sem fer mikið á þyngd sinni. Ólafur
V. Ólafsson hóf leik í seinni hálfleik
og átti margar skemmtilegar
stoðsendingar en varð fyrir því óláni
að meiða sig á hné og lék því ekki
meira. Aðrir leikmenn HK verða að
gjöra svo vel að taka til hjá sjálfum
sér ef þeir ætla ekki að leika í hinni
fáliðuðu deild, 2. deild, að ári.
Lið Fram var mjög jafnt í þessum
leik. Það verður þó ekki dæmt af
honum. Til þess var mótstaðan of lít-
il, sérstaklega í seinni hálfleiknum.
Eins fyrr sagði nýtti Fram sóknir
sínar mjög vel og voru allir leikmenn
liðsins að skila sínu í þeim málum.
Hjátmar Vilhjálmsson fór þó fremst-
ur í flokki og ógnaði mjög vel og spil-
aði félaga sína uppi. Það má einnig
geta góðrar nýtingar Björgvins Þ.
Björgvinssonar, Vilhelms G. Berg-
sveinssonar og Róberts Gunnarsson-
ar. Undir lok leiksins kom ungur og
efnilegur markvörður inn á hjá Fram
og vakti hann mikla athygli, varði 6
af fyrstu 8 skotunum sem komu á
markið. Þarna er greinilega efnilegur
markvörður á ferð. -RG
HK-Fram 19-30
1-0,1-2, 4-3, 6-6, 6-8, 7-10, 9-10 (9-12),
9-13,10-13, 10-15, 12-18, 13-21,16-24,
19-26,19-30.
IJK
Mörk/viti (skot/viti): Jaliesky Garcia,
7/1 (17/1), Alexander Amarson, 3 (4),
Stefán F. Guðmundsson, 3 (6), Óskar E.
Óskarsson, 2 (5), Sverrir Bjömsson, 2 (8),
Guðjón Hauksson, 1 (3), Karl Grönvold, 1
(2), Samúel Ámason, (1), Birgir Stefáns-
son, (1), Ágúst Örn Guðmundsson (1),
Ólafur V. Ólafsson (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 0
Vítanýting: Skorað úr 1 af 1.
Varin skot/víti (skot á sig):
Hlynur Jóhannesson 9 (30/2,30%), Amar
Freyr Reynisson 1 (10,10%).
Brottvisanir: 10 mínútur (Alexander
Amarson rautt á 40. mín, þriðja brottvís-
un.).
Fram
Mörk/viti (skot/viti): Hjálmar Vil-
hjálmsson, 5 (8), Róbert Gunnarsson, 5
(6), Björgvin Þ. Björgvinsson, 4 (4), Vil-
helm G. Bergsveinsson, 4 (4), Gunnar
Berg Viktorsson, 4/1 (11/2), Ingi Þór Guð-
mundsson, 2 (4), Njörður Ámason, 2 (5),
Maxim Fediouhine, 2 (2), Guðjón F.
Drengsson, 1 (2), Þorri B. Gunnarsson, 1
(1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Maxim,
Ingi Þór, Vilhelm, Róbert).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 2.
Varin skot/viti (skot á sig): Sebastian
Alexandersson 11 (25/1, 44% ), Magnús
Erlendsson 6 (11, 55%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Þorlákur Kjartans-
son og Einar Sveinsson (6).
Gϗi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 102.
Maður leiksins: Hjálmar
Vilhjálmsson, Fram